Morgunblaðið - 13.12.2003, Page 91

Morgunblaðið - 13.12.2003, Page 91
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 2003 91 LEIKARAPRUFUR, viðtöl og tón- listarmyndbönd eru á meðal auka- efnis sem finna má á nýútkomnum mynddiski með myndinni Maður eins og ég eftir Róbert Douglas. Hljóð og mynd eru á stafrænu formi og hægt er að horfa á mynd- ina með enskum texta. „Fólk sem sá myndina á myndbandi hefur dálítið kvartað undan því að gæðin séu ekki fullkomin. Myndin var nefni- lega tekin stafrænt upp, síðan færð yfir á filmu og þaðan á myndband en við það töpuðust gæðin nokkuð. Með þessari útgáfu ráðum við bót á því hér er allt á stafrænu formi,“ útskýrir Róbert. Aukaefnið er meira en 70 mínútur að lengd. „Ég vildi hafa aukaefnið veglegt enda finnst mér sjálfum frekar lélegt þegar aukaefnið er nánast bara auglýsingar fyrir myndina.“ Ekki mikill leikari Meðal þess sem fólk fær að sjá eru upptökur af því þegar leikarar mættu í fyrstu prufurnar fyrir myndina. „Þetta er voða hrátt til að byrja með. Þarna er ég til dæmis oft að leika kvenhlutverkin á móti einhverjum karlleikurum, stend mig reyndar mjög illa,“ segir hann og hlær. „Ég get nú ekki sagt að ég sé mikill kvenleikari, það er bara oft þannig að leikararnir mæta ein- ir í prufur og þá er það annaðhvort ég eða framleiðandinn sem þarf að stökkva inn og lesa á móti honum.“ Þarna er líka mikið af senum sem komust ekki í myndina. Yf- irleitt vegna plássleysis, en líka ein- hverjar sem voru klipptar út af því að þær pössuðu ekki inn í heild- armyndina, að sögn Róberts. Hann segist hafa frá byrjun gert ráð fyrir því að hann myndi gefa út mynddisk með aukaefni. „Já, ég held að menn séu farnir að gera það alltaf núna. Í Hollywood eru menn meira að segja farnir að búa til aukasenur sem passa ekkert inn í myndina en koma kannski vel út á mynddiski.“ Jólaundirbúningur í Mjóddinni Róbert var að ljúka við gerð heimildarmyndarinnar Slá í gegn – saga úr Mjóddinni sem hann býst við að sýna eftir áramót, annað hvort í kvikmyndahúsum eða sjón- varpi. Við gerð myndarinnar fylgdi hann eftir starfsmönnum versl- unarkjarnans Mjóddarinnar í Breiðholti í um eitt ár. „Þráður myndarinnar er jólaundirbúningur en hún fer síðan út í að fjalla um væntingar þeirra og drauma. Hún er í svipuðum anda og Íslenski draumurinn og Maður eins og ég en aðeins þyngri þó, þar sem þetta er raunveruleiki.“ Þá er hann einnig búinn að skrifa handrit að nýrri kvikmynd ásamt vini sínum, Jóni Atla Jónassyni, en sú fjallar um samkynhneigða stráka í fótboltaliði. Vonast hann til að tökur á henni geti hafist í sumar. Maður eins og ég kemur út á mynddiski „Stend mig illa í kvenhlutverkunum“ Leikstjórinn Róbert Douglas sýnir óvænt leikhæfileika sína á DVD-útgáfu myndarinnar Maður eins og ég. Morgunblaðið/Sverrir Yfir 70 mínútur af aukaefni fylgja mynddiskinum. bryndis@mbl.is DANSTÓNLISTIN mun duna á skemmtistaðnum Kapital í kvöld þar sem plötuútgáfan New Icon Recors mun halda heljarinnar danspartí. Meðal þeirra sem sjá um að halda uppi stuði eru DJ Tommi White, DJ Grétar, DJ Margeir og DJ Doddi. Þá koma fram Urður söngkona Gus Gus, Magnús Jónsson öðru nafni Blake, Sammi á bongótrommur, Funky Moses á bassa og ILO sem verður með lifandi raftónlist. Þetta er annað kvöldið af þessu tagi. Hið fyrsta var haldið á Air- waves-hátíðinni í október, að sögn Tomma White, forsprakka New Icon Records. „Við ætlum að vera með þessi kvöld mánaðarlega en fyrsta kvöldið tókst mjög vel. Planið er að vera bæði með okkar listamenn á þessum kvöldum og fá einhverja út- lendinga hingað til að spila annað slagið.