Morgunblaðið - 13.12.2002, Page 80

Morgunblaðið - 13.12.2002, Page 80
80 FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ HLJÓMSVEITIN Spaðar var stofnuð í árs- byrjun 1983 og verður því tvítug eftir ára- mótin. Löngum var rætt um að þetta væri dularfyllsta neðanjarðarsveit landsins, jafn- framt því að vera sú menntaðasta, en inn- anborðs hefur jafnan verið töluverður fjöldi af mjög svo langskólagengnum mönnum. Nýútkomin er platan Skipt um peru, sem mun vera fimmta útgáfa Spaðanna. Að baki nú eru snældurnar Lukkan lukkan (’87), Hinir ástsælu Spaðar (’90) og Gráti nær (’92) og svo hljómdiskurinn Ær og kýr (’97). Kjarni Á Skipt um peru eru fimmtán lög, þar af þrettán frumsamin. Tónlist Spaðanna hefur jafnan verið fremur óræð, helst að megi greina þar austur-evrópsk þjóðlagaáhrif en á plötunni nýju bregður m.a. fyrir: „brim- brettatónlist, diskói og kúbanskri sveiflu að ógleymdu þjóðlagarokki og amerískri sveitatónlist,“ eins og segir í tilkynningu frá sveitinni. „Allt fær þetta þó persónu- legan – sumir myndu jafnvel segja annar- legan – blæ í meðförum Spaða,“ segir þá jafnframt. Spaða skipa nú: Aðalgeir Arason (mand- ólín), Guðmundur Andri Thorsson (söngur), Guðmundur Ingólfsson (kontrabassi), Guð- mundur Pálsson (fiðla), Gunnar Helgi Krist- insson (harmónikka), Hjörtur Hjartarsson (flauta, klarinett og rafmagnsgítar) Magnús Haraldsson (gítar) og Sigurður G. Val- geirsson (trommur). Morgunblaðið sló á þráðinn til trymbils- ins. „Við viljum meina að við séum með hinn eina sanna Dr. Gunna innanborðs þar sem Gunnar Helgi (sem er doktor í stjórn- málafræði) er á nikkunni,“ segir Sigurður og kímir. Hann tekur og undir þá tillögu blaðamanns að sveitin sé smá „költ“ og eigi sér harðan kjarna aðdáenda. „Við reynum að spila a.m.k. einu sinni á ári og þá tekur maður stundum eftir einhverjum hópum manna sem eiga það sameiginlegt að hafa hlustað á okkur síðan í menntaskóla – jú, ég myndi því segja að við séum svona hæfi- lega neðanjarðar.“ Hnökrar Sigurður segir einfalda ástæðu búa að baki disknum, ný lög hafi einfaldlega verið orðin það mörg að nauðsynlegt hafi verið að losa þetta út. „Það er líka ágætt að vera með eitthvert smá verkefni á milli handanna. Upptökur voru gerðar í nokkrum lotum og sýndi upp- tökustjórinn, Þorkell Heiðarsson – Geirfugl og Spaðaaðdáandi – okkur mikla þolin- mæði. Menn eru auðvitað misfærir á hljóð- færin og það eru nokkrir skemmtilegir hnökrar þarna á stangli.“ Sigurður segir að lokum að þeir sem hafa áhuga á þannig sköpun, hvar viljinn er tek- inn fyrir verkið, muni finna margt við sitt hæfi á plötunni. Spaðar halda útgáfutónleika í kvöld á Grandrokk. Þeir hefjast stundvíslega kl. 22 og lýkur á miðnætti. „Svona hæfilega neðanjarðar“ Hinir sprellfjörugu Spaðar. Spaðar gefa út nýja plötu MARY Hansen, gítarleikari og söng- kona í hljómsveitinni Stereolab, lést í reiðhjólaslysi á mánudaginn. Han- sen var 36 ára gömul og hafði verið í Stereolab í 10 ár. „Við erum harmi slegin yfir frá- falli vinkonu okkar,“ segir í frétta- tilkynningu sem eftirlifandi félagar hennar úr Stereolab sendu breskum fjölmiðlum. „Mary var einstök manneskja og við sendum fjölskyldu hennar og vinum okkar innilegustu samúðarkveðjur.“ Stereolab hefur verið í hópi til- raunaglöðustu og áhrifamestu hljómsveitar Bretlands síðasta ára- tuginn. Einir síðustu tónleikar sem Hansen kom fram á með hljómsveit sinni voru á Íslandi en Stereolab lék á tvennum tónleikum á Grandrokk í lok októbermánaðar. Liðsmaður Stereolab lést í reiðhjólaslysi Engum sögum fer af því hvort skarðið sem Mary Hansen (lengst til hægri) skilur eftir sig verði fyllt eða hver sé framtíð Stereolab. Fortíðin mun tengja þau! POSSESSION GWYNETH PALTROW AARON ECHART JENNIFER EHLE JEREMY NORTHAM Sýnd kl. 10.05 1/2MBL  1/2 Roger Ebert  Roger Ebert 1/2 Kvikmyndir.is  DV 4 8 . 5 0 0 G E S T I R Á 2 0 D Ö G U M 1/2HL MBL  RadíóX Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna sem kemur öllum í jólaskap Jólamyndin 2002 Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. Sýnd kl. 5 og 8. Kvimyndir.is Yfir 54.000 áhorfendur 8 Eddu verðlaun WITH ENGLIS H SUBTIT LES AT 5.4 5 Jólamynd film-undar FRUMSÝNING Sýnd kl. 5.45 með enskum texta og 8. B.i. 12. Sýnd kl. 6, 8 og 10. H.K. DVGH. Vikan SV. MBL GH. Kvimyndir.com B.Ö.S. Fréttablaðið Tónlist eftir Sigur Rós. Sýnd kl. 4 og 6. Vit 461 Sýnd kl. 4. Ísl tal Vit 448 KRINGLA Sýnd kl. 4.45, 6.50 9 og 11.10. Vit 485 Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B.i. 16 ára. Vit 487 ÁLFABAKKI ÁLFABAKKI Kvikmyndir.is Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna sem Jólamyndin 2002 Kvimyndir.is 4 8 . 5 0 0 G E S T I R Á 2 0 D Ö G U M E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P Í ÁLFABAKKA KL. 6 OG 9.15 B. I. 16. VIT 469. Það voru 1200 manns um borð þegar það týndist fyrir 40 árum.. nú er það komið aftur til að hrella þig! KRINGLA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.