Morgunblaðið - 13.12.2003, Side 46
DAGLEGT LÍF
46 LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
É
g hef aldrei búið erlend-
is en mig langaði að
prófa eitthvað nýtt eft-
ir samræmdu prófin
auk þess sem námið
hefur alþjóðleg viðmið. Þannig að ef
maður fær góðar einkunnir á IB-
prófinu auðveldar það inngöngu í er-
lenda háskóla,“ segir Sigríður Mjöll
Björnsdóttir um tildrög þess að hún
ákvað að leggja stund á svokallað IB-
nám við Menntaskólann við Hamra-
hlíð í staðinn fyrir hefðbundið fram-
haldsskólanám.
Námið, sem fer allt fram á ensku,
er annars vegar hugsað fyrir íslenska
nemendur sem hafa náð verulega
góðum árangri í grunnskóla, og hins
vegar fyrir útlendinga og þá sem
dvalið hafa langdvölum erlendis. Það
leiðir til alþjóðlegs stúdentsprófs og
segir á heimasíðu skólans að það
byggist ekki á menntakerfi einnar
þjóðar heldur „hafi að geyma það
besta úr skipulagi margra þjóða“.
Námsferlið er þrjú ár en þar af er
eitt undirbúningsár þannig að IB-
námið sjálft tekur tvö ár. Tómas
Kristjánsson, sem er á síðasta árinu,
segir þetta hafa skipt máli þegar
hann ákvað að stefna á IB-próf. „Ég
var skiptinemi í Dóminíska lýðveld-
inu í eitt ár og þar sem IB-námið er
þrjú ár sá ég fram á að ég gæti út-
skrifast á sama tíma og jafnaldrar
mínir. Svo stefni ég á sálfræðinám í
Englandi og með IB-prófinu hef ég
miklu meiri möguleika á að komast
inn í háskóla erlendis. Þannig að ég
ákvað að breyta til.“
Sigríður, sem er á fyrra IB-
námsárinu, segir það einnig hafa spil-
að inn í hennar ákvörðun að með
náminu fengi hún talsverða þjálfun í
ensku. „Svo er þetta mjög góð mennt-
un því það er farið djúpt í hvert fag.“
Bara sex í árganginum
með íslensku sem móðurmál
Þau segja að flestir íslensku nem-
endurnir hafi dvalið langdvölum er-
lendis. „Í mínum árgangi hafa flestir
búið eitthvað úti og til að mynda er-
um við bara sex sem höfum íslensku
sem móðurmál,“ segir Tómas. „Það
eru þó miklu fleiri sem tala íslensku
því það eru margir hálfíslenskir
krakkar í hópnum.“
Sigríður segir sinn árgang vera
óvenju blandaðan. „Hins vegar veit
ég að núna eru óvenju margir Íslend-
ingar á undirbúningsárinu fyrir IB-
námið.“ Hún bætir því við að ekki sé
hægt að líta á IB-námið sem einhvers
konar nýbúabraut, einfaldlega vegna
þess að nýbúar komi frá mörgum
ólíkum löndum og námið krefjist
góðrar enskukunnáttu. Þá séu ekki
allir nýbúar tilbúnir í eins strangt
nám og IB-námið sé.
Tómas segir þó dæmi um að er-
lendir krakkar, sem ekki voru sleipir í
ensku þegar þeir hófu námið, hafi
spjarað sig ágætlega. Þá sé erfitt að
bera saman þetta nám og hið hefð-
bundna. „Ég myndi ekki segja að
þetta nám sé miklu erfiðara en venju-
lega námið heldur er þetta allt öðru-
vísi upp byggt. Þetta byggist miklu
meira á að þú vinnir stærri verkefni
og ritgerðir heima við. En skólavinn-
an finnst mér á engan hátt strembn-
ari.“
Mikil spenna og
menningarárekstrar
Þau segja svolítið sérstakt and-
rúmsloft ríkja í IB-náminu. „Þegar ég
byrjaði voru nemendur af 25 mismun-
andi þjóðerni í mínum bekk,“ segir
Sigríður. „Það var oft mjög erfitt því
þetta leiddi til mikilla menningar-
árekstra. Síðan myndast ákveðnir
hópar, þeir sem eru frá Asíulönd-
unum halda sig saman, Íslending-
arnir eru saman og svo framvegis.
Þetta var mjög erfitt og mikil spenna
sem fylgdi þessu.“
Tómas segist ekki hafa orðið eins
mikið var við þetta. „Bekkurinn okk-
ar er eiginlega hálfrússneskur þannig
að við þurftum eiginlega að aðlaga
okkur að rússneskri menningu,“ seg-
ir hann og kímir. „En að öllu gamni
slepptu þá eru ólíkir menningar-
heimar alltaf með ólíkar hefðir og að-
ferðir við að nálgast mál og mannleg
samskipti eru mismunandi eftir mis-
munandi menningarheimum. Þetta
er bara aðlögunarferli og ég kom inn í
þetta þegar þau voru búin að vera
saman í eitt ár. Kannski var spennan
búin að minnka þess vegna.“
Bæði Sigríður og Tómas stefna á
háskólanám eftir að IB-náminu í MH
sleppir, Sigríður á fornleifafræði eða
efnafræði og Tómas á sálfræðinám í
Bretlandi. Hann bendir þó á að þar
sem Ísland sé ekki í Evrópusamband-
inu þurfi hann að borga talsvert
hærri skólagjöld í Bretlandi en flestir
aðrir Evrópubúar nema hann sé svo
heppinn að fá skólastyrk. „Þannig að
kannski er alveg eins líklegt að mað-
ur endi í grunnnámi í sálfræði hér
heima og fari svo í framhaldsnám í
Bretlandi,“ segir hann að lokum.
MENNTAMÁL | Alþjóðleg stemning ríkir meðal nemenda í IB-náminu í Menntaskólanum við Hamrahlíð
Morgunblaðið/Þorkell
Sigríður Mjöll Björnsdóttir og Tómas Kristjánsson: Strangt þriggja ára nám sem er ekki fyrir alla.
„Auðveldar inngöngu
í erlenda háskóla“
ben@mbl.is
TENGLAR
.....................................................
www.mh.is