Morgunblaðið - 28.11.2003, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 28.11.2003, Qupperneq 12
FRÉTTIR 12 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Valgerður Sverrisdóttir við-skiptaráðherra sagði íumræðu utan dagskrár áAlþingi í gær að stjórn- endur Kaupþings Búnaðarbanka hefðu lært dýrmæta lexíu í síðustu viku er komið hefði fram hörð gagn- rýni á kauprétt tveggja af þremur æðstu stjórnendum bankans á hluta- bréfum í bankanum. Kvaðst hún von- ast til þess að umræðan sem hefði orðið um starfskjör þeirra yrði stjórnendum annarra fyrirtækja umhugsunarefni. Hún ítrekaði að skoða þyrfti þann grunn sem starf- semi hlutafélaga byggðist á, þ.e. lög um hlutafélög, og tengsl hans við fjármálamarkaðinn. Þá sagði hún það koma sterklega til álita að setja reglur um stjórnarhætti í fyrirtækj- um til að koma í veg fyrir hagsmuna- tengsl. Aðspurð kvaðst hún þó ekki myndu beita sér fyrir því að kaup- réttarsamningar yrðu bannaðir. „Það þjónar hagsmunum heildarinn- ar að stjórnendur hafi hagsmuni af góðu gengi fyrirtækisins. Kauprétt- arsamningar eiga þó að vera þannig úr garði gerðir að þeir auki ekki áhættu í rekstri fyrirtækisins. Við fyrstu sýn finnst mér eðlilegt að kaupréttarsamningar verði bornir undir hluthafafund. Að öðru leyti vil ég ekki tjá mig um hvaða reglur eigi að setja um kaupréttarsamninga, enda væri óþarfi að leggja í mikla vinnu ef ég hefði bestu lausnina á takteinum án nokkurrar yfirlegu.“ Jóhanna Sigurðardóttir, þingmað- ur Samfylkingarinnar, var málshefj- andi utandagskrárumræðunnar, en yfirskrift hennar var ofurlaun stjórnenda fyrirtækja. „Neðanjarð- arlaunakerfi stjórnenda fyrirtækja er orðið mikið áhyggjuefni,“ sagði Jóhanna „og engu líkara en að á síð- ustu árum sé að verða til ný yfirstétt sem lifir í ein- hverri veröld sem er til hliðar við raunveruleika íslensks samfélags.“ Sagði hún að hjá hinni nýju yfirstétt réðu ferðinni geðþótta- ákvarðanir og græðgi. Hver stjórn- andi virtist umbuna öðrum í von um að fá það endurgoldið. Allt væri það á kostnað neytenda. Þeir borguðu brúsann. „Þetta kallar svo sannar- lega á að settar séu reglur um stjórn- arhætti í fyrirtækjum til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra og að stjórnir fjármálafyrirtækja verði m.a. skipaðar óvilhöllum aðilum sem engra hagsmuna hafa að gæta.“ Kannski þurfti bylmingshögg Jóhanna fagnaði hörðum við- brögðum forsætisráðherra, Davíðs Oddssonar, og viðskiptaráðherra í síðustu viku þegar upplýst var um kaupréttarsamning stjórnenda Kaupþings Búnaðarbanka. „En það var ekki fyrr en svo hrikalega var gengið fram af þjóðinni að þeir tóku við sér, þ.e. þegar ekkert blasti við annað en þjóðaruppreisn. Kannski þurfti þetta bylmingshögg til að opna augu stjórnvalda; þegar tveir stjórnendur Kaupþings Búnaðar- banka fá á silfurfati, ofan á meira en fjórar milljónir kr. í mánaðartekjur, kaupréttarsamning á gengi sem er langt undir markaðsvirði. Hlutafjár- kaupin voru síðan fjármögnuð með lánsfé frá bankanum, án tryggingar í öðru en bréfunum. Höfuðið var svo bitið af skömminni með því að stjórn- endur voru varðir fyrir tapi af öllum herlegheitunum. Þetta er yfirgengi- legt og ég mun kalla eftir því að Fjár- málaeftirlitið skoði það sérstaklega hvort ekki var verið að brjóta 104 gr. hlutafjárlaga með því að stjórnarfor- manni og forstjóra var lánað fyrir hlutafjárkaupunum.