Morgunblaðið - 29.11.2003, Síða 31

Morgunblaðið - 29.11.2003, Síða 31
Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir Valdimar Hafsteinsson, formaður knattspyrnudeildar, og Sigurður Einar Guðjónsson handsala samninginn. Að baki þeim má sjá tvo leikmenn Hamars, Þráin Ómar Jónsson og Rafn Rafnsson. Hveragerði | Sigurður Einar Guðjónsson íþróttakennari hefur verið ráðinn til að þjálfa 3. deildar lið Knattspyrnu- deildar Hamars í Hveragerði næsta árið. Sigurður Einar er þrítugur og hefur í nokkur ár leikið með knattspyrnufélaginu Árborg. Sigurður Einar er Hvergerðingum að góðu kunnur enda verið íþróttakenn- ari hér í bæ undanfarin ár. Einnig hefur hann þjálfað yngri flokka Hamars í körfuknattleik og leikið með meistaraflokki félagsins. Sigurður Einar er spilandi markvörður og mun að sögn kunnugra veita öðrum markvörðum félagsins verð- uga samkeppni. Sigurður segir mikinn efnivið vera í knattspyrnunni í Hveragerði, en hann hefur þegar tekið til starfa. Sigurður Einar Guðjónsson þjálfar Hamar ÁRBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2003 31 kennarar, þjálfa kórana og sjá um undirleik. Undanfarin ár hefur verið starfandi lúðrasveit við skólann en í dag starfar skólahljómsveit með átta hljóðfæraleikurum. Stefán Þorleifs- son, aðaltónmenntakennari skólans, stjórnar hljómsveitinni. Hann sagði að með breyttum áherslum í starfi Tónlistarskóla Árnesinga hefði blást- ursnemendum fækkað og um leið hefði hafist kennsla á rafmagns- hljóðfæri í grunnskólanum. Því hefði verið eðlilegt að auka fjölbreytnina í hljómsveitinni og taka inn rafmagns- gítar og -bassa, trommur og hljóm- borð. Stefán sagði að rafmagns- hljóðfæraleikur hefði verið valgrein í elstu bekkjum skólans í þrjú ár og ár- angurinn væri frábær eins og sýndi sig best í því að nú væru fjölmargar hljómsveitir (bílskúrsbönd) starfandi við skólann og væri tónlistarstofa skólans fullnýtt til þeirrar starfsemi. Þrjátíu nemendur völdu þessa grein í vetur, þar af tvær stúlkur. Tónkjallarinn Viðbót varð í haust við flóru tónlist- arnáms í Þorlákshöfn. Tónkjallarinn er einkarekinn og er þar boðið upp á fjölbreytt nám. Eigandi og eini kenn- ari Tónkjallarans er Stefán Þorleifs- son. Hann er menntaður grunnskóla- kennari með tónlist sem aðalgrein. Auk þess lauk hann BA-prófi í tónlist frá Álaborgarháskóla. Hann hefur langa reynslu af kennslu og kór- stjórnun bæði frá Danmörku og Ís- landi. Viðtökur hafa verið framar björt- ustu vonum sagði Stefán. Á fyrstu önn skráðu sig nítján nemendur, flestir í söngnám. „Sérkenni námsins hjá okkur er að við vinnum út frá forsendum nem- andans og hans áhugasviði, aðal- atriðið er að hafa gaman af því sem verið er að vinna með, kennt er að spila eftir bókstafahljómum auk þess Þorlákshöfn | Tónlistin hefur ávallt verið í hávegum höfð í Þorlákshöfn en gróskan í tónlistarlífinu nú er fjöl- breyttari og meiri en oftast áður. Bíl- skúrshljómsveitir, einsöngvarar, kór- ar, lúðrasveit og einleikarar af ýmsu tagi eru að í hverju horni. Undirstaðan er góð og fjölbreytt kennsla í grunnskólanum, Tónlistar- skóla Árnessýslu og ný og skemmti- leg viðbót er Tónkjallarinn sem er einkarekin tónlistarkennsla. Mikill og einlægur áhugi hæfra tónlistarmanna sem halda utan um kennsluna og þjálfun kóra og hljóm- sveita skiptir auðvitað öllu máli. Tónmenntakennsla í grunnskólanum Mikil umræða hefur að undanförnu verið um tónmenntakennslu í skólum landsins og hefur þar komið fram að víða vantar á að kennslu samkvæmt reglum sé fullnægt. Tónmennta- kennsla í grunnskólanum í Þorláks- höfn hefur til margra ára verið með miklum blóma og hefur skólinn verið heppinn að hafa vel menntaða og áhugasama tónmenntakennara sagði Halldór Sigurðsson skólastjóri. Við teljum að tónlist, leiklist, íþróttir og önnur heilbrigð tómstundaiðja barna bæti starfið í skólanum. Tónlistin styður síðan leiklistina þegar settir eru upp söngleikir sem er fastur liður í starfi skólans. Nemendur í 1. til 7. bekk fá einn tónmenntatíma eða 40 mínútur á viku. Venjulega eru þrír kórar í skól- anum sem er skipt eftir aldri: A-kór er fyrir nemendur í 2. til 4. bekk, í honum eru 26 nemendur í vetur, æft er einu sinni í viku 40 mínútur í senn. B-kór er fyrir nemendur í 5. til 7. bekk. C-kór er fyrir nemendur í 8. til 10 bekk, í vetur eru B- og C-kórar sameinaðir og 32 nemendur æfa einu sinni í viku 80 mínútur í senn. Tveir stjórnendur, báðir tónmenntalærðir sem tón- og hljómfræði fléttast sjálf- krafa inn í námið. Nýlega fór fram söngvakeppni í Félagsmiðstöðinni Svítunni, mikil þátttaka var og mættu átta sveitir til leiks. Keppni var hörð en hljóm- sveitin Scream in glory bar sigur úr býtum og verður hún fulltrúi Svít- unnar í söngvarakeppni Samfés í byrjun næsta árs. Tónlistarskóli Árnesinga Tónlistarskóli Árnesinga hefur verið undirstaða tónlistarnáms í Þor- lákshöfn undanfarna áratugi. Róbert Darling skólastjóri sagði að áhugi hefði ávallt verið mikill fyrir tónlist- arnámi í sveitarfélaginu og árangur nemenda mjög góður. Sem dæmi má nefna að í vor lauk einn nemandi 8. stigi í trompetleik og næsta vor mun annar nemandi úr Þorlákshöfn ljúka því sama, tveir nemendur hafa lokið 8. stigi í söng. Róbert er einnig stjórnandi Lúðra- sveitar Þorlákshafnar en hún mun halda upp á 20 ára afmæli sitt í febr- úar n.k.. Hann sagði að sveitin hefði tekið sér stutt frí en væri nú komin til starfa af fullum krafti á ný og aldrei verið betri. Auk alls þess sem hér hef- ur verið talið má nefna Söngfélag Þorlákshafnar, sem er samkór sem hefur starfað um 40 ára skeið og með- al annars sinnt öllum kirkjulegum söng í sveitarfélaginu. Stjórnandi er Julian Edward Isaacs. Kirkjukórinn er kvennakór sem starfað hefur af krafti í nokkur ár en stjórnandi er Stefán Þorleifsson. Að lokum má nefna að fjórir söngvarar héðan syngja með Kammerkór Suðurlands en stjórnandi hans er Hilmar Örn Agnarsson, fyrrverandi tónlistar- kennari í Þorlákshöfn, en núverandi organisti í Skálholti. Allt þetta fjöl- breytta tónlistarlíf byggist á því að hér hafa sest að áhugasamir og dug- legir tónlistarmenn. Íbúar Þorlákshafnar hafa tónlistina í hávegum í kórum, lúðrasveitum og bílskúrshljómsveitum Tónlistarlíf blómstrar sem aldrei fyrr Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson Hljómsveitin Scream in glory sigraði í söngvakeppni félagsmiðstöðvarinn- ar Svítunnar og verður sveitin fulltrúi Svítunnar í söngvakeppni Samfés. Sveitina skipa nemendur úr 8. bekk: Sigþór Ási Þórðarson, gítar, Baldur Rafn Gissurarson, bassa, og Baldur Þór Ragnarsson, trommur. Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson Elísabet Ásta Bjarkardóttir söngkona í tíma hjá Stefáni Þorleifssyni, en hann er eigandi og eini kennari Tónkjallarans. Selfoss | Heilbrigðisstofnuninni á Selfossi barst tilkynning um það í lok sumars að Hafliði Ketilsson hefði ánafnað stofnun- inni öllum eigum sínum, samtals að verðmæti 38.4 milljónir. Stofn- uninni hefur bor- ist fjöldi gjafa á árinu og nema þessi gjafafram- lög ríflega 41 milljón á þessu ári. Gjafasjóður- inn fjármagnar tækjakaup inn á stofnunina og fer sú úthlutun eftir ákveðnum verklagsreglum sem framkvæmdastjórnin vinnur eftir. Gjafafé hefur að meginstofni staðið undir tækjakaupum inn á stofnunina undanfarin ár. Þessar fjölmörgu gjaf- ir sýna vel þann hug sem íbúar á Suð- urlandi bera til stofnunarinnar og áherslu þeirra á að vel sé staðið að málefnum hennar og uppbyggingu. Hafliði Ketilsson lést 25. júní á Heilbrigðisstofnuninni Selfossi tæp- lega 87 ára að aldri. Hann var fæddur að Álfsstöðum á Skeiðum 16. ágúst 1916 þar sem hann ólst upp. Foreldr- ar hans voru hjónin Kristín Hafliða- dóttir og Ketill Helgason. Systkini Hafliða voru Brynjólfur Kristinn, Ólafur, Valgerður, Helgi, Sigurbjörn, Ellert Helgi, Kristín Ágústa og Guðmundur. Þau eru öll látin. Hafliði bjó með systkinum sín- um, Valgerði og Helga, að Álfsstöð- um til ársins 1985 en þá fluttust þau að Heimahaga 1 á Selfossi. Hafliði vann nokkur ár við smíða- vinnu hjá frænda sínum, Guðmundi Sveinssyni. Hann bjó síðustu æviárin á Grænumörk 5 á Selfossi, en í apríl á þessu ári dvaldist hann á dvalarheim- ilinu Hjallatúni í Vík í Mýrdal fram til 16. júní er hann var fluttur á Heil- brigðisstofnunina Selfossi þar sem hann lést. Hann var jarðsunginn frá Selfosskirkju 5. júlí. Í tilkynningu sem Esther Óskars- dóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigð- isstofnunarinnar á Selfossi, hefur sent frá sér segir: „Þessi höfðinglega gjöf frá Hafliða er stærsta framlag sem stofnunin hefur tekið á móti frá einstaklingi. Gjöfin markar tímamót að því leyti að hún gerir Heilbrigð- isstofnuninni kleift að bæta aðstöðu fyrir sjúklinga hvað varðar aðbúnað og tækjakost til að sinna hlutverki sjúkra- og líknarstofnunar. Heil- brigðisstofnunin á Selfossi þakkar þessa höfðinglegu gjöf. Blessuð sé minning Hafliða Ketilssonar.“ Hafliði Ketilsson arfleiddi stofnunina að 38,4 milljónum Hafliði Ketilsson Heilbrigðisstofnunin á Selfossi Hveragerði | Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur hjá miðstigs- nemendum, en aðeins of seint. Þar sem 16. nóvember var á sunnudegi í ár, færðist dagskráin til um nokkra daga. Dagur íslenskrar tungu hefur mikið gildi fyrir nemendur í 7. bekk því á þeim degi hefst formlegur und- irbúningur fyrir Stóru upplestrar- keppnina sem haldin er um allt land eftir áramót. Það var því vel við hæfi að sjöundi bekkur læsi upp og völdu krakkarnir ljóð eftir Halldór Lax- ness og Megas. Yngstu nemendurnir hafa verið að læra um landnám Ís- lands og höfðu af því tilefni samið leikrit sem þeir fluttu með miklum glæsibrag. Krakkarnir í 6. bekk höfðu verið að vinna með dægur- lagatexta og notuðu textana til að efna til spurningarkeppni. Þátttak- endur áttu að geta hver flytti lögin en brot úr textum voru lesin upp. Dagur íslenskrar tungu Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir Ingólfur Arnarson og Hjörleifur, fóstbróðir hans, ásamt fríðu föruneyti. Handverksmarkaður verður í Tryggvaskála, Selfossi í dag, laug- ardaginn 29. nóvember, kl. 13–19. Til sölu eru handunnar vörur, t.d. prjónavörur, trévörur renndar og útskornar, leirvörur, skartgripir, ilmkerti o.fl. Hægt er að skoða myndir frá markaðinum á slóðinni http://www.betra.net/kerti/ handverksmarkadur.html. Í DAG
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.