Morgunblaðið - 23.05.2004, Blaðsíða 62
AUÐLESIÐ EFNI
62 SUNNUDAGUR 23. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
YFIR 40 Palestínumenn hafa
beðið bana í árásum
Ísraelshers í bænum Rafah á
sunnanverðu Gaza-svæðinu
og í flóttamannabúðum við
bæinn frá því á þriðjudaginn
var.
Ísraelskar hersveitir réðust
þá inn í flóttamannabúðirnar
til að eyðileggja göng sem
Ísraelar segja að hafi verið
notuð til að smygla vopnum
frá Egyptalandi inn á
Gaza-svæðið. Hersveitirnar
jöfnuðu einnig tugi
íbúðarhúsa við jörðu og yfir
þúsund manns missti heimili
sín.
Alls hafa að minnsta kosti
42 Palestínumenn látið lífið í
Rafah. Hermennirnir beittu
meðal annars skriðdrekum
og þyrlum til að tvístra
hundruðum Palestínumanna
sem mótmæltu aðgerðum
hersins. Tíu
mótmælendanna biðu bana,
flestir þeirra börn og
unglingar.
Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna samþykkti ályktun
þar sem það gagnrýndi
manndrápin og aðgerðir
Ísraelshers. Ályktunin naut
stuðnings allra aðildarríkja
öryggisráðsins nema
Bandaríkjanna sem sátu hjá.
Ísraelsher flutti flesta
hermenn sína frá Rafah á
föstudag en sagði að
aðgerðunum væri þó ekki
lokið.
Reuters
Piltur grætur við rústir heimilis síns í Rafah eftir að Ísraelsher jafnaði það við jörðu.
Tugir Palestínu-
manna bíða bana
Hæstiréttur hefur sýknað
Pétur Þór Gunnarsson og
Jónas Freydal Þorsteinsson í
málverkafölsunarmálinu.
Pétur Þór var
framkvæmdastjóri Gallerís
Borgar. Hann og Jónas voru
sakaðir um að hafa blekkt
viðskiptavini til að kaupa
myndverk sem þeir hefðu átt
þátt í að falsa. Meirihluti
dómaranna sem dæmdu
töldu að vegna þess að
Listasafn Íslands var einn
þeirra sem kærðu í málinu
mætti ekki styðjast við álit
starfsmanna safnsins fyrir
dómi. Tveir dómarar vildu
hins vegar sakfella mennina.
Jón H. Snorrason
saksóknari segir dóminn vera
„veikan“, vegna þess að
meirihluti dómara í
Hæstarétti hafi fjallað mjög
knappt um málið.
Ragnar Aðalsteinsson,
verjandi Péturs Þórs, sagðist
vera afar ánægður með
niðurstöðuna.
Samband íslenskra
myndlistarmanna segir að
dómurinn hafi ömurlegar
afleiðingar í för með sér fyrir
íslenska myndlist. Flestir séu
þeirrar skoðunar að verkin
sem fjallað var um fyrir dómi
séu að stórum hluta fölsuð.
Rannsókn í
málverkafölsunarmálinu
hófst fyrir sjö árum, árið
1997. Hún hefur kostað 50
milljónir. Þar af hefur
sérfræðiþjónusta kostað 20
milljónir króna.
Morgunblaðið/Jim Smart
Verjendur í málverkafölsunarmálinu: Frá vinstri: Karl Georg
Sigurbjörnsson hrl., Sigríður Rut Júlíusdóttir hdl. og Ragnar
Aðalsteinsson hrl.
Hæstiréttur
sýknar
Pétur Þór
og Jónas
Stóra málverkafölsunarmálið
ARNÓR Atlason, KA, og
Sylvia Strass, ÍBV, voru
útnefnd leikmenn ársins í
karla- og kvennaflokki á
lokahófi
Handknattleikssambands
Íslands, sem haldið var á
Broadway sl.
miðvikudagskvöld. Arnór varð
einnig fyrir valinu sem
efnilegasti leikmaðurinn hjá
körlunum, en Anna Úrsúla
Guðmundsdóttir, Gróttu/KR,
varð fyrir valinu hjá konunum.
Arnór Atlason, sem gengur
til liðs við þýska stórliðið
Magdeburg í sumar, sópaði
að sér verðlaunum á
lokahófinu, en auk þess að
verða fyrir valinu sem besti
og efnilegasti leikmaðurinn á
leiktíðinni var hann kjörinn
besti sóknarmaðurinn og
varð markahæsti leikmaður
deildarkeppninnar
(riðlakeppni og úrvalsdeildar)
með 237 mörk.
Morgunblaðið/Kristján
Arnór Atlason, handknattleiksmaður úr liði KA, sópaði að sér
verðlaunum á lokahófi handknattleiksmanna.
Arnór og
Sylvia best
DAGUR Kári Pétursson, sem
gerði Nóa albínóa, er að gera
nýja mynd. Nói albínói hefur
fengið mörg verðlaun í
mörgum löndum og Dagur
Kári er orðinn frægur
leikstjóri í útlöndum. Nýja
myndin hans Dags mun heita
Fullorðið fólk og verður á
dönsku en Dagur Kári býr í
Danmörku. Myndin verður
tekin í Kaupmannahöfn en
Dagur Kári er að gera
myndina núna.
Myndin fjallar um mann
sem úðar á veggi og úðar
aðallega ástarjátningum.
Myndin mun kosta 190
milljónir íslenskra króna.
Myndin verður líklega tilbúin
þegar þetta ár er búið.
Næsta mynd þar á eftir mun
heita The Good Heart.
Þegar hann er búinn með
hana er ljóst að fyrstu þrjár
myndir Dags Kára eru á
þremur mismunandi
tungumálum.
Dagur Kári Pétursson
með nýja mynd
Morgunblaðið/Árni Torfason
Dagur Kári Pétursson.
Atriði úr Nóa albínóa.
Netfang: auefni@mbl.is