“ Jóhann sagði eitt víst: málið í heild sinni sýndi afar gloppótta löggjöf um fjármál á markaði og endurspeglaði ennfremur mjög alvarlega siðferðis- bresti sem yrði að bregðast við af fyllstu hörku. Hún sagði samning stjórnenda Kaupþings Búnaðarbanka þó ekki eina dæmið um ofurkjör. Nefndi hún m.a. starfslokasamninga fyrrverandi forstjóra Vátryggingafélags Íslands, fyrrverandi forstjóra Símans og fyrrverandi forstjóra Byggðastofn- unar. Þeir hefðu hver og einn numið tugum og yfir hundrað miljónum króna. Aðrir þingmenn vitnuðu einn- ig til þessara starfslokasamninga í umræðunum í gær. Að lokum skoraði Jóhanna á við- skiptaráðherra að bregðast við af fullri festu í málinu og „reisa þær girðingar sem duga til þess að þjóðin þurfi aldrei, aldrei aftur, að upplifa svona svívirði- lega græðgi stjórnenda á fjármálamarkaði; mannanna sem blóðmjólka einstaklinga og fjölskyld- ur með háum vöxtum og þjónustu- gjöldum sem eru að sliga fjölda heimila í landinu.“ Snerti viðkvæman streng Valgerður Sverrisdóttir hóf ræðu sína á því að segja að allt hefði leikið á reiðiskjálfi í þjóðfélaginu í síðustu viku vegna umræddra samninga „sem að öllum líkindum hefðu fært tveimur stjórnendum fjármálafyrir- tækis hundruð milljóna króna í hagn- að að nokkrum árum liðnum.“ Sagði hún að samningurinn hefði snert mjög viðkvæman streng í íslenskri þjóðarsál og viðbrögðin hefðu orðið í samræmi við það. „Ég tel að umræð- an í kjölfar þessa atburðar muni leiða til góðs fyrir íslenskt þjóðfélag. Markaðurinn á ekki að vera tóma- rúm, án alls samhengis við það sam- félag sem skóp hann. Fyrirtæki á markaði bera ekki einungis ábyrgð gagnvart fjárfestum heldur einnig gagnvart samfélaginu.“ Ráðherra sagði að breytingar á íslensku at- vinnulífi á síðustu árum hefðu leitt til stærri og sterkari fyrirtækja, auk- innar samkeppnishæfni og betri lífs- kjara almennings heldur en nokkurn tíma áður í sögu þjóðarinnar. „Það kemur hins vegar betur og betur í ljós að markaðurinn þrífst ekki nema með skýrum leikreglum og öflugu eftirliti. Markaðurinn þarf aðhald samfélagsins, ekki bara fjárfestanna. Á síðustu árum höfum við alþingis- menn eytt miklum tíma í setningu laga um fjármálamarkaðinn. Þær breytingar hafa leitt til betri fjár- málamarkaðar. Að mínu mati þurf- um við að skoða þann grunn sem starfsemi hlutafélaga byggist á, þ.e. lög um hlutafélög, og tengsl hans við fjármálamarkaðinn.“ Þá sagði ráð- herra að alþjóðleg umræða um stjórnkerfi hlutafélaga snerist fyrst og fremst um hvernig eftirliti með stjórnendum væri háttað. Eftirlits- kerfið ætti að koma í veg fyrir að stjórnendur létu stjórn- ast af eigin hagsmunum við ákvarðanatöku í rekstri félaga. Hún sagði að umræðan hefði hafist í Bandaríkjunum en hefði á síðustu árum orðið æ umfangsmeiri í Evrópu. „Hér á landi hafa t.d. Landssamtök lífeyrissjóða, Kaup- höllin og Verslunarráð staðið fyrir umræðu um stjórnkerfi hlutafélaga. Ég tel það óhjákvæmilegt að löggjaf- inn taki þetta mál upp. Í viðskipta- ráðuneytinu er þessi vinna þegar hafin.“ Hvorki skynsamir né hógværir Margir þingmenn tóku þátt í um- ræðunni. Álfheiður Ingadóttir, vara- þingmaður Vinstrihreyfingarinnar –græns framboðs, minnti m.a. á að efnahags- og viðskiptanefnd þings- ins hefði ákveðið að hefja athugun á kaupréttarsamningum og starfs- kjörum stjórnenda og starfsmanna í skráðum félögum á markaði. Og Pét- ur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæð- isflokksins, sagði að umræddir samningar væru hvorki skynsamir né hógværir. Jafnframt hefðu þeir verið duldir, þ.e. þeir hefðu ekki ver- ið uppi á borðinu. Hann sagði að skynsamir og hógværir samningar tengdu saman hagsmuni hluthafa og stjórnenda og væru þar af leiðandi jákvæðir. Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, sagðist taka undir ýmislegt sem forsætisráðherra og utanríkisráðherra, Halldór Ás- grímsson, hefðu sagt í síðustu viku vegna umræddra samninga. Ráð- herrarnir ættu þó einnig að líta í eig- in barm. Utanríkisráðherra væri t.d. guðfaðir kvótakerfisins, en vegna þess hefðu hundruð milljarða runnið út úr sjávarútveginum. Þingmaður Samfylkingarinnar, Kristján L. Möller, tók í svipaðan streng og sagði að ráðherrarnir hefðu ekki brugðist eins hart við, og í síðustu viku, þegar t.d. kvótasala á óveiddum fiski hefði skilið heilu og hálfu byggð- arlögin eftir í rúst. Kristinn H. Gunnarsson, þing- maður Framsóknarflokksins, sagði eins og margir aðrir þingmenn að samningur stjórnenda Kaupþings Búnaðarbanka væri ekki einangrað fyrirbæri. „Það eru mörg dæmi um að stjórnendur fyrirtækja hafi getað fengið kjör og samninga sem færa þeim miklar fjárhæðir í eigin vasa. Við þekkjum þetta úr sjávarútveg- inum. Við þekkjum dæmi um að menn hafi getað selt veiðiheimildir fyrir tugi eða hundruð milljóna og við því hefur ekki verið brugðist með neinum hætti til að takmarka mögu- leika manna til þess.“ Hann sagði að aðgerðarleysið í sjávarútvegsmálum hefði rutt brautina fyrir samninga eins og þá sem hér væru til umræðu. Síðar sagði hann að af miklum tekjum þyrfti að borga mikla skatta. Aðeins tíu prósenta skattur væri hins vegar greiddur af þeim launum sem tekin væru út sem fjármagns- tekjur. Á því þyrfti að gera bragar- bót. Vitnað í Lúkasarguðspjall Formaður Vinstri grænna, Stein- grímur J. Sigfússon, ítrekaði að kaupréttarsamningur stjórnenda Kaupþings Búnaðarbanka væri fylgifiskur markaðs- og einkavæð- ingarinnar. „Ég kalla þetta græðgis- væðingu samfélagsins.“ Hann sagði að forsætisráðherra hefði þó sýnt viss iðrunarmerki þegar hann hvatti til þess að aðrir hefðu Júdasariðrun sálmaskáldsins að leiðarljósi. Vitnaði Steingrímur síðan í eftirfarandi orð í Lúkasarguðsspjalli Biblíunnar, þar sem segir frá innreið frelsarans inn í Jerúsalem. „Þá gekk hann inn í helgidóminn og tók að reka út þá sem voru að selja og mælti við þá: ritað er; hús mitt á að vera bænahús en þér hafið gjört það að ræningjabæli.“ Guðmundur Árni Stefánsson, þingmaður Samfylkingarinar, sagði að umræddir samningar Kaupþings Búnaðarbanka væru aðeins toppur- inn á ísjakanum og Einar Oddur Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæð- isflokksins, sagði að þingmenn ættu að verða við þeirri kröfu sem uppi væri í þjóðfélaginu um að herða leik- reglur á markaðnum. Sagðist hann telja að þverpólitísk samstaða ætti að nást um það. Að lokum sagði Dagný Jónsdóttir, þingmaður Fram- sóknarflokksins, að stjórnmálamenn hefðu ekki annað vald yfir fyrirtækj- um en það að setja þeim almennar leikreglur að fara eftir. „Þessar regl- ur eiga að fjalla um hvernig standa beri að því að ákveða kjör forstjóra og annarra stjórnenda,“ sagði hún. Dagný sagði ennfremur að það þyrfti að tryggja að skattaleg meðferð tekna stjórnenda væri með eðlileg- um hætti og í samræmi við skatta- lega meðferð annarra launatekna. Ræddu kaupréttarsamning stjórnenda Kaupþings Búnaðarbanka Þverpólitísk samstaða um að herða beri leikreglur Þingmenn ræddu kaupréttarsamning æðstu stjórnenda Kaupþings Bún- aðarbanka á Alþingi í gær. Þverpólitísk samstaða var um