Morgunblaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 2004 11
ehf. Þeir munu og vera þeirrar skoðunar að
mun færri aðilar hafi áhuga á að eignast Eim-
skip ehf. ef sá kostur stendur ekki til boða að
einn aðili eða einn hópur geti keypt flutninga-
starfsemina í einum bita, farið af markaði með
félagið og gripið til þeirra aðgerða sem honum
eða þeim þykir þörf á. Ef það er rétt mat gæti
það þýtt að lægra verð fengist fyrir félagið en
ella.
Vonir þeirra um að ekki sé öll nótt úti enn
um kaup á félaginu hljóta því að einhverju
leyti að byggjast á því að afstaða stjórnar
Eimskipafélagsins endurspegli ekki endilega
vilja þeirra sem fara með ráðandi hlut í félag-
inu, þ.e. Landsbankans og Samsonsmanna.
Ummæli Björgólfs Guðmundssonar, for-
manns bankaráðs Landsbankans í Háskóla Ís-
lands, á fimmudaginn, virðast ekki sérstak-
lega til þess fallin að styrkja þær væntingar.
Fleiri hafa sýnt áhuga á flutningastarf-
seminni
Fleiri hafa sýnt Eimskip ehf. áhuga en þeir
Kristinn, Sigurður og Jón Pálmasynir, Þor-
steinn og Margeir. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins hafa nokkrir innlendir en líka
erlendir aðilar „spurst fyrir“ eða „lyktað af fé-
laginu“ en í þeim efnum er fátt um gangfæra
slóða að feta sig eftir enn sem komið er.
Aftur á móti hefur annar „hópur“ lýst yfir
áhuga sínum að koma að rekstri flutninga-
félagsins og raunar sýnt þann áhuga í verki
með kaupum á bréfum í Eimskipafélaginu en
nokkrir innan hans teljast þó til innherja og
munu því verða að halda að sér höndum í þeim
efnum. Ætla má að þessi hópur eigi nú á
bilinu 6–8% í Eimskipafélaginu.
Þarna hafa verið nefndir til sögunnar Er-
lendur Hjaltason, núverandi framkvæmda-
stjóri Eimskipafélagsins, faðir hans Hjalti
Geir Kristjánsson, Þórður Magnússon, stjórn-
arformaður Eyris fjárfestingafélags og stjórn-
armaður í Eimskipafélaginu, Hannes Smára-
son, aðstoðarforstjóri Íslenskrar
erfðagreiningar, og loks eignarhaldsfélagið
Saxhóll. Ekki munu allir innan þessa hóps
hafa ræðst sérstaklega við en tengingin milli
þeirra er þó það þétt að eðlilegt er að tala um
hóp. Hann ber þó engan veginn að telja lok-
aðan og alls engan veginn útilokað að fleiri
muni koma inn í hann. Hópurinn hefur ekki
óskað formlega eftir viðræðum um kaup en
hafa „rætt við mann og annan“ og aðilar innan
hans hafa sagt í fjölmiðlum að þeir hafi áhuga
á að koma að rekstri flutningsfélagsins í sam-
starfi við aðra. Ljóst er því að Landsbankinn
veit vel af þessum áhuga.
Sterkt almenningshlutafélag með
nokkra kjölfestufjárfesta
Hugmyndir eða áherslur þessa hóps eru allt
aðrar en þess sem þegar hefur verið fjallað
um og í sem stystu máli vill hann að ca 4–6
kjölfestufjárfestar komi að félaginu en að öðru
leyti verði flutningafélagið áfram almennings-
hlutafélag eins og Eimskipafélagið hefur verið
í níutíu ár.
Hópurinn telur best og skynsamlegast að
stuðla að vexti og viðgangi félagsins innan al-
menningshlutafélagsformsins og það eigi því
áfram að vera skráð á markaði. Þá er og ljóst
að þeir eru þeirrar skoðunar að verulegur ár-
angur hafi þegar náðst í rekstri flutninga-
starfseminnar, grunnreksturinn sé nú kominn
á nokkuð gott ról eftir erfið ár og því sé hægt
að huga að sóknarfærum. Þá munu þeir og
leggja áherslu á að flutningafélagið verði fjár-
hagslega sterkt við stofnun þess og telja ekki
æskilegt fyrir Eimskipafélagið að fá eigendur
að flutningafélaginu sem ekki leggja fram fé
að ráði heldur selji eignir og/eða taki út úr því
fé til þess að standa undir kaupum á því. Við
það fari of mikill kraftur úr félaginu. Eðlilegra
sé að nota þá stöðu sem Eimskip sé að komast
í til að huga að frekari vexti og útrás.
