Morgunblaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 46
UMRÆÐAN
46 SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HEITA má, að algert frelsi ríki nú
í viðskiptum hér á landi, bæði innan
lands og í milliríkjaviðskiptum.
Fjármagnsflutningar hafa einnig
verið gefnir frjálsir. Margir vilja
eigna sér þetta frelsi.
En hvaða stjórn-
málaflokkar og stjórn-
málamenn eiga
stærsta þáttinn í því að
þetta frelsi komst á?
Þeirri spurningu verð-
ur svarað í þessari
grein.
Gylfi Þ. hóf starfið
Í viðreisnarstjórn Al-
þýðuflokksins og Sjálf-
stæðisflokksins 1959–
1971 var Gylfi Þ. Gísla-
son viðskiptaráðherra
og beitti sér fyrir frjálsræði í inn-
flutningsversluninni. Hann hóf af-
nám innflutningshafta og hafði um
það náið samráð við samtök innflytj-
enda og iðnrekenda. Gylfi gaf frjáls-
an innflutning á öllum mikilvægustu
vörutegundum að landbún-
aðarvörum undanskildum.
Aðild að EFTA
Gylfi Þ. Gíslason beitti sér einnig
fyrir aðild Íslands að EFTA, Frí-
verslunarsamtökum Evrópu 1970.
Olli það mál miklum deilum á Al-
þingi. Alþýðubandalagið og Fram-
sókn voru á móti aðildinni en Gylfa
tókst að koma málinu í gegnum
þingið, m.a. með því að fá 10 ára að-
lögunartíma fyrir niðurfellingu tolla
á iðnaðarvörum og með því að fá
stofnaðan iðnþróunarsjóð til stuðn-
ings íslenskum iðnaði. Aðild Íslands
að EFTA var mjög stórt skref í við-
skiptasögu Íslands og alger for-
senda fyrir aðild Íslands að EES síð-
ar. Ef Ísland hefði ekki gengið í
EFTA hefði ekkert orðið úr aðild Ís-
lands að EES og þeirri frelsisvæð-
ingu, sem það hafði í för með sér.
Jón Baldvin kom okkur í EES
Það kom síðan í hlut Jóns Baldvins
Hannibalssonar, for-
manns Alþýðuflokksins
og utanríkisráðherra,
að koma Íslandi í EES.
Sjálfstæðisflokkurinn
var í fyrstu á móti því
að Ísland gerðist aðili
að EES og vildi fremur
að Ísland gerði tvíhliða
samning við Evrópu-
sambandið. Framsókn-
arflokkurinn greiddi
nær allur atkvæði á
móti aðild að EES.
Enginn þingmaður
Framsóknar greiddi
atkvæði með aðild. Þrátt fyrir mikla
andstöðu í þinginu barðist Jón Bald-
vin hatrammlega fyrir aðild Ísland
að EES og hafði sigur í málinu. Með
aðild að EES samþykkti Ísland
frelsin fjögur, frjálsræði á sviði
vöruviðskipta, fjármagnsflutninga,
vinnuaflsflutninga og þjónustuflutn-
inga og fullt frelsi fyrir fyrirtæki til
þess að starfa hvar sem er á svæði
EES. Það er vegna EES-samnings-
ins, sem frelsi ríkir á sviði viðskipta
og atvinnulífs á Íslandi í dag. Ef
Sjálfstæðisflokkurinn hefði mátt
ráða væri Ísland ekki aðili að þess-
um samningi í dag.
Jón Sigurðsson hóf
afnám útflutningshafta
Það kom í hlut Jóns Sigurðssonar,
viðskiptaráðherra Alþýðuflokksins,
að hefja afnám útflutningshafta.
Sjálfstæðisflokkurinn hafði staðið
dyggan vörð um útflutningshöft um
langt skeið og Ólafur Thors hafði
komið á einokun SÍF við útflutning á
saltfiski. Það mátti enginn hreyfa við
þessu einokunarkerfi. Talsmenn
Sjálfstæðisflokksins sögðu, að algert
öngþveiti mundi skapast ef útflutn-
ingur yrði gefinn frjáls. Jón Sigurðs-
son hóf sem viðskiptaráðherra að
losa um útflutning á freðfiski. Jón
Baldvin lauk síðan sem utanrík-
isráðherra því verki, gaf útflutning á
saltfiski frjálsan og allan útflutning
á íslenskum sjávarafurðum, sem
ekki var þegar áður orðinn frjáls.
