Morgunblaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 48
FRÉTTIR
48 SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FYRSTU fjarnemar Tækniháskóla
Íslands (THÍ) mættu í skólann á
dögunum til að kynnast tækninni og
kennurum sínum. Hér er um að
ræða tilraunaverkefni þar sem boðið
er upp á iðnfræði, 45 eininga
diplómanám fyrir iðnaðarmenn með
sveinspróf. Tæplega fjörutíu nem-
endur, víða af landinu munu stunda
fjarnámið, flestir frá Austurlandi og
Vestmannaeyjum. Nemendur munu
útskrifast með starfsheitið „iðnfræð-
ingur“.
Þetta er í fyrsta skipti sem THÍ
býður upp á fjarnám, en mikil eft-
irspurn hefur verið eftir náminu, þar
sem margir iðnaðarmenn bæði í
Reykjavík og á landsbyggðinni eiga
erfitt með að fara að heiman til náms
þegar þeir eru komnir inn á vinnu-
markaðinn. Tekist hefur mjög gott
samstarf við Fræðslunet Austur-
lands og Visku, fræðslu- og símennt-
unarmiðstöð Vestmannaeyja, í
tengslum við kynningu á fjarnáminu
og þeim tækifærum sem það býður
uppá. Í framtíðinni er svo gert ráð
fyrir að efla fræðslustarfið víðar um
land og hefja fjarkennslu að fullu
næsta haust.
Betra en að þurfa í bæinn
Gylfi Bragason, einn af nemend-
um í námskeiðinu sem eru búsettir í
Vestmannaeyjum, segir að sér lítist
mjög vel á námið. „Það er fínt að
geta lært þetta í fjarnámi og geta
unnið á meðan,“ segir Gylfi. „Þetta
kemur sér mjög vel fyrir mig, það er
miklu betra en að þurfa að fara í bæ-
inn. Þeir eru enn að koma þessu öllu í
gang, svo maður er að átta sig á
þessu öllu saman. Ef maður skipu-
leggur sig á það að vera minnsta mál.
Maður getur alltaf verið í sambandi
við kennarana í gegnum Netið.“
Bjarki A. Brynjarsson, deildarfor-
seti tæknideildar THÍ segir aðsókn-
ina hafa verið framar björtustu von-
um. „Upprunalega áttu þetta að vera
um 10–15 manns í hópnum, en að-
sóknin er búin að vera slík að við er-
um með tæplega 40 manna hóp,“seg-
ir Bjarki og bætir við að menn taki
afar vel í þessa nýbreytni skólans.
„Þetta eru iðnaðarmenn sem
kannski hafa að vissu leyti lokast af
frá menntun vegna þess að framboð
á háskólamenntun sem hentar þeirra
bakgrunni hefur ekki verið til staðar.
Þarna hafa þeir hins vegar tækifæri
til að bæta við sig. Þetta er sett upp
sem nám með vinnu, svo þeir þurfa
ekki að slíta sig frá vinnunni. Það er
erfitt að setjast á skólabekk þegar
menn eru farnir að vinna.
Ný könnum á vegum SI sýnir svo
ekki verður um villst að mikil þörf er
á fjöglun tæknifólks hér á landi.
Þessar tölur staðfesta niðurstöður
OECD sem hafa sýnt að hér er hlut-
fallslegur fjöldi nemenda lítill í
tæknigreinum á háskólastigi.
Það er markmið Tækniháskóla Ís-
lands að vera í farabroddi hvað varð-
ar að bjóða hagnýtt tækninám fyrir
nemendur með margvíslegan bak-
grunn. Með öflugri frumgreinadeild
getum við boðið þeim sem ekki hafa
stúdentspróf leið inn í háskóla og
einnig erum við nú að gera tilraun
með að samtvinna undirbúningsnám
háskólanámi í iðnfræði. Þessi leið
opnar iðnaðarmönnum ný tækifæri
til þess að ljúka háskólanámi.“
Góð tækifæri fyrir iðnaðar-
menn á landsbyggðinni
Finnbjörn Hermannsson, formað-
ur Samiðnar, sambands iðnfélaga,
fagnar þessu nýja námsframboði
Tækniháskólinn býður
fjarnám í iðnfræði
Morgunblaðið/Jim Smart
Bjarki Brynjarsson og Kristján Kristjánsson, sviðsstjóri tölvu- og upplýs-
ingatæknisviðs, fara yfir tölvumálin með fjarnemendum á sérstökum
starfsdegi, þar sem nemendum var kynnt námið og ferli þess.
Áhugasamir fjarnemendur í iðnfræði: Þetta nýja nám hefur mælst mjög vel fyrir hjá iðnaðarmönnum um land allt.