“ Tommi segir að stefnan sé að fá hingað soul-tónlistarmanninn Larry Heard í febrúar og Mister Finger í mars. Hann lofar miklu fjöri á laug- ardagskvöldið. „Þarna verður góð klúbbstemmning, en þetta er eini staðurinn í borginni sem getur boðið upp á slíkt um þessar mundir.“ Tommi White er einn þeirra sem þeyta skífur í kvöld. Danspartí New Icon Records á Kapital Plötu- snúðar og lifandi raftónlist Dagskráin hefst kl. 22 og kostar 500 krónur inn. R. Kelly og Beyoncé fengu flest verðlaun, eða fern hvort, á Billboard- tónlistarverð- launahátíðinni sem fram fór í Los Angeles í Bandaríkjunum í vikunni. 50 Cent var hins vegar til- nefndur í flestum flokkum og hlaut þrenn verðlaun. Sting fékk sérstök heiðursverðlaun og þá fengu fé- lagarnir í OutKast verðlaun fyrir sölu á laginu „Hey Ya!“ um Netið, en slík verðlaun voru veitt í fyrsta skipti á hátíð tímaritsins, sem fram fór á MGM-hótelinu. 50 Cent fékk verðlaun sem tónlistarmaður ársins, R&B-tónlistarmaður ársins og rapp- tónlistarmaður ársins. Beyoncé var valin tónlistarkona ársins, nýliði árs- ins í flokki R&B, tónlistarkona árs- ins og fékk sérstök verðlaun fyrir hversu þaulsætin hún er á vinsælda- listum. R. Kelly var valinn útsetjari ársins, R&B útsetjari ársins, laga- höfundur ársins og R&B lagahöf- undur ársins … Yfirvöld í Fulton- sýslu í Georgíu hafa birt ákæru á hendur Bobby Brown, sem er eiginmaður Whit- ney Houston, en Brown er ákærð- ur fyrir að hafa lamið eiginkonu sína í andlitið. Atvikið átti sér stað á heimili þeirra hjóna í Atlanta á sunnudaginn var þegar Whitney óskaði eftir aðstoð lögreglu. Þegar lögregla kom að heimili þeirra var söngkonan með sprungna vör og áverka á kinn. Eiginmaður hennar var hvergi sjáanlegur, að sögn BBC. Þau komu hins vegar saman þegar Brown var boðaður fyrir dómara í Fulton-sýslu vegna málsins. Brown gæti átt yfir höfði sér ársfangavist og rúmlega 70 þúsund króna sekt, en oft þykir nóg að láta viðkomandi sæta ráðgjöf ef um fyrsta brot er að ræða. Mál hans verður tekið fyrir í upphafi næsta árs. Brown hefur nokkrum sinnum þurft að dvelja í fangelsi fyrir brot á skil- orði og eiturlyfjaneyslu … Elijah Wood, sem leikur Fróða í Hringadróttinssögu, segir að frægð- in hjálpi honum ekki neitt þegar kemur að ástamálunum. Hann segir að allir haldi að konur bíði eftir honum í röðum en svo sé aldeilis ekki. „Ég vildi að svo væri. Ef bara hlutirnir væru svo einfald- ir.“ Hann segir að vinur sinn, hinn lúðalegi Jack Osbourne, sé miklu klárari í kvennamálum en hann. „Konur virðast elska hann, hvar sem við förum heilsa þær alltaf honum. Ég vildi að ég hefði sama aðdráttaraflið og hann.“ … FÓLK Ífréttum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.