Þessar breytingar urðu til mikilla
bóta. – Það kom í hlut Jóns Sigurðs-
sonar að gefa fjármagnsflutninga
frjálsa í samræmi við EES-
samninginn.
Hlutur Alþýðuflokksins
er stærstur
Af framangreindu er ljóst, að Al-
þýðuflokkurinn átti stærsta þáttinn í
því að innleiða það viðskiptafrelsi,
sem nú ríkir hér á landi. For-
ustumenn Alþýðuflokksins, þeir
Gylfi Þ. Gíslason, Jón Baldvin
Hannibalsson og Jón Sigurðsson,
komu þessu viðskiptafrelsi á. Það er
þess vegna hlálegt þegar sjálfstæð-
ismenn eru að eigna sér þetta við-
skiptafrelsi. Sjálfstæðisflokkurinn
hefur alltaf dregið lappirnar, þegar
auka hefur átt viðskiptafrelsi. Sjálf-
stæðisflokkurinn var í fyrstu á móti
aðild að EES og hann var á móti af-
námi útflutningshafta.
Hverjir eiga stærsta þáttinn
í viðskiptafrelsinu?
Björgvin Guðmundsson
fjallar um viðskiptafrelsi ’Það er þess vegna hlá-legt þegar sjálfstæðis-
menn eru að eigna sér
þetta viðskiptafrelsi. ‘
Björgvin Guðmundsson
Höfundur er viðskiptafræðingur.
MÉR hafa borist í hendur upplýs-
ingar frá Heilbrigðis og trygginga-
málaráðuneytinu að árið
2003 hafa 9.5 miljörðum
verið varið til öldr-
unarmála. Samkvæmt
riti Hagstofu Íslands
„Félags og heilbrigð-
ismál 1991-2000“ eru
öldrunarmál dregin út
sér og landlæknisemb-
ættið hefur einnig gert
slíkt. Slík skipting með
tilliti til fjármögnunar
hefur aldrei birst í tölum
frá OECD.
Í frumvarpi til fjár-
laga 2004 kemur skýrt í
ljós að öldrunarstofnanir
er nær undartekningarlaust færðar
undir heilbrigðismálaráðuneytið en
ekki að hluta til eða að mestu leyti
undir félagsmálaráðuneyti eins og
gert er í OECD ríkjum. Ekki eru
öruggar tölur yfir þá prósentulækk-
un sem orðið hefði á heildarkostnaði
heilbrigðisþjónustu ef
öldrunarmál yrðu
færð undir félags-
málaráðuneyti. Sam-
kvæmt tölum þjóð-
hagsstofnunar sálugu
á árunum frá 1999
var sú tala 1.5% af
vergi landsfram-
leiðslu sem sam-
kvæmt reiknishaldi
OECD þjóða (Econo-
mic survey 1993) er
færð undir félags-
málakostnað. Sam-
kvæmt þessu reikn-
ishaldi má reikna með
að heildargjöld íslendinga til heil-
brigðismála séu um 8,2-8,3% af vergi
landsframleiðslu en ekki 9.2 – 9.4%.
Þetta hlutfall er því svipað og með-
alkostnaður OECD ríkja og hefur
haldist óbreytt í mörg ár. Í kjölfar
fjárlagaumræðunnar á Alþingi í ár
var mjög flaggað heildartölum um
heilbrigðiskostnað og talað um að á
Íslandi væri sú þjónusta dýrust!
Álykta má að sú umræða hafi óbeint
valdið þeim sparnaðatillögum t.d.
varðandi útgjaldalækkun Landsspít-
ala í ár. Menn ættu því að kynna sér
betur reikninga Þjóðhagsstofnunnar
sálugu lesa fjárlögin ítarlegar og
skoða niðurstöður hagfræðinga
OECD er skrifuðu heftið Economic
Suvey fyrir Íslandi 1993. Auðsýni-
lega hefur engu verið breytt í fjár-
mögnun heilbrigðisþjónustunnar frá
1993 samanber fjárlög 2004 um út-
gjöld heilbrigðismálaráðuneytisins
til öldrunarmála bls. 379. Slík út-
gjöld er ekki að finna á blaðsíðum
Félagsmálaráðuneytisins í því riti.
Rangfærslur
leiðréttar enn á ný
Ólafur Ólafsson skrifar um
stuðning við aldraða ’Auðsýnilega hefurengu verið breytt í fjár-
mögnun heilbrigð-
isþjónustunnar frá
1993.‘
Ólafur Ólafssonfyrrver-
andi Landlæknir
Höfundur er fyrrverandi
landlæknir.
