Morgunblaðið - 13.12.2003, Síða 88
ÍÞRÓTTIR
88 LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NORSKIR fjölmiðlar eru harðorðir
í garð Marit Breivik, þjálfara norska
kvennalandsliðsins í handknattleik en
liðið leikur í dag um 5. sætið á Heims-
meistaramótinu sem fram í fer í Kró-
atíu. Verdens Gang fer þar fremst í
flokki og segir að tap liðsins gegn
Úkraínu í fyrsta leik liðsins á HM
megi skrifast alfarið á liðsval Breivik.
Þar valdi hún að láta besta markvörð
liðsins, Heidi Tjugum, vera utan við
liðið í þeim leik. „Við munum aldrei fá
að vita hvað hefði gerst ef Tjugum
hefði verið í markinu,“ segir einn
blaðamanna VG. „Algjör mistök,“
bætir blaðamaður VG við.
ÞÓRIR Hergeirsson er aðstoðar-
þjálfari norska liðsins sem leikur
gegn Spánverjum í dag um 5. sætið á
mótinu og það lið sem vinnur fær far-
seðil á Ólympíuleikana sem fram fara
í Aþenu á næsta ári í Grikklandi.
Breivik hafði sagt að hún myndi
hætta þjálfun liðsins að lokinni
keppni í Aþenu. Þórir er talinn vera
fremstur í flokki þeirra sem koma til
greina sem arftaki Breivik.
ANTOINE Walker framherji
NBA-liðsins Dallas Mavericks vand-
ar fyrrverandi yfirmanni sínum hjá
Boston Celtic, Danny Ainge, ekki
kveðjurnar. Walker segir að Ainge
hafi komið fram við sig eins og snák-
ur. „Hann vildi koma höggi á mig með
því að koma mér frá liðinu. Honum
mun ekki verða að ósk sinni því mér
líður vel hjá Dallas,“ segir Walker.
KOBE Bryant, leikmaður NBA-
liðsins L.A. Lakers er í efsta sæti yfir
kjör þeirra leikmanna sem munu
leika í árlegum stjörnuleik NBA-
deildarinnar. Bryant hefur fengið
577.505 atkvæði eins og staðan er í
dag. Vince Carter leikmaður Toronto
Raptors er hinsvegar með flest at-
kvæði á bak við sig þessa stundina,
alls 696.652 atkvæði.
ÁTTA liða úrslit Heimsmeistara-
keppni U-20 ára landsliða í knatt-
spyrnu karla lauk í gær. Argentína
lagði Bandaríkin, 2:1, eftir fram-
lengdan leik en Brasilía átti ekki í erf-
iðleikum með lið Japans, 5:1, lokatöl-
ur.
SPÁNN og Kólumbía eigast við í
undanúrslitaleik en í hinni viðureign-
inni er grannaslagur Argentínu og
Brasilíu. Keppnin fer fram í borginni
Abu Dhabi í Sameinuðu Arabísku
furstadæmunum.
SCOTTIE Pippen leikmaður NBA-
liðsins Chicago Bulls ætlar ekki að
leggja árar í bát þrátt fyrir að hafa
ekkert leikið með liði sínu á leiktíðinni
vegna meiðsla. Pippen fór í aðgerð á
hné í mars á þessu ári en hefur ekki
náð bata frá þeim tíma. Pippen ákvað
í gær að fara á ný undir hnífinn og
vonast til þess að hann geti leikið með
liðinu á ný. Pippen, sem er 38 ára
gamall, varð sex sinnum NBA-meist-
ari með Bulls sem hefur ekki látið
mikið að sér kveða undanfarin ár.
FÓLK
ÍSLENSK knattspyrna 2003, bók
númer 23 í þessum bókaflokki sem
hóf göngu sína árið 1981, er komin
út. Höfundur bókarinnar er Víðir
Sigurðsson. Í henni er fjallað ít-
arlega um Íslandsmótið í knatt-
spyrnu í öllum deildum, bikar-
keppnina og önnur mót innan-
lands, landsleiki Íslands í öllum
aldursflokkum, Evrópuleiki félags-
liða, íslensku atvinnumennina sem
leika erlendis ásamt fleiru. Í bók-
inni er mjög ítarleg tölfræði um lið
og leikmenn og hún er skreytt með
um 280 myndum af liðum og ein-
staklingum.
