Morgunblaðið - 23.05.2004, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 23.05.2004, Blaðsíða 52
UMRÆÐAN 52 SUNNUDAGUR 23. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ fjölmiðlafár, sem farið hefur eins og eldur í sinu undanfarnar vikur út af fjölmiðlafrumvarpi, sem ríkisstjórnin und- ir forystu Davíðs Oddssonar, hefur ver- ið að reyna að fá sam- þykkt áður en þing- störfum lýkur, hefur styrkt mig í því, sem ég hef velt mikið fyrir mér að undanförnu, að lög og túlkun manna á lögum og lagasetn- ingum, eru teygj- anlegri en teygja. Það má skýra með mis- munandi túlkunum lögfróðra manna á því, hvort stjórnarskráin segi að forseti lýðveldisins hafi óskorað vald, til að neita því að staðfesti fjöl- miðlafrumvarpið og vísa því þar með í dóm þjóðarinnar með kosn- ingu. Þegar stjórnarskráin er lesin um þetta efni, og maður fer eftir regl- unni: Að fara ekki lengra en ritað er. Þá er það ótvírætt að hann hefur þetta vald. En hvað veldur því þá, að sprenglærðir lögfróðir menn sem setið hafa í fjölda ára í háskólum og síðan sem starfandi lögmenn séu ekki sam- mála um þau lög sem rituð eru? Skyldi þar vera á ferðinni hags- munapólitíkin, sem veldur því að menn líta misjöfnum augum á lögin? Ég hef líka orðið mikið var við það úti í þjóðfélaginu, að þetta veld- ur mörgum áhyggjum. Og menn spyrja: Hverjum er hægt að treysta? Og til hvers eru menn að setja lög og skrifa þau niður, ef þau breytast við túlkun hvers og eins? En þetta er svo sem ekkert nýtt, því kristnum mönnum hefur frá upphafi verið sagt, að fara ekki lengra en ritað er í Biblíunni. En eins og heimurinn veit hafa þeir hunsað það og sitja tvístraðir í margs konar kirkjudeildum vegna mismunandi túlkana og takast á um þær. Við þurfum ekki að fara út fyr- ir landsteinana til að sjá þetta. Þetta segir okkur kannski, að menn vilja ekki fara eftir neinum lögum. Hvort sem þau eru rituð eða sögð. Þetta: Þú skalt ekki. Heyra menn ekki né viðurkenna, nema að það henti þeim sjálfum. Því þetta ei- lífa: Ég og mínir fyrst hvað svo sem lög segja. Virðist vera rauði þráð- urinn í lífsmunstrinu. Tökum dæmi með hæstarétt- ardómara. Þá hefur það oft komið fram að þeir dæma svo misjafnlega í sama sakamálinu, að undrun sætir. Verða algjörlega á öndverðum meiði, um sekt eða sakleysi hins dæmda. Þótt þeir séu að dæma eftir sömu lögum. Og þeir koma jafnvel sjálfir fram og deila á dóma starfs- bræðra sinna Að ég tali nú ekki um mistúlkanir dóma á milli undirréttar og Hæstaréttar. Það er kannski með þetta allt, eins og fótboltann, að það er dags- formið og hvernig dómarinn er stemmdur sem ræður oft hver vinn- ur leikinn. Eða með öðrum orðum. Hvernig liggur á dómurunum þegar þeir dæma og hvar eru þeir í flokki. Tökum líka pólitíkina sem dæmi. Því þar virðist reglan vera: Ég um mig frá mér til mín. Eða hvað segir flokkurinn og formaðurinn? Og sértu í ríkisstjórninni áttu að játa og samþykkja allt sem hún gerir og segir, ella færðu bágt fyrir. En sértu í stjórnarandstöðu. Þá ber þér skylda til að vera að öllu leyti á móti stjórninni. Hvað svo sem hún hefur fram að færa. Og fylgir þú ekki þeirri reglu, þá lendir þú á svarta listanum og þér verður bolað fyrr en síðar út í horn, eða bara kastað út, ef þú