Morgunblaðið - 13.12.2002, Blaðsíða 76
KVIKMYNDIR
76 FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HLEMMUR. Það er ekki laust við
að fnykur fylgi nafni strætóbiðstöðv-
arinnar á samnefndu torgi. Brenni-
vínsrónar, dópistar, smákrimmar,
rugludallar, hlandlykt, áreiti og Keis-
aragestir koma upp í hugann.
Eitt af sérkennum Íslendinga er að
kunna ekki að meta þægindi almenn-
ingsvagna því þeir kosta bið og stoppa
heldur ekki nákvæmlega á þeim
punkti sem við æskjum. Þar af leið-
andi þekkja fáir aðrir innviði bið-
stöðvarinnar en lítið brot þjóðarinnar
og hópur utangarðsfólks sem komið
hefur á hana óorði. Við kinokum okk-
ur við að horfast í augu við eymd og
þjáningu þeirra ógæfusömu sem af
ýmsum ástæðum, flestum heilsufars-
legum, hafa lent utangarðs í mannlíf-
inu. Áfengi er elsta geðlyf mannsins
og það eru einkum drykkjusjúklingar
og eða fólk með geðræn vandamál
sem átt hefur þar ótryggt skjól í
linnulausum fimbulvetri tilverunnar
og við flest kosið að snúa blinda aug-
anu við þeim.
Annað er uppi á teningnum þegar
þessi olnbogabörn velferðarríkisins
birtast á hvíta tjaldinu (sbr. Lalli
Johns), þá eru þau í notalegri fjar-
lægð góðborgaranna og verða skyndi-
lega spennandi áhorfs og forvitnileg.
Enginn má álíta að ég sé að brigsla
Ólafi Sveinssyni um að fyrir honum
vaki að gera aðsóknarmynd eða af-
þreyingu. Þvert á móti blasir við
áhorfendum að þar fer maður sem er
ekki aðeins frábær fagmaður (sem
sýndi sig með Braggabúum), heldur
manneskja, fær um að nálgast mann-
lífið á berangri biðstöðvarinnar með
fullri virðingu fyrir viðfangsefninu.
Nær trausti viðmælendanna, en ein-
mitt þar felast gæði og galdur
Hlemms í þessu hreinskilna, sláandi
afdráttarleysi þar sem þrautaganga
hornrekanna er rakin. Áhorfandinn
stendur berskjaldaður frammi fyrir
öllum sársaukanum og útskúfuninni.
Hlemmur er tekin á tiltölulega löngu
tímabili, af mikilli þolinmæði og alúð,
því þekkjum við orðið persónurnar
ótrúlega vel í myndarlok.
Samfélag utangarðsfólks endur-
speglar í rauninni þjóðfélagið í heild
því innan þeirra beggja er að finna
missterka einstaklinga, gædda ójöfn-
um hæfileikum til að komast af í lífs-
baráttunni. Tveir af aðalviðfangsefn-
um Hlemms kristalla breiddina:
Ómar „Blápunktur“ er seiglan upp-
máluð, úrræðagóður og ódrepandi en
Hannes vinur hans er á hinn bóginn
blaktandi strá í vindi og hniginn í val-
inn í lokin. Þá er Ómar búinn að rífa
sig upp úr áratuga óreglu og einangr-
un og að ná fótfestu á nýjan leik með
Guðs hjálp og góðra manna. Harm-
saga annarra fastagesta á Hlemmi er
ekki síður átakanleg þótt óhamingja
þeirra flestra stafi af öðrum vanda-
málum en áfengissýki.
Íslensk heimildarmyndagerð held-
ur áfram sinni markvissu uppsveiflu í
höndum manna sem eiga örugglega
eftir að láta að sér kveða í framtíðinni
sem endranær. Ólafur á eftir að loka
þrennunni um Reykjavík sem hófst
með Braggabúum og margar fleiri,
áhugaverðar myndir eru í smíðum.
Það er eðlilegt að bera Hlemm saman
við þá snjöllu Lalla Johns, í mínum
huga hallar á hvoruga.
Hlemmur er einlæg og mögnuð
heimildarmynd, gerð af skilningi á
vondum félagslegum og líkamlegum
aðstæðum einstaklinga sem af ein-
hverjum ástæðum hafa orðið undir í
lífsbaráttunni. Jafnframt er hún
mannlegt drama sem spilar sterkt á
tilfinningarnar, raunsætt samspil
vonar og ótta.
Heimildarmyndin Hlemmur fjallar um lífið á frægustu biðstöð landsins og
nokkra af þeim ógæfumönnum sem þar hafa fundið sér skjól.
Á berangri
biðstöðvarinnar
Hlemmur
Háskólabíó
(Film-undur)
Heimildarmynd. Stjórn upptöku, handrit
og meðframleiðandi: Ólafur Sveinsson.
Kvikmyndataka: Halldór Gunnarsson.
Tónlist: Sigur Rós. Hljóð og hljóðhönnun:
Þorbjörn Ágúst Erlingsson. Klipping: Ólaf-
ur Jóhannesson. Fram koma: Björgvin
Ragnar Þorgeirsson, Ómar V. Guðjónsson
Mýrdal, Hannes Þór Traustason o.fl. 86
mín. Framleiðandi: Gerd Haag – TAG/
TRAUM Köln. Ísland/Þýskaland 2002.
Sæbjörn Valdimarsson
Kvöldverður fyrir og eftir sýningar
Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka daga,
kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19 sýnd.
Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir
sýningar. Sími 562 9700
Munið gjafakortin!