Bókin er stærri en nokkru sinni
fyrr, 208 blaðsíður, og í henni eru
löng og ítarleg viðtöl við Eyjólf
Sverrisson og Guðna Bergsson,
sem báðir lögðu knattspyrnuskóna
á hilluna á árinu. Ennfremur eru í
henni viðtöl við Kristján Finnboga-
son, fyrirliða Íslandsmeistara KR,
og Helenu Ólafsdóttur, landsliðs-
þjálfara kvenna, auk þess sem leik-
menn frá öllum liðum í úrvalsdeild
karla fara yfir árangurinn hjá sínu
liði. Ennfremur svara tíu leikmenn
spurningunni um hvort þeir vilji að
liðum í efstu deild karla verði
fjölgað.
Samkvæmt samstarfssamningi
við Knattspyrnusamband Íslands
er í bókinni að finna úrslit í öllum
leikjum í KSÍ-mótum í öllum
aldursflokkum á árinu 2003.
Bókaútgáfan Tindur gefur bók-
ina út og fullt verð er 4.680 krón-
ur. Hægt er að panta bókina af
heimasíðu útgáfunnar, www.tind-
ur.is.
ÚRSLIT
HANDKNATTLEIKUR
Laugardagur:
Íslandsmót karla, RE/MAX-deildin, suð-
urriðill:
Vestmannaeyjar: ÍBV - Selfoss............13.30
Digranes: HK - FH ...............................16.30
Ásgarður: Stjarnan - Breiðablik ...............16
Norðurriðill:
Hlíðarendi: Valur - Þór Ak. .......................16
1. deild kvenna:
Ásgarður: Stjarnan - Fram .......................14
Fylkishöll: Fylkir/ÍR - Grótta/KR............14
Kaplakriki: FH - Valur .........................14.30
Víkin: Víkingur - Haukar......................16.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
Laugardagur:
1. deild karla:
Egilsstaðir: Höttur - Stjarnan ..................15
1. deild kvenna:
Keflavík: Keflavík - UMFN .................17.15
DHL-höllin: KR - UMFG..........................16
Seljaskóli: ÍR - ÍS .......................................14
Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar, 16-liða úr-
slit karla:
Grundarfj.: Grund./Reynir H. - Tindas. ...14
DHL-höllin: KR b - Snæfell ......................14
Sunnudagur:
Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar, karlar:
Egilsstaðir: Höttur - UMFN ....................17
Grafarvogur: Fjölnir - HK ...................19.15
Ísafjörður: KFÍ - Haukar .....................19.15
Sandgerði: Reynir S. - Hamar ..................16
Seljaskóli: ÍR - UMFG..........................19.15
Þorlákshöfn: Þór Þ. - Keflavík .............19.15
Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar, konur:
Ísafjörður: KFÍ - UMFN ..........................14
Mánudagur:
Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar, konur:
Ásvellir: Haukar - Keflavík b ...............19.30
SKYLMINGAR
Íslandsmótið í skylmingum með stungu-
sverði fer fram í dag í Íþróttahúsi Haga-
skólans. Úrslit verða kl. 16.50-17.
BLAK
Laugardagur:
Bikarkeppni kvenna, undanúrslit:
Varmá: Afturelding - Þróttur R................17
Bikarkeppni karla, undanúrslit:
Austurberg: Þróttur R. b - Stjarnan ........14
HANDKNATTLEIKUR
Afturelding - Fram 19:33
Varmá, Íslandsmót karla, RE/MAX-deild-
in, norðurriðill, föstudagur 12. desember
2003.
Gangur leiksins: 0:1. 2:2, 4:5, 5:8, 6:11, 8:13,
8:17, 10:20, 13:23, 15:27, 17:30, 19:33.
Mörk Aftureldingar: Einar Ingi Hrafnsson
5/1, Vlad Troufan 3, Ásgeir Jónsson 2,
Reynir Árnason 2, Ernir Arnarsson 2,
Daníel Grétarsson 2, Daníel Jónsson 1/1,
Hilmar Stefánsson 1, Kristinn Pétursson 1.
Varin skot: Davíð Svansson 6, Stefán
Hannesson 4 (þar af 1 sem fór aftur til mót-
herja).
