Morgunblaðið - 28.01.2003, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 28.01.2003, Qupperneq 19
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 19 Símenntun Háskólans á Akureyri býður í samstarfi við Hraðlestr- arskólann upp á hraðlestr- arnámskeið sem ætlað er öllum þeim sem vilja auka lestrarhraða sinn. En Hraðlestrarskólinn hefur kennt þúsundum Íslendinga hrað- lestur og námstækni með góðum ár- angri. Meðalaukning lestrarhraða á þriggja vikna námskeiðum sem þessum er nálægt því að vera þre- földun. Jafnframt því sem þátttak- endum hefur reynst auðveldara en áður að tileinka sér og muna aðal- atriði lesefnis. Kennt verður þrjá þriðjudaga í febrúar og kennari er Ólafur Haukur Johnson skólastjóri. Upplýsingar og skráning er hjá Sí- menntun HA. Á NÆSTUNNI INNVEGIN mjólk hjá Norðurmjólk á síðasta ári nam tæplega 27,7 millj- ónum lítra. Aðeins árin 1990 og 1999 var meiri mjólkurframleiðsla á fé- lagssvæði mjólkursamlaganna á Húsavík og Akureyri, sem hafa sam- einast í Norðurmjólk. Árið 1990 var innvegin mjólk á svæðinu tæplega 28 milljónir lítra og um 27,8 milljónir lítra árið 1999. Helgi Jóhannesson framkvæmdastjóri Norðurmjólkur sagðist ekki eiga von á því að fram- leiðslan ætti eftir að aukast frekar. Á undanförnum árum hafa um 500 þús- und lítrar verið seldir burt af fé- lagssvæðinu en Helgi sagði að bænd- ur hafi á móti framleitt mikið af umframmjólk. „Svæðið er því að gefa mun meira en kvótinn gefur til kynna. Þá eru framleiðendur hér á svæðinu nú tilbúnir að kaupa kvóta, þannig að við höfum snúið dæminu við og það ríkir ákveðin bjartsýni meðal bænda í kringum Norður- mjólk.“ Helgi sagði að mjólkurfram- leiðendum hefði fækkað mjög hratt fyrir nokkrum árum en að mjög hafi dregið úr þeirri þróun að undanförnu. Miklar sviptingar hafa orðið í mjólkuriðnaðinum í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum undanfarin ár. Á síðasta ári var starfsstöðinni á Húsa- vík lokað og öll vinnsla flutt til Ak- ureyrar. Kaupfélag Eyfirðinga keypti Mjólkursamlag KÞ á Húsavík árið 1999 og um áramótin 1999–2000 var stofnað sjálfstætt hlutafélag um rekstur Mjólkursamlags KEA, MSKEA. Undir lok ársins 2000 voru samlögin á Húsavík og Akureyri sameinuð undir nafni Norðurmjólk- ur, með aðild Grana, hlutafélags í eigu Auðhumlu, samvinnufélags mjólkurframleiðenda á samlags- svæðunum. Auðhumla, sem átti um 33% í Norðurmjólk, keypti um 67% eignarhlut Kaldbaks (áður KEA) í Norðurmjólk sl. sumar og seldi í kjöl- farið 60% af eignarhlut sínum til Kaupfélags Eyfirðinga, Kaupfélags Skagfirðinga, Osta- og smjörsölunn- ar, Mjólkurbús Flóamanna og Mjólk- ursamsölunnar. Þrátt fyrir þessar breytingar á eignaraðild í Norðurmjólk liggur enn ekki fyrir hvert verðmæti félagsins er. Dómkvaddir matsmenn höfðu metið að heildarverðmæti Norður- mjólkur væri um 940 milljónir króna og tæplega 67% hlutur Kaldbaks því um 625 milljónir króna. Forsvars- menn Kaldbaks féllust ekki á þá nið- urstöðu og töldu verðmæti félagsins of lágt metið. Forsvarsmenn Auð- humlu féllust hins vegar á niðurstöðu matsmannanna. Í kjölfarið var skip- aður gerðardómur