Morgunblaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 59
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 2004 59
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug vegna andláts og útfarar elskulegrar
móður minnar,
HULDU HARÐARDÓTTUR,
Kambaseli 85,
frá Austurhlíð,
Gnúpverjahreppi.
Ólafur Steindórsson
og aðstandendur.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
UNNSTEINN STEFÁNSSON,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðju-
daginn 27. janúar kl. 13.30.
Kristín Unnsteinsdóttir, Trausti Ólafsson,
Stefán Unnsteinsson, Ana Maria Unnsteinsson,
Einar Unnsteinsson, Vigdís Esradóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
ÞORSTEINN SVEINSSON,
Jakaseli 26,
Reykjavík,
lést miðvikudaginn 14. janúar.
Útför hans fer fram frá Langholtskirkju mánu-
daginn 26. janúar kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á líknar-
deild Landspítalans.
Helga Björg Helgadóttir,
Kolbrún Björg Þorsteinsdóttir,
Hildur Inga Þorsteinsdóttir,
Helgi Már Þorsteinsson.
Systir okkar og mágkona,
SIGRÚN ÁRNADÓTTIR,
Mýrarási 2,
áður Laugarnesvegi 76,
sem lést fimmtudaginn 15. janúar, verður
jarðsungin frá Fossvogskapellu mánudaginn
26. janúar kl. 10.30.
Sigurður K. Árnason, Vilborg Vigfúsdóttir,
Ragnar Árnason,
Magnea Árnadóttir, Jakob Marteinsson,
Helga Árnadóttir,
Ragnhildur Árnadóttir.
✝ Birgir Sigurðs-son fæddist í
Hrísey 19. júní 1931.
Hann lést á Dalbæ –
Dvalarheimili aldr-
aðra á Dalvík 15.
janúar síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Hulda Baldursdótt-
ir, f. 25.11. 1909, d.
17.10. 1995, og Sig-
urður Kristinn
Ólafsson, f. 12.8.
1901, d. 18.8. 1955.
Systkini Birgis eru
Reinhard, f. 1927,
búsettur í Reykja-
vík, en þeir eru samfeðra, Bald-
ur, f. 1929, búsettur á Akureyri,
Örn, f. 1932, búsettur á Dalvík,
Rafn, f. 1937, d. 1967, Verna, f.
1937, búsett á Dalvík, Gísli Karl,
f. 1939, búsettur á Akureyri og
Steinþór Kristinn, f. 1950, bú-
settur í Reykjavík.
Í Hrísey bjó Birgir til 16 ára
aldurs er hann flutti ásamt fjöl-
skyldu sinni yfir til Dalvíkur þar
sem hann bjó upp
frá því. Birgir
kvæntist aldrei og
var barnlaus en
hélt heimili með
móður sinni til árs-
ins 1995.
Ungur að árum
reri Birgir til sjós
ásamt föður sínum
en eftir að hann
flutti til Dalvíkur
starfaði hann við
netagerð, stundaði
sjómennsku og þá
ýmist sem háseti
eða kokkur, vann
við skrifstofustörf, m.a. póstaf-
greiðslu og á skrifstofu Dalvík-
urbæjar, en síðustu ár starfsævi
sinnar var hann starfsmaður Vá-
tryggingarfélags Íslands á Dal-
vík.
Birgir dvaldi á Dalbæ – Dval-
arheimili aldraðra á Dalvík síð-
an í október á síðasta ári.
Útför Birgis var gerð frá Dal-
víkurkirkju 23. janúar.
Við kveðjum kæran heimilisvin,
Bigga Sig., með þakklæti fyrir þær
góðu og gefandi stundir sem við átt-
um áratugum saman.
Sárt er vinar að sakna.
Sorgin er djúp og hljóð.
Minningar mætar vakna,
margar úr gleymsku rakna.
Svo var þín samfylgd góð.
Daprast hugur og hjarta.
Húmskuggi féll á brá.
Lifir þó ljósið bjarta,
lýsir upp myrkrið svarta.
Vinur þó félli frá.
Góða minning að geyma
gefur syrgjendum fró.
Til þín munu þakkir streyma,
þér munum við ei gleyma.
Sofðu í sælli ró.
(Höfundur ók.)
Guð geymi þig vinur.
Aðalsteinn Grímsson
og fjölskylda.
Borist hafa fregnir um að kær
frændi okkar og vinur, Birgir Sig-
urðsson, sé látinn.
Það kemur kyrrð og friður yfir
hugann.
Margar ljúfar minningar skjóta
upp kollinum. Við förum aftur í tím-
ann þegar við vorum í foreldrahúsum,
þá var Birgir aufúsugestur á því
heimili.Við kynntumst honum náið
sem unglingar og hefur vináttan hald-
ist allar götur síðan. Alltaf var gaman
að koma til Dalvíkur. Ógleymanleg er
ferð með Birgi á bátnum hans út í
Hrísey á sólríkum sumardegi fyrir
nokkrum árum með ættingja og vini.
