Morgunblaðið - 29.11.2003, Side 18
ERLENT
18 LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
RÍKI MENNSKUNNAR
Eitt samfélag fyrir alla. Siðferðileg áhersla 21. aldarinnar
Þriðjudaginn 2. desember 2003
í hátíðasal Háskóla Íslands, kl. 15.00 til 17.30
Málþing rektors Háskóla Íslands
haldið í samstarfi við félagsmálaráðuneytið, Alþýðusamband Íslands, Bandalag starfsmanna
ríkis og bæja og Samtök atvinnulífsins, í tilefni af Evrópuári fatlaðs fólks 2003
15.00-15.15 – Setning: Páll Skúlason, háskólarektor – Ávarp: Árni Magnússon, félagsmálaráðherra
15.15-15.30 – Þátttaka fatlaðra í samfélagi og atvinnulífi: Hin siðferðilegu gildi
Páll Skúlason, háskólarektor
15.30-16.00 – Þátttaka allra í verðmætasköpun samfélagsins: Ávinningar og ábyrgð
Finnur Geirsson, forstjóri Nóa-Síríus hf., Jón Hlöðver Áskelsson, tónlistarmaður,
Róbert Wessman, forstjóri Pharmaco hf.
16.20-16.30 – Ávinningar af atvinnuþátttöku fatlaðs fólks: Hvað segja rannsóknir?
Rannveig Traustadóttir, dósent við félagsvísindadeild Háskóla Íslands
16.30-17.30 – Hvaða aðgerðir eru mikilvægastar til að skapa eitt samfélag fyrir alla
og tryggja virka þátttöku allra í atvinnulífi og verðmætasköpun?
Pallborðsumræður undir stjórn Páls Skúlasonar, háskólarektors
Anna Geirsdóttir heimilislæknir, Heilsugæslunni Grafarvogi, Ari Edwald, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, Magnús M. Norðdahl, lögfræðingur Alþýðusambands Íslands, Þorkell
Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Eimskipafélags Íslands hf., Þuríður Einarsdóttir,
formaður Póstmannafélags Íslands
17.30 – Ráðstefnuslit og léttar veitingar
Málþingið er öllum opið. Skráning tilkynnist í síma 525 4302 eða til haskolarektor@hi.is
MEINTUR lykilmaður í hryðju-
verkasamtökum Osama bin Ladens,
al-Qaeda, var handtekinn í Hamborg
í gærmorgun að kröfu ítalskra sak-
sóknara, að því er þýska lögreglan
greindi frá. Sagði fulltrúi lögreglunn-
ar að maðurinn væri Mahjub Abd-
errazak, Alsírbúi sem gengi undir
nafninu „sheikh“.
Alls gáfu saksóknarar í Mílanó á
Ítalíu út handtökuskipun á hendur
fimm manns í gær og var þrennt
handtekið. Auk Abderrazaks var tún-
ísk kona, Farida Bentiwaa Ben Bach-
ir, handtekin í Padúa í gærmorgun og
Marokkómaður, Jamal Housni, var
handtekinn í Mílanó. Ítalska frétta-
stofan Ansa greindi frá þessu.
Tveir þeirra fimm sem saksóknar-
ar fyrirskipuðu að yrðu handteknir
ganga enn lausir. Annar þeirra er
Íraki en hinn Túnisbúi, að því er Ansa
hafði eftir lögreglu. Fimmmenning-
arnir voru m.a. eftirlýstir vegna
gruns um að hafa fengið fólk til að
gera sjálfsmorðssprengjuárásir í
Bagdad. Abderrazak var tekinn
höndum í júlí vegna gruns um aðild
að sprengjutilræði á Spáni en var lát-
inn laus vegna skorts á sönnunar-
gögnum.
Lögregla á Englandi leitaði í ann-
arri íbúð í Gloucester í gær, en þar
var í fyrradag handtekinn maður sem
talinn er tengdur al-Qaeda og „skó-
sprengjumanninum“ Richard Reid.
Íbúðin sem leitað var í í gær er við
hliðina á íbúð mannsins sem handtek-
inn var í fyrradag, en þar fannst lítið
eitt af sprengiefni.
