Morgunblaðið - 16.12.2003, Page 40
UMRÆÐAN
40 ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Munið
að slökkva
á kertunum
Til eru eldtefjandi efni
sem hægt er að úða
yfir kertaskreytingar.
Aldrei má þó treysta á
að slíkt komi í veg
fyrir bruna.
Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðisins
FYRIR fimm árum voru Fóst-
urskóli Íslands, Íþróttakenn-
araskóli Íslands, Kennaraháskóli
Íslands og Þroskaþjálfaskóli Ís-
lands sameinaðir í nýja stofnun.
Hinum nýja skóla var valið heitið
Kennaraháskóli Ís-
lands. Nafnið varð
væntanlega fyrir val-
inu vegna þess að
gamli Kennaraháskól-
inn var þeirra stærst-
ur. Auk þess er fjöl-
mennasti
nemendahópurinn
kennaraefni sem
stefna að kennslu í
leik-, grunn- eða
framhaldsskólum.
Nafn skólans býður
e.t.v. þeirri hættu
heim að aðrar stéttir
sem skólinn menntar falli í skugg-
ann af kennarastéttinni. Þess
vegna skal hér gerð grein fyrir
öðrum áhugaverðum námsleiðum
við Kennaraháskólann.
Kennaraháskólinn menntar
þroskaþjálfa
Margir virðast ekki átta sig á því
að Kennaraháskólinn menntar
þroskaþjálfa. Þessi mikilvæga
stétt er sérhæfð í þjónustu og ráð-
gjöf við fatlað fólk á öllum aldri.
Kennaraháskólinn er eini skólinn
á landinu sem býður þroskaþjálf-
unarnám og um 150 stúdentar
stunda nú grunnnám til BA-gráðu
í þroskaþjálfun við skólann. Nám-
ið er boðið bæði sem fjarnám og
staðnám. Að auki stunda um 50
þroskaþjálfar framhaldsnám við
skólann, þar af eru sjö í meist-
aranámi. Þroskaþjálfun er starfs-
vettvangur sem býður upp á fjöl-
breytta og krefjandi
starfsmöguleika. Nýlega var
ákveðið að taka upp kjörsvið í
þroskaþjálfanáminu, þannig að
nemendur geti sérhæft sig, ann-
aðhvort í starfi með börnum eða í
þjónustu við fullorðið fólk. Mikil
eftirspurn er eftir þroskaþjálfum
og atvinnumöguleikar góðir.
Kennaraháskólinn menntar
íþróttafræðinga
Þá má benda á að
Kennaraháskólinn
menntar íþróttafræð-
inga og um þessar
mundir stunda um
120 stúdentar slíkt
nám til BS-gráðu.
Námið fer fram á
Laugarvatni. Þar er
frábær aðstaða til
náms og íþróttaiðk-
unar; innra tölvunet,
nútímalegt kennslu-
húsnæði, sundlaug,
íþróttavellir og lík-
amsræktarstöð. Bygg-
ingafélag námsmanna hefur reist
glæsilega nemendagarða á Laug-
arvatni og þar er einnig góð
heimavist.
Íþróttafræðingar fá kenn-
araréttindi bæði í grunn- og fram-
haldsskólum og hafa auk þess
mikla atvinnumöguleika í frjálsu
íþróttastarfi, hjá íþróttafélögum,
við líkamsræktarstöðvar, heilsu-
þjálfun og endurhæfingu, sem og
við félags- og forvarnarstarf af
ýmsu tagi. Ljóst er að starfs-
möguleikar íþróttafræðinga eru
miklir og munu enn fara vaxandi á
næstu árum, enda er stöðugt verið
að leggja meiri áherslu á hvers
konar hreyfingu og heilsurækt
fyrir alla aldurshópa.
Ný námsbraut í tómstunda-
og félagsmálafræði
Árið 2001 var hrint af stað nýrri
námsbraut um tómstunda- og fé-
lagsmálafræði við Kennaraháskól-
ann. Námið er ýmist 45 eininga
diplómunám eða 90 eininga nám
til BA-gráðu. Námið er hugsað
sem fjarnám með starfi og er m.a.
ætlað öllum þeim sem hafa áhuga
á að sinna tómstunda- og fé-
lagsmálum í grunnskólum, fram-
haldsskólum, félagsmiðstöðvum
eða hjá íþrótta- og æskulýðs-
félögum. Um 50 stúdentar stunda
nú þetta nám við Kennaraháskól-
ann. Ekki getur talist nokkur vafi
á því að störfum á þessu sviði á
eftir að fjölga verulega á næstu
árum.
Ofangreint nám er allt áhuga-
verðir kostir fyrir fólk sem vill
mennta sig til starfa þar sem
reynir á ábyrgð, frumkvæði, fjöl-
breytt viðfangsefni, hugmynda-
auðgi og mannleg samskipti. Með
þróun þessa náms er Kenn-
araháskólinn að bregðast við knýj-
andi þörfum í samfélaginu. Þeim
sem hafa áhuga á að kynna sér
þessa námsmöguleika er bent á
vef Kennaraháskólans
(www.khi.is). Innritun í nám við
Kennaraháskólann fer fram á vor-
in og hefst kennsla á öllum braut-
um um mánaðamótin ágúst/
september.
