Morgunblaðið - 29.11.2003, Blaðsíða 62
KIRKJUSTARF
62 LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Vígsludagur og
aðventukvöld í
Bústaðakirkju
FYRSTI sunnudagur í aðventu er
vígsludagur Bústaðakirkju. Dagsins
er minnst í helgihaldi kirkjunnar.
Barnamessa er kl. 11 og síðan guðs-
þjónusta kl. 14. Kór kirkjunnar
syngur og organisti er Guðmundur
Sigurðsson.
Eftir messu er boðið upp á vöfflu-
kaffi og það eru karlar í sókn-
arnefnd sem sjá um framkvæmd
þess.
Aðventukvöld verður kl. 20. Það
er mikilvægur liður í jólaundirbún-
ingi margra og hefur fyrir löngu
fest sig í sessi sem einn fjölsóttasti
viðburður kirkjuársins.
Allir kórar kirkjunnar og bjöllu-
sveit koma fram. Kór Bústaðakirkju
flytur Magnificat eftir ítalska tón-
skáldið Giovanni Pergolesi ásamt
kammersveit og einsöngvurum úr
kórnum.
Einsöngvarar eru Anna Sigríður
Helgadóttir, Agnes Kristjónsdóttir,
Gísli Magnason og Hjálmar Pétur
Pétursson. Konsertmeistari er Hjör-
leifur Valsson. Guðmundur Sigurðs-
son organisti stjórnar. Þá mun
bjöllusveit og allir barnakórar kirkj-
unnar flytja fjölbreytta og skemmti-
lega dagskrá aðventu- og jólalaga.
Stjórnandi er Jóhanna V. Þórhalls-
dóttir. Einnig munu allir kórarnir
syngja saman að ógleymdum al-
mennum söng safnaðarins.
Ræðumaður kvöldsins er Þórólfur
Árnason, borgarstjóri í Reykjavík.
Í lok athafnarinnar verða ljósin
tendruð.
Pálmi Matthíasson.
Aðventuhátíð
fjölskyldunnar í
Hjallakirkju
Á MORGUN, fyrsta sunnudag í að-
ventu, verður aðventuhátíð fjöl-
skyldunnar í Hjallakirkju í Kópavogi
kl. 17. Þetta er skemmtileg stund
fyrir alla fjölskylduna með léttri
jóladagskrá, söngvum og sögum.
Barnakór úr Hjallaskóla syngur
fyrir viðstadda og við fáum að sjá
skemmtilegt brúðuleikrit, Ævintýr-
ið um Stein Bollason. Leikritið
fjallar um hjartagóð barnlaus hjón
sem þrá að eignast börn. Guð kemur
til þeirra og veitir þeim þrjár óskir.
Áður en þau vita af hafa þau eignast
100 börn og fjölskyldufaðirinn,
Steinn Bollason, þarf að útvega mat
fyrir þau öll! Þá lendir hann í mikl-
um ævintýrum, hittir m.a. fyrir risa
sem reynir að villa um fyrir honum.
Leikritið er skemmtilegt og lifandi
en Helga Steffensen og Erna Guð-
marsdóttir stýra brúðunum. Auk
þessa munum við öll syngja saman
jólasöngva og njóta stundarinnar í
kirkjunni.
Að henni lokinni verður boðið upp
á kakó og piparkökur í safnaðarsal
kirkjunnar.
Við hvetjum fjölskyldur til að fjöl-
menna á aðventuhátíðina en allir
eru hjartanlega velkomnir.
Kantötuguðsþjónusta
í Hjallakirkju
HRAFNHILDUR Björnsdóttir, sópr-
an, Jóhanna Ósk Valsdóttir, mezzó-
sópran, Hákon Hákonarson, tenór
og Gunnar Jónsson, bassi flytja
kantötu nr. 61, Nú kemur heimsins
hjálparráð og lokakórinn úr kantötu
nr. 147 eftir J.S. Bach við guðsþjón-
ustuna 1. sunnudag í aðventu kl. 11.
Undirleikari á orgel er Katalin Lö-
ricz og söngstjóri er Jón Ólafur Sig-
urðsson.
