Morgunblaðið - 28.11.2003, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 28.11.2003, Blaðsíða 36
36 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. F elix, sem er sérfræð- ingur í svæfinga- og gjörgæslulækningum, segir bata drengsins ganga kraftaverki næst og margt við meðferðina geti talist nýstárlegt. Meðferð með hjarta- og lungnavél er venjulega beitt við opnar hjartaskurðaðgerð- ir. Það sem er nýtt við notkun þessarar tækni í tilfelli Þengils Otra er að meðferðin tekur ekki bara tvær til þrjár klukkustundir, eins og við hjartaaðgerð, heldur vikutíma. Ennfremur var þeirri nýjung beitt að líkami Þengils var kældur niður í 32 gráður. Felix var fyrst fenginn til að fara í gegnum atburðarásina, frá því Þengill fannst á botni Breið- holtslaugar þriðjudaginn 11. nóv- ember sl. þar til hann var kominn úr mestu lífshættu. Sundlaugarverðir komu Þengli meðvitundarlausum upp á bakk- ann og hófu þar hjartahnoð og að blása í hann lífi. Fljótlega kom læknir, Sigurður Þorgrímsson, til aðstoðar og tveir lögreglumenn. Á bakkanum kastaði Þengill upp og veik öndun komst í gang. Hann var síðan í skyndi fluttur á Land- spítalann í Fossvogi. Þar var tekin sneiðmynd af heila sem var eðlileg en Þengill var áfram meðvitund- arlaus og í öndunarvél. Felix hefur unnið að rannsókn á kælingu, aðferð sem beitt er til að minnka líkur á heilaskaða þeirra sem fara í hjartastopp og eru end- urlífgaðir. Sjúklingar eru í þeim tilvikum kældir niður í 32 gráða líkamshita. Hann segir að ekki hafi verið sýnt fram á að þessi meðferð gagnist fólki sem hafi drukknað. En þar sem Þengill var áfram meðvitundarlaus eftir end- urlífgunina þótti rétt að beita þessari nýstárlegu meðferð í þeim tilgangi að minnka líkur á heila- skaða. Nýtt lyf stöðvaði blæðingu Felix fór strax á sjúkrahúsið í Fossvoginum þegar hann frétti af slysinu og hitti þar fyrir Maríu Sigurðardóttur, svæfinga- og gjör- gæslulækni á vakt. Voru þau sam- mála um að flytja Þengil þegar í stað á gjörgæsluna á Landspít- alanum við Hringbraut. Upphaflega var tilgangurinn með þeim flutningi að kæla líkama Þengils niður í 32 gráður en fljót- lega kom í ljós að lungun voru mun meira sködduð en upphaflega var álitið. Það reyndist þá ómögu- legt að súrefnismetta blóðið með hefðbundinni öndunarvélarmeð- ferð. Felix hafði þá samband við Þórarin Arnórsson og Bjarna Torfason, hjartaskurðlækna, og Líneyju Símonardóttur og Stefán Alfreðsson sérfræðinga á hjarta- og lungnavélinni. Það var strax ákveðið að setja Þengil Otra á vélina, gekk það fljótt og örugglega og var Þengill kældur niður. En þetta var ekki búið enn. Rétt áður en foreldrar Þengils Otra áttu að fá að sjá drenginn í fyrsta sinn, eftir að hann fannst á laugarbotninum, stöðvaðist hjarta Þengils. Hófst þá endurlífgun sem Felix segir að hafi tekið um það bil 15 til 20 mín- útur. „Þetta kom okkur öllum í opna skjöldu en fljótlega kom í ljós að Þengill var með mikla blæðingu frá lungum, sem ekki gekk að stöðva með hefðbundnum aðferð- um. Þá var ákveðið að reyna lyf sem nýlega er komið á markað fyrir dreyrasjúka,“ segir Felix en um afar dýrt lyf er að ræða, „milljóna króna lyf“, eins og hann orðar það, og hefur ekki áður ver- ið notað á meðan sjúklingur er tengdur hjarta- og lungnavél. Blæðingin stöðvaðist strax eftir lyfjagjöfina án þess að það leiddi til að blóð storknaði í vélinni. „Eftir þetta gekk meðferðin al- veg ótrúlega vel. Þengill Otri var kældur í rúman sólarhring og síð- an hitaður hægt upp. Okkur tókst að halda blóðþynningunni hæfi- legri, en blóðþynning var nauð- synleg til að koma í veg fyrir að blóð storknaði í hjarta- og lungna- vélinni, og