tekur ekki tiltali. Sjáum hegðun stjórnarandstöð- unnar við afgreiðslu fjölmiðlafrum- varpsins. Hvernig hún fer í hæstu hæðir gegn Davíð og stjórninni, sem er þó með þessu frumvarpi að reyna að sporna við því, að hinir ríku geti beitt valdi sínu hömlulaust. En áður en þetta frumvarp kom fram var rauði þráðurinn í deilu stjórnarandstöðunnar við stjórnina, að stjórnin væri stöðugt að gera hina ríku ríkari og þar af leiðandi valdameiri. Svo er það hin hliðin á pólitíkinni, að menn eru sagðir nota vald sitt til að hefna sín á þeim, sem þeim finnst að hafi gert eitthvað á sinn hlut. Og margir halda fram sem dæmi, að Davíð Oddsson sé að ná sér niðri á Jóni Ásgeiri, Bónus og Norðurljósum með frumvarpinu, áð- ur en hann sleppir takinu á valda- mesta embætti þjóðarinnar. Hryggilegt ef svo væri. En það er eitt öruggt í þessu, að þetta fjölmiðlafár. Um lög og póli- tík. Eins og það hefur birst und- anfarnar vikur. Hefur grafið undan trúverðugleika þingsins og minnkað álit manna á lögfróðum. Því almenn- ingur lítur þetta spurnaraugum. Og margir spyrja: Er þetta lýðræðið í reynd? Ég hvet því þingheim og lögmenn að slíðra sverðin. Ella fer þetta á einn veg. Að almenningur fær það á tilfinninguna, að lög og pólitík séu lögleysa og vitleysa. Lög, pólitík og lögleysa Hafsteinn Engilbertsson skrif- ar um lög og lagasetningar Hafsteinn Engilbertsson ’Þetta segir okkurkannski, að menn vilja ekki fara eftir neinum lögum.‘ Höfundur er viðgerðarmaður. Sími 533 4040 • Fax 533 4041 Opið í dag frá kl. 12-14 TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA jöreign ehf Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali Erlendur Davíðsson, lögg. fasteignasali Hákon R. Jónsson, sölumaður Ólafur Guðmundsson sölustjóri EINSTAKLINGS STRANDASEL/LAUS Einstaklingsíbúð á 3. hæð efstu í litlu fjölbýli. Stórar suð- ursvalir og gott útsýni. Hús og sameign í góðu ástandi. Laus strax. Áhv.húsbr. 3,8 millj. Verð: 7,8 millj. nr. 3944 ELDRI BORGARAR MIÐLEITI. ÞJÓNUSTUÍBÚÐ GIMILI. Rúmgóð og björt 118 m2 endaíbúð á 3. hæð í lyftuhúsi. Mikið útsýni. Húsvörð- ur. Góð sameign. Aldursmörk 55 ára. Stæði í lokuðu bílskýli fylgir. Íbúðin er laus strax. Ekkert áhvílandi. SÉR ÞVOTTAHÚS. Verð kr. 24.5 millj. 2JA HERB. FÁLKAGATA Glæsileg og velstaðsett íbúð í litlu fjölbýli. Suður svalir, tengt fyrir þv.vél á baði. Sturta og baðker. Nýtt baðherbergi. Glæsilegt útsýni. Rétt við Háskól- ann. Mikið endurnýjuð eign. Verð 11,9 millj. nr3921 3JA HERB. TJARNARMÝRI Vönduð, rúmgóð og fallega innréttuð 3ja herbergja íbúð. Hús nýlega viðgert og málað utan, lítur mjög vel út. ATH skipti á minna í sama hverfi. Verð 16,5 millj. Nr 2177 4RA HERB FOSSVOGUR M/BÍLSKÚR. Falleg og rúmgóð 4ra herb. endaíbúð á 2. hæð, efstu í litlu fjölbýli. Stórar suðursvalir. Fallegt útsýni. Góð staðsetnig. Góður bíl- skúr. VERÐ: 17,8 Millj. nr. 3914 HRÍSMÓAR GBÆR. /BÍLSKÚR. Vorum að fá í einkasölu 3ja til 4ra herb. íbúð ásamt bílskúr. Íbúð á 1. hæð. Falleg innrétting, parket á gólfum. Þvottahús í íbúðinni. Verð 18,7 millj. EINBÝLI FUNAFOLD M/BÍLSKÚR Mjög gott einnar hæðar einbýlishús ásamt bílskúr, stærð 191,6 fm. Húsið stendur sunnan við götu með fallegri ræktaðri suðurlóð. Fjögur svefnherbergi og rúmgóðar stofur. Góð