Morgunblaðið - 11.01.2004, Page 68

Morgunblaðið - 11.01.2004, Page 68
DAGBÓK 68 SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Í dag er Brúarfoss væntanlegt. Hafnarfjarðarhöfn: Í dag er Cielo de Baffin væntanlegt. Mannamót Bólstaðarhlíð 43. Þorrablótið verður föstudaginn 30. janúar kl. 18. Upplýsingar í síma 568 5052. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Dansleikur í kvöld kl. 20. Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Þorra- blót félagsins verður laugardaginn 24. jan- úar. Húsið opnað kl. 19. Skráning og upplýs- ingar í Hraunseli í síma 555 0142. Félagsheim- ilið er opið alla virka daga frá kl. 9–17. Félag eldri borgara í Garðabæ. Almennur fundur verður haldinn laugardaginn 17. jan- úar nk. í Kirkjuhvoli kl. 14. Kynntar verða teikningar að nýja Sjá- landshverfinu. Ásdís Halla Bragadóttir bæj- arstjóri ræðir um mál- efni eldri borgara og svarar fyrirspurnum. Ferðakynning, Plús- ferðir. Allir velkomnir. Félagsstarf eldri borg- ara í Mosfellsbæ. Pútt- kennsla í Íþróttahús- inu Varmá á sunnudögum kl. 11–12. Félagsstarf aldraðra í Garðabæ. Kínverska leikfimin Tai Chi byrj- ar aftur í Garðabergi þriðjudaginn 13. jan- úar. kl. 12. Guðný Helgadóttir kennir. Nánari upplýsingar hjá félagsstarfi aldraðra í Garðabæ í símum 525 8590 og 820 8553. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Hvern virk- an dag frá kl. 9–16.30 er fjölbreytt dagskrá, m.a. opnar vinnustofur, spilasalur, gönguhóp- ur, sund- og leikfimiæf- ingar í Breiðholtslaug, helgistundir í sam- starfi við Fella- og Hólakirkju, sjálf- boðaliðahópar o.fl. All- ir velkomnir. Upplýs- ingar á staðnum og í síma 575 7720. Hraunbær 105. Getum bætt við í línudansinn á þriðjudögum kl. 15. Getum bætt við okkur á keramiknámskeiðið á mánudögum kl. 9. Kvenfélag Bústaða- sóknar. Fundur verður mánudaginn 12. janúar í safnaðarheimilinu kl. 20. Halla Jónsdóttir flytur fyrirlestur um jákvæðni. Kvenfélag Kópavogs heldur fund 22. jan í Hamraborg 10 (Ath. breyttur fundartími) kl. 19. Matur og skemmtiatriði. Þátt- taka tilkynnist fyrir 16. jan. til Rannveigar s: 554 3386, Erlu s. 554 1519 eða Ólafar s. 554 0388 Styrkur. Opið hús að Skógarhlíð 8, Reykja- vík, þriðjudaginn 13. janúar kl. 20. Sigfinnur Þorleifsson, sjúkra- húsprestur, talar um lífið og tilveruna. Allir velunnarar félagsins velkomnir. Stjórnin. NA (Ónefndir fíklar). Neyðar- og upplýs- ingasími 661 2915. Opnir fundir kl. 21 á þriðjudögum í Héðins- húsinu og á fimmtu- dögum í KFUM&K, Austurstræti. Skátamiðstöðin. End- urfundir skáta eru allt- af annan mánudag í mánuði. Næsta sam- verustund verður mánudaginn 12. janúar kl. 12. Súpa og brauð í boði gegn vægu gjaldi. Hrólfur Jónsson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborg- arsvæðisins, segir frá starfi og skipulagi liðs- ins. ITC Harpa. Fundur verður þriðjudaginn 13. janúar, kl. 20 á þriðju hæð í Borg- artúni 22. Gestir vel- komnir. Tölvupóstfang ITC Hörpu er itcharpa@hotmail.