Morgunblaðið - 23.05.2004, Blaðsíða 32
I SOLISTI Veneti, ein af virt-
ustu hljómsveitum Evrópu, leik-
ur á tónleikum í Hallgrímskirkju
í dag kl. 15 á vegum Listahátíðar.
Hljómsveitin leikur eingöngu
ítalska háklassík eins og hún ger-
ist best, eftir meistara á borð við
Vivaldi, Tartini, Paganini, Ross-
ini og Puccini. Orðspor hljóm-
sveitarinnar hefur borist víða
enda I Solisti Veneti þekkt bæði
fyrir framúrskarandi tónleika og
frábærar hljómplötur. Íslenskur
einleikari leikur með hljómsveit-
inni hér, Áshildur Haraldsdóttir
flautuleikari. Stjórnandi hljóm-
sveitarinnar er Claudio Scimone,
en hann stofnaði I Solisti árið
1959 í borginni Padúa. Frá þeim
tíma hefur hljómsveitin leikið í
meira en 50 löndum, víðsvegar í
Evrópu, í Bandaríkjunum, Japan,
Ástralíu, Rússlandi og Suður-
Ameríku. Hljómsveitin kemur
reglulega fram á öllum helstu
tónlistarhátíðum heims, þar á
meðal Salzborgarhátíðinni, þar
sem henni, einni erlendra hljóm-
sveita, hefur verið boðið að leika
árlega allt frá árinu 1965.
Þótt hljómsveitin sé dáð á tón-
leikasviðinu hafa vinsældir
hljómplatna hennar ekki verið
síðri, og verðlaunin sem hún hef-
ur sópað að sér fyrir þær eru
mörg. Þar má nefna frönsku
verðlaunin Grand Prix du Disque
fjórum sinnum, Grammy-verð-
launin, Grand Prix de l’Academie
du Disque Lyrique-verðlaunin,
Elisabeth Memorial Medal of
London; Caccilia-verðlaun belg-
ískra tónlistargagnrýnenda,
verðlaun ítalskra tónlistargagn-
rýnenda, og fjölda annarra. Fáar
hljómsveitir hafa
enda slegið I Solisti
við í útgáfu, því alls
eru diska- og plötu-
titlar hennar nú á
fjórða hundrað.
I Solisti Veneti
hafa einnig hlotið
gullmedalíu Ítalíufor-
seta fyrir störf sín,
auk ótal annarra
ítalskra og alþjóð-
legra viðurkenninga.
Fremstu tónlistar-
mönnum heims hefur
þótt það virðingar-
vottur að koma fram
með hljómsveitinni,
og sá hópur sem það
hefur gert skartar stjörnum á
borð við Salvatore Accardo, Rug-
giero Raimondi, Kötju Riccia-
relli, Placido Domingo, Jean
Pierre Rampal,
Marilyn Horne,
James Galway,
Mstislav Rostropo-
vic, Svjatoslav
Richter og Paul
Badura-Skoda. Þá
hefur fjöldi tón-
skálda samið verk
fyrir hljómsveit-
ina.
Á tónleikunum í
Hallgrímskirkju
verða leikin verk
eftir Paganini,
Pasculli, Rossini
og Vivaldi, þar á
meðal Flautukons-
ert í D-dúr nr. 3
ópus 10, sem kallaður er Il Gard-
ellino, en í honum leikur Áshildur
Haraldsdóttir einleik með sveit-
inni.
Áshildur Haraldsdóttir einleikari með I Solisti Veneti
Í flokki með fremsta
tónlistarfólki heims
Áshildur Haraldsdóttir
flautuleikari
I Solisti Veneti heldur tónleika á Listahátíð í Reykjavík í dag.
LISTIR
32 SUNNUDAGUR 23. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Kaupendur – Seljendur –
Leigjendur – atvinnuhúsnæðis:
Höfum gott úrval húsnæðis á öllu höfuðborgarsvæðinu.
Bjóðum einnig upp á nýbyggingar úr stáli. Hafið samband.
533 4300 Salómon Jónsson - löggiltur fasteignasali
Dalbrekka Kóp., 400 fm þjón-
ustupláss
Til Sölu/leigu: Mjög vandað hús-
næði fyrir hvers konar þjónustu eða
léttan iðnað, grunnfl. 235 fm með
165 fm milligólfi. Stórar innkeyrslu-
dyr. Upphituð stæði framan við hús-
ið. Laust samkl. Mjög gott verð eða
23,5 millj. (Óskar, gsm: 846 8407)
Hafnarstræti – Miðbærinn
743 fm. Til Sölu/leigu: Frábærlega
staðsett húsnæði. Samþykktar
teikningar fyrir vínveitingarstað.
