Morgunblaðið - 29.11.2003, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra sagði á Alþingi í gær að
utanríkisráðuneytinu hefði ekki
borist neinar tilkynningar um frek-
ari uppsagnir starfsmanna varn-
arliðsins á Keflavíkurflugvelli. „Og
við höfum enga ástæðu til að ætla
að svo verði,“ sagði hann og bætti
því við að stjórnvöldum hefðu held-
ur ekki verið kynntar neinar hug-
myndir um verulegan samdrátt hjá
varnarliðinu á næstu þremur ár-
um. „Það liggur hins vegar fyrir að
viðræður eru framundan um varn-
armátt á Íslandi og rekstur flota-
stöðvar varnarliðsins almennt. Þær
viðræður hafa enn ekki hafist.“
Ráðherra lét þessi ummæli falla
í umræðu utan dagskrár um upp-
sagnir hjá varnarliðinu. Eins og
kunnugt er liggur fyrir að 102 ís-
lenskir starfsmenn flotastöðvar
varnarliðsins munu fá send upp-
sagnarbréf þessa dagana. Jón
Gunnarsson, þingmaður Samfylk-
ingarinnar, var málshefjandi. Hann
sem og fleiri þingmenn; stjórnar-
liðar og stjórnarandstæðingar, sem
þátt tóku í umræðunni, sögðu að
uppsagnir varnarliðsins væru al-
varleg tíðindi og hefðu áhrif á at-
vinnulífið á Suðurnesjum.
Jón sagði að á Suðurnesjum
væri sterkur orðrómur um að til
stæði að segja fleirum upp hjá
varnarliðinu. Hann sagði því að
íbúar svæðisins þyrftu að fá skýr-
ari svör í þeim efnum en komið
hefðu fram í máli utanríkisráð-
herra. Sagði hann að ráðherra
þyrfti að ganga eftir ákveðnari
svörum frá varnarliðinu um það
hvort fyrirhugað væri að skera
meira niður innan varnarliðsins en
kynnt hefði verið opinberlega.
„Það hefur verið talsvert at-
vinnuleysi á Suðurnesjum undan-
farin misseri,“ útskýrði Jón. „Það
þýðir að þessar miklu uppsagnir
hjá varnarliðinu kom enn verr nið-
ur á svæðinu en ella hefði orðið.
Nýjustu tölur eru þær að 341 ein-
staklingur er atvinnulaus. Það
hljóta allir að sjá að uppsagnir yfir
100 starfsmanna í slíku atvinnu-
ástandi er mikið áfall. Til viðbótar
þessu eru uppi miklar umræður
um að þessi tilkynnti samdráttur
hjá varnarliðinu sé aðeins byrjun á
miklu meiri niðurskurði. Heyrst
hefur að hér sé einungis um að
ræða einn þriðja af fyrirhuguðum
uppsögnum eða samdrætti. Engin
svör hafa fengist þegar leitað hef-
ur verið eftir þeim. Við skiljum
ekki værukærð stjórnvalda í mál-
inu og það er algjörlega ábyrgð-
arlaust og óboðlegt með öllu að
hafast ekkert að.“ Jón sagði að
stjórnvöld bæru ábyrgð á málinu
og þeim bæri að upplýsa um stöðu
málsins.
Fleiri möguleikar
á svæðinu
Halldór Ásgrímsson sagði í upp-
hafi ræðu sinnar að það væri alltaf
mjög viðkvæmt mál og erfitt þegar
fólk missti vinnuna. „Það er alveg
ljóst að á undanförnum árum og
um alllangt skeið hefur verið sam-
dráttur á Keflavíkurflugvelli.
Stjórnvöld hafa lagt á það mikla
áherslu að halda þeim varnarvið-
búnaði sem þar er og hefur sá
ásetningur ríkisstjórnarinnar ekki
farið framhjá neinum. Það er hins
vegar alveg ljóst að það er hægt að
viðhalda varnarviðbúnaði þótt ein-
hver samdráttur verði og sparn-
aður sé í rekstri.“
Ráðherra sagði að bandarísk
stjórnvöld þyrftu að spara eins og
margir aðrir til þess að viðhalda
nauðsynlegum varnarviðbúnaði hér
á Íslandi. Hann sagði að ráðuneyt-
ið hefði fengið tilkynningu um það
hinn 14. október sl. að fjárveit-
ingar til flotastöðvarinnar yrðu
skornar verulega niður á fjárlaga-
árinu 1. október 2003 til 30. sept-
ember 2004. „Á þeim tíma kom
fram að deildir flotastöðvarinnar
voru að leita leiða til að hagræða
og skera niður kostnað. Jafnframt
var tilkynnt að til uppsagna gæti
komið en það var alls ekki ljóst
hvenær til þeirra yrði gripið. Utan-
ríkisráðuneytinu var síðan tilkynnt
um uppsagnirnar 22. október.“
Ráðherra ítrekaði að auðvitað
væri það alvarlegt þegar fólki væri
sagt upp. Menn yrðu þó að líta til
þeirra möguleika sem væru á Suð-
urnesjum. „Þar hefur verið ákveðið
að tvöfalda Reykjanesbrautina.
