Morgunblaðið - 13.12.2002, Síða 34
SUÐURNES
34 FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
„MAÐUR má ekki taka frá öðrum,
maður á að deila með sér,“ hrópuðu
ungu áhorfendurnir í kór á einni
jólastundinni, sem boðið var upp á í
Duus-húsunum í vikunni. Bjúgna-
krækir hafði þá upplýst að hann
hafði stolið öllum bjúgunum frá
Grýlu mömmu sinni, 1000 talsins, og
borðað þau öll í einu.
Nú var hann í vandræðum með
hvað hann ætti að gefa henni í jóla-
gjöf fyrst bjúgun voru búin. Leppa-
lúði hafði stungið upp á því að hann
gæfi Grýlu jólastjörnuna og nú var
Bjúgnakrækir kominn til að fá lán-
aðan stiga svo hann gæti klifrað upp
í himin og krækt í hana.
Öllum 5 til 8 ára börnum í Reykja-
nesbæ er boðið á jólastund dagana
9. til 13. desember, þar sem fluttur
er leikþátturinn Jólagjöfin hennar
Grýlu eftir Jón Pál Eyjólfsson
(Bjúgnakrækir) og Ingibjörgu Þór-
isdóttur (Bína). Að leikþætti loknum
fá börnin að syngja jólalög við
harmonikkuundirleik og dansa í
kringum jólatré. Að dagskránni
standa Bókasafn Reykjanesbæjar,
Byggðasafn Reykjanesbæjar og
menningarfulltrúi Reykjanesbæjar
með stuðningi frá menningar-,
íþrótta- og tómstundasviði bæjarins.
Yngstu nemendum Myllubakka-
skóla og leikskólabörnum á Vest-
urbergi og Tjarnarseli leist ekki
nógu vel á uppástungur Bjúgna-
krækis þegar kom að því að finna
hentuga jólagjöf handa Grýlu. „Þú
mátt ekki krækja í jólastjörnuna,
jólastjarnan er fyrir alla,“ sagði
stúlkan Bína sem varð á vegi jóla-
sveinsins og áhorfendur voru sam-
mála um að hana mætti ekki taka af
himnum. Þau höfðu hins vegar betri
hugmynd að jólagjöf. Það væri
nefnilega til blóm sem héti Jóla-
stjarna og það skyldi Bjúgnakrækir
gefa Grýlu í jólagjöf. Með þessa frá-
bæru hugmynd í fararteskinu var
sveinki rokinn, en gaf sér þó tíma til
að dansa í kringum jólatréð með
börnunum og Bínu.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Börnunum leist ekki vel á þennan háværa jólasvein og hvað þá hugmynd hans að jólagjöf handa Grýlu.
Hvað á Grýla að fá í jólagjöf?
Keflavík
AÐSTÆÐUR á Suðurnesjum
skapa meira en tvo þriðju þess
byggðakvóta sem sjávarútvegs-
ráðuneytið hyggst úthluta til út-
gerða á Suður- og Suðvesturlandi.
Komi þessi kvóti í hlut útgerða á
þessum stöðum, sem ekki er full-
víst, fá útgerðir í Sandgerði og
Garði samtals um 150 tonn.
Sjávarútvegsráðuneytið skipti
þeim 2.000 tonna byggðakvóta sem
búist er við að það fái til úthlut-
unar, á milli landshluta samkvæmt
punktakerfi sem tekur mið af út-
hlutun Byggðastofnunar á sínum
byggðakvóta. Liðlega 11% kvótans
á að útdeilast á Suður- og Suðvest-
urlandi, utan Vestmannaeyja, en
það gera liðlega 220 tonn í heildina.
Útgerðir í Reykjanesbæ og
Vogum ekki gjaldgengar
Á Suðurnesjum eiga útgerðir í
þremur sveitarfélögum kost á út-
hlutun, í Grindavík, Sandgerði og
Gerðahreppi. Útgerðir í Reykja-
nesbæ og Vatnsleysustrandar-
hreppi eiga ekki kost á byggða-
kvóta vegna þess að þau eru utan
byggðakorts sem Eftirlitsstofnun
EFTA hefur gefið út og er því ekki
heimilt að úthluta byggðastyrkjum
til fyrirtækja innan þeirra vé-
banda.