Kennaraháskóli Íslands
menntar fleiri en kennara
Ingvar Sigurgeirsson skrifar
um menntamál ’Ofangreint nám er alltáhugaverðir kostir fyrir
fólk sem vill mennta sig
til starfa þar sem reynir
á ábyrgð, frumkvæði,
fjölbreytt viðfangsefni,
hugmyndaauðgi og
mannleg samskipti.‘
Ingvar Sigurgeirsson
Höfundur er prófessor og deild-
arforseti grunndeildar Kennarahá-
skóla Íslands.
Í tvídálka leiðara Morgunblaðsins
20. mars á þessu ári voru færð rök
fyrir stuðningi Íslands við árás-
arstríð Bandaríkjanna á Írak. Höf-
uðröksemd leiðarahöfundarins er sú
að Bandaríkjamenn
séu bandamenn okkar
og hafi stutt okkur í
gegnum tíðina. Því
renni okkur blóðið til
skyldunnar þegar þeir
fara í herleiðangra í
fjarlægu landi. Er
þessi skoðun í sam-
ræmi við kennisetn-
ingu Bandaríkjaforseta
um að annaðhvort séu
menn stuðningsmenn
Bandaríkjanna eða
andstæðingar þeirra.
Bandamannarök
Morgunblaðsins hrífa
ekki alla með sér enda ýta þau sið-
ferðilegum spurningum til hliðar.
Eru fórnir stríðs réttlætanlegar í
ljósi þeirrar eyðileggingar og þján-
inga sem stríð kallar yfir fólk og um-
hverfi? Eru mannréttindabrot rétt-
lætanleg vegna markmiða sem
stjórn Bandaríkjanna hefur sett
fram? Friðarsinnar hafa löngum
bent á að svo sé ekki. Sú vanhelgun
mannréttinda sem fer fram í skjóli
stríðsátaka er ekki réttlætanleg
þrátt fyrir meintar göfugar hug-
sjónir árásaraðila. Víetnamstríðið
var til að mynda háð undir sömu for-
merkjum og núverandi Íraksstríð.
Það stríð verja fáir í dag en eins og
Morgunblaðinu er kunnugt átti það
stríð sér marga bandamenn á sínum
tíma.
Ástæða þess að ég dreg þetta
fram er sú að síðastliðinn sunnudag
birti Morgunblaðið leiðara þar sem
fjallað var um nýjar staðreyndir um
stuðning Bandaríkja-
stjórnar við ógn-
arstjórnina í Argentínu
á sínum tíma. Leið-
arahöfundur fordæmir
þann stuðning Banda-
ríkjastjórnar og tekur
siðferðilega afstöðu til
málsins. Ekki grípur
hann til þess að rétt-
læta gjörðir Banda-
ríkjastjórnar og taka
þar af leiðandi afstöðu
með þeim vegna þess
að Íslendingar séu vin-
ir þeirra, heldur út frá
mannréttindum. Hann
segir:
,,Ljóst er að mannréttindi voru
fótum troðin í tíð herforingjastjórn-
arinnar í Argentínu og öllu þjóð-
félaginu var haldið í greipum ógnar.
Það er erfitt að sjá hvernig hægt er
að réttlæta stuðning við slíka stjórn-
arhætti. George Bush Bandaríkja-
forseti hefur orðað það svo að í bar-
áttunni gegn hryðjuverkum standi
menn annaðhvort með Bandaríkja-
mönnum eða á móti þeim. Það að
vera samherji gegn hryðjuverkum á
ekki að vera skálkaskjól til þess að
brjóta mannréttindi, hvort sem um
er að ræða aðgerðir Rússa í Tétsníu
eða stjórnarfarið í Pakistan, ekkert
frekar en það réttlætti mannrétt-
indabrot að vera andstæðingur
kommúnista á dögum kalda stríðs-
ins. Mannréttindabrot eru óréttlæt-
anleg og gildir einu í nafni hvaða
hugmyndafræði þau eru framin.“
Þessi afstaða er fagnaðarefni enda
þvertekur hún fyrir að réttlætanlegt
sé að kalla hörmungar yfir fólk þrátt
fyrir að menn hafi háleit markmið að
leiðarljósi. Bandaríkjastjórn taldi
það hins vegar í lagi í Argentínu þar
sem þeir töldu herforingjastjórnina
vini sína. Þjáningar fólks, hvort sem
heldur undir sprengjuregni banda-
rískra herja eða ofsóknum argent-
ínskrar herforingjastjórnar, eru
óréttlætanlegar. Og
að réttlæta stuðning við slíkar
gjörðir vegna þess að bandamenn
okkar eru gerendurnir er aum af-
staða. Spurningin er hvort Morg-
unblaðinu finnist bandamannarök
gilda varðandi stríðið í Írak en ekki
herforingjastjórnir í Suður-
Ameríku?
Morgunblaðið
og mannréttindi
Huginn Freyr Þorsteinsson
skrifar um varnarmál ’Eru fórnir stríðs rétt-lætanlegar í ljósi þeirr-
ar eyðileggingar og
þjáninga sem stríð kall-
ar yfir fólk og
umhverfi? ‘
Huginn Freyr Þor-
steinsson
Höfundur er skrifstofustjóri VG.