Húsnæðið er kjallari, 2 hæðir og ris-
hæð, samtals 743,3 fm. Mjög mikið
endurnýjað. Húsið skilast tæplega
tilbúið undir tréverk. Hér er tækifæri
fyrir athafnarfólk. (Björgvin, gsm:
698 2567)
Atvinnuhúsnæði
www.husid.is
Bæjarlind Kóp., 600 m2 skrif-
stofu-/ þjónusturými
Í vel staðsettu húsi er laust um 600
fm rými á 3. h. (2. hæð). Lyfta í hús-
inu, góð aðkoma og næg bílastæði.
Frágangur eftir nánara samkomu-
lagi. Laust nú þegar. Mjög hagstætt
verð. Húsnæði skilað eftir þörfum
leigjanda. (Björgvin, gsm: 698 2567)
Stórhöfði Rvík
365 m2 innkeyrslubil. Gott atvinnu-
húsn., 304,4 fm steinsteypt, tvö inn-
keyrslubil, miklir gluggar, bjart, loft-
hæð 4,8-7,0 m. Gólf steinsteypt fyrir
mikinn þunga. Milliloft um 60 fm með
skrifstofum, kaffi- og setustofu. Hægt
að byggja um 200 fm við austurend-
ann. Mikið útipláss og bílastæði sam-
tals um 600 fm. Einkar hentugt fyrir
heildsölu, verktaka eða annað viðlíka.
Laust 1. ágúst nk. afhent veðbanda-
laus. (Bjarni, gsm: 821 0654)
Hvaleyrarbraut Hf
4x 270 m2 bil. Til Sölu/leigu: Mjög
vel staðsett innkeyrslu- og þjónustu-
húsn., nálægt höfninni í Hafnarfirði.
Stálgrind samloka/límtré á steyptan
kjallara. Hægt er að skipta húsn. í 4
sjálfstæðar einingar, 270 fm hvor.
Hagstætt verð og kjör. (Björgvin,
gsm: 698 2567)
IÐNSKÓLINN í Hafnarfirði
opnar sýningu á verkum Þorkels
G. Guðmundssonar listnáms-
kennara kl. 13
í dag, sunnu-
dag. Sýningin
nefnist Þorkell
Gunnar Guð-
mundsson,
Hönnun og
handverk í
hálfa öld. Þor-
kell verður sjö-
tugur 20. júní
nk. og lætur
nú af störfum
við skólann. Iðnskólinn vill af til-
efninu heiðra Þorkel vegna
starfsloka hans, en hann hóf
kennslu við skólann árið 1964.
Auk kennslu í hönnun og listum
við skólann síðustu áratugi hefur
Þorkell skilað drjúgu dagsverki í
hönnun og myndsköpun og verð-
ur fjöldi listmuna Þorkels á sýn-
ingunni.
Þorkell var fyrstur íslenskra
hönnuða til að fá húsgögn sín
fjöldaframleidd. Meðal verka eru
Spira-svefnbekkurinn, sem barst
inn á þorra íslenskra heimila og
Stuðla-skilrúm sem framleidd
voru í meira en 15 ár. Hvort
tveggja er talið lýsa höfuðein-
kennum Þorkels sem hönnuðar.
Samhliða sýningunni í Iðnskól-
anum verður opnuð vorsýning
nemenda. Hún stendur til 31.
maí.
Sýning á verkum Þorkels
Gunnars stendur til 10. júní. Op-
ið kl. 13–17.
Til heið-
urs Þor-
keli G.
Þorkell Gunnar
Guðmundsson
Á LISTAHÁTÍÐ í Reykjavík gefst að vanda að
heyra ýmislega tónlist sem annars ber ekki fyrir
eyru þó hún sé vissulega skemmtileg og jafnvel
framúrskarandi. Þar á meðal er söngsveitin
Nuova Compagnia di Canto Popolare, NCCP,
sem, eins og nafnið ber með sér, syngur alþýðu-
tónlist og þá alþýðutónlist frá Ítalíu, eða svo var í
það minnsta í upphafi. Flokkurinn sá, sem er sex
manna hljómsveit, var stofnaður fyrir rúmum
þremur áratugum til að varðveita sönghefð
heimahéraðs stofnendanna, Campania, á suðvest-
urhluta Ítalíu þar sem Napólí er höfuðborg.
