Morgunblaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 64
DAGBÓK
64 SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Víkverji skrifar...
Þá er þorrinn hafinn með öllumsínum súru kræsingum, sem
Víkverji kann að meta. Ekki
skemmdi fyrir að fá staup af köldu
íslensku brennivíni með góðgætinu.
Víkverji var með fámenna þorra-
veislu á föstudagskvöld og gleði
gesta var mikil þegar „gamli góði ís-
lenski hvalurinn“ var kominn aftur á
veisluborðið. Hvalur sem Íslend-
ingar verka sjálfir, en ekki innfluttur
frá Noregi, eins og Íslendingar urðu
að sætta sig við um tíma. Norðmenn
kunna ekki að verka hval, þannig að
hann verði mátulega súr og ljúffeng-
ur.
x x x
Evrópumótið í handknattleik erhafið í Slóveníu og eins og áður
er íslenska landsliðið í sviðsljósinu.
Einnig ljósvakamenn, en það hefur
lengi loðað við suma íslenska ljós-
vakamenn, sem hafa verið að lýsa
íþróttaviðburðum beint hér heima á
Fróni eða frá stórmótum í útlöndum,
að þeir hafa þótt vægast sagt há-
vaðasamir – náð að yfirgnæfa starfs-
bræður sína frá öðrum þjóðum,
hreinlega skotið þá í kaf. Víkverji
hefur það oft á tilfinningunni að þeir
telji að þeir séu aðalmennirnir – allt
snúist um þá.
Þeir eru stöðugt að ræða um það í
hinum og þessum útvarpsþáttum,
hvað þeir séu þreyttir vegna þess
hvað þeir hafi mikið að gera.
Víkverja finnst óþolandi að menn
sem eru greinilega mættir á ákveðna
staði til að skemmta sjálfum sér, séu
að tala um þreytu í tíma og ótíma.
Víkverji telur að það besta, sem
þreyttir menn gera, sé að fara í koju
heima hjá sér og hvíla sig rækilega –
svo að hlustendur verði ekki þreyttir
á að hlusta á útvarpsmennina sem
eru óþreytandi að segja hvað þeir
eru þreyttir.
Jafnvel þó að menn séu þreyttir í
starfi sínu, þá kemur alþjóð það ekk-
ert við. Víkverji hefur aldrei séð
blaðamenn setja á prent, að þeir séu
þreyttir í starfi og er álagið á þeim
þó oft mikið í kappi við „deadline“.
x x x
Þolinmæði er mikill kostur. Þaðkostar oft mikla vinnu, blóð og
svita að ná árangri í því sem menn
taka sér fyrir hendur. Reynsla og
þekking hefur mikið að segja. Ungir
og óþolinmóðir menn vilja oft sigra
heiminn – og það strax – og sumir of-
meta sig í keppni gegn „gömlum og
reyndum refum“. Víkverji man alltaf
eftir ungum manni sem þoldi það
ekki að hann átti ekki mikla mögu-
leika í tengdaföður sinn, þegar þeir
léku púl á billiardborði við sundlaug-
arbar á hóteli á Kýpur. Það lá svo við
að ungi maðurinn þyrfti á áfallahjálp
að halda – eftir að hann mátti sætta
sig við tap fyrir eldri borgurum á 18
holu golfvelli þar á eyju.
Víkverji er ekki að gera lítið úr
æsku landsins, en það skaðar ekki að
menn sníði sér stakk eftir vexti.
Morgunblaðið/Friðþjófur
Íslenskur hvalur er kominn á
veisluborð landsmanna.
Myndasögur, Spaug-
stofan og Fréttablaðið
FYRST langar mig að
segja að ég sakna teikni-
myndanna og alveg sér-
staklega Lubba.
Og svo Spaugstofan.
Svona er smekkurinn mis-
jafn. Mér fannst hún t.d. al-
veg sérlega góð síðasta
laugardag. Finnst þeir svo-
lítið misgóðir en oftast frá-
bærir.
Svo er það Fréttablaðið.
Liggur við ég spyrji; hvað
er það? Eitthvað ofan á
brauð? Þetta er búin að
vera samfelld hörmungar-
saga hér.