Raunar eru Garður og Sandgerði
einnig utan byggðakortsins. Sjáv-
arútvegsráðuneytið fór hins vegar
að óskum stjórnar Byggðastofnun-
ar um að tekið verði sérstakt tillit
til aðstæðna í Sandgerði og taldi þá
rétt að hafa Garð einnig gjald-
gengan, samkvæmt upplýsingum
Arndísar Þorsteinsdóttur starfs-
manns ráðuneytisins.
120 tonn til Sandgerðis?
Ráðuneytið hefur nú birt á
heimasíðu sinni forsendur úthlut-
unar byggðakvótans til einstakra
svæða. Gefnir eru punktar eftir
meðaltekjum, stærð staðanna og
þróun íbúafjölda, afla heimabáta,
aflaheimilda frá 1996/97 og vinnslu.
Neikvæð þróun gefur punkta. Þar
kemur fram að aðstæður í Sand-
gerði sýna 62 punkta af þeim 112
sem svæðið í heild fær og aðstæður
í Garði gefa 14 punkta til viðbótar.
Ástandið er allt annað í Grindavík
þar sem enginn samdráttur hefur
orðið. Ef þetta er umreiknað í tonn
og sú forsenda gefin að útgerðir á
þessum stöðum fái samsvarandi út-
hlutun sést að til Sandgerðis gætu
farið 122 tonn af byggðakvóta
ráðuneytisins og 28 tonn til Garðs
en ekkert til Grindavíkur. Til Eyr-
arbakka og fleiri staða í sveitarfé-
laginu Árborg og Þorlákshafnar
myndi fara 70 tonna kvóti sam-
kvæmt þessu.
Þess má geta að aðstæður í
Reykjanesbæ og Vogum eru með
þeim hætti, samkvæmt þessu
punktakerfi, að þau samtals ættu
jafnmikinn rétt á byggðakvóta og
Sandgerði og Garður til samans,
það er að segja ef öll sveitarfélögin
á Suðurlandi teldust jafngild á
byggðakorti ESA.
Nú er það ekki endilega víst að
byggðakvóti ráðuneytisins gangi til
útgerða í sveitarfélögunum í sömu
hlutföllum og forsendur úthlutunar
til svæðanna gefa tilefni til. Ráðu-
neytið hefur auglýst eftir umsókn-
um útgerða eftir byggðakvóta og
rennur frestur út næstkomandi
mánudag. Bæjarráð Sandgerðis
hefur samþykkt ályktun þar sem
útgerðarmenn eru hvattir til að
sækja um byggðakvóta og rök-
styðja umsóknir sínar vel.
Arndís Þorsteinsdóttir segir að
við úthlutunina verði lagt mat á
þau verkefni sem umsækjendur
kynna og litið til atriða sem nefnd
eru í lögunum. Þar er meðal ann-
ars um það að ræða hvernig úthlut-
unin styrkir byggðina og hvort um-
sækjandi hafi samstarfsaðila í
veiðum eða vinnslu.
Ráðuneytið birtir forsendur úthlutunar byggðakvóta
Um 150 tonn gætu
komið á Suðurnes
Sandgerði/Garður
Morgunblaðið/Þorkell
FORSVARSMENN Lionsklúbbs
Njarðvíkur afhentu Jóhönnu Arn-
grímsdóttur, forstöðumanni tóm-
stundastarfs eldri borgara í
Reykjanesbæ, 350 þúsund kr.
styrk sl. mánudag. Verða pening-
arnir notaðir til tækjakaupa, þar
á meðal til að kaupa skjávarpa og
tjald sem hægt er að nota við
tölvu- og tungumálakennslu.
Í lionsklúbbnum eru 44 félagar.
Klúbburinn var stofnaður 1958 og
fjáröflunarleið félagsins er árlegt
happdrætti þar sem bíll er að-
alvinningurinn auk sjónvarps- og
útvarpstækja.
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
Ragnar Halldórsson, formaður Lionsklúbbsins í Njarðvík, og Árni Brynj-
ólfur Hjaltason gjaldkeri afhenda Jóhönnu Arngrímsdóttur, forstöðu-
manni tómstundastarfs eldri borgara, 350 þúsund kr. styrk til tækjakaupa.
