Morgunblaðið - 11.01.2004, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
L
öggjöf um skráningu og meðferð persónuupplýsinga er
tiltölulega ný af nálinni, bæði hér á landi og erlendis.
Svíar urðu fyrstir þjóða til að setja lög um vernd per-
sónuupplýsinga, fyrir þremur áratugum. Þróunin hefur
hins vegar verið ör á allra síðustu árum, enda kallar tölvutækni
og alls konar möguleikar til eftirlits og söfnunar upplýsinga á
skýrari reglur.
Í febrúar 1996 skipaði dómsmálaráðherra þriggja manna
nefnd til að endurskoða lög nr. 121/1989, um skráningu og með-
ferð persónuupplýsinga, vegna gildistöku nýrrar tilskipunar Evr-
ópusambandsins um vernd persónuupplýsinga. Nefndin lauk
störfum í október 1998 og afhenti ráðherra tillögur sínar að
frumvarpi til laga um vernd persónuupplýsinga. Að áliti nefnd-
arinnar leiddi tilskipun ESB til þess að gera þurfti miklar breyt-
ingar á gildandi íslenskum rétti um meðferð persónuupplýsinga.
Þótti því hagkvæmara að semja frá grunni frumvarp til nýrra
laga fremur en að leggja til breytingar á einstökum ákvæðum
gildandi laga. Frumvarp, sem að meginstefnu byggðist á til-
lögum nefndarinnar, var lagt fram á 125. löggjafarþingi, 1999-
2000 og varð að lögum nr. 77/2000, sem tóku gildi 1. janúar
2001.
Í greinargerð með frumvarpinu kom fram að við samningu
þess hefði það m.a. verið haft í huga hve stórstígum framförum
tölvutækni hefði tekið síðustu ár og áratugi og hefði sú þróun
verið hraðari en svo að löggjöf hafi getað fylgt henni eftir.
Þá segir, að setning réttarreglna um meðferð persónuupplýs-
inga sé einn ríkasti þátturinn í viðleitni ríkisvaldsins til þess að
sinna þeirri skyldu sem stjórnarskráin leggi á hinn almenna lög-
gjafa að tryggja friðhelgi einkalífs. Það að njóta friðhelgi um
einkalíf sitt, þ.m.t. að því er varði meðferð persónuupplýsinga,
sé grundvallarþáttur mannréttinda sem íslenska stjórnarskráin
verndi.
Þá er rakið, að hér á landi höfðu, frá 1980, verið í gildi lög um
skráningu og meðferð persónuupplýsinga. Hin fyrstu voru lög
63/1981, svo tóku við lög 39/1985 og loks lög 121/1989. Lögin
frá 1981 og 1985 höfðu fyrirfram afmarkaðan gildistíma, þar
sem menn gerðu sér grein fyrir örri þróun tölvutækni, sem
reyndar stendur enn, og nauðsynlegt þótti að endurskoða lögin
reglulega svo þau héldust í samræmi við tæknilegan veruleika.
Reyndar hefur núgildandi lögum, nr. 77/2000, þegar verið
breytt fimm sinnum, eins og nánar verður vikið að síðar. Endur-
skoðuninni mun sjálfsagt seint ljúka.