Þar hefur verið ákveðið að leggja
Suðurstrandaveg og með því er
verið að gera allt þetta svæði að
einu atvinnusvæði. Það er líka
mjög mikil uppbygging á Keflavík-
urflugvelli; störfum hefur fjölgað
verulega í Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar. Tilkynnt hefur verið um
verulega aukningu hjá Flugleiðum
og svo mætti lengi telja. Þá hefjast
á næstunni byggingarframkvæmd-
ir við Flugstöð Leifs Eiríkssonar,
þ.e. við norðurbygginguna til að
stækka hana. Eru það fram-
kvæmdir upp á líklega sex til sjö
hundruð milljónir.“ Auk þess
kvaðst ráðherra binda vonir við að
stálpípuverksmiðja á svæðinu yrði
að veruleika.
Engin samráðsnefnd
starfandi
Sólveig Pétursdóttir, formaður
utanríkismálanefndar þingsins,
sagði að því væri ekki að neita að
varnarliðið væri stór atvinnurek-
andi á Suðurnesjum og hefði verið
það um áratugaskeið. „Það þarf þó
ekki að koma á óvart að varnarliðið
þurfi eins og aðrir að bregðast við
breyttum aðstæðum og niðurskurði
á fjárveitingu. Það gildir það sama
um Suðurnes og önnur svæði á
landinu: Ef stór atvinnurekandi
dregur saman seglin hefur það
töluverð áhrif á efnahagslíf á svæð-
inu og við því verðum við að bregð-
ast á hverjum tíma með jákvæðum
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra við utandagskrárumræður um uppsagnir hjá varnarliðinu
Morgunblaðið/Jim Smart
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra sagði að mörg tækifæri væru á
Suðurnesjum. Grétar Mar Jónsson, Frjálslynda flokknum, hafði hins vegar
áhyggjur af atvinnumálum þar.
Ekki hafa borist upplýsing-
ar um frekari uppsagnir
Síðustu vikurnar hafa veriðlíflegar á Alþingi, a.m.k. útfrá sjónarhóli þingfréttarit-ara. Utandagskrár-
umræður hafa verið tíðar og hafa
þar fallið stór orð. Er þingmenn
ræddu um kauprétt tveggja af
þremur æðstu stjórnendum bank-
ans á hlutabréfum í Kaupþingi Bún-
aðarbanka var m.a. talað um ofur-
launakjör, alvarlega siðferðisbresti,
fjárplógsstarfsemi, svívirðilega
græðgi og veruleikafirringu í því
sambandi. Stjórnarandstæðingar
töldu að ríkisstjórnin bæri ábyrgð á
því hvernig komið væri og sagði
Guðmundur Árni Stefánsson, þing-
maður Samfylkingarinnar, m.a. að
ríkisstjórnin hefði teppalagt þessa
þróun með stjórnarháttum sínum á
liðnum árum. Steingrímur J. Sig-
fússon, formaður Vinstri grænna,
var á sama máli: „Ríkisstjórnin sjálf
hefur plægt jarðveginn. Framsókn,
og áður kratarnir, er húðarjálk-
urinn sem dregur plóginn en íhaldið
sjálft sveiflar svipunni og stýrir
ferð.“ Steingrímur rifjaði upp flutn-
ing Davíðs Oddssonar forsætisráð-
herra á Júdasariðrun Hallgríms
Péturssonar í síðustu viku og bætti
því við að Davíð hefði alveg eins
getað vitnað í Lúkasarguðspjall þar
sem segir af innreið frelsarans í
Jerúsalem. ,,Þá gekk hann inn í
helgidóminn og tók að reka út þá er
voru að selja og mælti við þá: Ritað
er: Hús mitt á að vera bænahús, en
þér hafið gjört það að ræn-
ingjabæli.“
Það voru fleiri þingmenn semfóru með fleygar setningar áAlþingi í vikunni. (Spurning
hvort flutningur kveðskapar sé að
verða nýtt „trend“ í heimi stjórn-
málanna.) Guðjón A. Kristjánsson,
formaður Frjálslynda flokksins,
flutti t.d. eftirfarandi vísu, er hann
ræddi um þá fyrirætlan félagsmála-
ráðherra, Árna Magnússonar, að
skerða atvinnuleysisbætur. Kvæðið
birtist í fréttablaði Verkalýðsfélags-
ins Hlífar.