- com, heimasíða http:// www.life.is/itcharpa. Nánari upplýsingar gefur Guðbjörg í síma 553 0831. Fjölskylduhjálp Ís- lands, Eskihlíð 2–4 í fjósinu við Miklatorg. Tekið er á móti vörum og fatnaði alla mánu- daga frá kl. 13 til 17. Úthlutun matvæla og fatnaðar er alla þriðju- daga frá kl. 14 til 17. Sími skrifstofu er 551 3360, netfang dal- ros@islandia.is, gsm hjá formanni 897 1016. Minningarkort Minningarkort Graf- arvogskirkju. Minningarkort Graf- arvogskirkju eru til sölu í kirkjunni í s. 587 9070 eða 587 9080. Einnig er hægt að nálgast kortin í Kirkjuhúsinu, Laugavegi 31, Reykja- vík. Líknarsjóður Dóm- kirkjunnar, minn- ingaspjöld seld hjá kirkjuverði. Minningarkort Stóra- Laugardalssóknar, Tálknafirði, til styrktar kirkjubyggingarsjóði nýrrar kirkju í Tálkna- firði eru afgreidd í s. 456 2700. Í dag er sunnudagur 11. janúar, 11. dagur ársins 2003. Orð dags- ins: Ég er ljós í heiminn komið, svo að enginn, sem á mig trúir, sé áfram í myrkri. (Jh. 12, 46.)     Milli áranna 2001 og2002 fækkaði starfs- fólki í atvinnulífinu, sem ekki vann hjá hinu op- inbera, um 4%. Hins veg- ar fjölgaði opinberum starfsmönnum um 5% á milli sömu ára. „Ef litið er á fjölgunina yfir lengra tímabil, t.d. árin 1998 til 2002, kemur í ljós að starfandi fólki fjölgaði í heild um 14.700 (frá árinu 1997) eða 10,4%, og þar af um 8% í einkageir- anum en um rúm 17% hjá hinu opinbera. Tímabilið einkennist þannig af örri fjölgun opinberra starfs- manna og vaxandi hlut- deild hins opinbera á vinnumarkaðnum. Sé nánar litið á helstu þætti í starfsemi hins opinbera þá fjölgaði starfsfólki í opinberri stjórnsýslu um 1.800 sem er um 30% aukning og um 3.700 í fræðslustarfsemi sem var 40% aukning, en minnst var hún í heilbrigðis- og félagsþjónustu eða um 700 manns sem var 3% aukning,“ segir á vef Samtaka atvinnulífsins.     Erfitt hefur verið aðnálgast upplýsingar um hversu margir starfs- menn séu á launum hjá hinu opinbera. Sjálft rík- isvaldið heldur þessum upplýsingum t.d. ekki skipulega saman. Nokkur umræða var um þetta á síðasta landsfundi Sjálf- stæðisflokksins, þar sem stjórnmálamenn voru gagnrýndir fyrir fjölgun ríkisstarfsmanna, en í þeirri umræðu báru ræðumenn fyrir sig til- finningu fyrir þróuninni. Vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar, sem SA vísar til, gefur auðvitað vísbendingar um hver þróunin sé en æskilegt væri að þessar upplýs- ingar væru tiltækar hjá hinu opinbera svo sam- anburður yrði einfaldur milli ára og starfa.     Þessi niðurstaða Hag-stofunnar er líka furðuleg í ljósi þess að markvisst hefur verið unnið að því að einka- væða ríkisfyrirtæki og um leið að fækka starfs- fólki í vinnu hjá ríkinu. Á meðan fjölgar starfsfólki um 30% í opinberri stjórnsýslu! Spyrja má af hverju þessi útþensla hins opinbera á vinnu- markaði eigi sér stað. Reyndar er hálf kyndugt að vitna til vefrits fjár- málaráðuneytisins frá árinu 2002 í þessu sam- hengi þar semkvartað var sárlega undan því í tvígang að ríkisstofnanir væru of litlar og van- máttugar. Á meðan óx báknið.     