Morgunblaðið - 28.01.2003, Side 8
FRÉTTIR
8 ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Kakan var bökuð og skipt á milli blokka eftir gömlu góðu pólitísku uppskriftinni eins og spáð var.
Styrktartónleikar
Með þakklætið
efst í huga
TÓNLEIKAR tilstyrktar símennt-unar starfsmanna
Líknardeildarinnar í
Kópavogi og Hjúkrunar-
þjónustu Karítasar verða
haldnir í Hallgrímskirkju
nk. fimmtudagskvöld og
hefjast þeir klukkan
20.00. Kirstín Erna Blön-
dal söngkona heldur utan
um þessa uppákomu og
hún svaraði fúslega
nokkrum spurningum
Morgunblaðsins.
– Hverjir standa að
þessum tónleikum og
hvert er tilefni þeirra?
„Að þessu verkefni
stend ég og fjölskylda
mín sem naut þjónustu
Karítasar og Líknardeild-
arinnar í veikindum móð-
ur minnar. Ég hef mikið
hugsað um hvernig hægt væri að
koma á framfæri þakklæti til
starfsfólksins fyrir frábæra
hjúkrunar- og læknismeðferð.
Rétt fyrir jólin var fjölskyldunni
og öðrum aðstandendum sem
misst hafa ástvini sína, boðið að
sækja samverustund á Líknar-
deildinni. Það var ótrúleg tilfinn-
ing að hitta aftur allar konurnar
sem voru búnar að taka þátt í lífi
manns á erfiðum tímum. Við
systkinin og ekki síst mamma
kölluðum þær alltaf engla og er
það auðvitað eina orðið yfir þess-
ar konur. Það var á þessari
stundu sem ég varð ennþá
ákveðnari í því að láta nú þessa
hugmynd mína verða að veru-
leika, að styrkja starfsfólkið á
einhvern hátt.“
– Fer innkoman af tónleikun-
um í að stofna sjóð, eða er hún
eyrnarmerkt í eitthvað annað?
„Allur aðgangseyrir tón-
leikanna og fé sem safnast í
tengslum við þá renna beint til
símenntunar starfsmanna Kar-
ítasar og Líknardeildarinnar í
Kópavogi því þar fengum við alla
þá hjálp sem hægt er að hugsa
sér. Margir fleiri komu samt að
málum og á göngudeild A3, á
fyrrum Sjúkrahúsi Reykjavíkur,
mjög stórt sæti í hjarta okkar.“
– Nú hafið þið einnig talað um
stofnun sérstaks símenntunar-
sjóðs. Hver yrði tilgangur hans
og áherslur?
„Annað markmið með verk-
efninu er að vekja máls á mik-
ilvægi þess að stofna sjóð í sama
tilgangi fyrir alla heilbrigðis-
starfsmenn sem sinna krabba-
meinssjúkum eða líknandi með-
ferð á Íslandi og vekja athygli á
frábæru starfi alls þessa fólks.
Tilgangurinn yrði að starfsmenn
fái tækifæri til að efla sig í starfi
með símenntun og þannig við-
halda því góða starfi sem þegar
er unnið. Við vitum ekki ennþá
hvort hægt verði að stofna
styrktarsjóð því það er annað
átaksverkefni. Við höfum fengið
Dögg Pálsdóttur lögfræðing til
liðs við okkur við stofnun sjóðs-
ins.“
– Hvers vegna teljið
þið að það sé þörf fyr-
ir svona sjóð?
„Í mínum huga er
engin spurning að
þetta starf er gefandi
en það hlýtur líka að
vera erfitt. Þess vegna er nauð-
synlegt að halda vel utan um
starfsfólkið og gera því kleift að
geta sótt námskeið, ráðstefnur
og fylgjast vel með öllum nýj-
ungum sem eru alltaf að koma
fram. Ég tel líka að þá séu meiri
líkur á að halda góðu starfsfólki í
vinnu. Ég veit að mjög margir
heilbrigðisstarfsmenn hafa tak-
markaðan aðgang að styrkjum
til símenntunar og oft um lágar
upphæðir að ræða.“
– Verður þetta sjóður sem
menn geta sótt um styrki í, eða
munuð þið sjálf velja aðila til út-
hlutunar?
„Við gerum ráð fyrir því að
sjóðnum verði komið í vörslu
traustra aðila sem til slíkra mála
kunna og tengjast krabba-
meinssviðinu.“
– Hvar verða tónleikarnir og
hvað verður boðið upp á?
„Aðaláhersla tónleikanna
verður á flutning íslenskra
sálma á fjölbreyttan hátt. Tón-
leikarnir verða í Hallgríms-
kirkju á fimmtudagskvöldið
klukkan 20.00. Á tónleikunum
koma fram Gunnar Gunnarsson
orgelleikari, Sigurður Flosason
saxófónleikari, kammerkórinn
Schola cantorum og Hörður Ás-
kelsson. Ég ætla líka að syngja
ásamt Gunnari Gunnarssyni org-
elleikara, Jóni Rafnssyni bassa-
leikara og Erni Arnarsyni gít-
arleikara. Þá mun hr. Karl
Sigurbjörnsson biskup vera með
hugleiðingu.“
– Var ykkur vel tekið af lista-
fólkinu?
„Já, það gefa allir vinnu sína
og það var alveg sama hvert ég
snéri mér, allir voru boðnir og
búnir að taka þátt í þessu eða
rétta hjálparhönd. Mig langar til
að nota tækifærið og þakka þeim
fjölmörgu sem áttu þátt í að gera
þessa tónleika og söfnun mögu-
lega, kærlega fyrir þeirra ómiss-
andi framlag. Þetta eru auk tón-
listarfólksins, fram-
kvæmdanefnd, prest-
ar og annað starfsfólk
Hallgrímskirkju, hr.
Karl Sigurbjörnsson,
Dögg Pálsdóttir, DP
lögmenn, Prentmet,
Prentsmiðjan Hvíta
örkin, Blómaverkstæði Binna,
Kirkjuhúsið, Skátakórinn og
Guðmundur Pálsson.“
Við þetta má bæta, að Kirstín
Erna býður alla þá velkomna að
leggja orð í belg eða styrkja mál-
efnið með milligöngu síns net-
fangs, ernablondal@hotmail.-
com og í síma 8972637.
Kirstín Erna Blöndal
Kirstín Erna Blöndal hefur
stundað söng- og píanónám í
Tónlistarskóla Garðabæjar og
hefur söng að aðalstarfi. Einnig
hefur hún umsjón með útfarar-
sönghóp Scola Cantorum, starfar
við liðveislu hjá Félagsmála-
stofnun Reykjavíkur og við fé-
lagsstarf aldraðra í Seljahlíð. Er
í sambúð með Erni Arnarsyni
tónlistarmanni.
… við systk-
inin og ekki
síst mamma
kölluðum þær
alltaf engla