Morgunblaðið - 11.01.2004, Side 71

Morgunblaðið - 11.01.2004, Side 71
AUÐLESIÐ EFNI MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 2004 71 SÆVAR Brynjólfsson sem er 62 ára gamall skipstjóri, þraukaði gegnblautur og kaldur í um eina og hálfa klukkustund á grindverkinu efst á stefni bátins Húna KE sem sökk á fimmtudag. Hann segir að ullarnærfötin sem konan hans hafi gefið honum í jólagjöf og hann var í hafi líklega bjargað lífi hans. Þegar skipsverjar á Sólborginni komu að bátnum til þess að bjarga Sævari var báturinn næstum því allur í kafi, aðeins blánefið á bátnum stóð upp úr og þar sat Sævar. Báturinn seig upp og niður í sjónum og var Sævar orðinn dofinn fyrir neðan mitti þegar tókst að bjarga honum um borð í Sæborgina. Áður hafði Sævar farið niður með bátnum og fest sig í línu og var hann orðinn loftlaus þegar hann loksins komst upp á yfirborðið og hafði raunar sopið dálítinn sjó. Sævar segist hafa gert sér einna mestar vonir um björgun úr lofti enda hafi logað á siglingaljósunum á Húna ofan í sjónum. „Ég var líka að reyna að horfa upp í loftið til að athuga hvort ég sæi ekki þyrluna, mér fannst einna helst vera möguleiki á því að hún myndi finna mig því það logaði á siglingaljósunum í bátnum ofan í sjónum.“ Þrátt fyrir að Sævar hafi séð til skipa að leit var hann ekki bjartsýnn á að þau fyndu hann. „En mér fannst ég vera það langt í burtu að ég hélt að ég myndi ekki halda þetta út. Og mér fannst svona tiltölulega ólíklegt að þau myndu ramba á mig þarna. Ég var farinn að hugleiða þarna hvenær þessi tilfinning kæmi að mér yrði sama og ég dytti út af,“ sagði Sævar. Sjómaður bjargaðist Morgunblaðið/Árni Sæberg Sævar Brynjólfsson GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti vill láta senda geimfar með mönnum í til Mars. Hann hefur líka ákveðið að láta reisa rannsóknarstöð á tunglinu. Embættismenn í Bandaríkjunum sögðu frá þessu á fimmtudag. Þeir sögðu að forsetinn myndi segja frá þessum ákvörðunum sínum í ræðu sem hann ætlar að halda í þessari viku. Svona hugmyndir hafa komið fram áður. Faðir Bush, sem líka var forseti Bandaríkjanna, sagði fyrir meira en tíu árum að hann vildi senda geimfara til Mars. Langur tími mun líða þar til Bandaríkjamenn skjóta á loft geimfari til Mars. Sú ferð hefst ekki fyrr en í fyrsta lagi eftir tíu ár. Geimferjan Kólumbía fórst í fyrra þegar hún var á leið til jarðar. Það var mikið áfall fyrir Bandaríkjamenn. Nú er sagt að Bush ætli að hleypa nýju lífi í geimferðir Bandaríkjamanna. Einnig er sagt að forsetinn vonist til þess að auka vinsældir sínar með þessu. Forsetakosningar verða í Bandaríkjunum í haust. Bush verður þá í framboði aftur. Vinni hann verður hann forseti Bandaríkjanna í fjögur ár í viðbót. Bush vill senda geimfara til Mars Reuters George W. Bush, forseti Bandaríkjanna. SÖNGKONAN Britney Spears gifti sig á dögunum í Las Vegas. Sá sem hún giftist heitir Jason Alexander. Hann er æskuvinur hennar. Þau eru frá sama bænum og eru bæði 22 tveggja ára gömul. Daginn eftir sögðu þau að þetta hefði verið grín. Þau skildu því aftur. Giftingin fór fram í Litlu hvítu kapellunni, sem er fræg kirkja í Las Vegas. Lögmaður Britney segir að hún hafi ekki verið drukkin þegar þetta gerðist. Hún var í gallabuxum og með derhúfu og lét hótelþjón leiða sig upp að altarinu. Alexander sagði í viðtali: „Við litum hvort á annað og sögðum: Gerum eitthvað brjálæðislegt. Giftum okkur, bara upp á grín.“ Britney var gift í 55 klukkustundir en þá létu hún og Alexander ógilda brúðkaupið. Reuters Britney Spears er sæt. Britney Spears gifti sig og skildi síðan Britney Spears lenti í rugli DAGNÝ Linda Kristjánsdóttir, skíðakonan snjalla frá Akureyri, slasaðist á æfingu fyrir risasvigmótið í heimsbikarkeppninni, sem fram fór í Megeve í Frakklandi sl. sunnudag. Dagný fór til sérfræðilæknis í Austurríki í kjölfarið og þar kom í ljós að hún er með slitið fremra krossband í vinstra hné, auk þess sem liðþófi er rifinn. Aftara krossband í hnénu er einnig tognað. Dagný Linda fór í aðgerð í Austurríki og verður frá keppni það sem eftir er keppnistímabilsins en það tekur oftar en ekki 6–8 mánuði að ná sér eftir aðgerð á krossbandi. Slík meiðsli eru alvarleg og þarf mikla endurhæfingu til þess að ná fyrri styrk í hnénu eftir slík meiðsli. Hins vegar hafa margir þekktir íþróttamenn náð sér á strik eftir að hafa slitið krossband og má þar nefna Ólaf Stefánsson handknattleiksmann sem var kjörinn íþróttamaður ársins 2003, annað árið í röð. Dagný Linda var á dögunum útnefnd sem skíðakona ársins 2003. Morgunblaðið/Kristján Dagný Linda Kristjánsdóttir. Dagný Linda slasaðist illa í Frakklandi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.