Fös. 13/12 kl. 21 Nokkur sæti,
síðasta sýning fyrir jól
Lau 28/12. kl. 21 Jólasýning
Föst 3/1 kl. 21 Uppselt
Föst 10/1 kl 21
Sérstakar jólasýningar!
26. des. kl. 14 laus sæti
29. des. kl. 14. laus sæti
5. jan. kl. 14 laus sæti
12. jan. kl. 14. laus sæti
19. jan. kl. 14. laus sæti
Stóra svið
SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI
eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson
Frumsýning lau 11/1 UPPSELT
2. sýn su 12/1 gul kort 3. sýn fö 17/1 rauð kort
4. sýn lau 18/1 græn kort
SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller
Lau 28/12 kl 20, Su 29/12 kl. 20
Sýningum fer fækkandi
HONK! LJÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles og Anthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna
Su 29/12 kl 14
Nýja svið
Þriðja hæðin
Litla svið
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Miðasala: 568 8000
HERPINGUR e. Auði Haralds og
HINN FULLKOMNI MAÐUR e.Mikael Torfason
í samstarfi við DRAUMASMIÐJUNA
Lau 28/12 kl 20, Fö 10/1 kl 20
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Lau 14/12 kl 20, Má 30/12 kl 20, UPPSELT,
Fö 3/1 kl. 20
SÓL & MÁNI eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Ágúst Úlfsson
FORSALA AÐGÖNGUMIÐA STENDUR YFIR - GJAFAKORT Á TILBOÐSVERÐI TIL JÓLA
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov
frekar erótískt leikrit í þrem þáttum
Su 29/12 kl 20
GJAFAKORT Í LEIKHÚSIÐ - FRÁBÆR JÓLAGJÖF
JÓLAGAMAN
Jólasveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum í leikbúningi ofl.
Lau 14/12 kl 15:00 Su 15/12 kl 15:00 - Aðeins kr. 500,
ELEGIA - FJÖGUR DANSVERK
Pars pro toto - Rússibanar - Benda
Í kvöld kl 20, Lau 14/12 kl 20
Jólatónleikar
Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500
sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUNNAR
Jólatónleikar fjölskyldunnar í Háskólabíói
laugardaginn 14. desember kl. 15:00
Hljómsveitarstjóri: Bernharður Wilkinson
Kórstjóri: Jón Stefánsson
Einleikarar: Nemendur úr Allegro
Suzuki skólanum
Kór: Graduale nobile
Kynnir: Atli Rafn Sigurðarson
Á boðstólum verður m.a. tónlist
úr kvikmyndinni um töfrastrákinn
Harry Potter og heimsþekkt jóla-
lög. Að síðustu taka allir lagið
saman og aldrei að vita nema
jólasveinninn komi í heimsókn.
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
ÖRFÁ SÆTI LAUS
í kvöld, föstudaginn 13. des.
með hljómsveitinni Þúsöld,
Kiddi K., Pétur og Simmi.
Vestfirðingadansleikur
í Ásgarði Glæsibæ
Húsið opnað kl. 22 • Miðaverð kr. 1.000.
Jólasöngvar
kammerkórsins
Vox academica
í Háteigskirkju, sunnudag
15. desember kl. 17.00.
Miðasala við innganginn.
Verð kr. 1.000.
Vesturgötu 3 Í HLAÐVARPANUM
Klundurjól
Jólaskemmtun Hugleiks
í kvöld - fös. 13. des. kl. 20.00
sun. 15. des. kl. 20.00
Ljúffengur málsverður
fyrir alla kvöldviðburði
MIÐASALA: 551 9030 kl. 10-16
má.-fö. Símsvari á öðrum tímum.
Smurbrauðsverður innifalinn
Miðasala Iðnó í síma 562 9700
Hin smyrjandi jómfrú
sýnt í Iðnó
Sun. 15. des. kl. 15 og 20
Lau. 11. jan. kl. 20
Sun. 12. jan. kl. 20
Hversdagslegt
kraftaverk
eftir Évgení Schwarz
Leikstjóri: Vladimir Bouchler.
Frumsýning í kvöld kl. 20 uppselt
2. sýn. lau. 14.12. kl. 19 laus sæti.
3. sýn. laugard. 21.12. kl. 19.
Barn fær frítt í fylgd með fullorðnum
í leikhúsið yfir jólin.
Miðasölusími sími 462 1400
www.leikfelag.is
JÓLARÓSIR
SNUÐRU OG TUÐRU
eftir Iðunni Steinsdóttur
Fös. 13. des. kl. 10 og 13.30 uppselt.
Sun. 15. des. kl. 14 laus sæti.
HVAR ER STEKKJARSTAUR?
eftir Pétur Eggerz
Fös. 13. des. kl. 10 og 14 uppselt.
Miðaverð kr. 1.100.
Netfang: ml@islandia.is
ww.islandia.is/ml
Grettissaga
saga Grettis
leikrit eftir Hilmar Jónsson byggt
á Grettissögu
Þri 17. des. UPPSELT,
sun 29. des kl. 20,
HÁTÍÐARSÝNING, nokkur sæti
föst 3. jan, kl 20, laus sæti
Sellófon
eftir Björk Jakobsdóttur
föst 13. des, nokkursæti
LOKASÝNING FYRIR JÓL.
Sýningarnar á Sellófon hefjast kl 21.00
Miðasala í síma 555 2222 0g á www.hhh.is og midavefur.is
Miðasala er opinn alla virka daga frá 15.00 til 19.00.
Nánari upplýsingar um Grettissögu og máltíð á Fjörukránni
fyrir sýningu á www.hhh.is