staðsetning. Verð: 27,7 millj. nr. 3818 Ármúla 21 • Reykjavík Netfang: kjoreign@kjoreign.is Heimasíða: www.kjoreign.is www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár Berjarimi 16 - 1. hæð - BÍLSKÝLI Vorum að fá í sölu fallega og vel skipulagða 3ja herbergja 79 fm íbúð á 1. hæð með sér- garði og stæði í bílskýli. Tvö góð svefnher- bergi og stofa. Þvottahús innan íbúðar. Beykiparket og flísar á gólfum. Flísalagt baðherbergi, sturtuklefi og innrétting. Áhv. húsbr. + viðb.lán 9,2 millj. Verð 13,5 millj. Halldóra tekur á móti ykkur í dag milli kl. 13 og 15. Njálsgata 86 - 3. hæð - LAUS STRAX Góð 2ja herb. 52 fm íbúð á 3. hæð. Íbúðin skiptist í stofu, svefnherbergi, eldhús og baðherbergi. Nýtt pergoparket er á íbúðinni og rafmagn yfirfarið. Góð íbúð í hjarta Reykjavíkur. Áhv. er 4,9 millj. Verð 8,9 millj. Stella tekur á móti ykkur í dag á milli kl. 15 og 17. Drápuhlíð 21 - Kjallari - LAUS FLJÓTLEGA Mjög góð 2ja herb. 71 fm íbúð í lítið niður- gröfnum kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, rúmgott hol, svefnherbergi með skápum, stofu, eldhús með góðu skápaplássi og baðherbergi. Gólfefni eru parket og flísar. Góð íbúð á góðum stað. Verð 10,8 millj. Haukur tekur á móti ykkur í dag á milli kl. 16 og 18. Lindasmári 5 - 2. hæð - LAUS STRAX Mjög góð 3ja herbergja 83 fm íbúð á annarri hæð. Íbúðin skiptist í hol með skápum, stofu, tvö svefnherbergi, eldhús með góðri innréttingu og flísalagt baðherb. með innrétt- ingu og baðkari. Gólfefni eru dúkur og flísar. Falleg og góð eign á góðum stað. Áhv. 10,5 millj. Verð 13,9 millj. Birgir tekur á móti ykkur á milli kl. 14 og 16. OPIN HÚS SUNNUDAGINN 23. MAÍ Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30. Til leigu ca 625 fm á jarðhæð Einstaklega glæsileg og vel staðsett skrifstofu- bygging við Laugardal. Séraðkoma inn á hæðina utan frá, beint frá bílastæðum, einnig er aðkoma að hinum umrædda eignahluta í gegnum glæsi- lega og mjög snyrtilega sameign sem er með lyftuhúsi. Sameiginlegt glæsilegt mötuneyti. Rýmið skiptist í móttöku, opin rými en einnig er búið að stúka af skrifstofur og fundarherbergi. Gólfefni eru parket og dúkur. Tölvulagnir eru í öllu rýminu með aðgengi að sérstaklega útbúnu tölvuherbergi í kjallara. Verð tilboð. Uppl. veitir Magnús Gunnarsson, s. 588 4477 eða 822 8242. Til leigu - Laust nú þegar Til sölu 5,5 ha jarðarpartur (ekki lög- býli) rétt ofan við nyrðri munna Hval- fjarðarganganna. Á jörðinni er ágæt- ur húsakostur s.s. töluvert endurnýj- að þrílyft íbúðarhús sem er nýlega einangrað og klætt að utan, nýir gluggar, ný vatns- og skolplögn. Útihús s.s. fjós, hlaða, véla- og verkfærageymsla, allt steinhús, í ágætu standi. Nýlegur 70 fm timbur- bílskúr. Að auki eru fjárhús og hlaða, timburhús (b.1950), samt. um 80 fm. Landið liggur að sjó með stórkost- legu útsýni yfir Bláfjöll, borgina og Suðurnesin. Stutt í yndislega sand- fjöru. Staður sem býður upp á ýmsa möguleika hvort heldur er fyrir stór- fjölskyldu, fjölskyldufyrirtæki eða fé- lagasamtök sem vilja vera við alla þjónustu í sveitinni. Fasteignaþjónustan Skúlagata 30, 3. hæð Sími 552 6600 Lovísa Kristjánsdóttir, löggiltur fasteignasali. MÁSSTAÐIR 2 AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.