Utan vallar: 4 mínútur
Mörk Fram: Hafsteinn Ingólfsson 8, Héð-
inn Gilsson 5, Valdimar Þórsson 5, Jóhann
Gunnar Einarsson 5/3, Guðjón Drengsson
3, Þorri Björn Gunnarsson 3, Sigfús Páll
Sigfússon 1, Jón Þór Þorvarðarson 1, Mart-
in Larsen 1, Arnar Þór Sæþórsson 1/1.
Varin skot: Egidijus Petkevicius 13/1 (þar
af 2 sem fóru aftur til mótherja), Sölvi
Thorarensen 6/1 (þar af 2/1 sem fóru aftur
til mótherja).
Utan vallar: 6 mínútur.
Áhorfendur: Um 80.
KA - Grótta/KR 28:23
KA-heimilið:
Gangur leiksins: 1:0, 4:1, 11:5, 13:8, 15:10,
15:11, 21:11, 25:15, 25:20, 27:21, 28:23.
Mörk KA: Andrius Stelmokas 10/1, Arnór
Atlason 4, Árni Björn Þórarinsson 4, Einar
Logi Friðjónsson 4, Jónatan Magnússon 3,
Bjartur Máni Sigurðsson 2, Sævar Árna-
son 1.
Varin skot: Hafþór Einarsson 15 (þar af 5
til mótherja), Stefán Guðnason 1.
Utan vallar: 10 mín.
Mörk Gróttu/KR: Páll Þórólfsson 12/7,
Þorleifur Björnsson 5, Daði Hafþórsson 3,
Gintaras Savukynas 2, Hörður Gylfason 1.
Varin skot: Hlynur Morthens 15/2 (þar af 6
til mótherja), Gísli Guðmundsson 5/1 (2 til
mótherja).
Utan vallar: 10 mín.
Dómarar: Ingvar Guðjónsson og Jónas Elí-
asson.
Áhorfendur: Um 200.
Staðan:
KA 12 7 2 3 358:320 16
Valur 11 7 2 2 296:258 16
Fram 12 7 2 3 326:298 16
Grótta/KR 12 6 2 4 313:303 14
Víkingur 12 6 2 4 314:305 14
Afturelding 12 2 1 9 288:342 5
Þór 11 0 1 10 268:337 1
KÖRFUKNATTLEIKUR
UMFG - ÍR 104:92
Grindavík, úrvalsdeild karla, Intersport-
deildin, föstudagur 12. desember 2003.
Gangur leiksins: 6:2, 10:3, 20:12, 24:23,
28:29, 31:34, 48:49, 51:53, 57:53, 61:60,
75:66, 80:69, 82:75, 88:77, 104:92.
Stig UMFG: Páll Axel Vilbergsson 36,
Helgi Guðfinnson 21, Darrel Lewis 19,
Guðmundur Bragason 8, Þorleifur Ólafs-
son 7, Daniel Trammel 6, Jóhann Ólafsson
5, Örvar Kristjánsson 2.
Fráköst: 28 í vörn - 16 í sókn.
Stig ÍR: Eugene Christopher 28, Ómar Örn
Sævarsson 25, Eiríkur Önundarson 15,
Ólafur Sigurðsson 8, Kevin Grandberg 8,
Ásgeir Hlöðversson 4, Fannar Helgason 2,
Ryan Leier 2.
Fráköst: 26 í vörn - 12 í sókn.
Villur: UMFG 19 - ÍR 26.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson og
Eggert Þór Aðalsteinsson.
Áhorfendur: 90.