Þegar Birgir kom suður til Reykja-
víkur var ávallt glatt á hjalla, mikið
spilað og sagðar sögur að ógleymdum
bíltúrum með eiginmönnum okkar
sem voru fararstjórar fyrir hann í
borginni. Börnum okkar var hann
kær frændi og kom sem gleðigjafi fyr-
ir okkur öll. Við erum afar þakklát
fyrir minningarnar um þennan góða
mann.
En meðan árin þreyta hjörtu hinna,
sem horfðu eftir þér í sárum trega,
þá blómgast enn, og blómgast ævinlega,
þitt bjarta vor í hugum vina þinna.
(Tómas Guðmundsson.)
Við sendum systkinum og öðrum
aðstandendum okkar innilegustu
samúð.
Magnea, Jóna og Guðrún
Finnbogadætur.
BIRGIR
SIGURÐSSON
Innilegar þakkir til starfsfólks líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi fyrir góða
umönnnun og umhyggju,
INGIMUNDAR KRISTJÁNSSONAR,
Yrsufelli 5,
Reykjavík,
sem lést 9. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Jakob Birtingur Ingimundarson,
Gunnar Hafberg Ingimundarson,
Sigurður Guðjón Jónsson,
Magnús Kristjánsson,
Halldóra Jónsdóttir.
Kveðjuathöfn um ástkæran son okkar, bróður,
mág og frænda,
SVEIN BJÖRNSSON
rafvélavirka,
Teigaseli 1,
Reykjavík,
verður í Langholtskirkju, þriðjudaginn
27. janúar kl. 13.30.
Útförin verður frá Kálfafellskirkju í Fljótshverfi miðvikudaginn 28. janúar
kl. 14.00.
Valgerður Pálsdóttir,
Páll Björnsson, Guðrún Albertsdóttir,
Stefán Björnsson,
Guðný Björnsdóttir, Sveinn Garðarsson,
Guðjón Björnsson, Valdís Kristinsdóttir,
Snorri Björnsson, Ragnheiður Runólfsdóttir,
Málfríður Björnsdóttir, Sigurður Óskarsson,
og systkinabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
PÁLL SIGURÐSSON
bifreiðastjóri,
Austurbrún 6,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnar-
firði miðvikudaginn 28. janúar kl. 13.30.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Þrúður Pálsdóttir, Þorgeir J. Yngvason,
Hákon H. Pálsson, Ingibjörg Hafsteinsdóttir,
Ingólfur Pálsson,
Sigurður Pálsson, Margrét E. Kristjánsdóttir,
Sigurjón Pálsson, Theodóra Ragnarsdóttir,
Halla Pálsdóttir, Sigsteinn Sigurðsson,
Guðlaugur Pálsson,
Dagmar Pálsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
AFMÆLIS- og minningar-
greinum má skila í tölvupósti
(netfangið er minning-
@mbl.is, svar er sent sjálf-
virkt um leið og grein hefur
borist) eða á disklingi. Ef
greinin er á disklingi þarf út-
prentun að fylgja. Nauðsyn-
legt er að tilgreina símanúm-
er höfundar og/eða sendanda
(vinnusíma og heimasíma).
Ekki er tekið við handskrif-
uðum greinum.
Um hvern látinn einstakling
birtist ein aðalgrein af hæfi-
legri lengd á útfarardegi, en
aðrar greinar séu um 300 orð
eða 1.500 slög (með bilum) en
það eru um 50 línur í blaðinu
(17 dálksentimetrar). Tilvitn-
anir í sálma eða ljóð tak-
markast við eitt til þrjú er-
indi. Einnig er hægt að senda
örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5–15 línur, og
votta virðingu án þess að það
sé gert með langri grein.
Greinarhöfundar eru beðnir
að hafa skírnarnöfn sín en
ekki stuttnefni undir grein-
unum.
Minningargreinum þarf að
fylgja formáli með upplýsing-
um um hvar og hvenær sá
sem fjallað er um er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um
foreldra hans, systkini, maka
og börn og loks hvaðan útför-
in verður gerð og klukkan
hvað. Ætlast er til að þetta
komi aðeins fram í formál-
anum, sem er feitletraður, en
ekki í greinunum sjálfum.
Þar sem pláss er takmarkað
getur þurft að fresta birtingu
greina, enda þótt þær berist
innan hins tiltekna frests.
Frágangur
afmælis-
og minning-
argreina
Elsku maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
JÓN FRÍMANN JÓNSSON
húsasmíðameistari,
Einibergi 17,
Hafnarfirði,
lést á Landspítala Hringbraut fimmtudaginn
15. janúar.
Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 28. janúar
kl. 15.00.
Þorbjörg Þorsteinsdóttir,
María Eydís Jónsdóttir, Guðmundur Kristinn Aðalsteinsson,
Vilberg Þór Jónsson, Margrét Emilsdóttir,
Jón Snævar Jónsson, Salbjörg Björnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.