Morgunblaðið - 23.05.2004, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 23.05.2004, Blaðsíða 58
58 SUNNUDAGUR 23. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Smáfólk VÁÁÁ!! ANDFÝLAN ÞÍN GÆTI FENGIÐMÁLNINGUNA Á VEGGJUNM TIL ÞESS AÐ FLAGNA HVAÐ MEINARÐU MEÐ GÆTI? HÉR SITUR YFIRHUNDUR VIÐ SKRIFBORÐ AÐ TAKA ÁKVARÐANIR OG ALLAR RANGAR!ÉG ER BÚINN AÐ TAKAHUNDRAÐ ÁKVARÐANIR Í DAG... Á ÞESSUM LISTA ERU NÖFN 10 MILLJÓN HUNDA... ÉG ÞARF AÐ FÁ SKÝRSLU UM ALLA ÞESSA HUNDA SKRIFAÐA Í ÞRÍRITI ÞAÐ LEIÐ AFTUR YFIR RITARANN MINN! Beini © LE LOMBARD ÉG GET EKKI UNNIÐ SVONA! ÞETTA ER ALVEG ÓÞOLANDI! NÚ, HVAÐ? ÉG VAR AÐ FÁ Í HENDURNAR NÝJUSTU BÓKINA MEÐ ÆVINTÝRUNUM OKKAR. EÐA MÍNUM RÉTTARA SAGT ÞVÍ ÞÚ ER BARA AUKAPERSÓNA ÉG VISSI EKKI AÐ ÞÚ KYNNIR AÐ LESA MÉR TIL GAMANS GERÐI ÉG LISA YFIR KOSTI ÞÍNA EINS OG LÍTILSVIRÐINGU, MÓÐGUN, SVIKRÁÐ, AUÐMÝKINGU OG FÚLMENNSKU SEM ÞÚ HEFUR BEITT TIL ÞESS AÐ SKAÐA ÍMYND MÍNA Í GEGNUM ÞESSAR 44 BLAÐSÍÐUR JÁ? Á ÉG AÐ SEGJA ÞÉR EINS OG ER? GERÐU ÞAÐ ALHEIMURINN ER BARA BÍFLUGNASKÍTUR MIÐAÐ VIÐ ÞETTA ÉG FÉKK 45 SPÖRK FRÁ ÞÉR OG VINUM ÞÍNUM, ÉG FÉKK 60 SINNUM RAFLOST, 12 SINNUM MUNAÐI MINNSU AÐ ÉG DRUKNAÐI, ÉG LENTI 102 Í FANGELSI OG 10 Í DÝRAGEYMSLUNNI, ÉG FÉKK MATAREITRUN 402 OG EINU SINNI HÉLT FÓLK AÐ ÉG VÆR MARSBÚI OG 1209 SINNUM ÞURFTI ÉG AÐ LAGA LIMGERÐIÐ SEM ÞÚ EYÐILEGGUR ÞEGAR ÞÚ KEMUR Í YFIR GARÐINN MINN 78 SINNUM FÉKK ÉG BÓLUR ÚT UM ALLT, ÞÚ KALLAÐIR MIG HEIMSKINGJA 14200 SINNUM OG 9 SINNUM TÓKSTU BEINIÐ MITT NEI! JÚ! 21 SINNI MÁLAÐIRÐU MIG GRÆNAN, 1 SINNI BLEIKAN, 4 SINNUM DOPPÓTTAN, ÞAR AF EITT SKIPTI MEÐ KROSSUM, ÞÚ LÉST MANNÆTU MAURA ELTA MIG 7 SINNUM, SVO ÉG TALI EKKI UM FLÆRNAR SEM ÞÚ ERT ALLTAF AÐ DEILA MEÐ MÉR ÉG FÓR Í HREINSUN Í GÆR FINNST ÞÉR EKKI VERA NÓG KOMIÐ?! Á ÉG AÐ KLIPPA AF ÞÉR FELDINN SVO ÞÆR TOLLI EKKI? BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. UM jólin varð ég fyrir því „láni“ að fá í jólagjöf kaffivél eina forláta, var kaffivél þessi keypt í Hagkaupum í Smáralind og var vélin bæði lagleg fyrir augað og sögð hella upp á ágæt- iskaffi. Nú um daginn tók ég þessa vél úr kassanum og fór með hana upp í sumarbústað þar sem ég ætlaði að hita okkur hjónum gott kaffi. Nú bar svo við að þessi fallega vél þverneitaði að hita vatnið, þrátt fyrir tilraun númer tvö. Undirritaður tók því vélina með heim aftur, og sagði við konu sína að það yrði ekkert mál að fá nýja vél, þar sem engin verslun vildi láta spyrjast út annað en að hún bæri fulla ábyrgð á þeim vörum sem hún seldi. Undirritaður gerði sér nú ferð úr Keflavík til að skila þessari vél og fá að sjálfsögðu aðra sem mundi gera honum þann greiða að hita vatnið, eins og kaffivélar eiga að gera. Starfsmaður Hagkaupa í Smára- lind tjáði mér að hann mætti ekki láta mig fá aðra vél, en ég gæti sjálf- ur farið með vélina í „viðgerð“ í Sjón- varpsmarkaðinn í Síðumúla! Það skal tekið fram að ég var ekki með kvittun fyrir kaffivélarkaupun- um þar sem þetta var jólagjöf, og ég óvanur að fá kvittun, eða þess þá heldur biðja um kvittun fyrir þeim jólagjöfum sem ég hef fengið. Ég benti manninum á að ég hefði komið frá Keflavík í þessum erinda- gjörðum, og að vélin hefði verið keypt í Hagkaupum, ekki í Sjón- varpsmarkaðnum, og endurtók þann vilja minn að fá aðra vél sem vonandi gerði það sem hún ætti að gera, þeir gætu svo sjálfir farið með vélina í viðgerð ef það hentaði þeim, en án árangurs, og þar sem klukkan var að verða sex hefði ég ekki náð inn í Sjónvarpsmarkað fyrir lokun. Undirritaður gerði