Morgunblaðið - 31.01.2004, Page 27
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 2004 27
INFORMATION MEETING IN ICELAND
Date: Monday, February 9
Time: 18.00 – 19.30: MBA (Executive MBA)
19.30 – 20.15: Master of Science (BScB)
Venue: Radisson SAS Saga Hotel Reykjavik, Hagatorg
BI Norwegian School of Management, one of the leading private business schools in Europe, will be holding
an information meeting in Iceland to present its graduate programs: MSc and MBA. Icelandic BI alumni will
be present to answer your questions. For those interested, information about the international full time
Bachelor of Science in Business(BScB) and part time Executive MBA program will also be available.
MASTER OF SCIENCE – TWO YEARS FULL TIME
- state of the art knowledge based on cutting edge research
(MSc in Business, Financial Economics, Marketing, Organizational Psychology, Business &
Economic History)
MBA- 11 MONTHS FULL TIME
- strategic leadership through international group work
(General management MBA with a focus on Leadership, Strategy, Corporate Finance
and group work)
More information: www.bi.edu study@bi.no Telephone: + 47 22 98 50 50
Ættfræði | Félagar í Ættfræðifélaginu hitt-
ast á Bókasafni Reykjanesbæjar mánudags-
kvöldið 2. febrúar næstkomandi kl. 20. Allt
áhugafólk um ættfræði er velkomið.
Reykjanesbær | Bæjarráð Reykjanesbæjar
hefur ákveðið að draga úr hækkun á tveimur
liðum fasteignagjalda, það er að segja holræsa-
gjaldi og sorphirðugjaldi.
Þegar fasteignagjöld Reykjanesbæjar voru
ákveðin fyrir áramót breyttist uppbygging hol-
ræsagjalds. Var 6.000 kr. fast gjald sem inn-
heimt var áður af hverri íbúð sett inn í álagning-
arprósentuna. Átti 0,20% gjald að skila sömu
tekjum og gjaldskráin gerði áður. Bæjarráð
hefur nú ákveðið að lækka prósentuna á íbúðar-
húsnæði niður í 0,17%, vegna þess að álagning-
arstofn fasteignagjalda hækkaði meira um ára-
mót en gert var ráð fyrir.
Sorphirðugjald var um áramót hækkað úr
5.300 kr. á íbúð í 6.500 kr. Nú hefur verið ákveð-
ið að lækka gjaldið aftur, niður í 4.900 kr. á íbúð,
vegna þess að niðurstaða útboðs á sorphirðu
varð hagstæðari en miðað var við þegar fjár-
hagsáætlun var gerð. Kemur þessi skýring
fram í frétt á vef Reykjanesbæjar.
Fasteignaskattur og önnur fasteignagjöld
sem lögð eru á miðað við fasteignamat hækkuðu
um áramót vegna þess að fasteignamat í
Reykjanesbæ hækkaði um 15%, þrefalt meira
en til dæmis á höfuðborgarsvæðinu. Vakin er
athygli á þessu í fréttatilkynningu frá skrifstofu
Reykjanesbæjar og tekið fram að þetta sé skýr-
ingin á hækkun fasteignaskatta í bæjarfélaginu.
Dregið úr hækkun
fasteignagjalda
Keflavík | „Þetta er mjög skemmtilegt verk,
sem hentar öllum aldri og ég held að okkur
sé óhætt að fullyrða að þetta er fyrsta al-
mennilega barnaleikritið, að minnsta kosti í
langan tíma,“ sögðu áhugaleikararnir Atli
Sigurður Kristjánsson og Alexandra Ósk Sig-
urðardóttur um leikritið „Með álfum og tröll-
um“ sem Leikfélag Keflavíkur frumsýnir í
Frumleikhúsinu í Keflavík í dag klukkan 15.
Barnaleikritið „Með álfum og tröllum“
fjallar um ungan dreng, Jóakim, sem fær að
gjöf ævintýrabók en dregst inn í ævintýrið
við fyrsta lestur. Þar með hefst bráð-
skemmtileg og lifandi atburðarás og áður en
yfir lýkur hefur Jóakim komist í kynni við
álfa og tröll, hirðfífl, konung og prinsessu,
svo einhverjar persónur séu nefndar.
