Morgunblaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 72
72 SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Barcelona er ein af þeim borg-um þar sem menningar-straumar koma saman aðaustan og vestan, sunnan og
norðan, bæði úr gamalli hefð og einn-
ig fyrir það hve mikill straumur fólks
hefur legið til borgarinnar á und-
anförnum árum og áratugum frá Suð-
ur-Ameríku, Norður- og Austur-
Evrópu og Norður-Afríku. Þar mæt-
ist sígaunatónlist, flamenco, arabísk
hefð og vestrænt popp og rokk eins
og heyra má svo vel í tónlist frægasta
tónlistarmanns borgarinnar Manu
Chao. Hann er mikill áhrifavaldur í
tónlist Barcelona en líka hluti af þró-
un undanfarinna ára þegar menn
hafa steypt saman ólíkum gerðum
tónlistar frá ólíkum heimsálfum og
búið til nýja katalónsk-spænska tón-
listarhefð.
Flamenco er líklega eina tónlistar-
hefðin sem menn almennt kannast við
sem spænska tónlist þó að á Spáni sé
grúi af ólíkum gerðum hefðbundinnar
tónlistar. Einhverjir muna sjálfsagt
eftir því er ungir spænskir tónlist-
armenn tóku upp á því að fella rokk
og blús saman við flamenco, en hreyf-
ingin kallaðist óformlega Los jovenes
flamencos, ungu flamenco listamenn-
irnir. Þar fóru fremstar hljómsveitir
eins og Ketama og Pata Negra og
listamenn úr þeim sveitum hafa verið
áberandi alla tíð síðan, til að mynda
Raimundo Amador, sem lék á gítar í
Bjarkarlaginu „So Broken“ sem
frægt varð.
Enn í dag nota menn flamenco í
nýrri tónlist á Spáni, í Barcelona
katalónskt afbrigði þess og kryddið
öllu fjölbreyttara, ekki bara rokk og
blús heldur líka zouk frá afríku, kúb-
verska og katalónska rúmbu, alsírskt
rai, amerískt hiphop og „drum ’n’
bass“ frá Bretlandi svo fátt eitt sé tal-
ið. Ein vinsælasta og mest selda plata
á Spáni á síðasta ári var einmitt með
slíkum blendingi, Barí með Ojos de
Brujo, ævintýralega skemmtileg
skífa.
Upphafið
Ojos de Bruco er einmitt frá Barce-
lona, byrjaði þar sem eins konar tón-
listarkommúna en ekki sem eiginleg
hljómsveit, vinir og kunningjar sem
hittust til að spila af fingrum fram þar
sem hverjum og einum datt í hug þá
stundina, stundum á götum úti, á
torgum eða í almenningsgörðum
stundum heima hjá hverjum þeim
sem hafði pláss. Flamenco-áhrifin
voru sterk frá fyrsta degi, en einnig
katalónsk rúmba, kúbverskt slagverk
og sígaunatónlist aukinheldur sem
áhrif úr reggíi, danstónlist og hiphopi
voru til staðar.
Upphaf sveitarinnar er rakið til
þess að gítarleikarinn Ramon „Metr-
alleta“ Giménez og bassaleikarinn
Juanlu byrjuðu að spila saman 1990.
1996 tók að mótast tónlistarkomm-
úna, rekin áfram af spilagleði, og
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Spilagleði og galsi
Katalónska hljómsveitin Ojos de Brujo er með
vinsælustu hljómsveitum Spánar og stendur fyrir
bræðingstónlist þar sem öllu ægir saman;
flamenco, rúmbu, rokki, hiphopi o.s.frv.
UPPSELT er á fyrstu tónleika Lady &
Bird, sem að standa Barði Jóhannsson og
Keren Ann. Tónleikarnir eru allsérstakir
og af veglegra taginu því þeir verða
haldnir í Amerísku kirkjunni í París, 30.
janúar.
Í samtali við Morgunblaðið segir Barði
að þau Lady & Bird muni þá taka lög af
nýútkominni plötu sinni studd fjölmennum
kór og stórri hljómsveit. Auk þess muni
hörpuleikarinn kunni Monika Abendroth
leika undir með þeim.
Barði segir áhugann fyrir tónleikunum
töluverðan og til marks um það hafi selst
upp á þá á mjög skömmum tíma.
Aðspurður segir Barði ekkert frekara
tónleikahald hjá Lady & Bird hafa verið
skipulagt en kirkjutónleikarnir verði tekn-
ir upp, bæði mynd og hljóð. Gæti hins veg-
ar farið svo að Lady & Bird taki upp nýtt
efni á árinu.
Barði fyllir
kirkju í París
Sýnd kl. 5.30. B.i. 16.
HJ. MBL
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.10.
ÓHT. Rás2
Magnþrungin erótísk
spennumynd með
Meg Ryan eins
og þið hafið
aldrei
séð hana áður.
Sýnd kl. 6.45 og 10.45. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 3, 5 og 9
Sjáið eina athyglisverðustu og
mest sláandi mynd ársins.
Sýnd kl. 3, 6 og 9. B.i. 14 ára.
Kvikmyndir.is DV
Sannkölluð stórmynd sem hlotið hefur frábæra
dóma og viðtökur um allan heim.
Tom Cruise hefur aldrei verið betri!
Besti aðalleikari
Tom Cruise
Besti leikari í
aukahlutverki
Ken Watanabe
Besta frumsamda
tónlistin
Hans Zimmer
3
Tilnefningar til Golden Globe verðlauna
MEG RYAN
MARK RUFFALO
JENNIFER JASON LEIGH
Nýjasta mynd leikstjóra „THE PIANO“
a film by JANE CAMPION
VG DV
Hreyfir við áhorfandanum og
skilur eitthvað eftir sig.
Samleikur systkinanna er með
ólíkindum. Hér leikur allt í
höndunum á Hilmari, börn,
fullorðnir, tónlist og myndmál”
- ÞÞ Fréttablaðið
Tónlist myndarinnar er eftir
Hilmar Örn Hilmarsson
„Fantavel leikin
eðalmynd“
ÞÞ Fréttablaðið
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 10.05.
Sýnd kl. 2. Íslenskt tal.
Sýnd kl. 1.50. Íslenskt tal.
Stórskemmtileg og sprenghlægileg
gamanmynd með Eddie Murphy sem
kemst í hann krappann ásamt
fjölskyldu sinni þegar þau gista á
gömlu draugasetri!
ÓHT. Rás2
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6.10, 8 og 10. B.i. 14 ára
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 14 ára
Kvikmyndir.is DV
Sannkölluð stórmynd sem hlotið hefur frábæra
dóma og viðtökur um allan heim.
Tom Cruise hefur aldrei verið betri!
Besti aðalleikari
Tom Cruise
Besti leikari í
aukahlutverki
Ken Watanabe
Besta frumsamda
tónlistin
Hans Zimmer
3
Tilnefningar til Golden Globe verðlauna
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 8.
ÓHT. Rás2