til að meta verð- mæti félagsins og verður niðurstaðan bindandi fyrir bæði Kaldbak og Auð- humlu. Von er á niðurstöðu í málinu á næstu vikum. Söluverð á hlut Auð- humlu til áðurnefndra aðila í mjólk- uriðnaði ræðst því einnig af mati gerðardóms á verðmæti fyrirtækis- ins. Innvegin mjólk hjá Norðurmjólk um 27,7 milljónir lítra árið 2002 „Svæðið að gefa meira en kvótinn gefur til kynna“ TÖLUVERÐUR fjöldi fólks lagði leið sína í Hlíðarfjall um helgina, en nú er þar kominn nægur snjór og skíðamenn hafa tekið gleði sína. „Það voru hér um eitt þúsund manns á laugardag í góðu veðri og frábæru skíðafæri þannig að stemmningin var alveg prýðileg,“ sagði Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli. Hann sagði að rigning á sunnudag hefði gert að verkum að færra fólk var á skíðum, „en okkur finnst skíðatíðin fara vel af stað og nú er hún hafin fyrir al- vöru. Við erum fyllilega sátt við þessa fyrstu daga,“ sagði Guð- mundur. Stefnt er að því að opna Stromplyftuna um næstu helgi, en þegar er búið að opna tvær lyftur, Fjarkann og togbraut í Hólabraut, en enn er ekki kominn nægur snjór til að opna Hjallabrautina. Morgunblaðið/Kristján Fjöldi fólks skemmti sér á skíðum í Hlíðarfjalli um helgina. Skíðatíð fer vel af stað ERLING Þór Júlínusson, nýráð- inn slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akureyrar, var staddur á Ak- ureyri í gær og heimsótti m.a. væntanlega samstarfsmenn á slökkvistöðinni. Erling sagði í samtali við Morgunblaðið að nýja starfið legðist vel í sig, „þetta er spennandi starf og spennandi lið“. Erling Þór hefur starfað sem slökkviliðsmaður í 10 ár, hjá Slökkviliði Reykjavíkur og svo Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, og verið stöðvarstjóri í á þriðja ár. Hann er 38 ára gamall, húsa- smíðameistari að mennt og hefur auk þess numið þau fræði sem tengjast starfinu í slökkviliðinu. Eins og komið hefur fram hef- ur verið töluverð ólga innan Slökkviliðs Akureyrar. Í skýrslu um rekstur slökkviliðsins frá sl. hausti kom fram hörð gagnrýni á stjórnun liðsins, m.a. að menn í stjórnunarstöðum væru ekki sam- stiga og mikil togstreita til stað- ar. Þetta vandamál hefði skaðað slökkviliðið og ekki minnst út á við. Í kjölfarið var ákveðið að skipta um bæði slökkviliðsstjóra og aðstoðarslökkviliðsstjóra og báðar stöðurnar auglýstar lausar til umsóknar í síðasta mánuði. Erling sagðist hafa heyrt af því sem þarna hafi verið að gerast en sagðist ekki kvíða því að taka við þessu nýja starfi. „Þetta er gott lið og með góða menn en ég ætla mér ekki að hafa neina skoðun á því sem á undan er gengið.“ Ekki hefur verið ráðið í stöðu aðstoðarslökkviliðsstjóra en Er- ling sagði að hann myndi koma að því að ráða í stöðuna. Ekki liggur alveg ljóst fyrir hvenær Erling kemur til starfa en hann sagði að það yrði væntanlega fljótlega. Hann á konu og tvö börn og sagði að fjölskyldan kæmi til Akureyrar með vorinu. Þetta er spenn- andi starf Morgunblaðið/Kristján Erling Þór Júlínusson, nýráðinn slökkviliðsstjóri á Akureyri. Nýráðinn slökkviliðsstjóri á Akureyri

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.