Í þessu sambandi má minna á að í nóv-
ember þegar Erlendur Hjaltason fram-
kvæmdastjóri kynnti níu mánaða afkomu
Eimskips sagði hann að markaðsstaða félags-
ins væri orðin sterk og hagræðing væri byrjuð
að skila sér og að væntingar væru um að
rekstur Eimskips færi batnandi á næstu mán-
uðum og misserum. Menn hefðu sett sér
markmið um 5–10% arðsaman vöxt á ári og að
auka hlutdeildina á íslenska flutningsmark-
aðinum úr 28% í 34% á næstu þremur árum
auk þess að fjárfesta í arðbærum flutningsfyr-
irtækjum erlendis.
Má ætla að þessi framtíðarsýn og markmið
lýsi að miklu eða a.m.k. að einhverju leyti hug-
myndum þessa hóps um framtíð félagsins.
Sölulykt af yfirlýsingum stjórnenda
Eimskipafélagsins
Sumir, þ.m.t. keppinautar Eimskips ehf. á
Íslandi, telja stjórnendur og stjórn Eimskipa-
félagsins vera bjartsýna um of í yfirlýsingum
sínum og ganga jafnvel svo langt að segja að
af þeim sé nokkur sölulykt. Hjá greining-
ardeildum bankanna hafa menn einnig velt
upp þeim möguleika að verið sé að „tala“
verðið á bréfum Eimskipafélagsins upp en
aðrir á þeim vettvangi taka undir það með
stjórnendum félagsins að full ástæða sé til
bjartsýni. Greiningardeildirnar virðast þó al-
mennt sammála um að rekstur flutningastarf-
seminnar hafi batnað mikið. En skoðanir virð-
ast skiptar um framtíðina og eins hvort
Eimskipafélagið standi undir núverandi gengi
eða 8,9.
Upplýsingar um skulda- og þar með eigna-
stöðu flutninga- og fjárfestingarfélagsins
liggja ekki á lausu og því er óhægt um vik að
spá í hvert markaðsvirði flutningafélagsins er.
Sækja ekki aukna markaðshlutdeild
og græða um leið
Skoðanir eru einnig skiptar að því er varðar
aukna hlutdeild Eimskips á innanlandsmark-
aði. Minnt er á að samkeppnin á markaði hér
heima sé hörð, Eimskip ehf. hafi aukið flutn-
ingsmagnið í fyrra en meðalverðið hafi á hinn
bóginn lækkað. Þessar raddir segja útilokað
að Eimskip geti aukið hlutdeild sína á mark-
aðinum verulega eða úr kannski 60% í hátt í
70% nema lenda í gífurlega harðri verðsam-
keppni við keppinautana, Atlantsskip og Sam-
skip. Þetta þýði í reynd að Eimskip geti ekki
sótt aukna markaðshlutdeild og grætt á sama
tíma.
En aftur til nútíðarinnar: hver er staðan
núna og er kannski verið að vinna að sölu á
flutningsfélaginu á bak við tjöldin?
Eftir því sem Morgunblaðið kemst næst
liggja ekki enn fyrir aðskildir efnhagsreikn-
ingar fyrir fjárfestingarfélagið (Burðarás) og
flutningafélagið (Eimskip) og þar af leiðandi
er nær útilokað að ætla að reyna að skjóta á
markaðsverðmæti hvors félags. Eftir á að
skipta skuldum endanlega niður á félögin tvö,
ganga frá ábyrgðum milli þeirra, skattamálum
o.fl. Málin séu því ekki komin á það stig að
raunveruleg samkeppni um sölu á flutninga-
félaginu sé hafin, „málið sé ekki nægjanlega
þroskað“. Þá hefur einnig verið bent á að
hæpið sé að það sé hlutverk fráfarandi stjórn-
ar félagsins að taka ákvarðanir í þeim efnum.
Það hljóti að vera hlutverk þeirra sem nú fara
með ráðandi hluta í Eimskipafélagi Íslands.
Af þessu að dæma virðast málin vera í bið-
stöðu rétt sem stendur en það kann að vera
heldur óvarlegt að ætla að ekkert gerist fyrr
en á aðalfundinum í mars.
tningafélaginu hafin
!
"
#!
$!
%
'!
( &) $!
*!
+,
)
,
-. / #0
*0
10
$0
0
0
20
102
$0*
$0
201
20
0*
"
% +,
0
,
-/
( &)
3-4
5
56 -,
7.5.
$
$
8.5 8.5 . " 9 : ; 8
21
--
.
$
!"
#$%$ #
& !
'
(
%$ ) &
%
'
+%
' ,
$
(
%$ & !
'
(
%$
%$
" - '
.