Frábært tækifæri fyrir iðnaðarmenn á landsbyggðinni –
skref í rétta átt hvað varðar háskólamenntun iðnaðarmanna
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-16
FÁLKAHÖFÐI 4 - MOSÓ
Sigríður og Þorsteinn taka á móti
áhugasömum og sýna mjög góða
123.1 fm íbúð á 2. hæð í mjög góðu
fjölbýli í Mosfellsbænum. Þvottahús í
íbúðinni. Hjólageymsla og sér-
geymsla í sameign. Sérlega vönduð
eign í alla staði. Esjan í eldhúsglugg-
anum. Verð 16,5 millj.
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
BERGSTAÐASTRÆTI 56 -
HÆÐ OG RIS - LAUST 1. APRÍL
Sérlega sjarmerandi, mjög björt
og vel skipulögð 123,3 fm íbúð í
þríbýli, sem er hæð og ris. Á
hæðinni eru tvær samliggjandi
stofur, rúmgott eldhús með nýrri
innréttingu úr hlyn, baðherbergi
flísalagt, ný innrétting og baðkar.
Tvö stór og rúmgóð svefnher-
bergi. Á efri hæð er 21,1 fm svefnherbergi, nýtt sem vinnustúdíó
með fallegu útsýni. Það eru falleg furuborð á gólfum. Sérgeymsla
og þvottahús í kjallara. Búið er að endurídraga rafmagn og endur-
nýja rafmagnstöflu, járn á þaki 10 ára. Verð 17,9 millj. áhv. 4,9 millj.
Kristín tekur á móti ykkur í dag frá kl. 13 - 15
TUNGUVEGUR 80 - RAÐHÚS
Mjög gott og bjart 130,5 fm rað-
hús á 3 hæðum. Búið er að end-
urn. heita- og kaldavatnslagnir
inn í húsið. Þak og þakgluggar er
nýl. endurnýjað. Eldh. m. hvítlakk-
aðri innr. 4 góð svefnh., góð stofa
með útg. í garð, baðh. flísar í hólf
og gólf, baðkar, gólfefni eru park-
et, dúkur og flísar. Áhv. 7,3 millj. Verð 15,3 millj.
Jón og Theódóra taka á móti ykkur í dag frá kl. 14.00-16.00.
Opin hús
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Glósalir 14 - opið hús
Upplýsingar á Valhöll fasteignasölu,
sími 588 4477.
Nánari upplýsingar veitir Bárður
Tryggvason, sölustjóri, gsm. 896-5221.
Til sýnis í dag stórglæsilegt 191 fm raðhús
á tveimur hæðum m. innbyggðum bílskúr.
Húsið er fullbúið á sérlega vandaðan hátt
m. sérsmíðuðum innréttingum. 4 svefnherb,
tvö stórglæsileg baðherbergi. Eldhúsið er
sérlega glæsil. með stórri glæsil.
innréttingu. Parket og flísar á gólfum.
Stórar suðvestursvalir. Glæsilegt útsýni.
Þetta er hús í algjörum sérflokki.
Verð 30 millj. Kolbeinn sýnir húsið í dag
milli kl. 14 - 17. Allir velkomnir.
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Uppl. veitir Magnús Gunnarsson,
sölustjóri atvinnuhúsnæðis.
magnus@valholl.is sími 588 4477 gsm 822 8242
Vegna aukinnar eftirspurnar vantar okkur á söluskrá allar
stærðir og gerðir atvinnuhúsnæðis
Höfum einnig kaupendur að atvinnuhúsnæði
með góðum langtímaleigusamningum
á verðbilinu 30-300 milljónir og 500-1.000 milljónir.
Um er að ræða trausta og örugga kaupendur.
Er með mjög traustann kaupanda að atvinnuhúsnæði á
verðbilinu 500-600 milljónir. Mjög öruggar greiðslur.
Verður að vera langtímaleigusamningur.
EIGENDUR ATVINNUHÚSNÆÐIS
Við hjá Valhöll leggjum áherslu á góða þjónustu,
heiðarleika og vönduð vinnubrögð.
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Vegna skipulagsbreytinga eigum
við eftirfarandi til ráðstöfunar í
þessu glæsilega húsi.
2. Hæð framhús. samtals 336 fm. Skrifstofur
í toppstandi, gott lyftuhús, glæslegt útsýni
yfir Laugardalinn.
Húsnæðið uppfyllir allar kröfur til nútíma
skrifstofureksturs.
Eignin er í eigu Landsafls, sem er öflugt
sérhæft fasteignarfélag.
Sanngjörn og hagstæð leiga fyrir rétta aðila.
Uppl. veitir Magnús Gunnarsson, s. 588 4477 eða 822 8242.
Suðurlandsbraut - til leigu