Meintur lykilmaður
í al-Qaeda hand-
tekinn í Hamborg
Hamborg, Róm, Gloucester. AFP.
FRJÓSEMI danskra karlmanna á
þrítugsaldri er minni en hjá mönn-
um á sjötugsaldri, að sögn norska
blaðsins Aftenposten. Blaðið vitnar í
rannsókn sem vísindamenn við Ár-
ósaháskóla hafa gert en þar kemur
fram að frjósemin hafi minnkað
stöðugt undanfarin 70 ár.
Fram kom á læknaráðstefnu í
Stokkhólmi nýverið að fjöldi virkra
sáðfrumna í hverjum millílítra af
sæði í ungum, dönskum körlum er
aðeins hálfdrættingur á við það sem
gerist hjá mönnum á sjötugsaldri.
„Okkur fannst þetta furðulegt,“
sagði Jens Peter Bonde, sem er pró-
fessor við Árósaháskóla og hefur í
nokkra áratugi rannsakað frjósem-
isþróun. Hann segir að eðlilegra
hefði verið ef hlutfallið hefði verið
þveröfugt. Æ fleiri ungir karlar eiga
erfitt með að eignast börn vegna
þess hve sáðfrumurnar eru fáar.
Ekki er vitað hvað veldur því að
frjósemi minnkar nú í Danmörku og
öðrum vestrænum löndum. Sumir
hafa giskað á að eiturefni í umhverf-
inu geti haft þessar afleiðingar.
Minnkandi frjósemi
ÓVÆNT ferð Georges W. Bush
Bandaríkjaforseta til Bagdad á
fimmtudag var í sumum fjölmiðlum
lýst sem lið í baráttunni fyrir forseta-
kosningarnar haustið 2004. Ljóst er
af viðtökunum hjá hermönnunum í
Írak að heimsóknin styrkti baráttu-
þrekið sem hefur dvínað undanfarna
mánuði vegna stöðugra árása og
mannfalls.
„Þið eruð að verja bandarísku
þjóðina fyrir hættum og við erum
ykkur þakklát,“ sagði forsetinn sem
snæddi með hermönnunum kalkún í
tilefni þakkargjörðardagsins sem
var á fimmtudag.
Bush dvaldi aðeins í rúmar tvær
stundir í Bagdad en áður en hann
hélt heimleiðis átti hann stuttan fund
með bandaríska landstjóranum, Paul
Bremer, og öðrum háttsettum
Bandaríkjamönnum á staðnum auk
fjögurra fulltrúa í íraska fram-
kvæmdaráðinu. Condoleezza Rice,
öryggisráðgjafi Bush, tók þátt í fund-
inum.
Fréttamenn í Bagdad segja að við-
brögð írasks almennings hafi verið
blendin, sumir hafi fagnað tíðindun-
um en aðrir yppt öxlum og sagt að
forsetinn væri aðeins að efla kjark
hermanna sinna.
Fréttaskýrandi The Washington
Post segir að Bush hafi vitað hve
hættulegt ástandið á staðnum væri
en samt verið staðráðinn í að full-
vissa Íraka um að Bandaríkjamenn
myndu ekki gefast upp. Sagan muni
annaðhvort dæma sem svo að Bush
hafi treyst ímynd sína sem sterkur
leiðtogi eða að hann hafi slegið um
sig með hreystilegum yfirlýsingum
án innistæðu. Hitt sé hins vegar orð-
ið ljóst að með heimsókninni hafi for-
setinn óhjákvæmilega gert endan-
lega niðurstöðu í Írak að úrslitaatriði
í pólitískri baráttu sinni; hann standi
og falli með Íraksdeilunni.
„Mig langaði í heitan mat“
Furðu lostnir hermennirnir, alls
um 600 manns, í bækistöðinni á
Bagdad-flugvelli ætluðu vart að trúa
eigin augum er forsetinn gekk
skyndilega í matsalinn, klæddur
æfingajakka hersveitar margra liðs-
manna á staðnum. Minntu sumir
þeirra í viðtölum á að nokkrum dög-
um fyrr hefði verið skotið á stóra
flutningavél sem lenti logandi á vell-
inum. Forsetinn hefði því sýnt hug-
rekki og um leið herliðinu mikið
traust og samhug með því að heim-
sækja það við þessar aðstæður í stað
þess að verja hátíðisdeginum með
fjölskyldu sinni.