Staðan:
Grindavík 10 10 0 897:827 20
Njarðvík 10 8 2 944:841 16
Keflavík 10 7 3 986:849 14
Snæfell 10 7 3 813:783 14
KR 10 6 4 935:891 12
Tindastóll 10 5 5 957:908 10
Hamar 10 5 5 821:855 10
Haukar 10 5 5 781:799 10
KFÍ 10 2 8 929:1008 4
Breiðablik 10 2 8 830:904 4
Þór Þorl. 10 2 8 849:972 4
ÍR 10 1 9 849:954 2
1. deild karla:
Þór - Ármann/Þróttur...........................95:88
Skallagrímur - Fjölnir ..........................90:82
Staðan:
Fjölnir 9 7 2 802:666 14
Skallagrímur 8 7 1 764:639 14
Valur 8 7 1 706:648 14
Stjarnan 7 4 3 561:569 8
ÍS 8 4 4 666:662 8
Þór A. 9 4 5 749:800 8
ÍG 9 3 6 753:805 6
Ármann/Þróttur 8 3 5 657:651 6
Höttur 8 1 7 566:678 2
Selfoss 8 1 7 654:760 2
KNATTSPYRNA
England
2. deild:
Brighton - Port Vale .................................1:1
HM 20 ára landsliða í Samein-
uðu furstadæmunum
8-liða úrslit:
Kanada - Spánn .........................................1:2
Kólumbía - Sam. arab. furstadæmin .......1:0
Bandaríkin - Argentína ............................1:2
Japan - Brasilía..........................................1:5
Í undanúrslitum mætast Spánn - Kól-
umbía og Argentína - Brasilía.
UEFA-bikarkeppnin
Dregið var í gær í fjórðu umferð UEFA-
keppninnar. Leikið verður 26. febrúar og 3.
mars. Liðin sem mætast eru:
Brøndby - Barcelona
Parma - Genclerbirligi
Benfica - Rosenborg
Marseille - Dnepr Dnepropetrovsk
Celtic - Teplice
Perugia - PSV Eindhoven
Groclin - Bordeaux
Valencia - Besiktas
Galatasaray - Villareal
Club Brugge - Debrecen
Sochaux - Inter Milan
Liverpool - Levski Sofia
Spartak Moskva - Real Mallorca
Gaziantepspor - Roma
Auxerre - Panathinaikos
Vålerenga - Newcastle
UM HELGINA
ÖRN Arnarson bætti Íslandsmet sitt í 50 m baksundi í úr-
slitasundi á Evrópumeistaramótinu sem fram fer í Dublin
á Írlandi. Örn varð sjöundi í úrslitasundinu, synti á 24,47
sekúndum og er það Íslandsmet.
Örn setti einnig Íslandsmet er hann tryggði sér þátt-
tökurétt í úrslitasundinu. Í úrslitasundinu bætti hann met
sitt um 6/100 úr sekúndu, en gamla metið var 24,53 sek-
úndur. Heimsmethafinn í greininni, Thomas Rupprath frá
Þýskalandi kom fyrstur í mark á tímanum 23,71 sek.
Anja Ríkey Jakobsdóttir og Sigrún Benediktsdóttir
syntu 50 m flugsund í gær. Anja kom í mark á tímanum
29,77 sek og varð í 48. sæti. Sigrún synti á 30,73 sek og
varð í 50. og jafnframt síðasta sæti. Ragnheiður Ragnars-
dóttir tók þátt í 100 m fjórsundi kvenna, synti á 1.06,13
mínútum og varð síðust af 25 keppendum. Heiðar Ingi
Marinósson tók þátt í 100 m skriðsundi. Hann kom í mark
á 52 sekúndum og varð næst síðastur af 66 keppendum.
Örn sjöundi í 50 m
baksundi – tvíbætti
Íslandsmetið
Gestirnir byrjuðu leikinn afmiklu kappi og var ljóst að
þeir ætluðu ekki að gefa sig auð-
veldlega. Kappið
var hins vegar of
mikið og misstu
þeir boltann klaufa-
lega í fyrstu tveim-
ur sóknunum á meðan heimamenn
settu upp sýningu – fyrir þá örfáu
áhorfendur sem mættu. Grindvík-
ingar náðu mest átta stiga forskoti
í leikhlutanum og bjuggust líklega
við því að nóg væri að ljúka leikn-
um á hálfum hraða. Hlutirnir fóru
þá að ganga hjá gestunum og óör-
yggið rann af þeim. Þeir náðu for-
ystunni rétt fyrir lok fyrsta leik-
hluta og héldu forystu sinni í
gegnum 2. leikhluta, staðan í hálf-
leik var 51:53. Ef ekki hefði verið
fyrir Pál Axel Vilbergsson hjá
Grindavík hefði munurinn líklega
verið meiri því hann hélt heima-
mönnum inni í leiknum, skoraði
tólf stig í fjórðungnum, þar af voru
þrjár þriggja stiga körfur og var
hann öflugur í vörninni.