Eftir ótal hringingar sem
ég gafst upp á eftir að þurfa
að bíða langa lengi hvert
sinn (tók tímann einu sinni,
13 mín.) og svo bíða, romsa
upp kennitölu í hvert sinn,
bíða, hvaða daga blaðið
hefði komið, hvaða ekki
o.s.frv., ótrúlega þungt í
vöfum. Þá sneri ég mér að
tölvupósti til þeirra nokkr-
um sinnum.
Eftir þessar aðgerðir
hefur blaðið komið einn
dag, tvo daga, fimm, svo
þetta bara pirrar mann. En
nú nennir maður ekki leng-
ur að eltast við þetta. Vil
benda á að ég myndi ekki
auglýsa í þessu blaði með
svona dreifingu sem getur
ekki verið einsdæmi. Svo
þessi mæling á lesningu
blaðsins sem þeir gefa út
stenst ábyggilega ekki.
Morgunblaðið kemur dag
hvern og bregst ekki. Hafi
það komið fyrir er það leið-
rétt, fljótt og vel.
Kveðja,
Morgunblaðskaupandi.
Tapað/fundið
Frakki tekinn
í misgripum
BLÁR ullarfrakki var tek-
inn í misgripum í boði
finnska sendiherrans í Nor-
ræna húsinu 5. desember
sl. Sá sem tók frakkann
getur fengið sinn til baka ef
hann skilar þessum. Upp-
lýsingar í síma 891 8913.
Gleraugu í óskilum
GLERAUGU í grágrænni
umgjörð fundust á göngu-
stígnum rétt við Akraland í
Fossvogi. Upplýsingar í
síma 586 1084 og 699 7005.
Blár Nokia-sími
í óskilum
BLÁR Nokia gsm-sími
með rauðu álímdu hjarta og
appelsínugulum hliðum
fannst við Hamrahlíð sl.
þriðjudag. Eigandi er beð-
inn um að hringja í
694 5192 eða 567 4881.
Dýrahald
Steinar er týndur
SVARTUR 3ja ára fress-
köttur með nokkur hvít hár
framan á hálsi (geldur),
mjög gæfur og mannelsk-
ur, eyrnamerktur R 1113
hvarf frá heimili sínu Jóru-
seli 22, 20. janúar, . Þeir
sem hafa séð hann eða vita
hvar hann er niðurkominn
vinsamlegast hringi í síma
557 6120 eða 845 5715.
Kettlingar fást gefins
TVEIR 9 vikna kettlingar,
fress og læða, fást gefins.
Kassvanir og yndislegir.
Upplýsingar í síma
845 8858 eða 588 9412.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Brúarfoss kemur í
dag.
Fréttir
Fjölskylduhjálp Ís-
lands Eskihlíð 2–4, í
fjósinu við Miklatorg.
Móttaka á vörum og
fatnaði, mánudaga kl.
13–17. Úthlutun mat-
væla og fatnaðar
þriðjudaga kl. 14–17.
Sími skrifstofu er
551 3360, netfang dal-
ros@islandia.is, gsm
hjá formanni 897 1016
Mannamót
Aflagrandi 40. Þorra-
blót verður föstudag-
inn 30. janúar, for-
drykkur,
þorrahlaðborð. Árni
Tryggvason talar fyrir
minni kvenna og Jón-
ína Bjartmarz fyrir
minni karla. Karlakór-
inn Kátir karlar
skemmtir og hljóm-
sveit Marinós Björns-
sonar leikur fyrir
dansi, húsið opnað kl.
17.30, skráning í síma
562 2571 og í af-
greiðslu Aflagranda.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Dansleikur í
kvöld kl. 20. Caprí-tríó
leikur fyrir dansi.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraun-
seli, Flatahrauni 3.
Félagsheimilið er opið
frá 9–17 virka daga.
Félagsstarf eldri
borgara í Mosfellsbæ.
Púttkennsla í Íþrótta-
húsinu Varmá á
sunnudögum kl. 11–
12.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Miðvikudag-
inn 4. febrúar, í há-
deginu þorrahlaðborð
í Kaffi Bergi
skráning hafin, sími
575 7720.
Gullsmári, Gullsmára
13. Þorrablótið verður
laugardaginn 31. jan-
úar, húsið opnað kl.
