Morgunblaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 67
AUÐLESIÐ EFNI
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 2004 67
TVEIMUR mönnum af bátnum
Sigurvin GK, sem hvolfdi í
innsiglingunni að
Grindavíkurhöfn rétt fyrir
hádegi á föstudag, var bjargað
um borð í gúmmíbát
björgunarsveitarinnar
Þorbjarnar í Grindavík.
Björgunarsveitin fékk
tilkynningu um að Sigurvin
hefði hvolft klukkan rúmlega
ellefu um morguninn og fór
strax á staðinn á
björgunarskipinu Oddi V.
Gíslasyni og gúmmíbátnum
Hjalta Frey.
Fljótlega tókst að bjarga
öðrum skipverjanum sem hélt
sér í björgunarbát Sigurvins
rétt við brimgarðinn.
Björgunarmennirnir komu
honum í land og fóru síðan
aftur út til að ná í hinn
skipverjann sem hafði lent í
sjónum er bátnum hvolfdi.
Báðir mennirnir voru í
björgunarvestum og telja
björgunarmenn þeirra að það
hafi haft mikið að segja.
Mennirnir voru orðnir mjög
þrekaðir og kaldir er þeim var
bjargað og voru þeir strax
fluttir til Reykjavíkur á
sjúkrahús.
Mikið brim var í
innsiglingunni er Sigurvin
hvolfdi. Fólk sem var í landi og
sá slysið segir að báturinn
hafi farið „kollhnís“ og endað
á hvolfi. Við það hafi annar
maðurinn farið í sjóinn en
hinum tókst að halda sér
einhverja stund um borð í
bátnum. Hann reyndi síðan að
komast um borð í gúmmíbát
en hékk utan í honum þegar
hann bjargaðist.
Morgunblaðið/RAX
Sigurvin GK rak upp í brimgarðinn en mönnunum var bjargað úr sjónum.
Tveimur mönnum
bjargað úr sjónum
ÍSLANDSMEISTARALIÐ
ÍBV í kvennahandbolta
sigraði Etar frá Búlgaríu
tvívegis í
Vestmannaeyjum í
áskorendakeppni Evrópu
og er ÍBV komið áfram í
16 liða úrslit keppninnar.
Í fyrsta leiknum hafði
ÍBV gríðarlega yfirburði
og vann 38:16. Í síðari
leiknum ákvað þjálfari
ÍBV, Aðalsteinn
Eyjólfsson, að tefla fram
yngri leikmönnum ÍBV að
mestu í leiknum og þann
leik vann Etar með einu
marki 18:17. ÍBV mun
leika gegn franska liðinu
LeHavre í 16 liða
úrslitum keppninnar.
Guðbjörg
Guðmannsdóttir,
hornamaður ÍBV, sagði
við Morgunblaðið eftir
leikina tvo við Etar að
það hefði komið á óvart
hve slakt búlgarska liðið
var í raun og veru.
„Við höfðum séð
myndband af leik þeirra
og þær virkuðu mjög
snöggar og erfiðir
andstæðingar en svo
rúlluðum við bara yfir
þær,“ sagði Guðbjörg.
Fyrri leikur ÍBV gegn
franska liðinu LeHavre í
16 liða úrslitunum fer
fram í Le Havre, sem er
hafnarborg á
Ermarsundsströnd
Frakklands, 14. eða 15.
febrúar og sá síðari
verður í Vestmannaeyjum
viku síðar.
ÍBV með
yfirburði
gegn EtarNORSK prinsessa fæddist ámiðvikudagsmorgun. Þetta er fyrsta
barn Hákonar krónprins og
Mette-Marit eiginkonu hans.
Stúlkubarnið mun hljóta nafnið
Ingiríður Alexandra (Ingrid
Alexandra). Hákon tilkynnti það á
sérstökum ríkisráðsfundi.
Litla stúlkan fæddist á
Ríkissjúkrahúsinu í Ósló klukkan
rúmlega átta á miðvikudagsmorgun
að íslenskum tíma. Hún er næst á
eftir föður sínum til ríkiserfða í Noregi
og gæti því dag einn orðið fyrsta
drottningin í Noregi frá því Margrét I
ríkti þar í lok 14. aldar og í byrjun
þeirrar 15.
Prinsessan verður skírð í höfuð
langafa síns og langömmu. Alexander
prins fæddist í Bretlandi árið 1903 en
hann varð Ólafur krónprins þegar faðir
hans varð konungur árið 1905. Þá hét
föðuramma Mette-Marit Ingrid en hún
lést árið 1978.
Norsk prinsessa er fædd
Reuters
Hákon krónprins tók þessa mynd af hinni nýfæddu prinsessu.
ÁTJÁN sjómenn fórust á
mánudag þegar
flutningaskipi hvolfdi nærri
Björgvin í Noregi. Skipið hét
Rocknes og var að flytja grjót
frá Noregi til Þýskalands. 30
manns voru um borð.
Skipinu hvolfdi skyndilega.
Það var þá á siglingu í
skerjagarðinum aðeins
nokkur hundruð metra frá
landi. Nú hefur verið staðfest
að skipið sigldi á sker áður
en því hvolfdi.
Tólf menn komust lifandi
frá borði. Fjórir hafa fundist
látnir. Fjórtán skipverja er
enn saknað. Þeir hafa verið
taldir af.
REUTERS
Flak Rocknes á strandstað þar sem skipinu hvolfdi.
Sjóslys við Noreg