Það er því verðugtverkefni að fækka ríkisstarfsmönnum og taka um leið forsætisráð- herra Dana sér til fyr- irmyndar. Í byrjun árs 2002 boðaði hann fækkun launþega hins opinbera um fimm þúsund á næstu fjórum árum. Helmingi minni fækkun hér myndi sporna gegn þessari þró- un. STAKSTEINAR Ríkisstarfsmönnum fjölgar og fjölgar Víkverji skrifar... Eins og undanfarin ár eru Vínar-tónleikar einn af hápunktum starfsárs Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands. Það eru fyrstu tónleikar hljómsveitarinnar á nýju ári og leik- in er Vínartónlist eftir Strauss-feðga og aðra gamalkunna vals- og polka- snillinga. Lengi vel var Páll P. Páls- son ómissandi sem stjórnandi hljóm- sveitarinnar á hljómleikunum, en seinni ár hafa komið til landsins val- inkunnir gestir til að stjórna á Vín- artónleikunum og hafa þeir oftar en ekki handleikið fiðluna og leikið með, eins og Austurríkismaðurinn Ernsts Kovacic gerði á fernum tón- leikum nú – sem einleikari í þremur lögum. Sinfóníuhljómsveitin hefur fengið góða dóma og lof á und- anförnum árum og hafa margir er- lendir stjórnendur hennar undrast að 280 þúsund manna þjóðfélag norður í ballarhafi eigi svo góða sin- fóníuhljómsveit. x x x Víkverji er einn af fjölmörgumaðdáendum hljómsveitarinnar og hefur áður bent á að það sé löngu tímabært að hljómsveitin fari að senda frá sér diska af ýmsu tagi – eins t.d. einn með rómantískum lög- um, annan með léttri Vínartónlist, þann þriðja með frægum lögum frá ýmsum stöðum víðs vegar um heim- inn – jafnvel undir nafninu Sigling um heimsins höf, enn einn með ljúfri tónlist til að hlusta á við mat- arborðið. Þá má nefna einn með vin- sælum og kunnum slögurum sem er- lendir söngvarar og hljómsveitir hafa gert vinsæla og ekki má gleyma diski með frægum lögum íslenskra lagahöfunda seinni ára. Leikur á fiðlu yrði að sjálfsögðu í hávegum hafður á diskunum, ásamt öðrum strokhljóðfærum og ýmsum blást- urshljóðfærum. Tilvalið væri fyrir hljómsveitina að fá kunna ein- staklinga til að leika með á ýmis hljóðfæri og ekki myndi það skemma að blandaður kórsöngur ómaði í sumum laganna. Víkverji er viss um að hljómplötur með hljómsveitinni myndu fá góðar viðtökur, eins og t.d. diskurinn með hinum ítalska Robertino gerir þessa dagana, eins og 22 ferðalög með KK og Magnúsi Eiríks og Ort í sandinn – harmonikuplata með Geirmundi Valtýssyni – gerðu sl. sumar. x x x Ef Víkverji fengi að ráða þá værulög eins og What Now My Love, Power of Love, Memory, Ball Scene, Nights In White Satin, Don’t Cry For Me Argentina, The Lady in Red, Games That Lovers Play og Ballade Pour Adeline á róm- antískum diski og á diski með lögum frá ýmsum löndum kæmu lög eins og Sailing, Havah Nagilah, Salome, Kalinka, En „Er“ Mundo, Molto Allegro, Spanish Eyes, Sail Along Silv’ry Moon, Moulin Rouge, Arrivederci Roma og American Patrol sterklega til greina. Víkverja dreymir um að eignast létta og skemmtilega plötu með Sin- fóníuhljómsveit Íslands. Morgunblaðið/Einar Falur Sinfóníuhljómsveit Íslands. W eða dobbeljú Á ÉG að trúa því að leik- skóli Þjóðleikhússins og Þjóðleikhúsið sjálft kenni framburð