Kantatan hefst með hátíðlegum
frönskum forleik þar sem konung-
urinn Kristur kemur sem hjálpræði
heimsins, síðan syngja einsöngv-
ararnir aríur sem fjalla um komu
Krists til mannanna og eftirvænt-
inguna sem því fylgir. Að lokum
kemur kórkafli þar sem hann er
boðinn velkominn með glæsibrag.
Aðventukvöld
Laugarneskirkju
Á FYRSTA degi í aðventu mætumst
við að venju kl. 20 til að stilla saman
strengina. Helgi Grímsson skóla-
stjóri Laugarnesskóla verður ræðu-
maður kvöldsins og Barnakór Laug-
arness mun koma fram ásamt
stjórnanda sínum, Sigríði Ásu Sig-
urðardóttur. Kór Laugarneskirkju
mun bera uppi almennan söng auk
þess að flytja kórverk við undirleik
og stjórn Gunnars Gunnarssonar
organista. Bjarni Karlsson sókn-
arprestur og Sigurbjörn Þorkelsson
meðhjálpari munu þjóna ásamt hópi
fermingarbarna og loks býður sókn-
arnefnd öllum til súkkulaðidrykkju í
safnaðarheimilinu.
Sigurbjörn Einarsson
biskup talar á aðventu-
stund í Neskirkju
EINS og venjan hefur verið er mikið
um að vera í Neskirkju fyrsta sunnu-
dag í aðventu. Barnastarfið verður
með hefðbundnum hætti en í mess-
unni kl. 11 kynna Gideonfélagar
starf sitt. Munu þeir annast ritning-
arlestur og Sigurbjörn Þorkelsson
framkvæmdastjóri og rithöfundur
prédikar. Sr. Frank M. Halldórsson
þjónar fyrir altari.
Tekið verður á móti framlögum til
Gideonfélagsins sem hefur m.a. um
árabil gefið öllum 10 ára börnum á
Íslandi Nýja testamenti.
Klukkan 17 hefst aðventustund.
Dr. Sigurbjörn Einarsson biskup
flytur hugleiðingu og fjórir kórar
kirkjunnar koma fram. Sérstök at-
hygli er vakin á því að nýstofnaður
stúlknakór kirkjunnar kemur fram í
fyrsta sinn og syngur undir stjórn
Steingríms Þórhallssonar organista.
Þá stjórnar hann og Kór Neskirkju.
Litli kórinn, kór eldri borgara,
syngur undir stjórn Ingu J. Bachm-
an og Drengjakór Neskirkju syngur
undir stjórn Friðriks S. Krist-
inssonar við undirleik Lenku
Mateova.
Sr. Frank M. Halldórsson flytur
lokaorð.
Fyrsti sunnudagur í
aðventu í Fella- og
Hólakirkju
SUNNUDAGINN 30. nóvember,
fyrsta sunnudag í aðventu, er guðs-
þjónusta í Fella- og Hólakirkju kl.
11. Formaður Kvenfélagsins Fjall-
konurnar, Sveinborg Jónsdóttir,
kveikir á fyrsta kertinu á aðventu-
kransinum. Sr. Guðmundur Karl
Ágústsson predikar og þjónar fyrir
altari. Kór kirkjunnar syngur undir
stjórn Lenku Mátéová, organista.
Konur úr kvenfélaginu lesa ritning-
arlestra. Eftir guðsþjónustuna og
sunnudagaskólann sem er á sama
tíma verður framreidd súpa í safn-
aðarheimilinu.
Aðventukvöld
Kl. 20 um kvöldið verður árlegt
aðventukvöld Fella- og Hólakirkju.
Sóknarprestar Fella- og Hóla-
brekkusókna, sr. Svavar Stefánsson
og sr. Guðmundur Karl Ágústsson,
flytja ávarp og fara með bænir.
Áhersla verður lögð á tónlist. Kór
Fella- og Hólakirkju syngur undir
stjórn Lenku Mátéová, organista,
Sólveig Samúelsdóttir, mezzósópr-
an, syngur einsöng og barnakórar
kirkjunnar syngja undir stjórn
Lenku og Þórdísar Þórhallsdóttur.
Þá verður almennur safnaðarsöngur
mikill. Hugvekju flytur Haraldur
Ólafsson, prófessor. Elín Elísabet Jó-
hannsdóttir les jólasögu.
Í lokin verður kirkjan myrkvuð og
hver og einn kirkjugestur tendrar á
sínu kerti af ljósi sem borið verður
frá altari út í kirkju. Að lokinni at-
höfninni í kirkjunni verður boðið
upp á kaffi, svaladrykk og smákök-
ur í safnaðarheimilinu. Aðventu-
kvöldin hafa verið mjög vel sótt und-
anfarin ár. Þar hefur fólk átt helga,
hátíðlega stund í upphafi aðventu og
notið samfélagsins í góðu umhverfi
kirkjunnar.
Guðni Ágústsson á
aðventukvöldi
GUÐNI Ágústsson ráðherra verður
ræðumaður á aðventukvöldi í Graf-
arvogskirkju fyrsta sunnudag í að-
ventu 30. nóvember kl. 20.
Fermingarbörn flytja helgileik.
Pálmar Guðjónsson kennari les jóla-
sögu. Kór Grafarvogskirkju og Ung-
lingakór Grafarvogskirkju syngja.
Arnþrúður Ösp Karlsdóttir syngur
einsöng með Unglingakór. Stjórn-
endur kóra: Hörður Bragason org-
anisti og Oddný J. Þorsteinsdóttir.
Prestar safnaðarins flytja bænarorð
Aðventukvöld í Braut-
arholti á Skeiðum
ENN á ný er aðventan að ganga í
garð. Það var í fyrra að við byrj-
uðum að hafa sameiginlegt aðventu-
kvöld fyrir sóknir sveitarfélagsins. Í
fyrra var ræðmaður kvöldsins Guð-
bergur Bergsson rithöfundur. Al-
menn ánægja með þetta kvöld og
tókst vel.
Því er það, að boðað er til annars
aðventukvölds með líku sniði og í
fyrra. Ræðumaður kvöldsins að
þessu sinni verður Matthías Johann-
essen, skáld og fyrrverandi ritstjóri
Morgunblaðsins. Kórar kirknanna
og börn syngja aðventusálma.
Sóknarprestur les guðspjall dags-
ins og leiðir bæn. Svo syngjum við öll
saman og fáum okkur kaffi og pip-
arkökur í lokin. Dagskráin er tæpur
klukkutími.
Ég vil hvetja okkur sem flest til að
koma og eiga saman ánægjulega
stund í upphafi aðventu og und-
irbúnings okkar fyrir komu jólanna.
Axel Árnason, sóknarprestur.
Aðventan í Árbæjar-
og Grafarholtssóknum
FYRSTI sunnudagur í aðventu ber
upp á 30. nóvember. Fyrsti sunnu-
dagur í aðventu er jafnframt kirkju-
dagur Árbæjarsafnaðar. Sá dagur
er hátíðisdagur Árbæjarkirkju.
Glaðlegur sunnudagaskólinn
verður í kirkjunni kl. 11. Tendrað
verður á fysta kertinu (spádóms-
kertinu) á aðventukransinum. Dust-
að verður rykið af jólalögunum.
Ánægjulegt hefur verið hversu dug-
leg börnin og foreldrar þeirra, afar
og ömmur hafa verið í vetur að
koma í sunudagaskólann og fyllt
kirkjuna af gleði og söng. Ekki eig-
um við von á breytingu í þeim efn-
um, ef eitthvað er ætlum við sem
störfum í kirkjunni að gera enn bet-
ur.
Eftir hádegið kl. 14 verður hátíð-
arguðsþjónusta í tilefni af kirkju-
deginum. Fyrrverandi sókn-
arprestur okkar og prófastur sr.
Guðmundur Þorsteinsson mun flytja
prédikun og prestar safnaðarins, sr.
Þór Hauksson og sr. Sigrún Ósk-
arsdóttir, þjóna fyrir altari. Org-
anistinn Krisztina Kalló Szklenár
spilar á orgel og stjórnar kirkjukór
safnaðarins. Ingveldur Ýr Jónsdóttir
syngur einsöng og Sólrún Gunn-
arsdóttir leikur á fiðlu. Eftir guðs-
þjónustuna er kirkjugestum og öðr-
um sem áhuga hafa boðið (gegn
vægu gjaldi) að koma niður í safn-
aðarheimilið og njóta veitinga sem
kvenfélag kirkjunnar hefur tilreitt.
Þar mun okkar ágæti söngvari
Bergþór Pálsson syngja fyrir gesti
nokkrar af perlum söngbók-
menntanna. Hefð er fyrir því á
kirkjudeginum að vera með skyndi-
happdrætti líknarsjóðsins með veg-
legum vinningum sem fyrirtæki
hafa gefið af rausnarskap sínum.
Líknarsjóðskonur selja miða og
vinningur eða ekki kemur strax í
ljós. Mikil vinna liggur að baki hjá
þeim konum sem standa að líkn-
arsjóðnum. Afrakstur sölunnar fer
óskiptur til þeirra sem eiga um sárt
að binda eða eru í tímabundnum
fjárhagsörðugleikum fyrir jólin.
Mánudagskvöldið 1. desember
verður kvenfélag kirkjunnar með
jólafund sinn.
Víst er að þar verður glatt á
hjalla. Sagðar eru sögur, sungið og
dýrindis matur á boðstólum. Taka
skal fram að eiginmenn mega koma
með konum sínum á þennan fund.
Jólahugleiðing. Allar upplýsingar
eru að fá hjá Halldóru Steinsdóttur,
formanni kvenfélagsins.
Basar – vöfflukaffi –
kaffihúsakvöld
ÍSLENSKA Kristskirkjan, sem er
lúthersk fríkirkja, verður með basar
og vöfflukaffi á Bíldshöfða 10, 2.
hæð, laugardaginn 29. nóvember kl.
14–18.
Söfnuðurinn er að kaupa nýtt hús-
næði fyrir margþætt starf sitt og er
þetta fjáröflun til þeirra kaupa. Á
boðstólum verður margs konar
handavinna og kökur, ásamt ýmsu
öðru sem tilvalið er til jólagjafa, eða
til að gleðja sjálfan sig og aðra.
Myndir frá nýja húsinu verða sýndar
á staðnum. Kaffi og gómsætar vöffl-
ur verða á boðstólum gegn vægu
verði, um daginn, en um kvöldið
verður svo „kaffihúsakvöld“ í umsjá
unga fólksins í kirkjunni frá kl. 21.
Þar verður kristileg tónlist og léttar
veitingar á góðu verði.
Kolbrún Halldórs-
dóttir í
Hraungerðiskirkju
AÐVENTUSAMVERA verður hald-
in í Hraungerðiskirkju samkvæmt
hefð við upphaf aðventunnar, nk.
sunnudag kl. 21. Ræðumaður
kvöldsins verður Kolbrún Halldórs-
dóttir þingismaður Vinstri grænna.
Börn úr Þingborgarskóla syngja
undir stjórn Höllu Aðalsteinsdóttur.
Kirkjukórinn flytur tónlist undir
stjórn hins nýja organista Hraun-
gerðisprestakalls, Eyrúnar Jón-
asdóttur.
Að venju verður kveikt á aðven-
tukransinum og að lokum sameinast
allir í fjöldasöng.
Kristinn Ág. Friðfinnsson.
Aðventusamkoma í
Oddakirkju á
Rangárvöllum
AÐVENTUSAMKOMA verður
sunnudaginn 30. nóvember kl. 16.
Kirkjukór Oddasóknar, stúlkna-
kórinn Hekla, ásamt einsöngv-
aranum Önnu Lilju Torfadóttur og
flautuleikurum. Organisti Nína
Morávek. Fermingarbörn annast
ljóðalestur. Hugvekju annast sr.
Skírnir Garðarsson og verður einnig
frumfluttur nýr aðventusálmur hans
við lag Sibeliusar. Stjórnandi Magn-
ea Gunnarsdóttir. Allir velkomnir.
