Morgunblaðið - 23.02.2003, Page 53

Morgunblaðið - 23.02.2003, Page 53
HUGVEKJA MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2003 53 Skólavörðustíg 12, Bergstaðastrætismegin, sími 551 9090 Næg bílastæði, Bílastæðishúsið Bergstaðir. Ekkert stöðumælagjald um helgar PS. Þú getur sparað þér sporin! Heimsendingarþjónusta, símar 561 3030 og 551 9090 Konudagsblómaúrvalið er hjá okkur Kvöldverður á Naustinu fylgir konudags- blómvendinum frá okkur Einnig óvæntur glaðningur frá Snyrtivöruversluninni Hamingjuóskir á konudaginn! Í tilefni konudagsins bjóðum við þér að borða á Naustinu. Með kveðjuValur og Binni Gildir út Góuna, alla daga, lau. og sun. fyrir kl. 20 2 fyrir 1 VÍÐA í ritum er aðfinna kjarnyrtarsetningar um Bibl-íuna, og hér á eftir fersumt af því. Eitt vant- ar þó tilfinnanlega, spakmæli höfð eftir konum. En þau fann ég bara engin. Ástæðan er vafalaust sú, að yfirráð karla á þeim ritvelli hafa verið nær algjör lengi framan af. Þetta er enn sárara fyrir það, að í dag er líka konudagur. En hvað um það, mannkynssögunni verður ekki breytt. Ég bendi hins vegar á þetta, sem enn eitt dæmi um óréttlæti hins liðna í garð kvenna. En hér koma sumsé nokkur fleyg orð um heilaga ritningu, og er byrjað á 14. öld. Lesist rólega og með íhugun:  Biblían gefur kannski færri blóm, en örugglega fleiri ávexti en hin veraldlegu rit. Francesco Petrarca (1304–1374), ítalskur rithöfundur.  Biblían var rituð fyrir hugsandi menn. Marteinn Lúther (1483–1546), þýskur munkur og guðfræðingur.  Tilurð Biblíunnar... er það allra mesta happ sem rekið hefur á fjörur mannkynsins. Immanuel Kant (1724–1804), þýskur heimspekingur.  Það er ógjörningur að stjórna heiminum réttlátlega án Guðs og Biblíunnar. George Washington (1732–1799), 1. forseti Bandaríkjanna.  Leyfum hámenningunni að þróast áfram, leyfum vísindunum að brjóta enn einn múrinn í óseðj- andi þekkingarleit sinni, og huga mannsins að útvíkka sig og upp- hefja að vild; lengra eða hærra en að siðfágun kristindómsins, eins og hún birtist í guðspjöllunum, verður samt ekki komist. Johann Wolfgang Goethe (1749– 1832), þýskt ljóðskáld.  Biblían er gluggi á þessari heimsprísund, svo að vér höfum útsýn til eilífðarinnar. Timothy Dwight (1752–1817), bandarískur prestur.  Biblían er ekkert venjulegt rit, heldur lifandi sköpun, búin krafti, sem yfirvinnur allt það sem and- spænis henni stendur. Napoleon Bonaparte (1769–1821), franskur keisari.  Ritningin er fyrir jarðarinnar börn, er til himins vilja ferðast, í nokkru tilliti áþekk því sem hátt fjall er vegfaranda manni í eyði- mörku... Meðan hann sér fjallið veit hann hvert hann á að stefna og hann getur ekki villst meðan hann hefur ekki á því sjónar misst. Tómas Sæmundsson (1807–1841), íslenskur prestur.  Alltaf þegar ég hef verið ráð- þrota og örvinglaður, hefur Bibl- íunni ávallt tekist að gefa mér ljós og styrk. Robert E. Lee (1807–1870), bandarískur hershöfðingi.  Ég álít, að Biblían sé allra mesta og besta gjöf almættisins til jarðarbúa, fyrr og síðar. Abraham Lincoln (1809–1865), 16. forseti Bandaríkjanna.  Biblíulestur er menntun út af fyrir sig. Alfred Tennyson (1809–1892), enskt ljóðskáld.  Ég hef á lífsleiðinni kynnst 95 af stórmennum heimsins og 87 þeirra voru fylgjendur Biblíunnar. Með þeirri bók er upprunavottorð, og ómælisdjúp skilur hana frá öll- um öðrum keppinautum. William Ewart Gladstone (1809– 1898), breskur stjórnmálamaður.  Það er engin leið að hneppa þjóð, sem iðkar biblíulestur að staðaldri, í andlegar eða fé- lagslegar þrældómsviðjar. Megin- reglur Biblíunnar eru grundvöllur mannlegs frelsis. Horace Greeley (1811–1872), bandarískur stjórnmálamaður og blaðamaður.  Nýja testamentið er hið allra besta rit, sem nokkurn tíma hefur þekkst í mannheimi. Charles Dickens (1812–1870), enskur rithöfundur.  Biblían er spegill. Maður á ekki að einblína á spegilinn, heldur á mynd sína í honum. Søren Kierkegaard (1813–1855), danskur heimspekingur.  Biblían er sjókort Guðs fyrir þig til að stýra eftir, til að halda þér frá sjávarbotninum og til að sýna þér hvar höfnin er og hvern- ig þú átt að komast inn í hana án þess að sigla á kletta eða sker. Henry Ward Beecher (1813– 1887), bandarískur prestur.  Enginn vex upp úr Biblíunni; hún víkkar og dýpkar eftir því sem við eldumst. Charles Haddon Spurgeon (1836– 1892), enskur guðfræðingur.  Orð Guðs er í Biblíunni, rétt eins og sálin er í líkamanum. Peter Taylor Forsyth (1848– 1921), skoskur prestur.  Góð þekking á Biblíunni er meira virði en háskólanám. Theodore Roosevelt (1858–1919), 26. forseti Bandaríkjanna. Af þessu má sjá, að Biblían hef- ur löngum reynst mönnum vel sem leiðarvísir um ólgusjói lífsins. Og svo verður örugglega enn, á vegum óræðrar framtíðar. Sjókortið Dagur Biblíunnar er runninn upp. Um þetta trúarrit kristinna manna hefur ýmislegt verið sagt í gegnum tíðina og ákvað Sigurður Ægisson að leyfa að þessu sinni nokkrum val- inkunnum röddum mannkynssögunnar að tjá sig hér um það efni. sigurdur.aegisson@kirkjan.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.