Tveir af leikurum sýningarinnar, þau Atli
Sigurður Kristjánsson, sem leikur Jóakim og
Alexandra Ósk Sigurðardóttir, álfur og tröll,
fullyrða að hér sé bráðskemmtilegt barna-
leikriti á ferð, jafnvel það besta hjá Leik-
félagi Keflavíkur. „Kosturinn við þessa sýn-
ingu er að hún hentar börnum frá tveggja
ára aldri og alveg upp úr. Fullorðnir hafa
ekki síður gaman af því, enda er í því húmor
fyrir alla. Leikfélagið hefur sýnt fleiri barna-
verk, bæði Oliver Twist og Línu Langsokk,
en við teljum að þetta henti breiðari ald-
urshóp.“
Þau hafa bæði nokkra reynslu af sviðsleik
og hafa starfað með Leikfélagi Keflavíkur
um árabil, í góðum félagsskap, að þeirra
sögn. Þau segjast bæði hafa mikinn áhuga á
leiklist og útiloka ekki að feta leiklistarbraut-
ina.
Gera allt sjálf
Verkið, sem er eftir sænska leikarann og
leikritaskáldið, Staffan Westerberg, hefur að-
eins einu sinni verið sýnt á íslensku sviði áð-
ur, að Steinn Ármann Magnússon, leikari og
leikstjóri verksins, telur. „Það var þegar ég
var á þriðja ári í Leiklistarskóla Íslands og
sjálfur lék ég karlinn í kassanum og hirðfífl.
Við vorum átta sem skiptum með okkur hlut-
verkunum, en núna eru leikarar þrettán og
flestir þeirra bregða sér í tvö hlutverk,“
sagði Steinn Ármann í samtali við blaða-
mann.
Steinn Ármann hefur áður leikstýrt hjá
Leikfélagi Keflavíkur, árið 2001 þegar félagið
setti Bar Par á svið. Atli Sigurður sem fer
með aðalhlutverkið í „Með álfum og tröllum“
fór einnig með aðalhlutverk í Bar Par og er
því að leika í annað sinn undir stjórn Steins
Ármanns. Það er á honum að heyra að það sé
skemmtileg reynsla.
Steinn Ármann dregur enga dul á það að
hann er ánægður með hópinn og í honum sé
margur efnilegur. „Þetta eru mjög duglegir
og kraftmiklir krakkar og þau hafa hannað
umgjörina að mestu leyti sjálf. Ég fékk að
vísu vin minn, sem er leikmyndahönnuður, til
að teikna leikmyndina upp í grófum dráttum
en þau sáu svo alfarið um að búa hana til og
einnig búningana,“ sagði Steinn Ármann og á
einn vegginn í sýningarsalnum hafa vinnu-
teikningarnar verið hengdar upp.
„Hér er góður efniviður og héðan hafa
margir farið í áframhaldandi leiklistarnám.
Þau sem byrja snemma ná sér í góða reynslu
og það hefur sýnt sig að sá hópur starfar
einna lengst,“ sagði Steinn Ármann og lofar
góðri skemmtun.
Leikfélag Keflavíkur frumsýnir í dag barnaleikritið Með álfum og tröllum
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Með álfum og tröllum: Allskyns ævintýrafígúrur stökkva út úr bók Jóakims í barnaleikritinu. Leikararnir þrettán eru á aldrinum 15 til 25 ára.
Atli Sigurður Kristjánsson sem leikur Jóakim er þriðji frá hægri í neðri röð og Alexandra Ósk Sigurðardóttir stendur beint fyrir aftan hann.
Stykki með húmor fyrir alla
Sandgerði | Komið var með tvö sérstæð dýr í
Fræðasetrið í Sandgerði sama daginn, ýsu-
hvítingja og lifandi fiðrildalirfu.
Náttúrustofa Reykjaness og Rannsóknastöð
Háskóla Íslands eru í Fræðasetrinu í Sand-
gerði og þangað er oft komið með furðuskepn-
ur. Nýlega kom maður með rauðleita ýsu sem
mun teljast hvítingi þrátt fyrir litinn. Ýsan
kom í netin hjá Von. Hvítingjar eru þekktir í
dýraríkinu og hvít ýsa hefur áður veiðst.
Sama dag kom Rúnar Friðriksson með lif-
andi fiðrildalirfu sem borist hafði með flutn-
ingavagni frá Ameríku. Lirfan er um tveir og
hálfur sentímetri á hæð og með átta fætur.
Hún var spræk og fór hratt yfir. Sveinn Kári
Valdimarsson, forstöðumaður Náttúrustofu
Reykjaness, skoðaði lirfuna og sagði að hún
líktist Isabella Tiger. Sú tegund lifir á fífla-
blöðum. Lirfan var sett í kæli og ætlunin er að
láta hana liggja í dvala þar til fífill fer að vaxa.
Þegar hún klekst út geta menn betur áttað sig
á hvaða tegund um er að ræða.
Hvít ýsa og fiðrildi frá Ameríku
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson