Morgunblaðið - 23.05.2004, Blaðsíða 35
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MAÍ 2004 35
KVENNAKÓRAR hafa í aukn-
um mæli rutt sér til rúms á liðnum
árum og er það skemmtilegt mót-
vægi við karlakórana og það
skrítna er að blönduðum kórum
fækkar ekki heldur fer jafnvel
fjölgandi, þannig að það fer að
verða verðugt verkefni að kanna
hve margir landsmenn syngja í kór-
um og hve mikið það göfgar sam-
félagið með bættu mannlífi. Allir
eru þessir kynskiptu kórar á land-
inu áhugamannakórar. Það má alls
ekki leggja að jöfnu áhugamanna-
kór og lélegan kór. Margir áhuga-
mannakórar gera gríðarlegar kröf-
ur til kórfélaga og krefjast
vandvirkni og metnaðar og stand-
ast mörgum atvinnukórum snúning
í söng sínum, en því miður eru líka
til kórar sem gera of litlar kröfur til
sjálfra sín.
Kvennakórinn Vox Feminae hef-
ur frá upphafi haft mikinn metnað,
ferðast innanlands sem utan og gef-
ið út geisladiska. Margrét Pálma-
dóttir hefur stjórnað kórnum og
þjálfað frá upphafi og kórinn hefur
vaxið jafnt og þétt undir leiðsögn
hennar og er orðinn mjög góður og
getur leikið sér að flóknari verk-
efnum, sem hann sýndi vel á tón-
leikum sínum 2. maí. Efnisskráin
var að mestu sótt í óperubókmennt-
irnar og var mjög heilsteypt.
Fyrst sungu þær Þórey Sif Brink
Harðardóttir og Guðrún Árný Guð-
mundsdóttir Hve klukkur blítt
klingja úr Töfraflautu Mozarts, síð-
an sungu átta kórfélagar kór
bændakvennanna úr Brúðkaupi
Fígarós. Öll verkefni kórsins voru
flutt af miklum þokka. Hljómur
kórsins er fallegur og hreinn, gott
jafnvægi er á milli raddanna og
tónstaða stöðug og góð. Söngurinn
fallega mótaður og vandaður og
kórinn ræður yfir miklu styrkleika-
sviði og framburður texta er skýr.
Þótt erfitt sé að gera upp á milli
laga langar mig þó að nefna Brúð-
arkórinn úr Lohengrin Wagners,
La Fede og La Caritá eftir Rossini,
en í því síðara söng Inga Backman
stórglæsilega einsöng með kórnum.
Eftir hlé langar mig að geta sér-
staklega La Vergine degli Angeli
eða munkakórsins úr Á valdi örlag-
anna eftir Verdi en hér var það
nunnukór sem söng hlutverk munk-
anna og Inga túlkaði Leonoru virki-
lega glæsilega. Einnig vil ég geta
Nornakórsins úr Macbeth.
Auk áðurnefndra laga söng Inga
Backman aríu Súsönnu Giunse alfin
il momento úr Brúðkaupi Fígarós,
Als die alte Mutter eftir Dvorák og
Senza mamma o bimbo úr Systur
Angelicu eftir Puccini og var túlkun
hennar á angist Angelicu hreint
stórglæsileg. Inga sýndi það og
sannaði að hún er mjög góð söng-
kona með fallega rödd sem hún
beitir af mikilli natni og kunnáttu
auk þess sem hún geislar af tján-
ingargleði og gáska þegar það á við.
Síðast á efnisskránni var lokakór
úr Systur Angelicu þar sem Inga,
Þórey Sif og Guðrún Árný sungu
einsöng með kórnum. Þetta var
glæsilegur endir á stórgóðum tón-
leikum og Arnhildur Valgarðsdóttir
fór á kostum á píanóinu. Margrét
leiðir kórinn ákveðið, markvisst og
af músíkölsku næmi.
Kvennakór Reykjavíkur
Kvennakór Reykjavíkur er annar
góður kvennakór sem hélt samsöng
2. maí. Kórarnir eru jafn gamlir en
eru gjörólíkir. Verkefnaskráin var
að hluta til helguð vorinu og hófst
með sænskum lögum og finnsku
þjóðlagi. Lag Alvéns Uti vår hage
var fallega sungið með réttum
áherslum sem er sjaldgæft að
heyra hérlendis. Síðan fylgdu
Glädjens blomster, Värmlandsvis-
an, Vem kan segla og sumarsálmur
Åhléns. Síðan fylgdi sálmurinn I
himmelen og Söngvar úr jörðinni.
Síðast fyrir hlé var lag sem Mist
Þorkelsdóttir samdi fyrir kórinn í
tilefni 10 ára afmælisins, Ég hlusta
á þær glóa. Öll voru þessi lög vel
flutt og sænski framburðurinn
mjög góður. Efnisskráin eftir hlé
var af veraldlega taginu að und-
anskildum tveimur gospellögum. Í
lagi Rutters It was a lover and his
lass var sópraninn ekki hreinn.
Best fluttu lögin eftir hlé að mati
undirritaðs voru gospellögin tvö og
síðan Kenndu mér að kyssa rétt og
Please Mr. Postman, en flest voru
lögin á efnisskránni nokkuð góð
með einstaka undantekningum.