á stafnum w í lestri á þýðingu sögu Wil- helms Mobergs og nefni stafinn w upp á enskan máta og kalli hann dobb- eljú. Ég hélt hann héti tvö- falt v í okkar tungu. Í leik- dómum er sífellt verið að staglast á orðinu metnaðar- fullur þegar rætt er um leiksýningar í Þjóðleikhús- inu. Ég sé engan metnað í því að kalla w dobbeljú. Slíkur framburður prýðir ekki íslenskt mál. Nú þarf Halldór Blöndal, þingforseti, að bæta um betur og nefna Hjálmar Árnason, þingmann Hjálm- ar dobbeljú til þess að sam- ræmi verði á framburði menningarstofnana ís- lensku þjóðarinnar á ver- aldarvefnum. Pétur Pétursson, þulur. Vinna eða atvinna ÉG ER að velta því fyrir mér hvers vegna sífellt er verið að nota orðið „at- vinna“ þegar verið er að skrifa um vinnu í fjölmiðl- um. Í mínu ungdæmi tíðk- aðist að tala um „að vera í miklu erfiði“ og „að vera í miklu ati“. Þannig að fyrir mér nægir að nota orðið vinna. Maður var ekki í at- vinnu nema unnin væri mikil erfiðsvinna. Björn. Vantar sjómanna- blaðið Víking ÉG ER að binda inn sjó- mannablaðið Víking og vantar 5 blöð. Blöðin sem vantar eru frá 1956 tbl. 7, 8, 9 og 10. 1960 tbl. 5. Þeir sem gætu liðsinnt mér eru beðnir að hafa samband við Eggert í síma 588 9969. Þakklæti ÉG VIL koma á framfæri innilegu þakklæti fyrir kveðju frá útvarpinu sem útvarpsstjóri flutti á gaml- ársdag. Lögin voru góð eft- ir Sigvalda Kaldalóns og kórinn góður. Svo var ég einnig ánægð- ur með Skaupið, finnst ágætt að sleppa Skara skrípó einu sinni. Einnig var ég ánægður með mynd- ina hans Hrafns Gunn- laugssonar, Opinberun Hannesar. Ólafur. Gott framtak í Nóatúni ÉG FÓR að versla í Nóa- túni við Hringbraut fyrir jólin og þar sem ég beið í langri biðröð eftir af- greiðslu kom einn starfs- maður og bauð öllum við- skiptavinum konfekt til að létta þeim biðina. Það mættu margir taka þetta til fyrirmyndar. Ein ánægð. Dýrahald Border collie-hvolpur týndist BORDER collie-hvolpur, rúmlega 5 mánaða, týndist 28. nóvember frá Helgu- grund á Kjalarnesi. Hann er svartur með hvíta bringu og hvíta tíru á skotti og að- eins með hvítt á loppum. Hann var ómerktur en með keðju um hálsinn. Þeir sem hafa einhverjar upplýsing- ar um afdrif hundsins eru beðnir að hafa samband í síma 868 1134. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 hörfar, 4 bolur, 7 hlaupi, 8 stormurinn, 9 útlim, 11 boli, 13 ástund- unarsama,14 erfiður við- fangs, 15 brjóst, 17 ljós- ker, 20 mann, 22 stífla, 23 snákur, 24 trjágróður, 25 haldast. LÓÐRÉTT 1 skækjan, 2 ræðustóls, 3 sleit, 4 brott, 5 fúskið, 6 aflaga, 10 ógöngur, 12 auð, 13 vond, 15 kæna, 16 niðurgangurinn, 18 mergð, 19 grassvarð- arlengja, 20 karlfugl, 21 taugaáfall. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 vindhöggs, 8 unnar, 9 umber, 10 kál, 11 dorga, 13 leiða, 15 skerf, 18 gráða, 21 jór, 22 logna, 23 óviti, 24 villingur. Lóðrétt: 2 iðnar, 3 dýrka, 4 ötull, 5 gubbi, 6 sund, 7 hráa, 12 gær, 14 eir, 15 sult, 16 eigri, 17 fjall, 18 gróin, 19 álitu, 20 akir. Krossgáta 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.