Morgunblaðið - 13.12.2002, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2002 69
HÚSNÆÐI ERLENDIS
Spánn um jólin!
Barcelóna — Menorca
Lausar íbúðir um jól og áramót.
Tekið við pöntunum fyrir næsta ár.
Uppl. gefur Helen í síma 899 5863.
KENNSLA
Hótel- og matvælaskólinn
Starfsréttindanám
Matartæknanám — fullorðinsfræðsla
Nám og kennsla
Matartæknanám hefst í byrjun janúar 2003.
Námið dreifist á þrjár annir auk starfsnáms
á viðurkenndum verknámsstað. Kennsla fer
fram fjóra daga í viku frá kl. 14.30—19.00 og
stendur fram í maímánuð. Námsgreinar eru
auk verklegra þátta, næringarfæði, tölvufræði,
örverufræði, innkaup og kostnaðareftirlit.
Innritun og inntökuskilyrði
Rétt til náms hafa þeir sem eru orðnir 25 ára
og eldri og hafa að minnsta kosti þriggja ára
starfsreynslu á matvælasviði.
Umsóknir
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást
á skrifstofu skólans.
Umsóknareyðublöð finnast einnig á heimasíðu
Menntaskólans í Kópavogi, http://mk.
ismennt.is . Með umsókn þarf að skila starfs-
lýsingu, vottorði um vinnutíma og meðmæli.
Umsóknarfrestur er til 16. desember 2002.
Hótel- og matvælaskólinn,
Menntaskólinn í Kópavogi
v. Digranesveg, 200 Kópavogur.
Sími 594 4000,
netfang: baldurs@ismennt.is .
STYRKIR
Auglýsing um styrki úr
Endurmenntunarsjóði
grunnskóla 2003
Auglýst er eftir umsóknum í Endurmenntunarsjóð
grunnskóla árið 2003. Sjóðurinn er í vörslu
menntamálaráðuneytisins og sér þriggja manna
stjórn um að meta umsóknir og gera tillögur til
menntamálaráðherra um styrkveitingar.
Um framlög úr sjóðnum geta sótt þeir sem hyggj-
ast standa fyrir endurmenntun fyrir grunnskóla-
kennara, t.d. skólaskrifstofur, sveitarfélög, skólar,
kennaramenntunarstofnanir, félög og fyrirtæki.
Gert er ráð fyrir að námskeiðum verði að fullu
lokið eigi síðar en við lok skólaársins 2003—2004.
Verði ekki unnt að ljúka námskeiðum innan þeirra
tímamarka fellur styrkveiting niður en hægt er
að sækja um að nýju við næstu úthlutun.
Þær umsóknir einar koma til álita sem sýna að
byggt sé á:
að endurmenntunartilboð mæti þörfum
grunnskólans,
skólastefnu og aðalnámskrá,
fagmennsku og gæðum.
Sjóðurinn veitir ekki fé til ferða og uppihalds
kennara sem njóta endurmenntunarinnar.
Í umsóknum skal gefa ítarlegar upplýsingar um
hvers konar endurmenntunartilboð umsækjandi
hyggst bjóða fram, m.a. markmið námsins, stað
og tíma, áætlaðan fjölda þátttakenda, skipulag
kennslu, stjórnun, ábyrgðarmann og annað það
sem máli kann að skipta við mat á umsókn.
Einnig skal leggja fram sundurliðaða kostnaðar-
áætlun.
Þegar fyrir liggur ákvörðun um hverjir fá styrk
verður gerður sérstakur samningur um hvert end-
urmenntunarverkefni þar sem fram kemur m.a.
lýsing á markmiðum og fyrirhugaðri framkvæmd
og hvernig greiðslum verður háttað.
Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðuneyt-
inu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, í síðasta lagi
31. janúar 2003, á sérstökum eyðublöðum sem
liggja frammi í menntamálaráðuneytinu og á vef
ráðuneytisins.
Upplýsingar um Endurmenntunarsjóð grunn-
skóla, reglur sjóðsins o.fl. er að finna á vef
menntamálaráðuneytisins: www.menntamala-
raduneyti.is .
Menntamálaráðuneytið,
9. desember 2002.
menntamalaraduneyti.is
TILKYNNINGAR
Auglýsing um
deiliskipulag í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og bygg-
ingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum,
eru hér með auglýstar til kynningar tillögur að
deiliskipulagsáætlunum og breytingum á
deiliskipulagsáætlunum fyrir eftirtalin svæði í
Reykjavík:
Reitur 1.172.1
Tillagan tekur til reits sem afmarkast af Lauga-
vegi, Vatnsstíg, Hverfisgötu og Frakkastíg. Um
er að ræða tillögu að deiliskipulagi sem sam-
þykkt var til auglýsingar í borgarráði 3.
desember 2002.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir því að reiturinn verði
fyrst og fremst styrktur með nýbyggingum,
heimilt verði að fjarlægja hús og ný byggð í
staðinn. Heimilt verður að byggja verslunar-
hæðir á baklóðir frá Laugavegi og Hverfisgötu
og tengja saman eftir þörfum. Á Laugavegi er
lagt til að heimilt verði að rífa hús nr. 33, 35, 41
og 45.