Lionsklúbb-
urinn styrkir
eldri borgara
Njarðvík
BÆJARSTJÓRN Grindavíkur
hefur samþykkt tillögur hús-
næðisnefndar bæjarins um
leigu á félagslegum íbúðum.
Því mun leiga í íbúðum í Heið-
arhrauni 32 hækka minna en
áformað var.
Leiga minni íbúða í Heiðar-
hrauni 30 verður 28.500 krónur
á mánuði og er gjald í hússjóð
innifalið og leiga fyrir stærri
íbúðir þar verður 37 þúsund.
Leiga minni íbúða í Heiðar-
hrauni 32 verður 39 þúsund og
49.500 kr. fyrir stærri íbúðir í
því húsi.
Breytingin tekur gildi um
áramót.
Leigan hækk-
ar um 20–40%
Grindavík
SVEINN Jakobsson sigraði á
jólamóti eldri borgara í knatt-
borðsleik sem fram fór í fé-
lagsmiðstöðinni Fjörheimum í
Njarðvík í vikunni. Háði hann ein-
vígi við Ingva bróður sinn.
Keppt var í tveimur 6 manna og
tveimur 5 manna riðlum og voru
keppendur 22 talsins. Albert Karl,
Ingvi Jakobsson, Guðmundur Jó-
hannsson og Sveinn Jakobsson
sigruðu í riðlunum. Þeir háðu svo
harða rimmu til þess að skera úr
um sigurinn á mótinu. Albert Karl
og Guðmundur léku til úrslita um
þriðja sætið og það fór þannig að
Guðmundur marði sigur á svörtu
kúlunni.
Í úrslitaleiknum öttu kappi
bræðurnir Sveinn og Ingvi Jak-
obssynir og það fór svo að núver-
andi Reykjanesbæjarmeistari
eldri borgara, Sveinn Jakobsson,
marði stóra bróður sinn.
Sigraði á jólamóti eldri borgara
Njarðvík
OPNUÐ hefur verið sýning á
verkum Magnúsar Guðjónssonar
og Gunnars Geirs í Gráa kettinum
sem er nýr sýningarsalur á Hafn-
argötu 18 í Keflavík. Sýningin er
opin alla daga nema sunnudaga
og stendur út mánuðinn.
Verk Magnúsar eru unnin úr
grjóti og smíðajárni. Hann er að
mestu sjálfmenntaður í listinni en
hefur sótt teikninámskeið hjá
Einari Hákonarsyni. Gunnar Geir
sýnir málverk, teikningar og lág-
myndir frá ýmsum tímabilum á
ferli sínum. Hann hefur haldið
nokkrar einkasýningar og tekið
þátt í haustsýningum. Gunnar
Geir nam við Myndlistarskóla
Reykjavíkur, hjá Hring Jóhann-
essyni og hjá Jakobi Jónassyni
myndhöggvara og stundaði nám í
Noregi.
Magnús og Gunnar Geir
sýna á Gráa kettinum
Keflavík
JÓLATÓNVEISLA verður í
Reykjaneshöllinni á morgun,
laugardag, klukkan 16. Fram
koma margar af þekktustu
hljómsveitum landsins.
Tónleikana halda þrír ungir
menn í samstarfi við Jóladaga í
Reykjanesbæ. Hugmyndin er að
gera laugardaginn að fjöl-
skyldudegi.
Meðal þeirra sem fram koma
eru hljómsveitirnar Írafár, Í
svörtum fötum, Land og synir
og Daysleeper og söngvararnir
KK, Eyjólfur Kristjánsson,
Hera og Jóhanna Guðrún, að
ógleymdum heimamanninum
Rúnari Júlíussyni. Kaffi Duus
verður með opið kaffihús í höll-
inni á meðan á tónleikunum
stendur.
Miðaverð á tónleikana er 700
krónur, en frítt fyrir 12 ára og
yngri. Forsala er í útibúum
Sparisjóðsins í Keflavík. SBK
verður með sætaferðir frá BSÍ í
Reykjavík og kosta ferðin og að-
göngumiði samtals 1.700 krónur.
Jólatónveisla í Reykjaneshöll
Reykjanesbær