Morgunblaðið - 13.12.2002, Blaðsíða 79
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2002 79
KK sagðist lukkunnar pamfíll
þegar hann rambaði rakleitt á
næma tónlistartaug í tónelskum
landanum með fyrstu plötu sinni.
Það var árið 1991 og náttúrlega
ekkert lán sem þar var að baki
heldur hreinræktaðir hæfileikar og
tónlistarlegur
þroski sem KK
hafði tekið út utan
íslenska sviðs-
ljóssins. En þrátt
fyrir að hafa dval-
ist svo lengi fjarri
heimabyggðum hafa fáir íslenskir
tónlistarmenn eins ríka tilfinningu
fyrir íslenskri þjóðarsál. Eða
kannski er það einmitt fjarverunn-
ar vegna sem KK þekkir okkur
svona vel, hið fornkveðna að
glöggt sé gests augað.
Nýjasta plata hans, Paradís,
hans fyrsta sólóplata með nýju
efni í fimm ár, inniheldur um
margt þverskurð af áratugarlöng-
um ferli. Þar eru blúsrokk – „Á
grænni grein“, „Gleðinnar glaum“
og „Er ég kem heim“ – í anda
fyrstu platnanna The Lucky One
og Beinnar leiðar, ljúfsárir sveita-
söngvar – „Morgunljóst“ og
„Green House“ – á við þá sem
hann samdi fyrir Þrúgur reiðinnar
og enduðu síðan á Beinni leið,
kántríbúggí – „Æðri máttur“ –
eins og á Hótel Föroyar og suð-
ræn og seiðandi sveifla – „Aleinn í
heimi“ – í ætt við það sem þeir
Magnús Eiríks gerðu á plötunum
sínum tveimur. Þótt allar þessar
stefnur beri að sama brunni, al-
þýðutónlistinni, er Paradís samt
um margt vitnisburður um fjöl-
hæfni KK og hversu víða hann hef-
ur komið við á farsælum útgáfu-
ferli, hreint undarlega skömmum
sé mið tekið af vigt hans í íslensku
tónlistarlífi. Paradís er ennfremur
skýr vitnisburður um hversu mjög
KK hefur vaxið sem tónlistarmað-
ur og þá sérstaklega sem höfundur
laga og texta. Fyrst um sinn fólst
snilli hans nefnilega einkum í
flutningnum og þeirri einlægni
sem þar hefur alltaf legið að baki
en strax á Beinni leið og hægt og
bítandi allar götur síðan hefur
hann tekið geysilegum framförum
sem lagahöfundur. Þótt Paradís sé
ekki gallalaus hefur hún þannig
tvímælalaust að geyma nokkur af
bestu lögum sem KK hefur samið
og sent frá sér.
Fyrst að veikleikunum, eigin-
lega þeim einu. Kannski hefur það
eitthvað með umræddar framfarir
að gera, kannski óumflýjanlegar
kenjar mínar, en síst kann ég að
minnsta kosti að meta lögin sem
sverja sig hvað helst í ætt við blús-
rokkið á The Lucky One. Þau
koma svo til hvert á eftir öðru
undir lok plötunnar og skekkja
svolítið heildaráhrifin, sem fram
að því eru svo fádæma yfirveguð
og notaleg. En ágallar þessir ná þó
engan veginn að varpa skugga á
kosti plötunnar, sem eru miklu
stærri og fleiri. Megnið af lög-
unum er nefnilega hrein listasmíð,
jafnt texti sem lag. Fjölbreytnin í
fyrirrúmi, hófsemin í hávegum og
ásetningurinn einlægur. Textagerð
KK er á stundum barnslega ein-
föld en þó alltaf lúmsk og dýpri en
í fyrstu virðist, svolítið eins og hjá
vini hans Magnúsi Eiríks. Ávöxt-
inn af samstarfinu við Magnús má,
ef vilji er fyrir hendi, einnig finna í
betri melódíugerð, sem líkt og hjá
Magnúsi er eitthvað svo undarlega
grípandi, sbr. hin stórfínu „Sökkv-
andi skip“, „Alein í heimi“, „Stay
Away“, „Guðs náð“ og „Morgun-
sól“, sem lætur ekki mikið yfir sér
í fyrstu en er þegar þetta er ritað í
mestu uppáhaldi.
Það truflaði í fyrstu en vandist
svo að blandað sé saman lögum
með íslenskum textum og enskum.
Umbúðir eru smekklegar og hóf-
stilltar í anda innihaldsins.
Það hefur ekkert með lán að
gera að KK skuli njóta þeirrar
hylli sem hann gerir meðal þjóð-
arinnar, heldur fyrst og fremst fá-
gæta hæfileika. En að maðurinn
skuli hafa hlotið þessa náðargjöf
gerir hann auðvitað að hinum
mesta lukkunnar pamfíl.
Tónlist
Lukkunnar
pamfíll
KK
Paradís
FD
Sólóplatan Paradís með KK – Kristjáni
Kristjánssyni, sem á öll lög og texta
nema Er ég kem heim, sem er eftir Krist-
ján og Pétur Kristjánsson. Kristján syng-
ur og leikur á munnhörpu og gítara, Eyþór
Gunnarsson hljómborð, trommur og
ásláttur, Guðmundur Pétursson gítarar,
Birgir Bragason kontrabassi, Friðþjófur
Sigurðsson rafbassi, Þorleifur Guð-
jónsson bassi, Þórir Baldursson ham-
mond-orgel, Guðni Franzson didgeridoo
og bólivísk flauta, Helgi Svavar Helgason
trommur, Jóhann Hjörleifsson trommur,
Magnús Eiríksson kassagítar, Matthías
Hemstock trommur og ásláttur, Axel
Árnason tambúrína, Ruth Reginalds
raddir, Sigríður Guðnadóttir raddir, Þór-
unn rödd. KK stjórnaði upptökum. Upp-
tökur fóru fram í Gömlu sundlauginni,
Grjótnámunni, Thule studios og Stúdíó
Sýrlandi.
Skarphéðinn Guðmundsson
Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir
Paradís hefur tvímælalaust að geyma nokkur af bestu lögum sem KK hefur
sungið og samið, segir í umsögninni.
Hverfisgötu 551 9000
Sýnd kl. 10.30.Sýnd kl. 6 og 8.
BOND ER MÆTTUR
FLOTTARI EN
NOKKRU SINNI FYRR
ÍSLAND Í
AÐALHLUTVERKI-
ÓMISSANDI
I “Besta Brosnan Bond-myndin”
GH Kvikmyndir.com
www.regnboginn. is
RadíóX
DV
YFIR 30.000 GESTIR Á 10 DÖGUM
Sýnd kl. 5.30, 8.30 og 11.10. B.i.12 ára
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Bi 14.
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 16. .
Sýnd kl. 4.30, 7 og 10. B. i. 12 ára. Sýnd kl. 6, 8, 10 og 12 á miðnætti.
Enn tekst frændunum
Craig og Day-Day að
koma sér í vandræði.
Þriðja og fyndnasta
myndin til þessa í hinni
bráðfjörugu
Friday seríu.
FRUMSÝNING
“Besta Brosnan Bond-myndin”
GH Kvikmyndir.com
i
i i
DV
RadíóX
YFIR 30.000 GESTIR Á
10 DÖGUM