Upplýsingar og eftirlit
Í áðurnefndri greinargerð með frumvarpinu, sem varð að nú-
gildandi lögum, kemur fram að löggjöf sú sem sett var í ríkjum
hins vestræna heims á árunum 1970–80 um meðferð persónu-
upplýsinga í kjölfar umræðu um hættur samfara tölvutækninni
hafði í meginatriðum tvenns konar reglur að geyma. Annars
vegar voru efnisreglur um söfnun, skráningu, meðferð, notkun
og miðlun persónuupplýsinga. Gildissvið slíkra reglna var í upp-
hafi víða takmarkað við þá meðferð eina þar sem tölvutækni
var beitt. „Þó voru nokkur ríki sem ekki gerðu neinn greinarmun
á því í þessu sambandi hvort meðferðin var vélræn eða hand-
unnin. Í þeirra hópi var Ísland og er enn í dag.“
Hins vegar, segir í greinargerðinni, hefur slík löggjöf að geyma
ákvæði um opinbert eftirlit með framkvæmd laganna, en mis-
munandi er í löggjöf einstakra ríkja hvert valdsvið hins opinbera
eftirlitsaðila er. „Í sumum löndum hefur megináherslan verið
lögð á það að skrár með persónuupplýsingum séu tilkynning-
arskyldar og að hinn opinberi eftirlitsaðili skuli hafa eftirlit með
þeim skrám. Þannig er t.d. löggjöf í Bretlandi og að nokkru í
Danmörku. Í öðrum löndum hafa eftirlitsaðilar (persónuvernd-
arstofnanir) fengið eins konar hlutverk umboðsmanns á þessu
sviði, en hafa ekki haft eiginlega stjórnsýslu með höndum. Þann-
ig var t.d. löggjöf í Vestur-Þýskalandi í upphafi. Í enn öðrum
löndum er byggt á því sem meginreglu að leyfi hins opinbera
þurfi til þess að safna og skrá persónuupplýsingar. Er það þá
hlutverk hins opinbera eftirlitsaðila að veita slíkt leyfi. Íslensku
lögin um skráningu og meðferð persónuupplýsinga, þ.e. lög nr.
121/1989, eru á þessu fyrirkomulagi byggð og einnig löggjöf í
Noregi. Hlutverk tölvunefndar hefur þó ekki verið einskorðað við
það að veita starfsleyfi og heimildir því að nefndin úrskurðar um
ýmiss konar ágreining, m.a. varðandi aðgang að persónuupplýs-
ingum, um leiðréttingu rangra og villandi upplýsinga o.fl.“
Þess skal getið að með samþykkt frumvarpsins tók Persónu-
vernd við hlutverki tölvunefndar.
Alþjóðleg þróun
Í greinargerðinni er rakin alþjóðleg þróun réttarreglna um
vernd persónuupplýsinga. Þar segir að fyrri lagasetning hér á
landi hafi átt sér hliðstæðu í löggjöf margra vestrænna ríkja.
Svíar urðu fyrstir þjóða til að setja lög um þetta efni sem tóku
gildi 1974. Nokkru áður eða árið 1970 hafði sambandsríkið
Hessen í Vestur-Þýskalandi sett sér rammalöggjöf um þetta
efni. „Slík löggjöf er nú í gildi í öllum ríkjum á Norðurlöndum, í
flestum aðildarríkja Evrópuráðsins og Evrópusambandsins, í
nokkrum ríkjum Bandaríkja Norður-Ameríku, Kanada, Ísrael,
Nýja-Sjálandi, Hong-Kong, Japan og nokkrum ríkjum Austur-
Evrópu, svo nokkur dæmi séu nefnd.“
Þá er tekið fram, að alþjóðlegt samstarf á sviði persónu-
verndar hafi farið mjög vaxandi á síðari árum og ýmis fjöl-
þjóðleg samtök hafi sinnt persónuverndarmálum í auknum mæli.
„Íslendingar hafa hin seinni ár tekið virkan þátt í fjölþjóðlegu
samstarfi um vernd persónuupplýsinga innan Evrópuráðsins, í
starfi alþjóðasamtaka persónuverndarstofnana og síðast en ekki
síst í samstarfi norrænna persónuverndarstofnana.“
Hver Íslendingur í 500 skrám?
Líklega er ómögulegt að segja til um í hversu mörgum skrám
er hægt að finna upplýsingar um einstaklinga. Hér á landi hefur
ekki verið gerð sérstök könnun á því. Í títtnefndri greinargerð
kemur hins vegar fram, að norska stofnunin Datatilsynet, sem
er systurstofnun Persónuverndar hér á landi, áætlar að þar í
landi sé að finna upplýsingar um „meðal-Norðmanninn“ í um
500 skrám. „Er ekki fjarri lagi að sú tala geti einnig verið raun-
hæf hér á landi,“ segir í greinargerðinni. „Það gefur því augaleið
að erfitt hlýtur að vera fyrir hvern og einn einstakling að henda
reiður á hvar persónuupplýsingar um hann hafa verið skráðar
og að sama skapi erfitt fyrir hann að nýta sér rétt sinn til að-
gangs að slíkum upplýsingum.“
Til að auðvelda einstaklingum eftirlitið var sett ákvæði í per-
sónuverndarlögin, sem kveður á um að tilkynna skuli einstaklingi
þegar persónuupplýsingum er safnað frá öðrum en honum sjálf-
um.