18. Aðalheiður Magn-
úsdóttir syngur undir
stjórn Guðbjargar
Sigurjónsdóttur,
heimamenn fara með
gamanmál. Happ-
drætti, miðar núm-
eraðir, veislustjóri
Karl V. Matthíasson,
dansað við undirleik
við undirleik Viðars
Jónssonar. Miðasala
fimmtudaginn 29. og
föstudaginn 30. janúar
milli kl. 9 og 17.
SVDK Hraunprýði,
aðalfundurinn verður
haldinn í húsi deild-
arinnar, Hjallahrauni
9, föstudaginn 30. jan-
úar kl. 19.
Í stað kaffiveitinga
verður heitur matur
ásamt þorramat.
Venjuleg aðalfund-
arstörf. Athugið
breyttan fundardag og
tíma.
Kvenfélag Árbæj-
arsóknar, aðalfundur
félagsins verður hald-
inn mánudaginn 2.
febrúar kl. 20, í safn-
aðarheimilinu við
Rofabæ, venjuleg að-
alfundarstörf, léttar
veitingar í boði félags-
ins. Rætt um framtíð
félagsins.
NA (Ónefndir fíklar)
Neyðar- og upplýs-
ingasími 661 2915.
Opnir fundir kl. 21 á
þriðjudögum í Héðins-
húsinu og á fimmtu-
dögum í KFUM&K,
Austurstræti.
Minningarkort
Minningarkort
Hjartaverndar fást á
eftirtöldum stöðum á
Vesturlandi: Akranes:
Hagræði hf., Borg-
arnes: Dalbrún,
Brákabraut 3. Grund-
arfjörður: Hrannarbúð
sf., Hrannarstíg 5.
Stykkishólmur: Hjá
Sesselju Pálsd., Silf-
urgötu 36. Ísafjörður:
Póstur og sími, Að-
alstræti 18. Stranda-
sýsla: Ásdís Guð-
mundsd. Laugarholti,
Brú.
Minningarkort
Hjartaverndar fást á
eftirtöldum stöðum á
Norðurlandi: Ólafs-
fjörður: Blóm og
Gjafavörur Aðalgötu
7. Hvammstangi:
Verslunin Hlín
Hvammstangabraut
28. Akureyri: Bókabúð
Jónasar Hafnarstræti
108, Möppudýrin
Sunnuhlíð 12c. Mý-
vatnssveit: Pósthúsið í
Reykjahlíð. Húsavík:
Blómasetrið, Héðins-
braut 1, Raufarhöfn:
Hjá Jónu Ósk Péturs-
dóttur, Ásgötu 5.
Styrktarfélag krabba-
meinssjúkra barna.
Minningarkort eru af-
greidd í s. 588 7555 og
588 7559 á skrifstofu-
tíma. Gíró- og kred-
itkortaþjónusta.
Samtök lungnasjúk-
linga. Minningarkort
eru afgreidd á skrif-
stofu félagsins í Suð-
urgötu 10 (bakhúsi) 2.
hæð, s. 552 2154.
Skrifstofan er opin
miðvikud. og föstud.
kl. 16–18 en utan
skrifstofutíma er sím-
svari. Einnig er hægt
að hringja í s.
861 6880 og 586 1088.
Gíró- og kred-
itkortaþjónusta.
Heilavernd. Minning-
arkort fást á eft-
irtöldum stöðum: í s.
588 9220 (gíró) Holts-
apóteki, Vesturbæj-
arapóteki, Hafn-
arfjarðarapóteki,
Keflavíkurapóteki og
hjá Gunnhildi Elías-
dóttur, Ísafirði.
Í dag er sunnudagur 25. janúar,
25. dagur ársins 2004, Pálsmessa.
Orð dagsins: Drottinn, leið mig
eftir réttlæti þínu sakir
óvina minna, gjör sléttan veg
þinn fyrir mér.
(Sl. 4, 9.)
