Morgunblaðið - 13.12.2002, Blaðsíða 75

Morgunblaðið - 13.12.2002, Blaðsíða 75
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2002 75 DAGBÓK Árnað heilla 50 ÁRA afmæli. Mið-vikudaginn 18. des- ember verður fimmtugur Guðjón Egilsson, Dælengi 8, Selfossi. Hann og kona hans, Ólína María Jónsdótt- ir, taka á móti gestum í Þingborg laugardaginn 14. desember kl. 19. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 4. ágúst sl. í Berunes- kirkju af sr. Sjöfn Jóhann- esdóttur þau Hrafnhildur Helgadóttir og Þórir Ólafs- son. Heimili þeirra er í Reykjavík. Ljósmyndarinn í Mjódd BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 17. ágúst sl. í Lága- fellskirkju af sr. Pálma Matthíassyni þau Sigrún Vöggsdóttir og Stefán Þór Jónsson. Ljósm. Jóh. Valg. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 14. september sl. í Skálholtskirkju af sr. Óskari Inga þau Guðrún Svava Hlöðversdóttir og Bragi Sigþórsson. Heimili þeirra er í Víðiási 4, Garðabæ. LJÓÐABROT KVÖLD Nú blika við sólarlag sædjúpin köld; ó, svona’ ætti’ að vera hvert einasta kvöld, með hreinan og ljúfan og heilnæman blæ, og himininn bláan og speglandi sæ. Ó, ástblíða stund, þú ert unaðsæl mjer, því alt er svo ljómandi fagurt hjá þjer, og hafið hið kalda svo hlýlegt og frítt, og hrjóstruga landið mitt vinlegt og blítt. Þorsteinn Erlingsson 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. cxd5 Rxd5 5. e4 Rxc3 6. bxc3 Bg7 7. Rf3 c5 8. Hb1 O-O 9. Be2 cxd4 10. cxd4 Da5+ 11. Bd2 Dxa2 12. O-O a5 13. Bg5 a4 14. Bxe7 He8 15. Bd6 Hxe4 16. Hc1 Rc6 17. Bc4 Db2 18. Hb1 Dc3 Staðan kom upp á Ólympíu- skákmótinu í Bled sem lauk fyrir nokkru. Petr Haba (2.534) hafði hvítt gegn Hand- scar Odeev (2.461). 19. Bxf7+! Kxf7 20. Rg5+ Kg8 21. Rxe4 Dxd4 22. De2 Be6 23. Hxb7 Bc4 24. Dc2 Bxf1 25. Dxc6 Bb5 26. Hxg7+! Kxg7 27. Db7+ Kh6 28. Bf4+ g5 29. Bxg5+ Kg6 30. h4 og svartur gafst upp enda erfitt að eiga við allar hótanir hvíts. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. SPIL dagsins er frá haust- leikunum í Phoenix, sem nú er nýlokið. Bandaríkjamað- urinn Dennis Sörensen varð sagnhafi í sex laufum og fékk á sig eitraða vörn – laufás og meira lauf: Norður ♠ ÁD9876 ♥ 9 ♦ ÁD104 ♣108 Vestur Austur ♠ K3 ♠ G1052 ♥ G76 ♥ D1052 ♦ KG987 ♦ 532 ♣Á52 ♣64 Suður ♠ 4 ♥ ÁK843 ♦ 6 ♣KDG973 Sér lesandinn vinnings- leið á opnu borði? Sörensen ákvað auðvitað fyrst að gera út á spaðann. Hann tók þriðja trompið og svínaði svo spaðadrottningu. Tók spaðaásinn og trompaði spaða, en ekki féll liturinn. Þá var ekki um annað að ræða en spila upp á fjarlæga kastþröng. Sörensen tók öll trompin. Þetta er staðan áð- ur en síðasta trompinu er spilað: Norður ♠ 9 ♥ 9 ♦ ÁD104 ♣– Vestur Austur ♠ – ♠ G ♥ G76 ♥ D105 ♦ KG9 ♦ 53 ♣– ♣– Suður ♠ – ♥ ÁK84 ♦ 6 ♣7 Sörensen spilaði laufsjö- unni og vestur varð að henda hjarta. Austur var ekki enn í vanda og henti tígli, en það var aðeins stundarfriður. Sörensen svínaði tígul- drottningu og þvingaði aust- ur í hálitunum með tígulásn- um. Austur henti hjarta og hjartaátta suðurs varð tólfti slagurinn. Tvöföld kast- þröng í áföngum. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake BOGMAÐUR Afmælisbörn dagsins: Afmælisbarn dagsins er at- hafnasamt og lítið fyrir að velta hlutunum of lengi fyrir þér. Það er sannur vinur. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú gerir miklar kröfur til annarra en þarft að læra að meta það að fólk hafi gert sitt besta. Svo má líka alltaf koma sér upp nýjum draumi. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú sættir þig ekki við neina yfirborðsmennsku í dag. Þú munt ekki tapa á því í þetta sinnið. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Það getur verið erfitt og tímafrekt að vinna aðra á sitt band. Það skaltu gera eins og þér best þykir en mundu bara að ganga ekki á annarra rétt. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Vertu óhræddur við að segja hug þinn allan við þinn nánasta ástvin. Settu takmörk á útgjöldin og haltu þig við það. Batnandi fólki er best að lifa. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Það er ekki stórmannlegt að geta ekki beðist afsök- unar á mistökum sínum. Sinntu því fólki sem þarfn- ast þín. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Það getur reynst erfitt að ná landi, þegar dimmt er og slæmt í sjó. Það er í lagi að gera framtíðaráætlanir ef þú reynir líka að njóta augnabliksins. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Það getur reynst mikil kúnst að segja nei, þegar það á við. Gakktu ótrauður til verks. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Oft var þörf en nú nauðsyn að þú gerir ráðstafanir varðandi framtíðina. Taktu þeim fagnandi því allt er breytingum háð. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú ert með óþarflega mikl- ar áhyggjur af fjárhagnum en hann er ekki eins slæm- ur og þú heldur. Gleymdu ekki að gefa þínum nánustu tíma og umhyggju. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Það eru alltaf að bætast við nýir hlutir, sem þið þurfið að kunna skil á. Reyndu að breyta þessu. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Gættu þess að missa ekkert út úr þér sem þú þarft að iðrast síðar meir. Forðastu öll óþarfa útgjöld, það eru þau, sem skemma fyrir þér. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Reiðin getur leikið mann illa á sál og líkama. Það er sjálfsagt að leita sér aðstoð- ar og láttu frýjunarorð ann- arra fram hjá þér fara. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. MAILLET-Consor er fæddur 1976 og óskar eftir íslenskum pennavini. Hann skrifar á ensku og frönsku. Maillet-Consor Alexandre, 59 Rue Peht, 75019 Paris, France. MONA Parikh óskar eftir íslenskum pennavinum. Hún hefur áhuga á íslenskri menningu. Netfangið hennar er: virgo1996@eart hlink.net HEIKE Bran, sem er 23 ára háskólanemi, óskar eftir íslenskum pennavinum í há- skóla. Heike hefur áhuga á hestum, bókum og tónlist. Heike Brandenburg, Franz-Volk-Strasse 23a, 77652 Offenburg. heikebran@aol.com SANDRA óskar eftir ís- lenskum pennavinum. Sandra Soudain, 23 rue Jaquemars Giélée, 59000 Lille, France. sandrabea@yahoo.com ERWIN er 20 ára sjó- maður frá Filippseyjum. Hann óskar eftir að skrifast á við íslenskar konur á líkum aldri. Hann hefur áhuga á skák, gönguferðum, söng og bréfaskriftum. Erwin B. Castello, Ilat South, San Pascual, Batangas, Philippines. Pennavinir KIRKJUSTARF Hallgrímskirkja. Eldriborgarastarf í dag kl. 13. Leikfimi, æfingar við allra hæfi, undir stjórn Jóhönnu Sigríðar. Súpa, kaffi og spjall. Allir velkomnir. Laugarneskirkja. Mömmumorgunn kl. 10 í umsjá Aðalbjargar Helgadóttur. Kaffispjall fyrir mæður, góð upplifun fyrir börn. Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 8–10 ára drengi á laugardögum kl. 11. Starf fyrir 11–12 ára drengi á laugardögum kl. 12.30. Boðunarkirkjan, Hlíðasmára 9. Sam- komur alla laugardaga kl. 11–12.30. Lofgjörð, barnasaga, prédikun og bibl- íufræðsla. Barna- og unglingadeildir á laugardögum. Létt hressing eftir sam- komuna. Allir velkomnir. Biblíufræðsla alla virka daga kl. 10, 13 og 22 á FM 105,5. Fríkirkjan Kefas. Í dag er fræðsla, spjall og leikur fyrir 11–13 ára börn. Þessar samverustundir miða að því að þjóna til þeirra sem eru 11–13 ára. Allir á þessum aldri eru hjartanlega velkomnir. Stundin hefst kl. 19.30 og stendur til 21.30. Þingvallakirkja. Aðventustund í kvöld 13. desember kl. 20. Sjöundadags aðventistar á Íslandi: Samkomur á laugardögum: Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Biblíu- fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Björgvin Snorrason. Garð- ar Thor Cortes syngur einsöng. „Daga- munur í desember“ kl,. 16. Tónleikar Garðars Cortes og Óperukórsins. Loftsalurinn Hólshrauni 3, Hafnarfirði: Guðsþjónusta/Biblíufræðsla kl. 11. Ræðumaður Eric Guðmundsson. Biblíurannsókn og bænastund á fimmtudögum kl. 20. Safnaðarheimili aðventista, Blika- braut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðu- maður Gavin Anthony. Biblíurannsókn og bænastund á föstu- dögum kl. 20. Safnaðarheimili aðventista, Gagn- heiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Maxwell Ditta. Biblíurannsókn og bænastund á Breiðabólstað í Ölfusi á miðvikudög- um kl. 20. Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest- mannaeyjum: Biblíufræðsla/guðsþjon- usta kl. 10.30. Safnaðarstarf LJÓSAMESSA verður í Landakoti í dag kl. 18. Í almanaki kirkjunnar er 13. desember minningardagur heil- agrar Lúsíu, meyjar og píslarvotts á Sikiley (3. öld). Nafnið „Lúsía“ á rót sína að rekja til latneska orðs- ins „lux“, sem þýðir ljós og birta. Þannig er heilög Lúsía boðberi ljóssins þegar myrkur skammdeg- isins eykst. Samkvæmt gömlum hefðum er sérstök messa haldin í aðventu sem kölluð er „ljósamessa“. Slökkt er á öllum rafmagnsljósum og kirkjugestir eru með kerti í hendi alla messuna. Lesið verður úr sögu Lúsíu helgu úr Heilagra manna sögu. Að messu lokinni er öllum boðið upp á kaffi, heitt súkkulaði og smákökur í safnaðarheimilinu. Tónleikar í Laugarneskirkju KÓR Laugarneskirkju heldur að- ventu- og jólatónleika í dag, föstu- daginn 13. desember, í Laugarnes- kirkju. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00. Efnisskráin er blönduð og auk hefðbundinna aðventusöngva verða einnig fáheyrðari lög eins og Jólabæn Gísla á Uppsölum við gullfallegt lag Ómars Ragn- arssonar. Einsöng með kórnum syngja Laufey Geirlaugsdóttir og Þorvaldur Halldórsson. Stjórnandi kórsins er Gunnar Gunnarsson, organisti kirkjunnar. Aðgangs- eyrir er kr. 1.000. Aðventukvöld í Skeiðflatarkirkju í Mýrdal AÐVENTUKVÖLD verður í Skeiðflatarkirkju í Mýrdal nk. laugardagskvöld, 14. desember, kl. 20:30. Nemendur úr 1.–4. bekk Grunn- skóla Mýrdælinga syngja undir stjórn Önnu Björnsdóttur. Kór Skeiðflatarkirkju syngur undir stjórn Kristínar Björnsdóttur organista. Vigfús Þór Hróbjarts- son leikur á trompet og Andrína Erlingsdóttir á þverflautu. Jóla- saga, bæn og almennur söngur. Eftir samkomuna efnir Kven- félag Dyrhólahrepps, að venju, til kaffisölu í Ketilsstaðaskóla til styrktar Skeiðflatarkirkju. Fjöl- mennum. Sóknarprestur. Ljósamessa í Landakoti Laugavegi 84, sími 551 0756 Stuttir og síðir kjólar Dragtir og hvítar pífublússur Spariskór Bankastræti 11 • sími 551 3930 Kringlunni, sími 553 2888 Glæsilegt úrval af skóm á alla fjölskylduna Ath. 30% afsláttur af öllum töskum fram að jólum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.