Aðventusamkoma í
Þykkvabæjarkirkju
AÐVENTUSAMKOMA verður
sunnudaginn 30. nóvember kl. 20.
Kirkjukórinn syngur undir stjórn
Magneu Gunnarsdóttur og við und-
irleik Nínu M. Morávek. Stúlknakór-
inn Hekla syngur og Anna Lilja
Torfadóttir syngur einsöng. Skóla-
börn úr Þykkvabæjarskóla annast
lestur. Nemendur úr tónlistarskól-
anum leika á hljóðfæri. Hugvekja,
sr. Skírnir Garðarsson. Allir vel-
komnir að syngja aðventuna inn.
Gídeonheimsókn
í Neskirkju
FULLTRÚAR frá Gídeonfélaginu á
Íslandi verða gestir við messuna í
Neskirkju á fyrsta sunnudegi í að-
ventu, á morgun, sunnudaginn 30.
nóvember, kl. 11.
Sigurbjörn Þorkelsson, forseti
Gídeonfélagsins á Íslandi, mun pré-
dika og segja nýjustu fréttir af starfi
félagsins. Þá munu liðsmenn félags-
ins lesa ritningarlestra dagsins.
Eftir messuna verður tekið við
frjálsum fjárframlögum við kirkju-
dyr til kaupa á Nýja testamentum.
Árlega kemur Gídeonfélagið á Ís-
landi um 10.000 eintökum af Nýja
testamentinu í umferð hér á landi.
Jafnframt hefur félagið hin síðari ár
fjármagnað árlega kaup á 15.000 til
25.000 eintökum af Nýja testament-
um á erlendum tungumálum sem
komið hefur verið í umferð víðs-
vegar um heimsbyggðina.
Basar í Kefas
HINN fyrsta í aðventu, sunnudaginn
30. nóvember, verðum við með okk-
ar árlega basar í Fríkirkjunni Kefas
frá kl. 13–17.
Þar verða á boðstólum heimabak-
aðar kökur, smákökur, fallegar
gjafavörur, geisladiskar með hljóm-
sveit kirkjunnar og ýmislegt annað á
mjög góðu verði.
Einnig verða seldir lukkupakkar
og haldin tombóla með vinningum á
öllum miðum.
Frábærar veitingar verða til sölu,
rjómavöfflur og rjúkandi kaffi eða
gos og annað góðgæti. Hægt verður
að njóta veitinganna undir ljúfri há-
tíðartónlist sem hljómsveit hússins
leikur.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Fríkirkjan Kefas.
Hátíðamessa og
aðventukvöld í
Langholtskirkju
FYRSTA sunnudag í aðventu verður
að venju fjölbreytt dagskrá í Lang-
holtskirkju. Hátíðamessa og barna-
starf er kl. 11 þar sem Gradualekór
Langholtskirkju syngur. „Engla-
messan“ verður sungin og kveikt
verður á fyrsta aðventukertinu.
Kl. 20 um kvöldið verður aðven-
tuhátíð þar sem að Ólöf Kolbrún
Harðardóttir, söngkona, flytur að-
ventuhugvekju, en hún hefur lagt
safnaðarstarfinu lið í áratugi og
ekki síst hinu blómlega söngstarfi
Langholtskirkju. Kór Langholts-
kirkju syngur og einnig mun Kór
Kórskólans flytja Lúsíuleik. Kaffi-
veitingar verða á eftir (500 kr.).
Sóknarprestur.
Aðventuhátíð
í Grensáskirkju
DÓMS- og kirkjumálaráðherra,
Björn Bjarnason, talar á aðventu-
kvöldi í Grensáskirkju annað kvöld,
30. nóv., kl. 20.
Barnakór Hvassaleitisskóla syng-
ur undir stjórn Kolbrúnar Ásgríms-
dóttur og kirkjukór Grensáskirkju
undir stjórn Árna Arinbjarnarsonar
organista. Ragnhildur Hauksdóttir
leikur einleik á píanó.
Um morguninn kl. 11 prédikar sr.
Halldór S. Gröndal við guðsþjónustu
Morgunblaðið/Kristján