Þá gerir tillagan ráð fyrir að heimilt verði að
byggja í skarðið á lóðinni nr. 60 við Hverfisgötu
og jafnframt verði heimilt að rífa nr. 58 og
byggja nýtt í staðinn.
Í tillögunni er m.a. áréttað að á götuhæð jarð-
hæða húsa á Laugaveginum gildi skilmálar um
landnotkun sem samþykktir voru með breyt-
ingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016,
sem staðfest var í júlí 2000. Jafnfram að
óheimilt verði að reka næturklúbba á reitnum.
Reitur 1.172.2
Tillagan tekur til reits sem afmarkast af Lauga-
vegi, Frakkastíg, Grettisgötu og Klapparstíg.
Um er að ræða tillögu að deiliskipulagi sem
samþykkt var til auglýsingar í borgarráði 3.
desember 2002.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að áfram verði
blönduð byggð og götumynd verði styrkt með
m.a. að heimilt verði að rífa hús nr. 22a, 28b og
38 við Laugaveg og reisa þar nýbyggingar,
einnig á auðri lóð nr. 40. Á Laugavegi 28, 28b,
30, 38, 40 og 40a verður leyfilegt að byggja
jarðhæð og kjallara að lóðarmörkum.
Þá gerir tillagan einnig ráð fyrir hækkun á
Laugavegi 32b, bakhúsi, í 3 hæðir, á Laugavegi
34a og 36 heimild til nýbyggingar á baklóð og
38b heimild til niðurrifs og nýbyggingar. Bíla-
stæði milli Grettisgötu 9 og 11 haldast óbreytt.
Í tillögunni er m.a. áréttað að á götuhæð jarð-
hæða húsa á Laugaveginum gildi skilmálar um
landnotkun sem samþykktir voru með breyt-
ingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016,
sem staðfest var í júlí 2000. Jafnframt að
óheimilt verði að reka næturklúbba á reitnum.
Reitur 1.180.2
Tillagan tekur til reits sem afmarkast af
Hallveigarstíg, Bergstaðastræti, Spítalastíg og
Ingólfsstræti. Um er að ræða tillögu að deili-
skipulagi sem samþykkt var til auglýsingar í
borgarráði 3. desember 2002.
Öll hús á reitnum njóta verndar (VB) að undan-
skildu Bergstaðastræti 10a og Hallveigarstíg
10, þ.e. þeim hluta sem byggður var 1962.
Þá gerir tillagan einnig ráð fyrir að byggja megi
eina hæð ásamt risi ofan á Hallveigarstíg 10,
Bergstaðastræti 10 og 10b og stórri viðbygg-
ingu við Bergstaðastræti 12 og á Spítalastíg 1
er heimilt að byggja einnar hæðar hús með
kjallara á baklóð, einnig er heimilt að fjarlægja
skúrbyggingu á norðurhluta lóðar Ingólfs-
strætis 23.
Tillögurnar liggja frammi í sal skipulags- og
byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka
daga kl. 10.00 – 16.00 frá 13.12. 2002 - til
24.01. 2003. Eru þeir sem telja sig eiga hags-
muna að gæta hvattir til að kynna sér tillög-
urnar. Ábendingum og athugasemdum við þær
skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eigi síðar
en 24.01. 2003.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins
frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 13.12. 2002.
Skipulagsfulltrúi
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
Skora á Reyðarál og Alcoa
að kynna sér rækilega meint ólögmætt ferli að
Kárahnjúkavirkjun svo sem: Leynd um ráðgerða
arðsemi sem er forsenda gilds umhverfismats,
leynd um lögfræðiálit, takmarkaðar grunnrann-
sóknir, sem tvö „risaflóð“ í Lagarfljóti staðfesta,
breytingar á niðurstöðum vísindamanna og
vanhæfi skipulagsstjóra og umhverfisráðherra
til úrskurðunar. Hef staðfestingargögn.
Tómas Gunnarsson, lögfr.,
Suðurlandsbraut 6, Reykjavík.
UPPBOÐ
Uppboð
Réttindi skv. leigusamningi, dags. 30. apríl 2002, í fasteigninni Breiða-
mörk 1C, Hveragerði, verða boðin upp á Hörðuvöllum 1, Selfossi,
föstudaginn 20. desember 2002.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki upp-
boðshaldara eða gjaldkera. Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
12. desember 2002.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálf-
ri, sem hér segir:
Brekkugata 1b, Akureyri, þingl. eig. Júlíus Stefánsson, gerðarbeið-
endur Akureyrarkaupstaður, Sparisjóður Kópavogs og Sparisjóður
Norðlendinga, miðvikudaginn 18. desember 2002 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
12. desember 2002.
Harpa Ævarrsdóttir, ftr.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
BÍLAR
Iveco 75E í fínu standi
Til sölu Iveco 75E sendibifreið með kassa, lyftu
og kælivél, ekin aðeins 54.000 km. Einnig Merc-
edes Benz 1838L dráttarbíll árgerð 1992. Til
sýnis og sölu á Bílasölunni Geisla í Borgarnesi,
sími 437 1200.
HÚSNÆÐI Í BOÐI
Til leigu — Túnin
Til leigu góð og björt 3ja herbergja íbúð
frá 1. janúar 2003.
Upplýsingar í síma 55 16158.