Gott jafnvægi er í kórnum, sem
er oftast hreinn innbyrðis. Hljóm-
urinn í kórnum er nokkuð góður. 1.
sópran átti til að syngja sig aðeins í
sundur og einstaka kórfélagar að
heyrast í gegn af og til. Í gosp-
ellögunum sýndi kórinn að hann
getur hljómað kröftuglega með fyll-
ingu en gegnumsneitt var hann ansi
spar á mikinn hljóm þrátt fyrir
þennan mikla fjölda söngvara og
fjölmörg tækifæri til að spretta úr
spori. Í lok hlés sungu konur úr
Kórskóla Kvennakórsins þrjú lög
við undirleik Vignis Þórs Stefáns-
sonar sem einnig lék með kórnum í
síðustu lögunum. Öllu þessu stjórn-
aði Sigrún Þorgeirsdóttir af mynd-
ugleik.
TÓNLIST
Salurinn í Kópavogi
KÓRTÓNLEIKAR
Vox Feminae. Einsöngvari Inga Back-
man. Píanóleikari Arnhildur Valgarðs-
dóttir. Stjórnandi Margrét J. Pálmadóttir.
Sunnudagurinn 2. maí kl. 15.00.
Langholtskirkja
KÓRTÓNLEIKAR
Kvennakór Reykjavíkur. Píanóleikari
Vignir Þór Stefánsson. Stjórnandi Sigrún
Þorgeirsdóttir.
Sunnudagurinn 2. maí kl. 20.00.
Tveir góðir
kvennakórar
Jón Ólafur Sigurðsson
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
47
59
0
5/
20
04
www.urvalutsyn.is
Trygg›u flér bestu k
jörin
og bóka›u strax á n
etinu!
*Innifali›: Flug, flugvallarskattar, fer›ir til og frá
flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn.
Ver›i› er netver›. Bóka flarf og grei›a sta›festingargjald,
e›a fullgrei›a fer› á netinu. Ef bóka› er símlei›is e›a á
skrifstofu, grei›ist bókunar- og fljónustugjald, sem er
2.000 kr. á mann.
Porto Platanias
59.720 kr.*
Örfá herbergi á flessu einstaka tilbo›i
Nú er tækifæri a› komast til Krítar og búa á 4ra stjörnu
hótelinu Porto Platanias. Fallegt hótel me› fyrsta flokks
fljónustu og gó›um mat. Hóteli› stendur vi› ströndina í
Platanias í göngufæri vi› veitingsta›i, verslanir og bari.
Loftkæld herbergi, sundlaug, barir og veitingasalur.
á mann í tvíb‡li í 7 nætur me› hálfu fæ›i.
Glæsilegt sumartilbo› 7., 14., 21. og 28. júní
Morgunblaðið/Eggert
Vox Feminae á sviði Salarins í Kópavogi.
ÆFINGAR eru nýhafnar á rússneska leikritinu
Svartri mjólk eftir Vasílij Sígarjov í Þjóðleikhúsinu.
Þýðandi verksins er Ingibjörg Haraldsdóttir en leik-
stjóri er Kjartan Ragnarsson. Svört mjólk gerist á
niðurníddri lestarstöð í afskekktu þorpi í Rússlandi.
Aðalpersónur verkins eru ungur maður og ófrísk
kona hans sem búa í Moskvu en ferðast um og pranga
brauðristum inn á andvaralítið sveitafólk. Sölu-
mennskan hefur gengið vel og þau bíða þess eins að
komast burt úr þessari holu. En lestin lætur bíða eftir
sér, og svo birtast þorpsbúarnir sem telja sig hafa
verið svikna í viðskiptum. Kaldranalegur stórborg-
arveruleikinn og lífið úti á landi rekast harkalega á,
með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Vasílíj Sígarjov er 27 ára en hefur þegar vakið at-
hygli í leikhúslífi Evrópu. Hið virta höfundaleikhús
Royal Court Theatre í London hefur frá því árið 2001
sett upp þrjú leikrit eftir hann, Plasticine, Svarta
mjólk og nú síðast Ladybird. Plasticine vakti strax
mikinn áhuga á Sígarjov og hlaut hann fyrir það
Evening Standard-verðlaunin sem efnilegasta leik-
skáld ársins. Þegar Royal Court sýndi Svarta mjólk
ári síðar voru gagnrýnendur á einu máli um að Síg-
arjov hefði tekist að skrifa enn betra og dýpra leik-
verk.
Ólafur Egill Egilsson, sem fer með hlutverk unga
mannsins, leikur nú í fyrsta sinn hjá Þjóðleikhúsinu
eftir útskrift úr LHÍ. Aðrir leikendur eru Arnbjörg
Hlíf Valsdóttir sem leikur eiginkonu hans, Lilja Guð-
rún Þorvaldsdóttir, Sigurður Skúlason, Tinna Gunn-
laugsdóttir, Kristbjörg Kjeld og Jóhann Sigurðarson.
Um tónlist sér Sigurður Bjóla, búningar eru í höndum
Filippíu I. Elísdóttur, höfundur leikmyndar er Vytaut-
as Narbutas. Verkið verður frumsýnt á Smíðaverk-
stæði Þjóðleikhússins í haust.
Svört mjólk
æfð í Þjóð-
leikhúsinu
Morgunblaðið/Þorkell
Leikarar og aðstandendur leikritsins Svört mjólk.