Morgunblaðið - 28.01.2003, Qupperneq 35
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 35
Elsku Björk, er
mér var tilkynnt að þú
værir farin frá okkur
af þessu tilverustigi
var mér mjög brugðið,
en samt ekki. Stórt
skarð er höggið í vina-
hópinn, margar minningar koma
upp í hugann, við áttum margar
góðar stundir, hlógum og grétum.
Þú varst mikill húmoristi og
skemmtileg, þrælskörp og vel gef-
in, en að því er ekki spurt þegar
svo illræmdur sjúkdómur herjar á,
sem þú barðist við. Með þessum fá-
tæklegu orðum kveð ég þig, trausti
vinur.
Láttu nú sanna
blessunar brunna
blómlega renna á móti mér,
svo sæluna sanna
ég fái að finna
og fögnuð himnanna, þá ævin þver.
Öndin mín flýgur
BJÖRK STEIN-
GRÍMSDÓTTIR
✝ Björk Stein-grímsdóttir
fæddist á Akureyri
hinn 12. október
1969. Hún lést hinn
7. janúar síðastliðinn
og var útför hennar
gerð frá Akureyrar-
kirkju 15. janúar.
og allur minn hugur,
upp sem þú dregur í hæðir
til þín.
Guð minn eilífur,
Guð minn voldugur,
Guð minn blessaður, heyr þú
til mín!
(Höf. ók.)
Megi algóði Guð
vera með þér í ljósinu.
Steinar Smári.
Ó, vinkona, hvað á
ég að segja. Þú ert far-
in og það er svo erfitt
að sætta sig við það. Í huga mér ég
sé þig og mig er við vorum óaðskilj-
anlegar og deildum öllu, eins og
tveim unglingsstelpum ber að gera.
Ég mun aldrei gleyma...
Ég mun ávallt vera þakklát því
að hafa fengið að hafa fengið að
ganga hér um þessa jörð með þér í
þann tíma. Okkur leiðir skildu, ég
fór til Englands, þú á Akureyri, þú
komst og heimsóttir mig í Englandi
og finnst mér í dag ég ekki hafa
gefið þér nógan tíma, nóga athygli.
Mér finnst erfitt að kveðja, enn erf-
iðara að kveðja ótímabærri kveðju.
Mikið vona ég að þér líði betur, að
þú sért sátt, en vertu viss, við erum
einum englinum færri hér á jörð.
Mér verður hugsað til frænkna
þinna Tinnu og Rakelar og sakn-
aðarins sem þær hljóta að finna.
Mér verður hugsað til barnanna
sem þú hefur í gegnum tíðina laðað
að þér. Mér verður hugsað um
sársaukann/einmanaleikann sem þú
hefur fundið í brjósti þér, svo lengi.
Mér verður hugsað til síðasta skipt-
isins er ég sá þig, þú komst hér til
mín og við áttum yndislega kvöld-
stund saman.
Mér líður vel að vita að hinsta
hvílan þín er á Akureyri, það virðist
vera rétt þó svo að allt annað virð-
ist vera rangt.
Vinkona, hér er mín hinsta
kveðja til þín, tárum mínum
skreytt. Í eigingirni minni vil ég
ekki skrifa þetta. Ég sendi for-
eldrum þínum styrk á þessum erf-
iða tíma og þínum nánustu. Mér
finnst þessi litla hugrenning segja
allt sem segja þarf.
Lát mig aldrei gleyma.
Lát mig aldrei hugsa „nú hef ég gert nóg“.
Lát mitt innra sár aldrei gróa
uns allra hafa undir aftur heilast.
Lát mig aldrei sofna.
Lát mig aldrei dofna fyrir annarra kvöl.
Lát mig aldrei hætta að reyna
hversu lítilfjörlega sem mér líður.
Og lát mig aldrei staðna
og hætta að spyrja í kyrrðinni:
Ó, lifandi vatn, ó, afl sem heilar.
Viltu koma?
(Höf. ók.)
Hvar sem þú ert megir þú hvíla í
friði og ró. Þín vinkona,
Erla Björg Rúnarsdóttir.
Frú Áslaug Sig-
geirsdóttir, eða ein-
faldlega Áslaug eins
og ég var vön að kalla
hana, bjó í senn yfir auðugum og
sterkum persónuleika. Fljótt eftir
að ég kynntist henni bundumst við
tryggum trúnaðarböndum, sem við
héldum áfram að rækta í fyllingu
tímans þrátt fyrir landfræðilegan
aðskilnað í seinni tíð; þar sem ég
var búsett í Frakklandi en hún á
Íslandi. Oftar en ekki átti Áslaug
frumkvæðið að því að hafa samband
við mig og gaf mér iðulega fregnir
af fjölskyldum beggja, enda dóttir
mín, Margrét Sigurðardóttir kenn-
ari, gift syni hennar, Friðjóni Erni
Friðjónssyni hrl. Vegna þessara
fjölskyldutengsla varð vinátta okk-
ar nánari en ella.