sér svo aðra ferð til Reykjavíkur með þessa for- láta kaffivél og fór með hana í við- gerð í Sjónvarpsmarkaðnum í Síðu- múla. Á leið upp í bústað kom ég svo nokkrum dögum seinna við í Sjón- varpsmarkaðnum til að ná í vélina sem þá var búið að laga, en þar sem ég var ekki með kvittun fyrir vélinni varð ég að borga viðgerðina sjálfur, þrátt fyrir að ég segði manninum að hann gæti séð það á vélinni að hún hefði aldrei verið notuð, væri ný, og þess vegna í ábyrgð. Þessi af- greiðslumaður sagði við mig „að ef þeir ættu að trúa öllum sem koma“ þá skildist mér að þeir væru ekki í góðum málum. Lítilsvirðandi sleggjudómur gagnvart viðskipta- vinum. Þykir því líkegt að Sjónvarps- markaðurinn „prógrammeri“ sína starfsmenn á svipaðan hátt. Undirritaður hafði ekki fyrir því að ræða við verslunarstjóra Hag- kaupa, þar sem umræddur starfs- maður var sjálfsagt að framfylgja reglum sem verslunarstjórinn setti honum, og hann eflaust styður sinn starfsmann. Undirritaður fer hér með fram á að Hagkaup greiði fyrir viðgerðina á „fínu“ vélinni sem hljóðaði upp á rúmar 2.800 kr. ásamt tveimur ferð- um til Reykjavíkur sem óhætt er að verðleggja á 2.500 kr. ferðina, sam- tals: kr. 7.800, og leggi inn á reikning minn í Sparisjóðnum í Keflavík. Mun ég biðja Morgunblaðið að birta eftirfarandi á sama stað, með feitu letri, þegar skuldin er greidd: Kaffivélarmálið gegn Hagkaup í höfn – og geta því lesendur Mbl. séð hvenær Hagkaup og undirritaður hafa náð sáttum. Á báðum umræddum stöðum fékk ég það á tilfinninguna að viðskipta- vinir fyrirtækjanna væru álitnir lyg- arar ef einhver vandamál kæmu upp, uns þeir gætu sannað öðruvísi. Ég vil benda fólki sem er að hugsa um að versla í báðum ofantöldum verslunum að hafa þessa framkomu í huga. Vil ég taka það fram að enginn vandi var að sjá að vélin var algjör- lega ónotuð. Í annarri verslun í Kópavogi hang- ir uppi skilti sem á stendur eitthvað á þessa leið: Ef þú ert ánægður með viðskiptin við okkur, láttu aðra vita. Ef ekki, láttu okkur vita. Og geri ég þá ráð fyrir því að um- rætt fyrirtæki vilji ganga þannig frá málum við viðskiptavininn, að hann sé sáttur við viðskiptin. Þetta ættu Hagkaupamenn að taka til athugunar. Hagkaup og Sjónvarpsmarkaðurinn: Svona kom- ið þið ekki fram við viðskiptavini ykkar! VILHJÁLMUR ARNGRÍMSSON, Suðurgarði 18, 230 Reykjanesbæ. Hagkaup Frá Vilhjálmi Arngrímssyni, aðstoðarslökkviliðsstjóra: ÞEGAR á Alþingi kom fram frum- varp sem varð að svokölluðum villi- dýralögum var ég formaður Skot- veiðifélags Íslands. Félagið studdi þetta merka framfaramál. Nú fréttist að allmargir skotveiði- menn (líklega ekki félagar í Skotvís) hafi, væntanlega í bráðræði, vegið að vísindastarfi sem fjármagnað er með veiðikortagjaldi. Það er ótrú- legt uppátæki að falsa veiðiskýrslur. Þetta er nú svarið við spurning- unni. En ég leyfi mér að bæta nokkrum orðum við umræðuna um þetta mál. Við lifum á ágætum bletti jarð- arinnar og við stjórnkerfi af bestu gerð; löggjafar-, framkvæmda- og dómsvald, að ógleymdri kristinni siðfræði. Stórlyndir menn með erfðaefni víkinga mega því ekki fremur en aðrir ganga gegn kerfi samfélagsins. Tilmæli: Reynum öll að sjá okkur sjálf sem hluta af dýraríki sem við viljum ekki skaða. Einnig við með „veiðidelluna“ getum þetta mæta vel. Við þurfum ekki magnveiði til að fullnægja ásköpuðu veiðieðli. BJARNI KRISTJÁNSSON, fv. rektor THÍ. Af hverju get ég ekki orða bundist? Frá Bjarna Kristjánssyni:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.