Fimm breytingar á þremur árum
Eins og áður er nefnt hefur þriggja ára gömlum lögum um
persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga þegar verið breytt
fimm sinnum. Fyrst þurfti að gera lagfæringar hálfu ári eftir
gildistöku laganna, vegna EES-tilskipana sem höfðu þann tilgang
að samræma betur reglur aðildarríkjanna og gera lögin fyllri.
Persónuvernd var þá veitt heimild til að auglýsa gildi ákvarðana
framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á þessu sviði hér á
landi, enda skorti áður leiðsögn um með hvaða hætti mætti full-
gilda slíkar ákvarðanir hér á landi.
Í apríl 2002 var lögunum breytt með lögum 30/2002 um
rafræn viðskipti og aðra rafræna vöktun og bætt inn í þau
ákvæði um rafrænan markpóst.
Með lögum 81/2002 var persónuverndarlögunum enn breytt,
að þessu sinni m.a. til að hnykkja á ákvæðum um rafræna vökt-
un. Í greinargerð með því frumvarpi kemur fram, að notkun
einkaaðila á búnaði til sjónvarpsvöktunar, sem er ein tegund raf-
rænnar vöktunar, hafði aukist verulega. Breytingin gerði heimilt
að safna hljóð- og myndefni sem verður til við rafræna vöktun
að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. „Í fyrsta lagi þarf vöktunin
að vera nauðsynleg og fara fram í öryggis- og eignavörsluskyni,
í öðru lagi má ekki afhenda efni sem verður til við vöktunina án
samþykkis þess sem upptaka er af nema lögreglu og í þriðja
lagi er skylt að eyða því efni sem verður til við vöktunina innan
ákveðinna tímamarka,“ segir í greinargerð. Með þessari breyt-
ingu var Persónuvernd einnig veitt heimild til að setja nánari
reglur um vöktunina og vinnslu þess efnis sem verður til við
hana. „Mikilvægt er að skýrar reglur séu til um einstaka þætti
vöktunarinnar svo að réttaróvissa ríki ekki á þessu sviði. Slíkar
reglur þurfa m.a. að veita svör við spurningum um hvort einka-
aðilar megi safna upplýsingum um þjófnaði eða önnur afbrot og
ef svo er hvernig þeim beri að fara með þær.“
Lagastoð fyrir ættfræðinga
Ákvæðum um rafræna vöktun var aftur breytt með lögum
46/2003. „Persónuvernd hefur talið að núgildandi ákvæði séu
villandi í lögunum, t.d. hafi ríkt nokkur óvissa um hvenær rafræn
vöktun með notkun myndbandstækni sé tilkynningarskyld,“ seg-
ir í þeirri greinargerð. „Er því lagt til að kveðið verði á um að
rafræn vöktun taki til vöktunar sem leiði, eigi að leiða eða geti
leitt til vinnslu persónuupplýsinga. Skuli slík vinnsla lúta ákvæð-
um laganna sem og önnur vinnsla persónuupplýsinga. Þá skuli
einnig teljast til rafrænnar vöktunar svonefnd sjónvarpsvöktun,
þótt hún hvorki leiði né geti leitt til vinnslu persónuupplýsinga.
Þannig skuli slík vöktun lúta sömu skilyrðum og önnur rafræn
vöktun eftir því sem við á. Í öðru lagi miðar frumvarpið að því
að skapa ótvíræða lagastoð fyrir hefðbundna söfnun og vinnslu
ættfræðiupplýsinga hér á landi, en Persónuvernd hefur talið að
slíka lagastoð skorti. Rannsóknir í ættfræði eru vinsæl tóm-
stundaiðja fjölda fólks hér á landi og hefur ættfræði öðlast nýtt
og hagnýtt gildi á síðustu árum sem undirstaða læknisfræði-
legra rannsókna. Setningu laga um persónuvernd og meðferð
persónuupplýsinga var ekki ætlað að koma í veg fyrir ættfræði-
grúsk almennings og er því með frumvarpi þessu lagt til að
gerð verði bragarbót á.“
Nýjustu breytingarnar, sem gerðar voru með lögum 72/2003,
voru eingöngu orðalagsbreytingar vegna nýs stofnsamnings Frí-
verslunarsamtaka Evrópu.
