Morgunblaðið - 23.05.2004, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.05.2004, Blaðsíða 10
10 SUNNUDAGUR 23. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ N ýjasta kvikmynd Mich- aels Moores, Farenheit 9/11, fékk rífandi viðtök- ur er hún var frumsýnd á mánudaginn var á kvik- myndahátíðinni í Can- nes. Moore var klappað lof í lófa að lokinni sýn- ingu og var hylltur sem rokkstjarna af fjöldan- um sem beið fyrir utan Hátíðarhöllina er hann yfirgaf hana. Hann er enda hvergi vinsælli en í Frakklandi og óvíða fá umdeildar skoðanir hans á bandarísku samfélagi og stjórnkerfi betri hljómgrunn. Blaðamaður Morgunblaðsins var á lokaðri blaðamannasýningu fyrr um daginn þar sem einnig voru stórlaxar í faginu á borð við banda- ríska gagnrýnandann Roger Ebert, Tom Brooks, kvikmyndafréttamann hjá BBC, Todd McCarthy sem gagnrýndi myndina fyrir Var- iety og Alan Hunter, gagnrýnanda Screen Int- ernational. Þar var einnig staddur sjálfur Harvey Weinstein, forstjóri Miramax-fyrir- tækisins, eflaust til að kanna viðbrögð þessara áhrifaríku manna en hefur samt varla orðið mikils vísari því það var áberandi hversu menn héldu mun betur að sér spilunum en á blaða- mannasýningu á Bowling For Columbine í fyrra. Þar gátu fáir leynt tilfinningum sínum; hlógu, klöppuðu, hrópuðu af fögnuði eða baul- uðu af vanþóknun. Myndin er með í keppninni á hátíðinni og hefur verið beðið með mikilli eft- irvæntingu enda hefur hún þegar valdið mikl- um deilum milli framleiðandans Miramax og Disney-risans sem hefur ákveðið að dreifa ekki myndinni í Bandaríkjunum. Stór hluti áhorfenda á sýningunni sem blaðamaður Morgunblaðsins sótti var banda- rískur en viðbrögðin voru samt í jákvæðari kantinum, töluvert hlegið og klappað að sýn- ingu lokinni, en þó ekki nærri því eins lengi og á frumsýningunni sjálfri. Sem bæði gæti falið í sér vísbendingar um minnkandi stuðning við Bush meðal landa hans en líka að hann hafi hvort eð er aldrei haft mikinn stuðning einmitt meðal blaðamanna og gagnrýnenda. Mikilvægar upplýsingar fyrir kjósendur „Þessi mynd er ekki bara „Losum okkur við Bush“– yfirlýsing, enda þarf maður ekki að sitja í tvo tíma í kvikmyndahúsi til að komast að þeirri niðurstöðu,“ sagði Moore við blaða- menn í Cannes daginn fyrir frumsýningu myndarinnar. „Við vildum frekar glíma við stærri málefni, eins og hvar við stöndum nú sem manneskjur eftir 11. september. Stór hluti myndarinnar fer í að spyrja spurninga. Svörin fylgja ekkert endilega því áhorfendur eru beðnir að blanda sér í umræðuna og reyna að leita sjálfir svara.“ En hvað sem hann segir þá er myndin samt greinilegt ákall til bandarísku þjóðarinnar um að skoða nú vandlega frammistöðu forseta síns áður en hún gerir upp hug sinn í kjörklefanum 2. nóvember. Ákall til þjóðarinnar um að hún losi sig við George W.Bush. Þannig er Farenheit 9/11 vissulega hörð árás á forseta Bandaríkjanna, George W. Bush, og reyndar á ráðamenn í Bandaríkjun- um almennt, bæði repúblíkana og demókrata, sem og bandaríska fjölmiðla fyrir að hafa, að Moore heldur fram, leynt fyrir þjóðinni mik- ilvægum upplýsingum með einhliða frétta- flutningi hliðhollum ráðamönnum. En það er um leið áberandi hversu heim- ildaúrvinnsla Moores sjálfs er einhliða og hlut- dræg í myndinni og því í raun nákvæmara að tala um hana sem áróðursmynd fremur heim- ildarmynd. Ólíkt fyrri myndum Moores hefur hann ekkert rúm fyrir skoðanaskipti. Raddir og rök andvíg hans eigin fá ekkert pláss að þessu sinni, sem gerir myndina jafnvel ennþá hættu- legri en hans fyrri. Moore neitar ekki að hafa gert þessa mynd til þess að reyna að hafa áhrif á hvort eða hvernig bandaríska þjóðin muni kjósa. „Auðvit- að sýni ég myndina nú í sumar vegna þess að kosningarnar eru framundan,“ sagði Moore á blaðamannafundi sem haldin var í Cannes eftir að blaðamenn höfðu séð myndina. „Það hefði verið eitthvað bogið við að sýna hana í janúar, svolítið eins og að sýna jólamynd að sumri til. Ég átta mig ekki á hversu mikil áhrif myndin mun hafa á kosningarnar. Ég vona bara að hún upplýsi áhorfendur og þeir verði betri borgarar eftir að hafa séð hana, hvað sem það þýðir nú.