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari
Grindavíkurliðsins, las greinilega
sínum mönnum pistilinn vel í
hléinu því til þriðja fjórðungs
komu leikmenn hans tvíefldir til
leiks. Þeir spiluðu mjög skynsam-
lega og þegar fimm mínútur voru
liðnar af leikhlutanum voru þeir
komnir með átta stiga forskot á
nýjan leik – í þetta skiptið gáfu
þeir ekki eftir, gáfu heldur í og
juku hægt og rólega forystu sína.
Á sama tíma gekk hvorki né rak
hjá ÍR-ingum, vörn þeirra var líkt
og gatasigti og slæmar ákvarðanir
í sókninni urðu þeim að falli.
Grindavíkurliðið gekk því á lagið,
lokatölur104:92.
Spiluðum ekki vel
„Við spiluðum ekki vel framan af,
eiginlega bara kæruleysislega,
varnarvinnan var ekki góð þó svo
að við hefðum ekki átt í miklum
vandræðum með að skora og við
vorum að flýta okkur svolítið og
ÍR-ingar höfðu verðskuldaða for-
ystu í hálfleik. En við komum þeim
mun klárari í seinni hálfleikinn og
við sýndum hvað við getum þegar
samstaðan er mikil,“ sagði Friðrik
Ingi, þjálfari Grindarvíkurliðsins.
Tökum þá á sunnudaginn
„Þetta gekk ágætlega framan af
en botninn datt úr í þriðja leikhluta
og má segja að við höfum tapað
leiknum þar,“ sagði Eggert Mar-
íuson, þjálfari ÍR-inga. „Vörnin hjá
okkur klikkaði, við náðum ekki að
stoppa í vörninni eða að setja upp
sóknarleik okkar. Þeir náðu góðum
mun í þriðja fjórðungi og héldu
honum í rólegheitum. Þetta er
ótrúlega erfiður völlur til að heim-
sækja og Grindavíkurliðið reynslu-
mikið, þegar maður gerir mikið af
mistökum á móti svoleiðis liði er
voðinn vís. En við fáum annað
tækifæri á sunnudag þegar við
mætum þeim í bikarnum og við
ætlum okkur að taka þá þar,“ sagði
Eggert.
Grindavík
stóð af
sér áhlaup
ÍR-inga
ÓHÆTT er að segja að flestir hafi reiknað með öruggum sigri
heimamanna í Grindavík – efsta liðs úrvalsdeildar karla, Int-
ersportdeildar – þegar þeir tóku á móti botnliði ÍR í gærkvöldi.
Annað kom á daginn því óvænt barátta og sigurvilji ÍR-inga fleytti
þeim áfram í fyrri hálfleik og voru þeir með tveggja stiga forskot,
51:53, í leikhléi. Heimamenn tóku við sér í þriðja fjórðungi, náðu
forystunni og sigruðu 104:92. Grindvíkingar tróna á toppi deild-
arinnar, taplausir með tuttugu stig, og ekkert virðist geta rutt þeim
úr vegi, ÍR-ingar sitja hins vegar á botninum með tvö stig.
Andri
Karl
skrifar
Íslensk knattspyrna 2003
Í DAG verður dregið í riðla í Evrópukeppni landsliða í
körfuknattleik og þá kemur í ljós hverjir verða mót-
herjar Íslands en riðlakeppnin hefst í september á
næsta ári.
Þjóðunum sem taka þátt í Evrópukeppninni er skipt
í tvær deildinr og samkvæmt stigaútreikningi þar sem
metinn er árangur í Evrópukeppni síðustu 10 ára er
Ísland í 30. sæti í styrkleikaröðinni og er þannig í B-
deild. Þjóðunum í B-deild er skipt í styrkleikaflokka
og er miðað við árangur í síðustu Evrópukeppni.
Í 1. styrkleikaflokki eru: Makedónía, Rúmenía, Ír-
land og Hvíta-Rússland.
Í 2. flokki: Sviss, Danmörk, Kýpur og Georgía.
Í 3. flokki eru: Ísland, Slóvakía, Austurríki, Finn-
land.
Í 4. flokki eru: Lúxemborg, Malta, Albanía og
Aserbaídsjan.
Ein þjóð úr hverjum styrkleikaflokki dregst í hvern
riðil.
Ísland í 3.
styrkleikaflokki