Morgunblaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 2004 31
Það geta ekki allir verið með...
... en þú getur lesið allt um leikina
á EM í íþróttablaði Morgunblaðsins
og á mbl.is
9 Logi Geirsson
FH
16 Birkir Ívar Guðmundsson
Haukar
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
23
44
4
0
1/
20
04
BJÖRGÓLFUR Guðmundsson,
formaður bankaráðs Landsbank-
ans, og forsvarsmenn Kling og
Bang Gallerís skrifuðu í gær und-
ir samstarfssamning um starf-
semi og rekstur listasmiðjunnar
Klink og Bank. Með samningnum
skuldbindur Landsbankinn sig til
að skapa aðstöðu fyrir fjölbreytta
listastarfsemi og Kling og Bang
Gallerí tekur að sér rekstur og
umsjón listasmiðjunnar. Til að
byrja með er áætlað að starfsemi
listasmiðjunnar verði í Hampiðju-
húsinu Þverholti 1 í Reykjavík.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landsbankanum er markmið
Klink og Bank að vera lifandi
vettvangur fyrir listastarfsemi
yngri kynslóða listamanna og
vera jafnframt brú milli ólíkra
listgreina með skapandi sam-
starfi. Listasmiðjan mun leggja
sig fram um að sinna vaxandi
áhuga og skilningi á samtímalist
með margvíslegu kynning-
arstarfi. Klink og Bank vill þann-
ig efla miðborg Reykjavíkur með
lifandi starfi, uppákomum, opinni
umræðu og iðandi lífi.
„Þetta framtak Landsbankans
hefur gríðarlega mikla þýðingu
fyrir listalífið, ekki síst fyrir ungt
listafólk. Bara það að fá vinnuað-
stöðu er gífurlegur stykur fyrir
ungt listafólk. Auk þess sem mjög
mikilvægt er að hægt sé að
þjappa listafólki sem er að vinna
á faglegum nótum saman undir
einum hatti í stað þess að það sé
dreift hingað og þangað um
bæinn, segir Erling Klingenberg
frá Kling og Bang og bætir við:
„mér finnst afar ánægjulegt að
það skuli vera ákveðin vakning
hjá einkageiranum varðandi það
að styrkja menninguna.“
Að sögn Erlings Klingenberg
mun Klink og Bank auglýsa í fjöl-
miðlum núna um helgina eftir
listamönnum til þátttöku í starfi
listasmiðjunnar. „Umsókn-
arfrestur rennur út á miðviku-
daginn kemur og síðan munum
við vinna úr umsóknunum fram
að helgi. Þannig að fljótlega upp
úr næstu helgi ætti listafólkið að
vera komið inn í listasmiðjuna og
geta farið að vinna að list sinni.“
Erling áætlar að í Hampiðjuhús-
inu verði pláss fyrir a.m.k. 20–30
vinnustofur fyrir myndlist-
armenn, auk þess sem hljóm-
sveitir munu eiga kost á æf-
ingaaðstöðu.
Í framtíðinni verður að sögn
Erlings leitast við að opna vinnu-
umhverfi listamanna fyrir al-
menning með það að markmiði að
auka skilning fólks á nútíma
listastarfsemi. „Við stefnum að
því að vera mjög reglulega með
ýmsar uppákomur. Svo er hug-
myndin að vera með nokkurs
konar opið hús alla vegna tvisvar
á ári þar sem við opnum bæði
vinnustofur og æfingapláss fyrir
almenning.“
Orgelkvartettinn Apparat flutti
verkið Stylofónía við undirskrift-
ina í gær en verkið var spilað
með sérstökum pennum.
Morgunblaðið/Jim Smart
Frá undirritun samstarfssamningsins. Fremst má sjá Nínu Magnúsdóttur og Björgólf Guðmundsson. Í bakgrunni
eru Sigurjón Þ. Árnason, Halldór J. Kristinsson, Erling Klingenberg, Kristinn Már Pálmason, Hekla Dögg Jóns-
dóttir og Viðar Hákon Gíslason.
Gífurlegur styrkur fyrir ungt listafólk
LISTAMAÐURINN Ólafur Elí-
asson hefur haft nóg að gera
undanfarið. En eftir sýninguna
Verkefni um veðrið eða Weather
Project í Tate Modern safninu í
London í haust og sýninguna
Frostvirkni eða Frost Activity,
sem opnuð var í Listasafni
Reykjavíkur, Hafnarhúsi, um
síðustu helgi hefur Ólafur nú
haldið til Noregs þar sem sýning
á verkum hans var opnuð í gær í
Astrup Fearnley safninu í Ósló.
Sýningin í Astrup Fearnley
safninu nefnist Colour memory
and other informal shadows,
sem útleggja mætti sem Lita-
minni og aðrir óformlegir skugg-
ar, og er ljósið þar í aðalhlut-
verki. En líkt og segir í
fréttatilkynningu frá safninu þá
hefur ljósinu oft verið lýst sem
mikilvægasta efnivið Ólafs, þar
sem það sé ekki áþreifanlegt og
geti framkallað ólíka stemmn-
ingu.
Meðal verka sem þar eru sýnd
má nefna Room for one colour,
sem samanstendur af áköfu ein-
tíðni gulu ljósi þar sem verkið er
látið vinna með arkitektúrnum
og hafa áhrif á hugan. Önnur
verk á sýningunni hafa hins veg-
ar sum skúlptúrlíka eiginleika
og má nefna 360* Room for all
colours - þar sem safngestum er
boðið inn í hringlaga innsetningu
þar sem rými og dýptarsýn virð-
ist taka sífelldum breytingum
fyrir tilstilli breytinga á lýsing-
unni.
Ólafur Elías-
son í Astrup
Fearnley-
safninu