lungun náðu að jafna sig á vikutíma. Þengill Otri er ungur, hraustur og líkamlega sterkur drengur. Það hafði auðvit- að mikið að segja. Eftir því sem sjúklingar eru yngri og betur á sig komnir þola þeir betur með- ferð af þessu tagi. Hann virðist ætla að koma algerlega heill út úr þessu slysi,“ segir Felix, en Þeng- ill kom af gjörgæslunni á Barna- spítalann sl. mánudag. Hefði hvergi fengið betri meðferð Hefðbundin hjarta- og lungna- vél hefur verið notuð í þessum til- gangi í nokkur ár en ný vél sem var gjöf frá Landssamtökum hjartasjúklinga í september á þessu ári var notuð til að bjarga Þengli Otra. Að sögn Felixar er Þengill þriðji einstaklingurinn á síðustu tveimur árum sem fengið hefur sams konar meðhöndlun hér á landi með jafngóðum og ánægju- legum árangri. Felix segir meðferð sem þessa aðeins fara fram á fáum hátækni- sjúkrahúsum í heiminum. Þetta eru ekki mörg sjúkrahús, t.d. að- eins eitt í Svíþjóð og tvö í Þýska- landi. Góður árangur meðferðar- innar hér á landi hefur vakið athygli og segir Felix hæft starfs- fólk og þá sérstaklega gjörgæslu- hjúkrunarfræðingana sem önnuð- ust Þengil Otra allan sólarhringinn lykilinn að góða árangri. „Andrúmsloftið hjá st inu er afar jákvætt. A Hinn fjórtán ára Þengill Otri Óskarsson gek Hjartað stöðvaðist inni á spít- alanum Lykilstarfsmenn við hjarta onardóttir og Stefán Alfre ingur í svæfinga- og gjörg tilvik eins og með Þengil. Teymi samansett af svæfinga- og gjör- gæslulæknum, hjartaskurðlæknum, gjör- gæsluhjúkrunarfræðingum og sérfræð- ingum á hjarta- og lungnavél annaðist Þengil Otra, auk margra annarra. Björn Jóhann Björnsson ræddi við einn þessara sérfræðinga, Felix Valsson. Hjarta- og lungnavél, önd gæsludeildinni. Þykir bat NORÐURBRYGGJA Opnun Norðurbryggju, sam-eiginlegs menningarsetursÍslendinga, Færeyinga og Grænlendinga í Kaupmannahöfn, markar ákveðin tímamót. Menn- ingarsetrið er staðsett í fimm hæða pakkhúsi frá átjándu öld við Grønlandske Handels Plads en þar var áður miðstöð verslunar Dana við nýlendur sínar í Norður- Atlantshafi. Var þetta lengi fyrsti viðkomustaður Íslendinga, Fær- eyinga og Grænlendinga er þeir komu til Kaupmannahafnar sjó- leiðina. Á síðasta áratug var ákveðið fyrir tilstilli þeirra Morents Melgaard, sem þá var forstöðu- maður Dönsku heimskautastofn- unarinnar, og Kajs Elkrogs, fyrr- verandi forstöðumanns dönsku tolla- og skattayfirvaldanna, að helga húsið norðurslóðum. Fengu þeir Vigdísi Finnbogadóttur í lið með sér árið 1997 við að móta hug- myndirnar um vestnorrænt menn- ingarsetur. Auk menningarset- ursins hefur íslenska sendiráðið flutt starfsemi sína í Norður- bryggju og þar verða einnig send- iskrifstofur Færeyinga og Græn- lendinga í Danmörku. Þá hefur Ferðamálaráð aðsetur í húsinu. Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi hafa nú eignast glæsilega miðstöð í Kaupmannahöfn þar sem lögð verður áhersla á menningu þeirra og sögu. Gert er ráð fyrir að húsið verði nýtt undir margvíslega menningarviðburði auk þess sem þar verður starfræktur veitinga- staður þar sem einn af þekktari matreiðslumönnum Dana, Claus Meyer, hyggst leggja áherslu á hráefni frá Norður-Atlantshafi. Kaupmannahöfn var lengi vel sú miðstöð þar sem teknar voru ákvarðanir um framtíð þjóðanna í Norður-Atlantshafi. Þangað héldu menn til náms eða annarra erinda- gjörða. Nú hafa þessar þjóðir opn- að Dönum dyr að sínum menning- arheimi, bryggju að Norður- Atlantshafi. MENNT ER MÁTTUR Mennt er máttur, heyrist oftsagt þegar rætt er um fram- tíð barna hér á landi. Sá sannleik- ur sem í þeim orðum felst á þó ekki síður við um börn í öðrum löndum – löndum þar sem