Morgunblaðið - 13.12.2002, Blaðsíða 31
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2002 31
Allar yfirhafnir á börn og fullorðna
með 25% afslætti
Þessa helgi
12
99
/T
A
K
TI
K
1
2.
12
.0
2
SÖFNUÐUR Ástjarnarsóknar
í Hafnarfirði hefur fengið að-
stöðu í Íþróttamiðstöð Hauka á
Ásvöllum.
Jónatan Garðarsson formað-
ur sóknarnefndar skrifaði á
laugardag fyrir hönd safnaðar-
ins undir leigu- og þjónustu-
samning við Þorgeir Haraldsson
formann Hauka. Samkvæmt
deiliskipulagi er gert ráð fyrir
að kirkja verði reist í sókninni
þegar fram líða stundir.
Fyrsta messan á Ásvöllum fer
fram 15. desember nk.
Söfnuður
fær aðstöðu
í Hauka-
húsinu
Hafnarfjörður
ÍBÚAR þjónustuíbúða og aðrir sem
nýta sér félagsstarf aldraðra á þrem-
ur af fimm stöðum, þar sem stendur
til að draga úr starfsemi, mótmæla
harðlega skerðingu á þjónustunni.
Þeir segja marga íbúana koma til með
að einangrast í kjölfarið. Þá segja þeir
það vanvirðu að ekki hafi verið rætt
við þá sem þjónustuna nota áður en
ákvörðun var tekin um skerðingu á
þjónustu. 233 íbúar og aðrir sem þjón-
ustuna nota á Sléttuvegi 11-13, í
Furugerði 1 og í Lönguhlíð 3 skrifuðu
undir mótmælin sem send voru for-
svarsmönnum Félagsþjónustunnar í
Reykjavík og lögð voru fram til kynn-
ingar í borgarráði á þriðjudag og fé-
lagsmálaráði á miðvikudag, en málið
er til umfjöllunar í tengslum við fjár-
hagsáætlun borgarinnar.
Björk Vilhelmsdóttir, formaður fé-
lagsmálaráðs, segir að nú standi yfir
fundir með íbúum þar sem fyrirhug-
aðar breytingar á félagsstarfi eru
kynntar svo og hugmyndir um fram-
tíð þess. „Þessir fundir eru hugsaðir
til að hlusta á íbúana,“ sagði Björk.
Sagði hún fyrirliggjandi skýrslu um
hugmyndir starfsmanna Félagsþjón-
ustunnar í Reykjavík og forstöðu-
manna þeirra staða þar sem boðið er
upp á félagsstarf aldraðra. Ákvörðun
um að breyta félagsstarfinu hafi verið
tekið út frá þeirri vinnu.
„Öll skerðing verður
okkur erfið“
Í mótmælum íbúanna kemur fram
að í þjónustuíbúðunum búi margir
sem alls ekki geta farið annað í þá
starfsemi sem um ræðir, en félags-
málayfirvöld hafa bent á að þeir sem
þess óska geti sótt þjónustuna í aðrar
miðstöðvar.
Þá benda íbúar Sléttuvegar 11–13
ennfremur á að margir hafi keypt
íbúðir af Samtökum aldraðra einmitt
vegna þjónustunnar sem þar hefur
verið boðið upp á.
„Meðalaldur íbúanna er 81 ár og ef
væntanlegar aðgerðir verða fram-
kvæmdar er augljóst að margir íbú-
anna munu einangrast í framtíðinni,“
segir í mótmælunum.
„Við, íbúar húsanna á Sléttuvegi
11–13, mótmælum öll því gerræði
sem virðist framundan. Við þökkum
það sem í dag fer fram í þjónustusel-
inu en öll skerðing þar á verður okkur
erfið. Munið, það liggur fyrir okkur
öllum að eldast.“
Mótmæli vegna lokana félagsstarfs
aldraðra lögð fyrir borgarráð
Margir muni
einangrast
Morgunblaðið/Golli
Breyting á félagsstarfi aldraðra á
fimm stöðum í bænum mælist víða
illa fyrir. Íbúar á Dalbraut 18–20
eru ósáttir við breytingarnar.
Reykjavík
MARGAR stúlkur og drengi dreymir
einhvern tímann um að verða fim-
leikastjörnur. En enginn er fæddur
stjarna heldur þarf að vinna fyrir
framanum hörðum höndum. Þetta
vita ung og efnileg fimleikabörn í
Mosfellsbæ, en til að sýna árangur
vetrarstafsins héldu þau sýningu í
gamla íþróttahúsinu að Varmá í vik-
unni.
Mömmur, pabbar, afar og ömmur
og margir fleiri komu auðvitað til að
fylgjast með sýningunni og klöppuðu
börnunum lof í lófa að henni lokinni.
Það voru ófá sporin og skemmti-
leg tilþrif sem börnin sýndu og áhug-
inn skein úr hverju andliti. Varfærn-
islega var gengið eftir slá og aðstoð
þegin frá þjálfurum enda aðeins um
fyrstu sporin á fimleikabrautinni að
ræða. Hver veit nema að í hópnum
leynist meistarar framtíðarinnar?
Það er nú alveg nauðsynlegt að fá smá hjálp til að ná jafnvæginu á slánni!
Morgunblaðið/Golli
Úps! Það er komið að mér!
Fimleikastjörnur
framtíðarinnar
Mosfellsbær
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Antik er fjárfesting
Antik er lífsstíll