“ Öll sú umræða sem á eftir að skapast, og er þegar hafin, í kringum frumsýningu myndar- innar vestanhafs á eflaust eftir að beina athygl- inni frekar að einhverjum málum sem Bush hefði gjarnan viljað komast hjá að þurfa að ræða svona stuttu fyrir kosningar. En hversu áhrifamikil myndin á eftir að verða er erfiðara að spá um, því líklegt verður að telja að myndin og boðskapur hennar eigi ekki eftir að ná ein- mitt til þeirra sem Moore beinir orðum sínum fyrst og fremst til; hinna lægra settu í þjóð- félaginu og þeirra sem hingað til hafa ekki séð ástæðu til að mæta á kjörstað. Poppkornsáróður En hvað sem líður skoðunum manna á vinnu- brögðum Moores er erfitt að draga í efa hæfni hans á sínu sviði, sem áróðursmeistari, maður með ákveðnar skoðanir á samfélagi sínu og pólitík, sem honum er einkar lagið að leggja fram á aðgengilegan, áhrifaríkan en fyrst og fremst skemmtilegan máta sem hreyfir við áhorfendum og getur verið sterkt vopn. „Þegar allt kemur til alls, þá hugsa ég fyrst og fremst um að gera mynd sem mig myndi sjálfan langa að sjá á föstudagskvöldi með kon- unni. Fá pössun og maula poppkorn yfir. Mér hefur alltaf fundist nauðsynlegt að geta hlegið á tímum sem þessum. Þess vegna legg ég ætíð mikið upp úr því að myndirnar mínar séu skemmtilegar áhorfs og uppfullar af kímni. Fram til þessa hef ég sjálfur reynt að gera eða segja eitthvað fyndið, en núna var ég sá alvar- legi og leyfði Bush að eiga allar fyndnu setning- arnar. Hann ætti því að geta fengið einhver höf- undarlaun fyrir,“ sagði Moore á blaðamannafundi sem haldinn var eftir fyrstu sýningar á myndinni. Meðal þess sem Moore gerir í myndinni til að „skemmta“ áhorfendum, samhliða því að upplýsa þá, er að sýna ráðamenn í annarlegum og svolítið vandræðalegum aðstæðum; í sminki fyrir sjónvarpsupptöku, að laga á sér hárið, t.d. með því að bleyta greiðuna með munnvatni, og svo náttúrlega Bush að fara með eitthvert fleipur, mismæli eða bara flissandi. Þetta skemmtanagildi hefur átt stóran þátt í því að Michael Moore, þessi mikli og ástríðu- fulli róttæklingur, hefur gert heimildarmyndir sem náð hafa til fleira fólks en heimildarmynd- ir nokkurra annarra, bæði fyrr og síðar. Bowl- ing For Columbine, sem færði Moore verðlaun í Cannes í fyrra og Óskarinn fyrr á árinu, er mest sótta heimildarmynd í sögu bandarískra kvikmyndasýninga. „Það sem er sláandi við það er að 70% þeirra sem sáu hana sögðust aldrei áður hafa séð heimildarmynd í kvik- myndahúsi,“ segir Moore. Bush og bin Laden Nafn myndarinnar leiðir hugan að bók Rays Bradburys og samnefndri mynd Francois Truffaut, Farenheit 451, sem fjallar um fram- tíðarþjóðfélag ritskoðunar og vísar til þess hitastigs, sem kviknar í pappír af sjálfsdáðum. Tímaskeið Farenheit 9/11 spannar kjörtíma- bil Bush forseta sem lýkur nú í nóvember þeg- ar haldnar verða forsetakosningar. Það er ekki mjög margt nýtt sem kemur fram í myndinni; flestar þessar ásakanir hafa verið lagðar fram, oftast af þeim sem teljast á róttækari eða frjálslyndari vængnum í bandarískum stjórn- málum. En Moore tekst kannski betur nú en öðrum að tengja þessi ákæruatriði saman og varpa fram spurningum sem vissulega er nauð- synlegt að fá svör við. Hann byrjar á byrjuninni. Með því að leggja fram, að hann