Morgunblaðið - 13.12.2003, Blaðsíða 83
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 2003 83
BASIC INSTINCT
ilmirnir fást í snyrtivörudeild Hagkaupa og Debenhams
sem og í snyrtivöru- og lyfjaverslunum um allt land.
UNGIR jafnaðarmenn óska hér með
eftir því að Pétur H. Blöndal, trygg-
ingastærðfræðingur, 3. þingmaður
Reykjavíkurkjördæmis suður og for-
maður efnahags- og viðskiptanefnd-
ar Alþingis, reikni út hvað þau lífeyr-
isréttindi kosta ríkissjóð sem æðstu
stjórnendur landsins hafa umfram
aðra starfsmenn ríkisins.
Ungir jafnaðarmenn biðja um að
Pétur reikni einnig út hversu hátt
hlutfall launa sinna æðstu stjórnend-
ur landsins þyrftu að greiða til að
öðlast með eðlilegum hætti þau sér-
stöku lífeyrisréttindi sem þeim er
skammtað í lögum nú.
Sem og vilja Ungir jafnaðarmenn
biðja Pétur um að meta hvaða áhrif
þessi umframlífeyrisréttindi hafa á
afkomu ríkissjóðs næstu 25–30 árin.
Virðingarfyllst,
ANDRÉS JÓNSSON,
Ungir jafnaðarmenn.
Opið bréf
til Péturs
H. Blöndals
Frá Andrési Jónssyni
ÞEIR eru glæsilegir jólapakkarnir
sem almenningur fær frá ríkis-
stjórninni þessa dagana. Í kjölfar
fjárlaga er boðaður niðurskurður í
heilbrigðismálum, sem samkvæmt
fréttum leiðir til þess að 200 manns
missa vinnuna á Landspítalanum,
öryrkjar boða málaferli varðandi
vanefndir á dómi Hæstaréttar og
félagsmálaráðherra neyðist til að
draga til baka, a.m.k í bili, skerð-
ingu á atvinnuleysisbótum, en það
mál var litið það alvarlegum augum
af flokksbræðrum hans í röðum for-
ustumanna í verkalýðshreyfingunni,
að boðuð var úrsögn úr flokknum.
Fjármálaráðherra leggur fram
frumvarp um afnám sjómannaaf-
sláttar sem hefur verið hluti af
kjörum sjómanna í áratugi. Það
nýjasta er starfslokasamningur
Davíðs Oddssonar og óheyrilegar
hækkanir á launum flokksfor-
manna. Allt þetta kemur á við-
kvæmasta tíma sem hægt er að
hugsa sér, kjarasamningar lausir
og menn búnir að birta kröfur og
tiltölulega jákvætt hljóð í mönnum
um hinar ýmsu útfærslur á leiðum
til að bæta kjörin en jafnframt að
halda í stöðugleikann sem ríkt hef-
ur undanfarin ár. Hvað varðar okk-
ur sjómenn er staðan ískyggileg og
stöðugar lækkanir á afurðum frysti-
togaranna allt að 30% á milli ára í
fiskverði á ferskum fiski, sem hefur
hrunið, sérstaklega í ýsu, karfa og
ufsa þannig að við blasir að tekju-
skerðing á þessum skipum stefnir í
a.m.k 35-40%. Það er með ólík-
indum að stjórnmálamenn sem
kosnir eru til að gæta að hags-
munum sjómanna, sem og annarra
launþega, skuli dirfast að hleypa
öllu í bál og brand rétt fyrir gerð
kjarasamninga. LÍÚ hefur lýst yfir
að þeir muni ekki bæta sjómönnum
þá tekjuskerðingu sem af því hlýst
að afnema sjómannaafsláttinn.
Maður kemst ekki hjá því að spyrja
sig hvað vakir fyrir ríkisstjórninni.
Eru menn ekki farnir að telja það
sjálfgefið að óhætt sé að vaða yfir
allt og alla á skítugum skónum og
skeyta ekki neinu hvernig aðstæður
eru hjá fólki? Mér þætti fróðlegt að
sjá hvernig þeir tækju því ef rýrn-
um í launaumslagi þeirra yrði 30 til
40% á tiltölulega stuttum tíma og
svona til að bæta á gleðina myndi
sá sem reiknaði út launin skerða
þau enn frekar. Ég er sannfærður
um að það heyrðist hljóð úr horni.
Það er óskiljanlegt að stjórnmála-
menn skuli ganga fram með þess-
um hætti á sama tíma og flutt er
inn erlent vinnuafl til vinnu á há-
lendinu í einum mestu framkvæmd-
um Íslandssögunnar sem menn
segja að sé ráðið af vinnumiðlunum
sem nánast séu glæpafyrirtæki og
ekki séu greidd laun samkvæmt ís-
lenskum kjörum. Nýlegt dæmi sem
frægt er þegar forsætisráðherra
tók út peninga úr Kaupþingi Bún-
aðarbanka og eftir því sem hann
sagði nánast andvaka yfir. Þar
höfðu menn þó vit á að draga kaup-
réttarsamninga sína til baka. Ekki
hefur það haldið vöku fyrir for-
sætisráðherra eða stjórnarliðum
þegar menn hafa vaðið út úr kvóta-
kerfinu uppá milljarða. Það er allt í
lagi að þeirra mati. Ofan á allt
þetta sækja stjórnvöld um aðild að
öryggisráðinu sem kostar að því að
upplýst er ca. 1.500 milljónir. Mér
sýnist að menn séu komnir á eitt
allsherjar egótripp. Hvaða áhrif
halda menn að þeir geti haft um-
fram þau sem við getum haft með
aðild að Sameinðu þjóðunum þar
sem stórþjóðirnar beita neitunar-
valdi eftir því sem þeim hentar?
Það eina sem við sjómenn getum
gert til að verja okkar kjör ef frum-
varp fjármálaráðherra nær fram að
ganga bótalaust er að sigla skip-
unum í land og binda. Ég hef verið
talsmaður þess að alltaf skuli fara
eftir leikreglum samfélagsins en
svo getur manni ofboðið að manni
finnist stætt á að víkja frá því og
hvet ég alla sjómenn til að leggja
niður störf og sigla í land ef frum-
varpið nær fram að ganga.
EIRÍKUR JÓNSSON,
form. Félags íslenskra
skipstjórnarmanna.
Stjórnvöld
á egófylliríi
Frá Eiríki Jónssyni skipstjóra
Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi • Sími 554 4433
Opið virka daga 10-18, laugardaga 10-16
Föt fyrir
allar konur