21
/0"12
/3"04
3"23
3"20
2"54
5"*4
5"60
6"13
6"/5
6"72
/"7*
/"70
7"4/
7"*2
7"03
#202
15327*111
*533*4453
61331**6*
613/33273
/424*7542
/3127/25*
/226*12*3
/6*/74*33
42042040
47314*/6
2*2706*/
2300/011
2761*23/
56460537
62*/07/7
21#=#2#
arnorg@mbl.is
’ Þettaþýði í
reynd að
Eimskip
geti ekki
sótt aukna
markaðs-
hlutdeild
og grætt á
sama
tíma. ‘
Ummæli vikunnar
Morgunblaðið/Sverrir
Sigfús Sigurðsson reynir að hjálpa ung-
verskum leikmanni, sem er á leið út af vell-
inum í landsleik Íslands og Ungverjalands á
fðstudag. Íslendingar hafa nú tapað tveim-
ur fyrstu leikjum sínum á Evrópumótinu í
handknattleik í Slóveníu og þurfa að sigra
Tékka í dag til að komast áfram.
Í hita leiksins
’Bandaríkjastjórn mun aldrei leita eft-ir leyfi til að verja öryggi þjóð-
arinnar.‘George W. Bush Ban daríkjaforseti í stefnuræðu
sinni á þingi.
’Best stæðu aðildarríki [Sameinuðuþjóðanna] eru skiljanlega með allan
hugann við hryðjuverk. [En] SÞ ber
einnig að vernda milljónir meðbræðra
okkar fyrir öllu gamalkunnari ógnum,
fátækt, hungri og banvænum sjúkdóm-
um.‘Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, í ræðu þar sem hann varaði við ofuráherslu á
baráttuna gegn hryðjuverkum.
’Enn frekari fækkun vakta hinnaýmsu starfshópa og deilda dregur úr
öryggi þjónustunnar. ‘Úr greinargerð
Magnúsar Péturssonar , forstjóra Landspítala - há-
skólasjúkrahúss, um sparnaðaraðgerðir spítalans.
’Jákvæð afstaða af hálfu Íslendinga ígarð aukins varnarsamstarfs Evrópu-
sambandsins, sem hefur ekki óvináttu í
garð Bandaríkjanna að leiðarljósi, sam-
rýmist vel því markmiði að samning-
urinn um EES styrkist með stækkun
ESB.‘Björn Bjarnason dómsmálaráðherra fjallaði um
varnarmál á opnum fundi í Norræna húsinu.
’Rithöfundar sitja oft árum samaneinir við tölvuna sína og gluggann.
Þess vegna er auðvitað gott að finna að
skrif manns hafi ratað heim til les-
enda.‘Ólafur Gunnarsson rithöfundur við veitingu Ís-
lensku bókmenntaverðlaunanna fyrir bókina Öxin
og jörðin.
’Fjórða hver kona, sem er í kjör-þyngd, er ósátt við eigin líkamsþyngd
og vill vera grennri. ‘Í nýrri skýrslu Manneldisráðs um mataræði Ís-
lendinga kemur fram að mun fleiri konur vilji
grennast en þurfi þess.
’Það vill enginn sjá nafnið sitt á þess-um síðum.‘Ásgerður Snævarr er ein þriggja stúlkna í 10.
bekk Hagaskóla, sem hafa skorið upp herör gegn
einelti á spjallsíðum á Netinu.
’Þeir voru með mat merktan Bónus,og mjólkurumbúðir, niðursuðudósir og
annað.‘Guðmundur Kr. Kristjánsson , skipstjóri á Skóga-
fossi, lýsir því hvernig þrír laumufarþegar höfðu
komið sér fyrir í skipi hans frá Íslandi til Ný-
fundnalands.
’Við erum feit af því að við borðum ofmikið og hreyfum okkur ekki.‘Kvikmyndagerðarmaðurinn Morgan Spurlock lifði
á skyndibitafæði eingöngu í 30 daga á meðan hann
gerði heimildarmyndina „Ofurstærðin ég“ um
skyndibitaiðnaðinn í Bandaríkjunum og áhrif hans
á heilsufar.
Kristinn Geirsson, Sigurður Gísli og Jón Pálma-
synir, Þorsteinn Vilhelmsson, Margeir Pétursson og
félög á þeirra vegum: Vilja kaupa flutningastarfsemi
Eimskipafélagsins í einu lagi. Markmiðið að taka fé-
lagið af markaði og hagræða verulega í rekstrinum
og gera hann arðsaman.
Erlendur Hjaltason, framkvæmdastjóri Eim-
skipafélagsins, Hjalti Geir Kristjánsson, Þórður
Magnússon, stjórnarformaður Eyris fjárfestinga-
félags og stjórnarmaður í Eimskipafélaginu, Hannes
Smárason, aðstoðarforstjóri Íslenskrar erfðagrein-
ingar, og eignarhaldsfélagið Saxhóll: Vilja 4–6 kjöl-
festufjárfesta að flutningafélaginu. Unnið verði að
frekari vexti bæði á innlendum og erlendum mörk-
uðum en félagið verði áfram almenningshlutafélag.
Ólíkar áherslur