Morgunblaðið - 13.12.2002, Blaðsíða 84
FRAMKVÆMDIR hjá verktökum í bygg-
ingariðnaði og jarðvinnu eru í fullum gangi
þótt komið sé fram í miðjan desember. Víða
rísa íbúðarhús og skrifstofubyggingar og
töluvert er að gera í malbikunarfram-
kvæmdum.
Sigþór Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Hlaðbæjar-Colas, segir verkefnastöðuna
líka og á miðju sumri. „Þetta er mjög gleði-
legt fyrir alla. Í malbikunarstarfsemi hefur
jafnan þurft að fækka fólki á haustin en við
höfum ekki enn þurft að grípa til þess,“ seg-
ir hann. Loftur Árnason, yfirverkfræðingur
hjá Ístaki, segir stöðuna á framkvæmdum
hjá fyrirtækinu ágæta miðað við árstíma.
Meðal annars sé Ístak að reisa skrifstofu-
byggingu við Engjateig, íþróttamiðstöð í
Laugardal og vopnageymslu og fleiri bygg-
ingar fyrir varnarliðið á Keflavíkurflugvelli.
Verktakar
vinna líkt og
um hásumar
Allt á útopnu/30
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
– leiðandi í lausnum
Skeifunni 17AcoTæknival Sími 550 4000 Fax 550 4001
FULLTRÚAR foreldra, grunn-
skóla- og leikskólakennara og at-
vinnulífsins eru sammála um að til
bóta væri að samræma starfsdaga
leikskóla og grunnskóla að einhverju
leyti. Frumkvæðið þarf þó að koma
úr skólunum sjálfum en Reykjavík-
urborg leggur áherslu á að auka
sjálfstæði skólanna og miðstýra
þeim ekki.
Ýmiskonar frídagar barna í leik-
skólum og grunnskólum geta valdið
foreldrum erfiðleikum og þar með
atvinnulífinu. Samtök atvinnulífsins
hafa t.d. kallað eftir því að starfs-
dagar í skólunum verði skipulagðir
með skilvirkari hætti til hagsbóta
fyrir fyrirtækin í landinu.
Nú er skólum frjálst að setja vetr-
arleyfi inn á skóladagatal og hafa
flestir nýtt sér þann möguleika.
Lítil hefð fyrir vetrarfríum
Gagnrýnt hefur verið að vinnu-
markaðurinn komi ekki til móts við
vetrarfrí barnanna og lítil hefð hefur
skapast hér á landi fyrir vetrarfrí-
um. Að mati Samtaka atvinnulífsins
kemur til greina að skoða hvort ráð
væri að hér á landi þróaðist hefð fyr-
ir tilteknum vetrarfrídögum með al-
mennri orlofstöku á vinnumarkaðn-
um.
Hafa Samtök atvinnulífsins lýst
sig reiðubúin til samstarfs um að
koma orlofsmálum hér á landi í fast-
ari skorður.
Vilja samræma starfsdaga
Starfsdagar/B2
SAMNINGANEFNDIR Landsvirkjunar og
Alcoa sátu á fundi í gærkvöldi og fram á nótt þar
sem unnið var að gerð raforkusamnings vegna
álvers í Reyðarfirði.
Hvorugur samningsaðili vildi tjá sig við
Morgunblaðið um niðurstöðu fundarins þar sem
ætlunin var að hittast á ný í dag. Óvíst er hvort
tekst að árita alla samninga við Alcoa í dag eins
og stefnt hafði verið að.
Aðrir samningar en um verð á orku frá Kára-
hnjúkavirkjun til álvers Alcoa eru að flestu eða
öllu leyti tilbúnir til áritunar, samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins, en um er að ræða
lóðarsaminga í Reyðarfirði, samninga um hafn-
araðstöðu við Fjarðabyggð og fjárfestingar-
samning við stjórnvöld.
Vel staðið að tilboði Impregilo
Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi
Landsvirkjunar, segir að ekkert óvænt hafi
komið upp í samningum um raforkuverðið. Ver-
ið sé að hnýta lausa enda og hafi úrvinnsla
samningsins tekið lengri tíma en ætlað var. Þá
segir Þorsteinn að yfirferð á tilboðum í stíflu og
aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjunar gangi vel
og sé í ákveðnu samhengi við lokasprett
viðræðnanna við Alcoa. Lægsta boðið frá
Impregilo líti vel út og ljóst að vel hafi verið að
því staðið að öllu leyti. Minnir Þorsteinn á að
það hafi verið Ítalarnir sem í tvígang fóru fram á
frestun á opnun tilboða og það sé m.a. til marks
um þá miklu vinnu sem þeir hafi lagt í málið.