Álfatún 21 - 200 Kópavogi
Opið hús
Opið hús í Álfatúni 21, Kópavogi, í dag, sunnudag, milli kl. 15:00 og
17:00, Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir á bjöllu. Vorum að fá sérstaklega
glæsilega 153 fm íbúð með 22 fm bílskúr og afgirtri verönd. Rúmgóð
stofa, borðstofa, sjónvarpshol og fjögur svefnherbergi. Parket og
flísar á gólfum. Eignin er mikið endurnýjuð með nýuppgerðu baðher-
bergi. Stór og mikil sameign. Eign á eftirsóttum stað með fallegu út-
sýni yfir Fossvoginn. Verð 20,9 millj. 6079
Nánari uppl. gefur Böðvar Reynisson, sölumaður í s. 694 1401.
Laugavegi 170, 2. hæð.
Opið virka daga kl. 8-17.
Sími 552 1400 Fax 552 1405
www.fold.is fold@fold.is
70 íbúðir
2ja, 3ja og 4ra herbergja.
Erum að leita að sjötíu 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðum á
höfuðborgarsvæðinu fyrir opinberan aðila. Staðgreiðsla í boði fyrir
réttar eignir. Skoðun og kaup ganga mjög hratt fyrir sig. Áhuga-
samir hafi samband við sölumenn Foldar fasteignasölu.
Netfang: kjoreign@kjoreign.is
Heimasíða: www.kjoreign.is
Sími 533 4040 • Fax 533 4041
Opið í dag frá kl. 12-14
TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA
Ármúla 21 • Reykjavík
jöreign ehf
Dan V.S. Wiium hdl.,
lögg. fasteignasali
Erlendur Davíðsson,
lögg. fasteignasali
Hákon R. Jónsson,
sölumaður
Ólafur Guðmundsson
sölustjóri,
2JA HERB.
SEILUGRANDI - M/BÍLSKÝLI. Rúmgóð 66 fm 2ja herb. íbúð á 1. hæð með
sérinngangi. Suðursvalir. Stæði í saml. bílskýli. ATH. LAUS STRAX. Áhv. húsbréf 6,2
millj. Verð 10,9 millj. Nr. 3581
3JA HERB.
DÚFNAHÓLAR. Mikið endurnýjuð og góð 3ja herb. íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi. Ný
eldhúsinnr., beikiparket. Suðursvalir. Áhv. húsbréf 6,2 millj. Verð 11,8 millj. Nr. 3675
4RA HERB.
MIÐLEITI - ELDRI BORGARAR. Vorum að fá í einkasölu á þessum vinsæla
stað 111 fm íbúð ásamt 10 fm sólskála. Rúmgóðar stofur, tvö svefnherbergi, sérþvotta-
hús. Bílgeymsla. Suðurverönd. Mikil og góð sameign, þ.e. húsvarðaríbúð, matsalur, hár-
og snyrtistofa, líkamsræktarsalur og sauna. HÚSVÖRÐUR. Verð 23,8 millj. nr. 3627
RAÐ- OG PARHÚS
EFRA BREIÐHOLT - M/BÍLSKÚR. Mjög gott 135 fm einnar hæðar rað-
hús ásamt 22 fm sérbyggðum bílskúr. Vel staðsett hús í efstu röð. Húsið er í góðu
ástandi. Suðurlóð. Verð 17,9 millj. nr. 4033
EINBÝLI
BUGÐUTANGI Glæsilegt hús, vel staðsett í Mosfellsbæ. Innb. bílskúr. Fallegur
garður með heitum pott. Hús í góðu ástandi. Verð 37,0 millj.
VEITINGAMENN - ATHAFNAMENN
Lágmúla 9, 6. hæð • Sími 533 1122 • Fax 533 1121
Vorum að fá í sölu rekstur á sportbar (veitingastað),
sem er í einu stærsta hverfi borgarinnar. Fallegar
innréttingar, sjónvörp, breiðtjöld og poolborð. Öll tæki
og innréttingar fylgja með í kaupunum.
Langtímaleigusamningur er á eigninni.
Góður tími framundan: Meistaradeildin og
Ólympíusumar.
Nánari upplýsingar veitir Þröstur í síma 533 1122
eða 897 0634.
FYRIRTÆKI TIL SÖLU
www.fyrirtaekjasala.is
FYRIRTÆKJASALA
ÍSLANDS
Síðumúla 15 • Sími 588 5160
Gunnar Jón Yngvason
lögg. fasteigna- og fyrirtækjasali