Fyrir kosningar:
Ef þið kjósið mig til þings
þá mun ég bætur hækka,
efla kaupmátt almennings
og ykkar skatta lækka.
Léttvæg reyndust loforð þín
og lygi blandin stefna.
Var hún eitthvað aulagrín
sem aldrei átti að efna?
Eftir kosningar:
Þær breytingar ég boða vil
að bótadögum fækkar
og tíminn lengist þangað til
að tekjuskattur lækkar.
Nokkrir varaþingmenn sett-ust á Alþingi í þessari viku.Eru þeir því samtals tíu
þessa dagana. Alls hafa nítján vara-
þingmenn tekið sæti á Alþingi það
sem af er þessu þingi. Þegar vara-
þingmenn setjast á þing þurfa þeir
að vera a.m.k. tvær vikur. Yfirleitt
eru þeir mjög iðnir enda gott tæki-
færi til að láta í sér heyra og vekja
athygli á sínum málum. Margir
þeirra „dæla út“ skriflegum fyr-
irspurnum til ráðherra, en einnig
nýjum þingmálum. Stundum eru
þeir þó farnir af þingi þegar mál
þeirra komast á dagskrá. Í þeim til-
fellum þurfa aðrir þingmenn í sama
flokki að mæla fyrir málunum.
Álfheiður Ingadóttir, varaþing-maður Vinstri grænna, ersennilega einn þeirra vara-
þingmanna sem hvað mest hafa lát-
ið kveða að sér á þinginu. Hún er á
þingi í fjarveru Ögmundar Jón-
assonar. Álfheiður var t.d. málshefj-
andi tveggja utandagskrárumræðna
sem hafa vakið mikla athygli í þjóð-
félaginu síðustu vikur, þ.e. umræð-
unnar um afkomu bankanna og um-
ræðunnar um fjölmiðlamarkaðinn.
Síðari umræðunni fylgdi hún eftir
með því að leggja fram tillögu um
að Alþingi samþykki að könnuð
verði starfsumgjörð fjölmiðla.
En talandi um þingsályktun-
artillögur. Oft er það nefnilega
þannig að fæst þingmál einstakra
þingmanna ná fram að ganga á Al-
þingi. Þeir ná reyndar oftast að
mæla fyrir þingmálunum, þ.e. koma
þeim í fyrstu umræðu, en eftir það
er málunum vísað í nefnd. Og þaðan
komast þau sjaldnast út. Eft-
irgrennslan undirritaðrar hefur þó
leitt í ljós að málið er ekki svona
einfalt. Með því að leggja fram
þingmál og mæla fyrir þeim fá
þingmenn tækifæri til að kynna sín
áhersluatriði; það gera þeir m.a.
með því að mæla fyrir málinu. Mál-
ið fær síðan yfirleitt umfjöllun í
nefnd og þaðan er því vísað til um-
sagnar hagsmunaaðila. Niðurstaðan
er semsé sú að þótt málið virðist
„sofna“ í nefnd fær það ágætis
kynningu, a.m.k. á meðal viðkom-
andi hagsmunaaðila.
Að sofna … í nefnd
EFTIR ÖRNU SCHRAM
ÞINGFRÉTTAMANN
arna@mbl.is
HALLDÓR Ásgrímsson utanrík-
isráðherra sagði aðspurður í um-
ræðu utan dagskrár á Alþingi í
gær, um uppsagnir hjá Varnarlið-
inu, að engin tengsl væru milli þess-
ara uppsagna og viðræðna ís-
lenskra og bandarískra stjórnvalda
um varnarsamninginn.
Jón Gunnarsson, þingmaður
Samfylkingarinnar, sem og aðrir
þingmenn flokksins, spurði ráð-
herra hvort tengsl væru þarna á
milli.
Ráðherra sagði að uppsagnirnar
væru einungis tilkomnar vegna nið-
urskurðar á fjárveitingum til rekst-
urs flotastöðvar Varnarliðsins.
„Um er að ræða niðurskurð hjá
bækistöðvum flotans um allan heim
en ekki einungis á Keflavík-
urflugvelli,“ útskýrði hann.
Aðrir stjórnarliðar tóku undir
orð ráðherra og sögðu fráleitt að
ætla að það væru einhver tengsl
þarna á milli. „Það er fráleitt,
ósmekklegt og ekki sæmandi að
tengja niðurskurðinn við stöðuna í
viðræðum Íslendinga og Banda-
ríkjamanna um framkvæmd varn-
arsamnings þjóðanna,“ sagði Jón-
ína Bjartmarz, þingmaður
Framsóknarflokksins.
Engin tengsl
við viðræður
um varnar-
samninginn