Í spjalli við Marco Sfogli, sem hefur verið býsna
lengi í hljómsveitinni, frá 1976, þó ekki sé hann
einn stofnenda, kemur fram að þó hljómsveitin sé
alltaf trú rótum sínum hafi hún, fljótlega eftir að
hann gekk í sveitina, þróast í þá átt að semja tón-
listina sjálf. Í upphafi, um miðjan sjöunda áratug-
inn, var höfuðáhersla á að varðveita sönghefðir og
þjóðlög sem menn óttuðust að myndu útaf deyja,
en að sögn Sfoglis fylgdu margar hljómsveitir í
kjölfar NCCP og því gátu menn leyft sér að semja
sjálfir þegar fram leið. „Við höfum þó samið tón-
list í sama anda, verið trúir þeim hefðum sem ráð-
ið hafa ríkjum í Campaníu í gegnum aldirnar þar
sem mætast straumar úr ólíkum áttum, evrópsk
tónlist og arabísk.“
Leitað í frumheimildir
Mannaskipti hafa verið allnokkur í hátt í fjöru-
tíu ára sögu sveitarinnar, sem vonlegt verður að
teljast, og uppúr henni hafa verið stofnaðar þó
nokkrar hljómsveitir sem gert hafa garðinn fræg-
an á þessu sviði á Ítalíu og víðar. Af engri sveit fer
þó sama orð og NCCP, enda ruddi hún brautina
sem aðrar ítalskar hljómsveitir þjóðlegrar tónlist-
ar feta í dag.
NCCP er vinsæl hljómsveit í heimalandi sínu
og víða um heim, því hún hefur verið að segja lát-
laust á tónleikaferðalagi í á fjórða áratug og eft-
irsótt á tónlistarhátíðir víða um heim. Sfogli segist
ekki þreyttur á að ferðast þó árin séu orðin mörg.
„Hver tónleikaferð, að leika fyrir ný andlit og
eyru, fyllir okkur nýjum krafti,“ segir hann.
Eins og getið er byggir NCCP tónlist sína á
gömlum hefðum í Campaníu, en einnig leitar hún
lengra aftur, fer í frumheimildir, ef svo má segja,
og Sfogli segir að þannig hafi þau gefið út plötur
með sterkum arabískum keim, aðra þar sem áhrif-
in eru sótt til sígauna, til Balkanskaga og svo megi
telja. „Napólí er frá fornu fari dyr Evrópu að
Austurlöndum nær og fjær, þangað bárust menn-
ingarstraumar með kaupskipum og farmönnum.
Það má því segja að við séum að tengja saman
ólíka menningarheima.“
Hljómsveitin hefur gefið út fjölmargar plötur á
starfsævinni og er enn að, nú standa yfir upptökur
á plötu sem koma á út fyrir þessi jól sem Sfogli
segir að sé mjög frábrugðin fyrri verkum, enn sé
hljómsveitin að leita fyrir sér, leita nýrra leiða, en
hann vill ekki segja meira um hvert stefni, segir
að það muni koma í ljós í fyllingu tímans.
Margar ferðir umhverfis hnöttinn
Framan af ferlinum var NCCP einkar vinsæl
tónleikasveit um allan heim, fór margar ferðir
umhverfis hnöttinn, en er smekkur manna breytt-
ist á níunda áratugnum segir Sfogli að heldur hafi
dregið úr ferðalögum um hríð þó hljómsveitin hafi
alltaf haldið vinsældum sínum heima fyrir. Undir
lok áratugarins fór svo aftur að vænkast hagur
vina þjóðlegrar tónlistar því þá fundu menn upp
merkimiðann heimstónlist og aftur varð eft-
irspurn víða um heim. Á síðasta áratug má svo
segja að hljómsveitin hafi stigið skrefið til fulls,
því nú var öll tónlist sem hún lék frumsamin með
sterka vísun í gamlan sið, eins og getið er að fram-
an.
Plötuútgáfa hljómsveitarinnar var með minnsta
móti á níunda áratugnum en glæddist til muna á
þeim tíunda og er enn fjörleg. Sfogli segir þó að
það sé sveitinni í sjálfu sér ekkert kappsmál að
gefa út plötur. „Við tökum upp plötur þegar okkur
finnst ástæða til, þegar við höfum eitthvað að
segja, og gætum þess vegna tekið upp margar
plötur eitt árið eða enga plötu í mörg ár.“
Hann segir að ferðalögin séu meðal þess helsta
sem knýr sveitina áfram, það að kynna nýja heima
fyrir fólki um allan heim. „Við förum um eins og
landkönnuðir til forna, leitum að nýrri upplifun og
nýjum hugmyndum, en við erum líka að kynna
fyrir fólki menningarsögu okkar.“
Nuova Compagnia di Canto Popolare leikur á
Nasa í kvöld og hefst leikur hljómsveitarinnar um
kl. 21.00
Hver tónleikaferð fyllir
okkur nýjum krafti
Hljómsveitin Nuova Compagnia di Canto Popol-
are leikur á Nasa í kvöld á Listahátíð í Reykjavík.
Ítalski söngflokkurinn hyggst kynna fyrir Íslendingum aldagamla
tónlistarhefð og um leið nýja í Nasa í kvöld. Árni Matthíasson
ræddi við einn liðsmanna Nuova Compagnia di Canto Popolare.