að skýra þyrfti leikregl- urnar á markaðnum. Morgunblaðið/Jim Smart Rætt utan dagskrár. Jóhanna Sigurðardóttir flytur ræðu sína um ofurlaun stjórnenda á Alþingi í gær. Fjölmargir þingmenn tóku þátt í umræðunum. „Þér hafið gjört það að ræningjabæli“ Ekkert blasti við annað en þjóðaruppreisn ÞINGMENN Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs gagnrýndu í upphafi þingfundar á Alþingi í gær boðaðar skipulagsbreytingar innan Rík- isútvarpsins Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, hóf umræðuna með því að vitna í viðtal við Friðrik Pál Jónsson, stjórnanda Spegilsins, í Fréttablaðinu í gær. Las Mörður upp úr viðtalinu og m.a. eftirfar- andi orð Friðriks: „Þessar vænt- anlegu skipulagsbreytingar má rekja til rógsherferðar útvarps- stjóra sem sett var í hærri gír í út- varpsráði.“ Mörður sagði að þessar breyt- ingar þyrfti að ræða á Alþingi. „Framkvæmdavaldið virðist ekki ætla að gera neitt í þessu og hluti þess ber meira að segja bumbur á sinni heimasíðu ...,“ sagði hann og vísaði þar til heimasíðu Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra. Bryndís Hlöðversdóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, sagði m.a. að fyrirhugaðar breytingar innan Ríkisútvarpsins sýndu tví- skinnung ríkisstjórnarinnar þegar kæmi að ritstjórnarlegu sjálfstæði. Fulltrúar ríkisstjórnarinnar hefðu í síðustu viku lýst yfir áhyggjum af frjálsri fjölmiðlun en á sama tíma stuðluðu þeir sjálfir að aukinni rit- skoðun innan Ríkisútvarpsins. Kolbrún Halldórsdóttir, þing- maður VG, tók í sama streng. „Við þurfum auðvitað að gá að því að varðhundar ríkisstjórnarinnar í út- varpsráði búi ekki til ríkisstjórn- arútvarp úr Ríkisútvarpinu. Er þessi samþykkt útvarpsráðs til marks um að slíkt sé nú í gangi?“ spurði hún. Umræðan af litlu tilefni Geir H. Haarde fjármálaráðherra og starfrandi menntamálaráðherra sagði umræðu þingmannanna sér- kennilega. Sagði hann þá koma upp af litlu tilefni. „Mér er ekki kunnugt um það að ríkisstjórnin, eins og háttvirtur þingmaður Bryndís Hlöðversdóttir sagði, hafi verið að segja mönnum fyrir verkum í út- varpsráði. Ég þekki það ekki. Ef það er einhver pottur brotinn innan Ríkisútvarpsins, sem vel má vera, þá hygg ég að þeir sem ráða þar ríkjum séu fullfærir um að leysa slík vandamál.“ Ráðherra sagðist einnig undrandi á orðum Friðriks í fjölmiðlum. „Mér finnst það mjög sérkennilegt ef einn starfsmaður ríkisins telur sig þess umkominn að fara með slík orð í fjölmiðlum út af ágreiningi sem kann að vera uppi innan dyra. Mér finnst það óviðeig- andi en það er enn meira óviðeig- andi að saka ríkisstjórnina um ein- hverja aðild eða atbeina að slíku eins og hérna hefur verið gert.“ Halldór Ásgrímsson utanrík- isráðherra sagði að eina umræðan sem hefði verið um Ríkisútvarpið innan ríkisstjórnarinnar að und- anförnu hefði snúist um hækkun af- notagjalda. Einnig hefði verið rætt í rík- isstjórninni um mikilvægi þess að Ríkisútvarpið væri sem sterkast við þær aðstæður sem nú væru í ís- lenskum fjölmiðlaheimi. Gagnrýna fyrirhugaðar breytingar innan RÚV ÞINGFUNDUR hefst kl. 10.30 í dag. Verður þá umræða utan dagskrár um uppsagnir hjá varnarliðinu. Jón Gunnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, er málshefjandi umræðunnar. Halldór Ásgrímsson utanrík- isráðherra verður til andsvara. Eftir utandagskrárumræðuna fer fram þriðja og síðasta um- ræða um fjáraukalög fyrir árið 2003.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.