Það er ekki of djúpt í árinni tek-
ið, að með andláti Áslaugar hafi ég
misst í senn sanna vinkonu og trún-
aðarvin sem gaf sér ævinlega tíma
til að hlusta á mig og sem ég gat
rætt hindrunarlaust við jafnt á góð-
um stundum sem erfiðum. Áslaug
var nefnilega gædd einstæðum
ÁSLAUG
SIGGEIRSDÓTTIR
✝ Áslaug Sig-geirsdóttir
fæddist í Reykjavík
25. nóvember 1917.
Hún lést á líknar-
deild Landakots-
spítala 3. janúar
síðastliðinn og var
útför hennar gerð
frá Fríkirkjunni í
Reykjavík 10. jan-
úar.
hæfileika til að hug-
hreysta fólk og stappa
í það stálinu þegar á
móti blés í lífi þess.
Þetta var jafnframt
helsti styrkur per-
sónuleika hennar.
Áslaug mun eiga
veglegt sæti í hjarta
mínu, svo lengi sem ég
lifi og sem enginn ann-
ar getur nokkurn tíma
sest í. Megir þú hvíla í
friði, elsku hjartans
vinkona mín,
Fabienne Chr.
Hallsson.
Afmælis- og minningargreinum má skila í
tölvupósti eða á disklingi (netfangið er
minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um
leið og grein hefur borist). Ef greinin er á
disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð-
synlegt er að símanúmer höfundar og/eða
sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi
með. Þar sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina, enda þótt
þær berist innan hins tiltekna frests. Nán-
ari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern lát-
inn einstakling birtist formáli og ein aðal-
grein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en
aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300
orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50
línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn-
anir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til
þrjú erindi. Einnig er hægt að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 lín-
ur, og votta virðingu án þess að það sé gert
með langri grein. Greinarhöfundar eru
beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.
Sími 562 0200
Erfisdrykkjur
Erfidrykkjur
Heimalöguð kaffihlaðborð
Grand Hótel Reykjavík
Sími 514 8000
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi,
GUÐMUNDUR KRISTJÁNSSON
fisksali
frá Bræðramynni,
Bíldudal,
lést á hjúkrunardeild Hrafnistu aðfaranótt
laugardagsins 25. janúar.
Jóna Karítas Eggertsdóttir,
Ívar Guðmundsson, Rafn Guðmundsson,
Svanberg Guðmundsson, Eygló Benediktsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
INGVAR JÓNSSON,
Sæborg,
Skagaströnd,
verður jarðsunginn frá Hólaneskirkju föstu-
daginn 31. janúar kl. 14.00.
Jón Ingi Ingvarsson, Sigríður Stefánsdóttir,
Árni Björn Ingvarsson, Guðrún Þ. Guðmundsdóttir,
Elínborg Ása Ingvarsdóttir, Guðjón Einarsson,
barnabörn og langafabörn.
Útför elskulegrar frænku okkar,
ÁSLAUGAR SKÚLADÓTTUR
fyrrv. sendiráðsfulltrúa,
Rekagranda 10,
Reykjavík,
sem andaðist mánudaginn 20. janúar, fer fram
frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn
29. janúar kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
Krabbameinsfélagið og Kvennadeild Reykjavíkurdeildar Rauða kross
Íslands.
Fyrir hönd ættingja hinna látnu.
Bárður Hafsteinsson, Edda Gunnarsdóttir,
Guðrún K. Hafsteinsdóttir, Einar Pétursson,
Hannes Hafsteinsson, Ólafía Soffía Jóhannsdóttir,
Kristín Bárðardóttir.
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ELÍN ÞÓRÐARDÓTTIR,
Sæviðarsundi 35,
Reykjavík,
lést á Líknardeild Landspítala Landakoti
sunnudaginn 26. janúar.
Útförin verður auglýst síðar.
Bergdís Kristjánsdóttir, Guðmundur Bjarnason,
Sævar Örn Kristjánsson, Kristín Þórðardóttir,
Guðmundur Óli Hreggviðsson, Brynja Ingadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Séra BJÖRN SIGURBJÖRNSSON,
3460 Birkerød,
Kaupmannahöfn,
er látinn.
Vandamenn.
Ástkær eiginmaður og bróðir,
BOGI JÓN JÓNSSON,
andaðist í London þriðjudaginn 14. janúar.
Jarðsett var í Grikklandi.
Fyrir hönd aðstandenda,
Elli Jónsson,
Sigríður Kristín Lister,
Betty A. Lillie.