Löggjöf í sífelldri endurskoðun
rsv@mbl.is
Morgunblaðið/Golli ’Ég vísa afdráttarlaust á bug ásökunum um ritstuldeða óheiðarleg vinnubrögð í bók minni, Halldór.‘Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor, í greinargerð þar sem
hann verst gagnrýni á fyrsta hluta ævisögu hans um Halldór Lax-
ness.
’Ég skil þær áhyggjur sem sprottnar eru af því aðsvona stór hluti fréttamiðla landsins er kominn í
hendur sömu aðila og vil gjarnan bregðast við því.‘Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs Group, í grein í Morg-
unblaðinu.
’... ég [mun] á næstu dögum skipa nefnd, sem munfjalla um umhverfi íslensks viðskiptalífs. Nefndin
skal m.a. taka fyrir hvernig bregðast megi við auk-
inni samþjöppun og með hvaða hætti skuli þróa regl-
ur þannig að viðskiptalífið sé skilvirkt og njóti
trausts.‘Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra skrifaði um hringamynd-
un í ís lensku viðskiptal íf i á vef sinn, valgerdur. is .
’Ég hélt að ég myndi ekki halda þetta út.‘Sævar Brynjólfsson skipstjóri , sem þraukaði í hei la klukkustund á
stefni báts síns eft ir að hann sökk norðvestur af Garðskaga.
’Embættismenn stjórnarinnar rangtúlkuðu meðskipulegum hætti þá ógn sem stafaði af gereyðing-
arvopnum Íraka og eldflaugum.‘Úr skýrslu Carnegie-stofnunarinnar í Bandaríkjunum, sem birt var á
fimmtudag.
’Dömur mínar og herrar, sögulegur atburður hefurátt sér stað.‘Pervez Musharraf , forseti Pakistans, þegar hann skýrði frá sam-
komulagi sem hann og Atal Behari
Vajpayee, forsætisráðherra Indlands, gerðu á fundi í Islamabad á
þriðjudag. Er stefnt að því að formlegar friðarviðræður mil l i þjóð-
anna hefj ist þegar í næsta mánuði.
’Það er hætta á að við verðum beittir sams konarrefsiaðgerðum og aðskilnaðarstjórnin í Suður-Afríku
var beitt á sínum tíma.‘Tommy Lapid , dómsmálaráðherra Ísraels, kvað Ísraela hafa ástæðu
ti l að óttast alþjóðlegar refsiaðgerðir vegna aðskilnaðarmúrsins á
Vesturbakkanum.
’Áherslan á fyrst og fremst að vera á Afganistan.Heimsbyggðin og NATO hafa ekki efni á að tapa
þar.‘Hollendingurinn Jaap de Hoop Scheffer , sem tók við embætti fram-
kvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins á mánudag.
’Ég tel að breyta verði eftirlaunakerfi þingmannaþannig að það verði líkt því sem gerist hjá öðrum.‘Kjell Magne Bondevik , forsætisráðherra Noregs. Samstaða virðist
um það á norska Stórþinginu að skerða eftirlaunaréttindi þingmanna.
’Maður tekur því sem að höndum ber og gerir þaðsem maður þarf að gera.‘Guðbjörg Sverrisdóttir geðhjúkrunarfræðingur, sem fer á vegum
Rauða kross Íslands t i l hjálparstarfs í írönsku borginni Bam, sem
lagðist að stórum hluta í rúst í jarðskjálfta.
Ummæli vikunnar
Reuters
Sögulegar sættir
INDVERJI fleytir kassa fullum af sælgæti í ánni
Chenab, sem rennur frá Indlandi til Pakistans, til
að fagna nýtilkominni þýðu í samskiptum
ríkjanna.