Morgunblaðið - 13.12.2003, Síða 42
LISTIR
42 LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Í dag kl. 16–19 opnar jólasýning á nýjum verkum á
vinnusofu minni „Gallerí Örnólfur“ á horni
Snorrabrautar og Njálsgötu.
Kl. 16–17 munu Jóel Pálsson saxafónleikari og Davíð
Þór Jónsson píanóleikari leika af fingrum fram.
Kl. 17.00 mun Hannes Hólmsteinn Gissurarson lesa
úr bók sinni „Halldór“ og árita.
VERIÐ VELKOMIN OG TAKIÐ MEÐ YKKUR GESTI.
Sýning
á aðventu
Pétur Gautur
Sýningin er opin frá
kl. 16-18 alla daga
fram að jólum.
É
g hef vinninginn, – ég er búin að
vera hérna í rúm fjörutíu ár, –
Jón bara í þrjátíu og níu og
hálft!“
Ólöf Kolbrún Harðardóttir
óperusöngkona glottir góðlátlega til eigin-
manns síns, Jóns Stefánssonar organista, þeg-
ar þau setjast niður með blaðamanni til að rifja
upp starfsferil sinn í Langholtskirkju. Í dag
klukkan fimm eru tónleikar í kirkjunni í tón-
leikaröðinni Blómunum úr garðinum, en í röð-
inni koma einmitt fram tónlistarmenn sem
hafa einhvern tíma starfað með kórum kirkj-
unnar. Þetta er í fyrsta sinn sem þau Ólöf Kol-
brún og Jón koma fram tvö ein á tónleikum,
„það er nú svolítil skreytni að segja það,“ skýt-
ur Jón inn í, „við höfum auðvitað margoft kom-
ið fram saman, við ýmiss konar aðstæður, þótt
við höfum ekki áður auglýst tónleika með okk-
ur tveimur saman.“
„Jón hefur alla tíð spilað mikið með mér,
þótt hann hafi aldrei viljað troða upp sem pían-
isti með mér,“ segir Ólöf Kolbrún. „Þá hef ég
unnið með öðrum. Það er heldur ekki langt síð-
an það kom almennilegt orgel í Langholts-
kirkju, og fyrir þann tíma var ekkert svo
spennandi að vinna saman prógramm fyrir
söng og orgel. En við höfðum löngu heitið
hvort öðru því að vinna saman það sem við
verðum með á þessum tónleikum, til dæmis
lögin eftir Hugo Wolf. Við byrjuðum að æfa
þetta fljótlega eftir að orgelið kom, en það var
bara alltaf svo mikið að gera að þetta kafnaði í
annríki.“ Jón bætir því við að nú hafi þau feng-
ið svipu á sig að klára þetta, vegna tónleikarað-
arinnar Blómanna úr garðinum, – það hefði
varla verið hægt að halda henni úti án þess að
Jón og Ólöf gerðu eitthvað saman.
Þýsk jólaljóð og Bach á orgel
Lögin sem Ólöf Kolbrún nefndi eru þrjú og
eru úr Mörike-ljóðum Hugos Wolfs. Þetta eru
kirkjuleg ljóð, Sofandi Jesúbarn, Bæn og
Kyrravika.
Jón ætlar að spila þrjá sálmforleiki eftir
Bach, alla byggða á sálminum Nú kemur
heimsins hjálparráð. „Ólöf syngur líka útsetn-
ingu Bachs á sálminum, en það er vel að
merkja ekki sama lagið og við þekkjum við
þennan texta. Sálmforleikirnir þrír eru hver
með sínu sniði, en allir einkennandi fyrir
vinnubrögð Bachs. Í þeim fyrsta er mikil íhug-
un, þar sem laglínan sjálf er mjög flúruð. Sá
næsti er tríó, – þrjár sjálfstæðar raddir; –
vinstri hönd og pedallinn skapa mikla pólý-
fóníu meðan laglínan heyrist skreytt á öðru
nótnaborði með hægri hendi. Þriðji sálm-
forleikurinn er mikil pólýfónísk flækja með
laglínuna í pedal. Það má því heyra ýmsar að-
ferðir Bachs við að útfæra eitt lag.“
Þriðja verkefninu á tónleikunum, ljóðaflokki
eftir Peter Cornelius, kynntist Ólöf Kolbrún á
námsárum sínum í Vínarborg, þar sem píanó-
leikarinn heimskunni Erik Werba var meðal
kennara hennar. „Ég vann mikið með Werba,
og þetta var eitt af því sem hann benti mér á að
syngja. Ég hef sungið eitthvað af þessum lög-
um áður, meðal annars í sjónvarpinu einhvern
tíma á aðfangadagskvöld, með Guðrúnu Krist-
insdóttur píanóleikara. Textarnir eru ekki
beinlínis kirkjulegir, en allir tengdir jólasög-
unni.“
Íslenskar textaþýðingar ljóðanna sem Ólöf
Kolbrún syngur fylgja með í tónleikaskránni,
þannig að auðvelt er fyrir þá sem ekki skilja
þýsku að setja sig inn í stemmninguna.
Afmælisár í kirkjunni
Langholtssöfnuður fagnaði 50 ára afmæli í
fyrra og í vetur fagna þau Jón og Ólöf Kolbrún
40 ára starfsafmæli sínu við kirkjuna eins og
áður er sagt. „Ég byrjaði í kirkjukórnum strax
eftir fermingu,“ segir Ólöf Kolbrún, „og fyrr
en varði var ég komin á kaf í félagsstarfið í
kirkjunni. Í dag er ég sá starfsmaður kirkj-
unnar sem lengst hefur starfað hér. Jón kom
svo til starfa sem organisti í apríl, fyrsta vetur-
inn minn. Í dag kenni ég við kórskólann, og
það er eins og að losna úr ham að koma úr ann-
arri kennslu til að sinna litlu krökkunum hér.
Það er ótrúlega skemmtilegt.“
Í dag starfrækir Jón Stefánsson sex kóra við
Langholtskirkju, Krúttakórinn, Graduale fut-
uri, sem er aðeins þriggja ára, Gradualekór-
inn, Graduale nobili, Kammerkór Langholts-
kirkju og loks sjálfan kirkjukórinn, Kór
Langholtskirkju, sem fagnar afmæli sínu í vet-
ur um leið og stofnandinn og stjórnandinn.
Auk alls þessa er Kórskólinn í fullum gangi,
þar sem yngstu krakkarnir fá grunnþjálfun í
því að syngja í kór. Þau Ólöf Kolbrún og Jón
eru augljóslega talsvert stolt af því sem starf
þeirra í Langholtskirkju hefur skilað. Tón-
leikaröðin sem þau sjálf taka nú þátt í er ein-
mitt lýsandi dæmi um árangurinn, og þann
fjölda hámenntaðra tónlistarmanna sem hafa
vaxið upp úr kórstarfinu í Langholti.
Meðal þeirra söngvara sem hófu feril sinn í
kórnum, eru auk Ólafar Kolbrúnar, Viðar
Gunnarsson, Þóra Einarsdóttir, Björn Jóns-
son, Harpa Harðardóttir, Signý Sæmunds-
dóttir og Björk Jónsdóttir.
En í dag er komið að þeim sjálfum að láta
ljós sitt skína. Tónleikarnir hefjast sem fyrr
segir kl. 17.
Ólöf Kolbrún Harðardóttir og Jón Stefánsson á tónleikum í Langholtskirkju í dag
Í fyrsta sinn
tvö ein saman
á tónleikum
Morgunblaðið/Ásdís
„Við höfðum heitið hvort öðru því að vinna
þessa tónlist saman,“ segja þau Ólöf Kolbrún
Harðardóttir og Jón Stefánsson.
begga@mbl.is
KRISTINN Sigmundsson og Jónas
Ingimundarson héldu tónleika sl.
mánudag í sendiherrabústaðnum í
Washington D.C. fyrir fullu húsi
áheyrenda. Tónleikar þeirra voru
liður í tónleikaröð fyrirtækisins
Embassy Series sem stofnsett var
árið 1994 og skipuleggur með
sendiráðunum árlega tónleika í 15
sendiráðum í Washington. Þessir
tónleikar voru nefndir „From
Darkness into Light“ og samanstóð
efnisskrá þeirra félaga fyrir hlé af
íslenskum lögum eftir Sigvalda
Kaldalóns, Markús Kristjánsson,
Sveinbjörn Sveinbjörnsson og Árna
Thorsteinsson. Eftir hlé voru flutt
verk eftir Frederic Weatherly, Jer-
ome Kern, Francesco Paolo Tosti,
Stanislaus Gastaldono, Pjotr Iljítsj
Tsjajkovskí og Giuseppe Verdi.
Veglegri efnisskrá með upplýsing-
um um íslensku höfundana, tónlist-
arsögu Íslands og æviágrip lista-
mannanna var dreift til tónleika-
gesta.
Undirtektir þeirra 130 gesta sem
hlýddu á tónleikana voru fádæma
góðar eins og við var að búast, að
sögn Helga Ágústssonar sendi-
herra. Hann sagði þennan hóp vera
fólk sem sækti reglubundið tón-
leika í Washington og sér hefði þótt
einstaklega ánægjulegt að verða
vitni að þeirri hrifningu sem þeir
félagar vöktu. Ýmsir hefðu tjáð sig
sérstaklega um hversu íslensku lög-
in væru falleg og aðrir að þessir
tónleikar hefðu verið þeir bestu
sem þeir hefðu sótt hjá Embassy
Series í mörg ár. Helgi sagði jafn-
framt að geisladiskar sem hefðu
verið til sölu eftir tónleikana hefðu
verið rifnir út og greinilegt að
áheyrendur vildu fá meira að
heyra.
Tónleikarnir voru styrktir af Ice-
land Naturally og var kynningar-
efni um starfsemina dreift ásamt
menningarlegu efni um Ísland.
Hilmar Jónsson og eiginkona hans,
Elín Káradóttir, undirbjuggu veit-
ingar kvöldsins sem allar voru unn-
ar úr íslensku hráefni og þóttu að
sjálfsögðu hið mesta lostæti að sögn
sendiherrans.
Kristinn Sigmundsson, Helgi Ágústsson og Jónas Ingimundarson.
Kristinn og Jónas
í Washington