mennt- unartækifæri eru af mjög skorn- um skammti. Á þessum stöðum er það þó iðulega spurning um líf og dauða, ef ekki tekst að brjóta upp þann vítahring fáfræði og fátækt- ar er stendur yngstu kynslóðinni fyrir þrifum. Karin Sham Poo, aðstoðarfram- kvæmdastjóri UNICEF, Barna- hjálpar Sameinuðu þjóðanna, kom hingað til lands til að kynna starf Barnahjálparinnar í þróunarlönd- unum, en Miðstöð Sameinuðu þjóðanna á Íslandi verður form- lega opnuð hér á landi í febrúar. Sagt var frá blaðamannafundi af því tilefni í Morgunblaðinu í gær og þar kom fram að „í heiminum öllum [væru] nú 100 milljón börn sem ekki hafa fengið barnaskóla- menntun“. Sham Poo vakti jafn- framt athygli á því að tveir þriðju hlutar þessara barna væru stúlk- ur. Þrátt fyrir það hafa menn „rannsakað vel og vandlega hvaða áhrif það hefur þegar stúlkur fá að minnsta kosti grunnmenntun og staðreyndin er sú að ekki að- eins nýtur einstaklingurinn sjálf- ur góðs af skólagöngunni heldur hefur það einnig áhrif á afkom- endur viðkomandi,“ sagði hún. Vísar hún þar til þess mikilvæga hlutverks sem kvenfólk gegnir í mörgum þróunarlöndum, þar sem ábyrgð á uppeldi og vinnu barnanna hvílir fyrst og fremst á þeirra herðum, og þá auðvitað framtíðarhorfur þeirra og lífsaf- koma um leið. „Tölfræðin sýnir að ef stúlka gengur í skóla þá er hún líklegri til að eignast börn seinna á ævinni, hún er líklegri til að njóta betri heilsu og börn hennar sömuleiðis,“ fullyrti hún. Sham Poo sagði jafnframt að „vitur manneskja í Afríku [hefði eitt sinn sagt] að ef drengur gengi í skóla þá væri það mjög jákvætt og stuðlaði að auknum þroska hans. Ef stúlka gengi hins vegar í skóla hefði það áhrif á alla heimabyggð hennar.“ Orð hennar staðfesta í raun að það getur haft úrslitaáhrif á framtíðarhorfur mjög margra einstaklinga ef stúlkur njóta menntunar og það skýtur því óneitanlega mjög skökku við að þær skuli vera jafn stór hluti þeirra sem engrar menntunar njóta og raun ber vitni. Einar Benediktsson, stjórnar- formaður UNICEF á Íslandi, og aðstoðarframkvæmdastjórinn voru á einu máli um að framlög lít- illa þjóða væru vissulega mikil- væg. Sham Poo sagði framfarir hafa átt sér stað, nú nytu fleiri börn skólagöngu en fyrir tíu árum auk þess sem lífslíkur væru meiri. Þessar staðreyndir er mikilvægt að hafa í huga þegar þjóðir á borð við Íslendinga, sem vel eru aflögu- færar, skipuleggja þróunaraðstoð sína. Því með þeim fjármunum sem varið er til menntunar barna í fátækum löndum, ekki síst þegar reynt er að rétta hlut stúlkna á því sviði, er ekki einungis verið að stuðla að því að gera fólk sjálf- bjarga sem einstaklinga, heldur er jafnframt verið að brjóta niður rótgróna fordóma gegn konum á svæðum þar sem hvað brýnast er að nýta krafta allra til fullnustu. Mátturinn sem sú menntun skilar er því margfaldur þegar til fram- tíðarinnar er litið. HJARTA- og lungnavélin öndunarvél hélt lífinu í Þ vikutíma og við fengum að lýsa fyrir okkur hver hjarta- og lungnavélin vi „Fyrst var farið með s niður um bláæð á hálsi s lingsins, niður í hægri gá hjartans. Slangan var no að leiða blóð úr sjúkling Blóðið fór síðan í gegnum lunga þar sem loftskipti stað, þar sem súrefni fór blóðið og koltvísýringur inu. Blóðinu var síðan sk ur inn í líkamann, dælt u slöngu sem var sett í stó æð í nára sjúklingsins. M þessu náðist að sjá líkam fyrir súrefnisríku blóði, fyrir að lungu Þengils gæ starfað nægilega til að v lífi hans,“ segir Felix. Í tilviki Þengils fylltus af ósöltu vatni en við það þau mikið. Mikil vökvarö verður svo í blóðinu og j vökvaskortur í blóðrásin Ein véli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.