Öll atriði eru frágengin
nema orkuverðið
Samkomulag/10
Samningar við
Alcoa á lokastigi
„ÉG átti nóg eftir á meðan keppinautarnir
hægðu á ferðinni. Þetta stóð nú ansi tæpt
en ég náði þeim á síðustu tveimur metr-
unum,“ sagði Örn Arnarson, eftir að hann
varð Evrópumeistari í 200 m baksundi í 25
m laug á Evrópumeistaramótinu í Riesa í
Þýskalandi í gær. Þetta er í fjórða sinn á
sl. fimm árum sem Örn vinnur til gull-
verðlauna í þessari grein á Evrópumeist-
aramóti, en hann missti af mótinu í fyrra
vegna meiðsla. Örn synti í gær á 1.54,00
mín., sem er 1,1 sekúndu frá Íslands- og
Norðurlandameti hans.
Örn átti besta viðbragðið í sundinu en
tókst ekki að fylgja því eftir sem skyldi.
Hann var í fjórða sæti þegar 50 og 100 m
voru búnir og þriðji þegar 150 m voru að
baki. Á síðustu 50 metrunum sýndi hann
hins vegar styrk sinn og kom í mark hálfri
sekúndu á undan Evrópumethafanum,
Goran Kozulj, frá Króatíu, sem hafði for-
ystu fyrstu 150 metrana. Þess má til gam-
ans geta að Örn er næstyngstur sund-
mannanna átta sem kepptu um gullið í
úrslitasundinu, 21 árs.
„Ég átti
nóg eftir“
AP
Náði þeim/C1
ÞAÐ var engu líkara en gestir á
forsýningu annars hluta Hringa-
dróttinssögu í Laugarásbíói í
gærkvöldi hefðu verið að reyna
að koma sér inn á alþjóðlegan
flugvöll ef marka má viðbúnaðinn
sem hafður var við sýninguna.
Voru gestir grandskoðaðir með
málmleitartæki áður en þeir
fengu að ganga inn í bíósalinn,
leitað var í töskum þeirra og ör-
yggisverðir fylgdust af eftirtekt
með þeim meðan á sýningu stóð.
Að sögn Jóns Gunnars Geirdal,
markaðsstjóra Hringadrótt-
inssögu á Íslandi, er viðbúnaður-
inn tilkominn vegna skilyrða sem
framleiðendur myndarinnar settu
fyrir forsýningum á myndinni
sem fram fara fyrir 18. desember,
en það er frumsýningardagur
myndarinnar í Ameríku. „Meðal
annars fengum við sendan mann
hingað að utan á þriðjudag frá
Securitas í Noregi en þeir eru í
samvinnu við fyrirtæki á Ítalíu
sem sér um öryggisgæslu á öllum
forsýningum Hringadróttinssögu
í Evrópu,“ segir hann og stað-
festir að öryggisgæslan sé gíf-
urleg.
Fari ekki á Netið
En hver er svo tilgangurinn
með öllum þessum viðbúnaði?
„Aðalöryggisatriðið er að fólk sé
ekki að taka myndir og færa inn á
Netið,“ segir Jón Gunnar og
bendir á að framleiðendur stór-
mynda undanfarin ár hafi sann-
arlega fundið fyrir slíku.
Aðspurður segir hann að eng-
inn hafi verið nappaður við
myndatökur á þeim sýningum
sem búnar eru.
Tölvuþrjótar svífast einskis
„Fólk hefur virt þetta hingað til
en við vitum að tölvuþrjótarnir á
Netinu svífast einskis þannig að
kannski þarf þetta til. Hér á Ís-
landi brosir maður út í eitt yfir
þessum viðbúnaði en þegar millj-
arðar eru í húfi og búið er að
leggja allt að veði þá skilur maður
að þetta skiptir gríðarlegu máli.“
Morgunblaðið/Halldór KolbeinsÖryggisgæslan í Laugarásbíói í gærkvöldi virtist koma einhverjum sýningargestanna á óvart.
Leitað á bíógestum
♦ ♦ ♦