Morgunblaðið - 23.05.2004, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 23.05.2004, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MAÍ 2004 37 færri börn en þær sem litla eða enga menntun hafa hlotið, börn þeirra eiga meiri lífslíkur, þær vinna sér inn meiri tekjur, og fjölskyldur þeirra eru betur nærðar og búa við betri heilsu og uppfræðslu. Ennfremur hefur verið sýnt fram á að menntun stúlkna í þróun- arlöndum skilar meiri ávinningi á ýmsum svið- um en menntun drengja. Börn virðast hafa meiri hag af aukinni menntun mæðra sinna en feðra, ef litið er til minni ungbarnadauða, meiri fæðingarþyngdar, betra næringar- ástands og betri og lengri menntunar. Aukin efnahagsleg völd kvenna koma börn- um þeirra til góða, því tekjur mæðra renna frekar til fjölskyldunnar og heimilisins en tekjur feðra. Verkefni sem miða að því að bæta aðgengi kvenna að lánsfjármagni hafa víða gefið mjög góða raun. Lækkuð fæðinga- tíðni, sem afleiðing af bættri og lengri mennt- un stúlkna, leiðir til hærri þjóðartekna á mann í þróunarlöndum. Rannsóknir Alþjóðabankans benda til þess að það skili meiri aukningu á landbúnaðarframleiðslu að lengja menntun stúlkna um eitt ár heldur en að auka aðgang að ræktarlandi eða notkun á áburði. Í grein sinni bendir Coleman á að þær þjóð- ir í þriðja heiminum sem best hafi tekist að draga úr kynjamismun hvað varðar menntun hafi einnig náð bestum árangri á efnahags- og stjórnmálasviðinu síðastliðna hálfa öld. Fyrirheitum verði fylgt eftir Coleman nefnir að Bandaríkjastjórn hafi í vaxandi mæli tekið hagsmuni kvenna inn í myndina við mótun utanrík- isstefnunnar. Að vissu leyti hafi Bush-stjórnin neyðst til að gera það eftir innrásina í Afgan- istan, þar sem staða kvenna undir stjórn talib- ana hafi verið hvað lökust í heiminum. En hún telur enn nokkuð skorta á að kynjasjónarmið séu nógu ofarlega á baugi og bendir á að í framkvæmd hafi þeim oft verið kastað fyrir róða. Hvatt hafi verið til réttarbóta konum til handa í tengslum við lýðræðisþróun í ríkjum Mið-Austurlanda, en lítið aðhafst til að fá þeim framgengt. Stutt hafi verið við áætlanir sem miða að auknum áhrifum kvenna í um- bótasinnuðum ríkjum eins og Marokkó, en þögn ríkt um kvenréttindamál í samskiptum við íhaldssamari ríki á borð við Sádi-Arabíu. Og jafnvel þótt fjálglega hafi verið rætt um að bæta hag kvenna í uppbyggingaráætlunum fyrir Afganistan og Írak hafi í raun lítið verið gert til að efla efnahagsleg og pólitísk áhrif þeirra. Eins og Coleman bendir réttilega á er mik- ilvægt að Bandaríkin, öflugasta og auðugasta ríki heims, taki af skarið í þessum efnum, ekki síst hvað varðar uppbyggingarstarf í Írak og Afganistan, en einnig í öðrum heimshlutum. Hún mælist í grein sinni sterklega til þess að Bush-stjórnin auki áhersluna á hag kvenna í utanríkis- og þróunarmálum, og fylgi fögrum orðum eftir með raunverulegum aðgerðum. Samfélagið allt líður fyrir kynjamisrétti Mikilvægi bættrar stöðu kvenna í þró- unarlöndum verður ekki sérstaklega tek- ið til umræðu á Cop- enhagen Consensus- ráðstefnunni. En með hliðsjón af röksemdum Isobel Coleman og margra annarra fræði- manna virðist þó sem fyllsta ástæða hefði ver- ið til þess. Veigamikil hagfræðileg rök, ekki síður en siðferðileg, hníga að því að það ætti að vera eitt helsta forgangsatriðið í þróun- armálum að bæta menntun kvenna í þriðja heiminum og auka efnahagsleg og pólitísk áhrif þeirra. Þótt kynjamisrétti komi vitaskuld harðast niður á þeim helmingi mannkyns sem er kvenkyns þarf samfélagið allt að líða fyrir afleiðingar þess. Morgunblaðið/Árni Torfason Börn á göngu framan við Stjórnarráðið. „Lækkuð fæð- ingatíðni, sem af- leiðing af bættri og lengri menntun stúlkna, leiðir til hærri þjóðartekna á mann í þróun- arlöndum.“ Laugardagur 22. maí
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.