Alþýðleg framkoma Bush í her-
stöðinni virtist falla í góðan jarðveg
og hann var ákaft hylltur. Er hann
kom í salinn felldi hann tár þegar
hann heyrði fagnaðarlætin en jafnaði
sig fljótt. „Mig langaði í heitan mat
og takk fyrir að bjóða mér inn,“ sagði
hann. Síðar fór hann í röð til að fá
matarbakka og ræddi kumpánlega
við hermennina. Einn þeirra, Mich-
ael Johnson að nafni, er gríðarstór
vexti og forsetinn sagðist vera
ánægður með að þeir væru ekki and-
stæðingar. Á heimleiðinni sagði Bush
fréttamönnum að ef komið hefði í ljós
áður en lent var í Bagdad að leyndin
hefði verið rofin myndi hann hafa
sagt flugmanninum að snúa við. Að-
eins örfáir nánir ráðgjafar vissu um
ferðina og talsmenn forsetans voru
búnir að segja að hann myndi verja
hátíðisdeginum með fjölskyldu sinni
á búgarðinum í Crawford í Texas.
Svo mikil var leyndin að foreldrar
Bush vissu ekki um ferðir hans og
eiginkonan, Laura Bush, vissi ekki
um endanlega ákvörðun um ferðina
fyrr en rétt áður en lagt var upp.
Ekki var skýrt opinberlega frá
ferðinni fyrr en eftir að forsetavélin
hafði yfirgefið Bagdad. Bush sagðist
hafa farið frá búgarðinum í Texas
ásamt Condoleezzu Rice í lítt áber-
andi bíl með svertum rúðum og hefðu
þau sett á sig hornaboltahúfur til að
„líta úr eins og ofur venjuleg hjón“
og dregið þær niður yfir eyrun. Þau
sátu í aftursætinu og haldið var til
Waco-flugvallar í grenndinni. Þar
fóru þau inn um aftari dyrnar á for-
setavélinni svo að lítið bar á. Komið
var við á flugvelli skammt frá Wash-
ington til að ná í nokkra myndatöku-
menn áður en tíu stunda flugið til
Íraks hófst.
Bush sagður hafa eflt
baráttuþrek herliðsins
Reuters
George W. Bush Bandaríkjaforseti faðmar hermann á Bagdad-flugvelli.
Bent á að með förinni til Bagdad hafi forseti Bandaríkj-
anna á ný gert niðurstöðu mála í Írak að úrslitaatriði
Bagdad, Washington, London. AP, AFP.
!"#$%!"& '() *+, -%! .)/0+
% &'((
') )$ ($$
* (
( ) ' ) *,-.
/!)
) &0 )
/#/
'
/1""
2
(
#""
-3+(
MIKIL leynd var yfir ferð George
W. Bush Bandaríkjaforseta til
Bagdadborgar á fimmtudag. Lent
var að kvöldi og siglingaljós flug-
vélarinnar voru slökkt auk þess
sem tjöld voru dregin fyrir
gluggana til að koma í veg fyrir að-
hryðjuverkamenn sæju vélina.
Ef eitthvað hefði farið úrskeiðis
hefði flugmaður forsetavélarinnar,
Mark Tilman, snúið tafarlaust við.
Undirbúningur ferðarinnar stóð í
margar vikur, að sögn Bush forseta
sem var sjálfur í flugstjórnarklef-
anum þegar Tilman lenti. En at-
hugull flugmaður á breskri British
Airways-vél var næstum því búinn
að binda enda á ferð forsetans til
Bagdad.
„Var þetta Air Force One [flug-
vél Bandaríkjaforseta] sem ég sá?“
spurði hann í talstöð sína.
Tilman þagði drjúga stund en
svaraði síðan: „Gulf Stream Five“,
sem er minni flugvélartegund en
þota forsetaembættisins.
Haft er eftir embættismönnum í
Hvíta húsinu að breski flugmað-
urinn hafi þá aðeins sagt „ó“ og
töldu þeir líklegt að hann hefði átt-
að sig á að eitthvað leyndardóms-
fullt væri að gerast.
Bresk arnaraugu