telur, óyggjandi sannanir fyrir því að Bush hafi bókstaflega rænt forsetastóln- um með því að þvinga í gegn kosningasigur í Flórídaríki með aðstoð fréttastofu Fox-sjón- varpsstöðvarinnar – þar sem fréttastjóri á vakt á, samkvæmt Moore, að vera nátengdur Bush – og Hæstaréttar þar sem flestir eigi embætt- isskipan sína Bush-feðgum að þakka. Þá gagnrýnir Moore Bush forseta fyrir að hafa setið með hendur í skauti fyrstu mánuði kjörtímabilsins, eytt 42% af þeim í fríi við að leika golf eða í kúrekaleik, og ekkert aðhafst er sérfræðingar lögðu fram hverja skýrsluna af annarri sem sögðu að margt benti til að hryðju- verkaárás á Bandaríkin væri yfirvofandi. Áður hafði Moore lýst yfir að myndin ætti að mestu að fjalla um náin viðskiptatengsl Bush- fjölskyldunnar við bin Laden-fjölskylduna sádí-arabísku og að vegna þeirra tengsla hefðu stjórnvöld klúðrað rannsókninni á hryðjuverk- unum 11. september 2001. T.d. með því að hleypa úr landi meðlimum úr bin Laden-fjöl- skyldunni og fleiri sádí-arabískum fjölskyld- um, alls 24 talsins, þegar flugbann átti að ríkja dagana eftir árásirnar. Þar nýtur hann stuðn- ings fyrrum yfirmanns hjá FBI sem heldur fram að rannsóknin á hryðjuverkunum hafi klúðrast stórkostlega. Inn í þessi tengsl milli Bush- og bin Laden- fjölskyldnanna dregur Moore svo gamlan fé- laga Bush úr hernum, James R. Bath, einhvern helsta samstarfsaðila bin Laden-fjölskyldunn- ar vestanhafs. Til að sanna að Bush hafi reynt að fela tengsl sín við Bath, leggur hann fram gamla herskýrslur sem hann segist hafa kom- ist yfir árið 2000, þar sem þeir eru sagðir hafa fengið lausn saman úr hernum. Þegar þess var svo krafist að skýrslan yrði opinberuð fyrir skömmu, segir Moore að búið hafi verið að rit- skoða hana með því að fela nafn Baths. Það sé dæmi um feluleik Bush-fjölskyldunnar. Viljuga Ísland Moore afgreiðir sjálf hryðjuverkin af smekkvísi en þó á mjög áhrifaríkan máta með því að sleppa því að sýna myndirnar er flugvél- arnar tvær fljúga á turnana á World Trade Center en nota hljóðið, með svartri mynd. Svo sýnir hann viðbrögð þeirra sem sáu þessa skelfilegu sýn á götum í kring, og svo viðbrögð Bush, er hann fær fréttirnar þar sem hann er staddur í kennslustofu með grunnskólabörn- um. Til eru frægar ljósmyndir frá því er að- stoðarmenn hvísla að honum að önnur flugvél hafi flogið á turnana, og af honum að glugga í Örvæntingarfullt ákall til bandarísku þjóðarinnar Reuters Michael Moore stillir sér upp fyrir ljósmyndara við kynningu myndar sinnar Fahrenheit 9/11 á kvikmyndahátíðinni í Cannes sl. mánudag. Moore hefur greinilega nýlokið við gerð myndarinnar því nýjustu myndskeiðin komust í fréttirnar aðeins fyrir nokkrum vikum. Hann segir ekki útilokað að eðli máls- ins samkvæmt kunni vel að vera að hann breyti myndinni og bæti einhverju við hana áður en hún verður frumsýnd vestanhafs. „Ég hef fjármagn og leyfi til að gera það og því aldrei að vita nema hún eigi eitthvað eftir að breytast. Þetta er samt fullkláruð mynd sem þið sáuð hér í Cannes.“ Engin kvikmynd í Cannes hefur vak- ið eins mikil viðbrögð og mynd Michaels Moores, Fahrenheit 9/11, þar sem hann rekur á tveimur tím- um viðburðaríkt kjörtímabil George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, og leggur fram alvarlegar ásakanir á hendur forsetanum og hans nánustu samstarfsmönnum. Skarphéðinn Guðmundsson sá myndina í Cannes og var viðstaddur fjörlegan blaða- mannafund með Moore. ’Ég geri mér ekki grein fyrir hversu mikil áhrif myndinmun hafa á kosningarnar. Ég vona bara að hún upplýsi áhorfendur og að þeir verði betri borgarar eftir að hafa séð hana, hvað sem það þýðir nú.‘
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.