Morgunblaðið - 28.11.2003, Síða 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Snilldarbók um manninn
Grím Thomsen.
Ástir hans og barneignir.
Vináttu við konunga. Lífssorg
óhemjunnar frá Fredericia.
Loksins er þjóðsagan
um hinn grálynda Grím
kveðin í kútinn.
Lífsþorsti og leyndar ástir
er átakasaga um manninn
sem hefur fengið kaldar
kveðjur eftirtímans.
Meistaraverk.
VAR GRÍMUR THOMSEN
VARMENNI?
BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR
Þetta er hann.
Saga fyrirbyggjandi læknisfræði
Fróðleg og
merkileg saga
Peter Nilsson, að-stoðarprófessor oglektor við hjarta-
deild sjúkrahússins í
Lundi, heldur fyrirlestur á
morgun á vegum Félags
áhugamanna um sögu
læknisfræðinnar í fyrir-
lestraröð sem kennd er við
Egil Snorrason. Yfirskrift
fyrirlestrarins er Saga fyr-
irbyggjandi læknisfræði,
með áherslu á reynslu
Þjóðverja og Norður-Evr-
ópubúa. Fyrirlesturinn
verður fluttur í fundarsal
Barnaspítala Hringsins og
hefst hann klukkan 11.
Félag áhugamanna um
sögu læknisfræðinnar er
aðili að norrænum samtök-
um félaga áhugamanna um
sögu læknisfræðinnar. Á
vegum samtakanna eru haldnar
ráðstefnur annað hvert ár til
skiptis á Norðurlöndunum. Félag-
ið hefur tvisvar staðið fyrir nor-
rænum ráðstefnum um sögu
læknisfræðinnar, 1981 og 1995. Í
sambandi við ráðstefnuna 1981
barst félaginu fyrirheit. Paul Ass-
ens, danskur lyfjafræðingur og
umboðsmaður breska Wellcome-
lyfjafyrirtækisins á Norðurlönd-
um, hét félaginu fjárhagslegum
stuðningi til að halda árlegan fyr-
irlestur til heiðurs Agli Snorra-
syni lækni og skyldi fyrirlesturinn
kenndur við Egil. Hann var
danskur læknir af íslenskum ætt-
um, dáinn 1996, og mikill fræði-
maður um sögu heilbrigðismála.
Tilgangur fyrirlestranna, að sögn
Atla Þórs Ólasonar læknis, er að
styrkja rannsóknir og norræna
samvinnu um sögu læknisfræð-
innar. Ákveðnar reglur voru sett-
ar um val á fyrirlesurum og skyldi
tryggt að þeir kæmu frá öllum
Norðurlöndum. Fyrsti Egils
Snorrasonar-fyrirlesturinn var
haldinn í mai 1982 og síðan hafa
fyrirlestrarnir verið árlegur við-
burður í starfsemi félagsins.
Og þá að spjallinu við Peter
Nilsson.
Segðu okkur aðeins frá fyrir-
lestrinum sem þú ætlar að flytja.
„Saga fyrirbyggjandi læknis-
fræði er bæði fróðleg og mikilvæg.
Hins vegar hefur merking þessa
hugtaks verið nokkuð á reiki eftir
þeim tíðaranda og pólitíska um-
hverfi sem er við lýði hverju sinni.
Svo ég nefni dæmi þá hafði fyr-
irbyggjandi læknisfræði sérstak-
ar hugmyndafræðilegar merking-
ar í Þýskalandi nasismans.
Sérstök þróunar- og þjálfunarstöð
var stofnsett í smábænum Alt-
Rehse, Mecklenburg og starfaði á
árunum 1935 til 1941. Það er
möguleiki á því að draga vissar
ályktanir um það hvernig læknar
eigi að hugsa og framkvæma með
hliðsjón af þessu, en enn fremur
hvernig þeir eigi ekki að hugsa og
framkvæma. Það má segja að
þetta sé grunnurinn að fyrri hluta
fyrirlestrarins, en í þeim síðari
horfi ég meira til nútímans og
þeirrar staðreyndar að
Íslendingar njóta þess
að lifa lengur og búa
við lægri tíðni hjarta-
og æðasjúkdóma en
aðrir Norðurlandabú-
ar. Hvers vegna ætli
svo sé? Er hugsanlegt
að lífsstíll Íslendinga komi þar við
sögu? Ef til vill ekki, því Íslend-
ingar reykja t.d. meira en Svíar og
neysla á fiskmeti hefur dregist
saman. Skipta erfðafræðilegir
þættir máli? Ja, Íslendingar eru í
aðalatriðum keimlíkir öðrum nor-
rænum þjóðum, en hugsanlega
skiptir fámennið miklu máli, að
það geri Íslendingum kleift að
vera meira félagslega samstiga.
Það sem gefur slíkt til kynna er sú
staðreynd að Íslendingar annast
hver annan ekki síður í heilbrigði
en sjúkdómum. Þetta er nokkuð
sem rannsóknir framtíðarinnar
ættu að skoða nánar.“
Hverjar verða helstu áherslur
fyrirlestrarins?
„Þær má flokka í fimm hluta. Í
fyrsta lagi þá ber okkur að læra af
sögunni að gera ekki sömu mis-
tökin og áður hafa verið gerð. Í
öðru lagi að straumar og stefnur í
heilbrigðismálum taka ævinlega
mið af þeim þjóðfélögum sem þau
eiga að þjóna. Í þriðja lagi velti ég
fyrir mér þeirri þversögn er varð-
ar langlífi Ísleninga samhliða lífs-
stíl sem býður að mörgu leyti ekki
upp á það. Í fjórða lagi það sem ég
gat um áðan, að félagsleg sam-
staða í fámenni geti skipt sköpum
og hvað hægt sé að læra af því.
Loks í fimmta lagi mun ég ræða
um allt það er aðrar þjóðir geta
lært af Íslendingum.“
Á hvaða hátt skera lönd Norð-
ur-Evrópu og Þýskaland sig frá
öðrum löndum í þessum skilningi?
„Þau lönd sem nefnd eru, Norð-
ur-Evrópa og Þýskaland, hafa
sama sögulega, efnahagslega,
trúarlega og pólitíska bakgrunn-
inn. Þetta er mikilvægt, því að
annars staðar í heiminum eru
þessir þættir mjög breytilegir.“
Það hafa verið uppi raddir á Ís-
landi þess efnis að fyrirbyggjandi
læknisfræði sé að ganga út í öfgar,
hvað finnst þér um það?
„Kjarni þessa vanda
er nokkuð sem við get-
um kallað upplýst sam-
þykki, „informed con-
sent“, sem þýðir að
sjúklingur eða einstak-
lingur sem er til skoð-
unar ákveður sjálfur
hvort hann eða hún nýtir sér ráð-
gjöf og úrræði þau sem læknar
bjóða fram að vandlega athuguðu
máli. Læknar segi ævinlega allan
sannleikann og bjóði þaulhugsaða
ráðgjöf.“
Telurðu að fyrirlesturinn veki
menn til umhgsunar og umræðna
hér á landi?
„Það ætla ég rétt að vona.“
Peter Nilsson
Peter Nilsson fæddist í Svíþjóð
7. október 1953. Lauk læknis-
prófi frá læknadeild Háskólans í
Lundi 1979 og hefur starfað á
ýmsum sænskum sjúkrahúsum
síðan. Frá 1997 aðstoðarprófess-
or og lektor við hjartadeildina á
sjúkrahúsinu í Málmey. Hefur
skrifað fjölda greina um læknis-
fræðileg efni. Hefur einnig unnið
fræðistörf um sögu læknisfræð-
innar, sérstaklega sögu heilsu-
gæslulækninga og forvarna.
Peter er kvæntur og á fjögur
börn.
Hugsanlega
skiptir
fámennið
miklu máli
NEMENDUR í Menntaskólanum
við Sund stefna að því að safna að
minnsta kosti einni milljón króna
þann 18. febrúar næstkomandi til
styrktar menntauppbyggingu í
Kambódíu. Framtakinu er hleypt
af stokkunum í samstarfi við
Barnaheill sem vinnur með sam-
tökunum Save the Children í
Kambódíu.
Menntskælingar eru engir ný-
græðingar í fjársöfnun fyrir skóla-
börn í Kambódíu því fyrir fjórum
árum söfnuðu þeir einni milljón
króna sem var varið til þess að
ljúka byggingu barnaskóla í þorp-
inu Kampong Our.
Söfnunin fer þannig fram að
nemendur bjóða fyrirtækjum og
stofnunum vinnuframlag sitt í einn
dag fyrir 2.400 krónur sem renna í
söfnunina.
Að sögn MS-inganna Ólafar Guð-
mundsdóttur og Kára Viðarssonar,
sem eru í stýrihóp fyrir verkefnið,
stefna nemendur að því að slá
fyrra met og vonast eftir góðum
undirtektum úti í þjóðfélaginu. Síð-
ast voru unnin margvísleg störf og
nemendurnir kallaðir til starfa hjá
barnaheimilum og við að raða
skjölum fyrir stofnanir og margt
fleira.
MS-ingarnir ætla að nota einn
dag í árshátíðarviku sinni fyrir
söfnunina og lýsa sig hér með
reiðubúna til að vinna fyrir hvern
þann sem gæti haft not fyrir auka-
starfskraftinn hinn 18. febrúar.
Stefna á
eina milljón
króna að
lágmarki
Morgunblaðið/Jim Smart
Kári Viðarsson og Ólöf Guðmundsdóttir í MS kynna söfnunarátakið.
MS-ingar styðja menntauppbyggingu í Kambódíu
GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS
mbl.is