Vandamálið við reglursem eiga að koma í
veg fyrir ólöglegt sam-
ráð og einokun er að oft
koma þær í veg fyrir
aukna samkeppni og
hefta framgang við-
skiptalífsins, segir Sig-
þrúður Ármann í pistli á
vef Verslunaráðs. „Laga-
og reglugerðagleði
stjórnvalda, sem komið
er á í góðri trú, getur
svo auðveldlega snúist
upp í andhverfu sína. Við
skulum hafa það hugfast
að í dag er ekki óheimilt
að vera með markaðs-
ráðandi stöðu,“ segir
hún. „Besta leiðin til
þess að koma í veg fyrir
að fyrirtæki misnoti
markaðsráðandi stöðu er
að tryggja aðgengi nýrra
aðila inn á markaðinn.
Þannig að um leið og
fyrirtæki hyggst misnota
aðstöðu sína skapast
tækifæri fyrir nýja aðila
til að fara í samkeppni.
Lykilatriðið er því að
markaðurinn hér á landi
sé opinn.“
Sigþrúður segir hvergimeiri hömlur á beina
erlenda fjárfestingu inn-
an OECD en á Íslandi.
Auka þurfi möguleika
útlendinga á fjárfest-
ingum hér á landi. „Með
auknu frelsi í viðskiptum
eru nú að keppa 8–10
hópar fjárfesta á ólíkum
sviðum en áður voru hér
aðeins tveir hópar fjár-
festa. Ef rétt er á málum
haldið getum við séð fyr-
ir að innan 5–10 ára
verði hér starfandi 15–
20 hópar öflugra fjár-
festa, innlendra og er-
lendra, sem munu fjár-
festa hér á ýmsum
sviðum og keppa inn-
byrðis og stuðla þannig
að aukinni samkeppni og
bættum lífskjörum heim-
ilanna í landinu.“
Hún segir menn líta áþað misjöfnun aug-
um hvort Íslendingar
eigi að bera sig saman
við Bandaríkin og fleiri
lönd sem sett hafi lög
gegn hringamyndun.
„Það getur verið vafa-
samt fyrir svo fámenna
þjóð að taka löggjöf
stórra þjóða til fyr-
irmyndar. Við þurfum að
huga að okkar sérstöðu,“
segir Sigþrúður. „Lög-
gjöfin má ekki hamla
samruna sem leiðir til
aukinnar hagkvæmni og
lækkunar kostnaðar í at-
vinnulífinu og skilar sér
til viðskiptavinanna.“
Neytendurnir sjálfireru kröfuhörðustu
eftirlitsaðilarnir og ekk-
ert kemur í staðinn fyrir
opið og frjálst markaðs-
hagkerfi. „Loforð hins
opinbera um strangt eft-
irlit getur á hinn bóginn
villt fyrir um á hinum
frjálsa markaði og leitt
til, þegar allt kemur til
alls, verra eftirlits og að-
halds. Íslendingar vilja
vera meðal þeirra þjóða
sem við bestu lífskjör
búa. Við þurfum aukið
frelsi í fjárfestingum
milli landa og almenna
og skýra lagasetningu –
ekki sértæka löggjöf,“
segir Sigþrúður Ármann.
STAKSTEINAR
Fjölgun öflugra fjár-
festa á Íslandi
LÁRÉTT
1 slyngir, 4 galdra, 7
vindhviðum, 8 kvendýrið,
9 samkoma, 11 ójafna, 13
röskur, 14 rækta, 15 bera
illan hug til, 17 geð, 20
stefna, 22 truflar, 23
svikull, 24 gripdeildin, 25
heyið.
LÓÐRÉTT
1 versna, 2 bert, 3 sterk,
4 gangur, 5 óvildin, 6
hinn, 10 hættulaust, 12
vætla, 13 frostkemmd, 15
höfuðföt, 16 blást-
urshljóðfærið, 18 for-
ræði, 19 skepnurnar, 20
tímabilið, 21 autt.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 handaskol, 8 skráp, 9 golan, 10 ugg, 11 kækur,
13 sefur, 15 svell, 18 slúta, 21 átt, 22 lagið, 23 aftan, 24
harðfisks.
Lóðrétt: 2 afrek, 3 dapur, 4 seggs, 5 oflof, 6 ósek, 7
knár, 12 ull, 14 ell, 15 sýll, 16 eigra, 17 láðið, 18 stapi, 19
úrtak, 20 asni.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html