Morgunblaðið - 11.01.2004, Síða 33

Morgunblaðið - 11.01.2004, Síða 33
starf Morgunblaðið/Þorkell Lýsing Davids lék stórt hlutverk í unglingaóper- unni Dokaðu við í Íslensku óperunni í haust. Morgunblaðið/Kristinn Sigrún Edda Björnsdóttir í Hinu ljósa mani. David segir að sér hafi þótt sérstaklega vænt um þá sýningu. Að brjóta niður veggi David segist viss um að ástralsk- ir leikarar öfundi íslenska leikara af fastráðningarkerfinu. „Fast- ráðningarkerfið hefur auðvitað sína kosti, t.d. í tengslum við að byggja upp leikhópa innan leikhússins. Ekki er heldur hægt að líta framhjá því að með fastráðningu er fjárhagslegt öryggi leikaranna tryggt,“ segir hann og er spurður hvort íslensk leiklist standist sam- anburð við ástralska. David hikar í fyrstu við að svara. „Við erum að tala um tvo svo ólíka heima. Gott dæmi er að í Ástralíu eru nær ein- göngu sýnd verk eftir enskumæl- andi höfunda og svo náttúrulega allra stærstu nöfnin eins og Ibsen, Tjekov og Dario Fo í seinni tíð. Hér er miklu meiri fjölbreytni,“ út- skýrir hann og er spurður hvort hann geti nefnt einhverjar sérstak- ar nýjungar í lýsingarhönnun. „Leikhúsið er auðvitað í stöðugri þróun. Kvikmyndir gengu ekki af leikhúsinu dauðu eins og sumir héldu. Hins vegar eru ýmiss konar margmiðlunartilraunir orðnar áberandi í leikhúsinu. Slæds-mynd- ir og ýmiss konar hreyfimyndir eru notaðar til að ná fram ákveðnum áhrifum í leikritum,“ segir David. „Við göngum sífellt lengra í að brjóta niður veggi, t.d. milli leikara og áhorfenda og svo náttúrulega einstakra listgreina.“ David segist alltaf hafa haft sér- staklega gaman af því að vinna að barnasýningum. „Í Brisbane er haldin 10 daga leiklistarhátíð fyrir 3 til 8 ára börn í eins konar menn- ingarmiðstöð í borginni annað hvert ár. Ég er löngu farinn að hlakka til að vinna að því verkefni í ár. Hátíðin verður haldin næsta sumar að íslenskum tíma – en þá er náttúrulega vetur í Ástralíu,“ segir David og tekur fram að þetta verk- efni veiti sér óhemju fullnægju. „Eins og reyndar öll mín vinna. Ég er ákaflega ánægður með að lífið skuli hafa leitt mig inn á svið lýs- ingarhönnunar og að sjálfsögðu hingað til Íslands á sínum tíma.“ David hannaði lýsingu fyrir sýningu leikhópsins Bandamenn á Amlóðasögu árið 1996. ago@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 2004 33 Enska fyrir börn Það er leikur að læra Námskeiðin hefjast 31. janúar Leikskóli 6-7 ára Talnámskeið 8-9 ára, 10-12 ára Unglinganámskeið 13-14 ára Stuðningsnámskeið fyrir 10. bekk 588 0303 fyrir 23. jan.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.