Morgunblaðið - 23.02.2003, Page 19
þeirri þróun. Þetta er eina plata
Yardbirds sem innheldur einvörð-
ungu frumsamin lög og rokkfræð-
ingar hafa bent á þessa plötu sem
endurspeglun á því sem Yardbirds
bjuggu yfir; sveiflast var úr blús, yfir
í austræna takta og svo yfir í munka-
popp. Áhættur voru teknar til hægri
og vinstri.
Sama ár hætti Samwell Smith í
bandinu og hóf að sinna upptöku-
málum fyrir aðra. Page var þá orðinn
hundleiður á því að vera leiguliði og
leysti hann feginsamlega af. Það varð
hins vegar fljótlega ljóst að það var
ómögulegt að hafa Page úti í horni,
nuddandi á bassa og því fóru nettar
endurskipulagningar í gang. Dreja
var settur á bassann og Page fór yfir
á gítarinn. Jeff Beck og Jimmy Page
saman í bandi. Púff! Enda stóð það
ekki lengi yfir. Of gott til að vera satt?
III Aðeins ein smáskífa kom fráþessari útgáfu af bandinu.
„Happenings Ten Years Time Ago“
var kirfilega bundinn í sýrurokks-
formið, kannski um of því að vin-
sældavinkillinn var ekkert sér-
staklega mikill. Ekki að það sé, eða
nokkurn tíma verði, einhver mæli-
kvarði á gæði tónlistar. Beck var á
þessum tíma orðinn laus í rásinni,
mætti illa á æfingar o.s.frv. Hann
hætti því en þeir sem eftir voru héldu
áfram sem kvartett. Endir þessa
fyrsta kafla í sögu Yardbirds var þó
skammt undan.
Árið 1967 kom platan Little Games
út sem sagan hefur dæmt sem vonda
en hefur þó verið að fá uppreisn æru
að undanförnu. Vinsældalistarnir
hættu um þetta leyti að vera hliðhollir
sveitinni en gæðamolar héldu áfram
að læðast út, þó í heldur minni mæli
en áður.
Aðdáendahópur sveitarinnar hafði
nú mestan part færst yfir til Banda-
ríkjanna og þar spilaði sveitin af mik-
illi list, en sveitin var nú sem áður
hörku tónleikaband. Árið 1968 var
svo árið sem Yardbirds hættu loks
störfum. Gamli góði listræni ágrein-
ingurinn var farinn að gera vart við
sig þar sem Relf og McCarty vildu
sigla á mýkri mið en áður en Page
vildi fara að rokka þetta almennilega
upp. Relf og McCarty eftirlétu Page
sveitina og stofnuðu Renaissance á
meðan Page kláraði Yardbirds-
dæmið með því að stofna The New
Yardbirds ásamt Dreja. Fljótlega
hætti Dreja einnig og fékk Page því
til liðs við sig John Paul Jones sem
hafði m.a. séð um strengjaútsetn-
ingar á Little Games plötunni. Söngv-
arinn Robert Plant, úr hljómsveitinni
Hobbstweedle, slóst í hópinn í ágúst
1968 en ástæða þessara ráðninga var
tónleikaferðalag sem vofði yfir með
haustinu. Trommarinn John Bonham
var svo síðasti maður inn og þá var
loks hægt að fara í túrinn. The New
Yardbirds tóku síðan upp fyrstu plötu
sína á aðeins þrjátíu tímum og
breyttu þá nafninu í Led Zeppelin.
En það er önnur saga …
Tónleikar The Yardbirds á Íslandi
verða fimmtudaginn 27. mars á Broad-
way. Forsala er hafin.
arnart@mbl.is
TENGLAR
.....................................................
www.theyardbirds.com
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2003 19
8-15%
ver›lækkun
Ver›dæmi SpariPlús
Krít
Portúgal
Mallorca
Benidorm
53.980 kr.
47.267 kr.
43.140 kr.
44.340 kr.
* á mann m. v. að 2 fullorðnir og 2 börn,
2ja - 11 ára, ferðist saman.
Innifalið: Flug, gisting í tvær vikur,
íslensk fararstjórn, ferðir til og frá
flugvelli erlendis og allir flugvallar-
skattar.
*
*
*
*
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Ef tveir ferðast saman, 67.970 kr. á mann.
Ef tveir ferðast saman, 69.355 kr. á mann.
Ef tveir ferðast saman, 54.530 kr. á mann.
Ef tveir ferðast saman, 63.730 kr. á mann.
Umboðsmenn
um allt land:
Selfoss
Sími 482 1666
Vestmannaeyjar
Sími 481 1450
Keflavík
Sími 420 6000
Borgarnes
Sími 437 1040
Ísafjörður
Sími 456 5111
Akureyri
Sími 460 0600
Egilsstaðir
Sími 471 2000
Opi› í dag kl. 13 - 16
Ekki bí›a –
allt a› seljast upp!