Morgunblaðið - 23.05.2004, Page 12
12 SUNNUDAGUR 23. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
F
réttir af misnotkun fanga í Írak
hafa vakið hörð viðbrögð meðal
almennings hér í Kabúl þótt
ekki hafi borið á því í heims-
pressunni. Flestir Afganar
fagna því að loks skuli hafa feng-
ist haldbærar sannanir fyrir því
að hermenn bandaríska hersins
gerðust sekir um gróf mannréttindabrot í fang-
elsum sínum, því grunur leikur á að aðferðirnar
sem beitt var í Írak hafi einnig verið notaðar hér
í Afganistan. Fjölmargar fjölskyldur í landinu
berjast fyrir því að fá ættingja sína lausa úr
fangelsum Bandaríkjamanna, en flestir fang-
arnir hafa setið í fangelsi frá því bandaríski her-
inn réðst inn í Afganistan í október 2001.
Athyglin hefur fyrst og fremst beinst að með-
ferð meintra al Qaeda-félaga í bandarísku her-
stöðinni Guantanamo Bay á Kúbu, en Í Kabúl,
Gardez og Bagram sitja hundruð Afgana án
dóms og laga og án nokkurra samskipta við um-
heiminn. Bandaríkjastjórn segir tilfellið í Abu
Ghraib-fangelsinu í Írak einstakt, en vitnisburð-
ur fyrrverandi fanga í Afganistan gefur annað
til kynna. Afgönsk mannréttindasamtök hafa
reynt að vekja athygli á ástandinu og freistað
þess að fá að heimsækja fanga sem hafa setið
inni í yfir tvö ár án réttarhalda. Bandaríski her-
inn hefur virt þessi sem og önnur samtök að
vettugi og einungis hleypt inn starfsfólki Rauða
krossins enda eru skýrslur þeirra og niðurstöð-
ur trúnaðarmál.
Fyrrverandi blaðamaður að nafni Muhamm-
ed Nasrullah, sem vinnur fyrir afgönsk mann-
réttindasamtök í Kabúl, hefur lengi reynt að fá
aðgang að nokkrum föngum sem haldið er í
Kabúl, en án árangurs. Hann telur að alþjóða-
samfélagið hafi haft lítinn áhuga á meðferð afg-
anskra fanga því menn hafi litið svo á að talib-
anar og sér í lagi al Qaeda-meðlimir ættu slíka
meðferð skilið. Reiði almennings á Vesturlönd-
um eftir 11. september hafi verið slík að mann-
réttindi hafi verið virt að vettugi án nokkurra
andmæla, en nú sé mönnum að verða ljóst að
meðferð fanga í bandarískum fangelsum í Afg-
anistan og í Írak sé ómannúðleg og á engan hátt
réttlætanleg. Nashrulla telur að 70 prósent
fanganna í bandarísku herstöðvunum í Afgan-
istan séu ungir menn sem einungis hafi verið al-
mennir hermenn undir stjórn talibana og þeir
hafi verið skyldaðir til að berjast gegn innrás-
arliðinu. Inn á milli sé auk þess að finna blásak-
lausa menn sem séu pyntaðir reglulega án þess
að mál þeirra hafi verið rannsökuð eða farið fyr-
ir dómstóla.
Fyrsti maðurinn til að koma fram opinber-
lega í Afganistan og saka bandaríska herinn um
ómannúlega meðferð og grófa misnotkun er Sa-
yed Nabi Siddiqui, 47 ára gamall fyrrverandi
lögreglumaður. Málið hefur vakið gríðarlega at-
hygli en Siddiqui var fyrir mistök hnepptur í
varðhald í júlí á síðasta ári og haldið í herstöð
Bandaríkjamanna í Gardez austan við Kabúl í
40 daga. Siddiqui hafði reynt að vekja athygli á
spillingu innan afgönsku lögreglunnar, en var
án fyrirvara gripinn og hent í fangelsi. Engar al-
mennilegar skýringar hafa fengist hjá tals-
mönnum Bandaríkjahers vegna málsins en talið
er að Siddiqui hafi ef til vill ógnað háttsettum
aðila í stjórnkerfinu sem var viðriðinn áður-
nefnda spillingu. Það þykir að minnsta kosti
mjög undarlegt að Siddiqui, virtur afganskur
lögreglumaður, hafi verið hnepptur í varðhald
hjá bandaríska hernum og í viðtali við hann
kemur fram að honum hafi verið neitað um
svefn, hann hafi hlotið barsmíðar og verið mis-
notaður kynferðislega.
Fjöldi kvartana borist
Slæm meðferð Bandaríkjamanna á föngum
hér í Afganistan hefur ekki hlotið mikla athygli,
hvorki meðal almennings né erlendra blaða-
manna, það er að segja ekki fyrr en nú þegar
merðferð Bandaríkjamanna á föngum í Írak
hefur verið gerð opinber. Í mars síðastliðnum
birtu mannréttindasamtökin Human Rights
Watch umfangsmikla skýrslu þar sem Banda-
ríkjaher er sakaður um að hafa brotið gegn
mannréttindasáttmálanum og alþjóðalögum í
fangelsum sínum. Skýrslan dregur upp mjög
slæma mynd af ástandinu og frásagnir fyrrver-
andi fanga lýsa svipaðri misnotkun og þeirri
sem viðgengst í Abu Ghraib-fangelsinu í Írak.
Mennirnir segjast allir hafa mátt þola miklar
barsmíðar og að þeim hafi verið neitað um
svefn. Þá voru sumir fangarnir látnir sitja nakt-
ir úti í miklum kulda um hávetur auk þess sem
niðurlægjandi myndir voru teknar af þeim. Að
sögn Johns Siftons, talsmanns samtakanna,
hafa samtökin margsinnis reynt að benda yf-
irvöldum í Washington á slæma meðferð fang-
anna en Bandaríkjastjórn hefur látið ábending-
arnar sem vind um eyru þjóta. Þá hefur
bandaríski herinn ekki gefið fullnægjandi svör
varðandi dauða þriggja manna sem haldið var í
fangelsinu í Bagram-herstöðinni. Að sögn
starfsmanna Human Rights Watch fengu þeir
upplýsingar um að tveir menn hefðu framið
sjálfsmorð í lok árs árið 2002. Þeim var tjáð í lok
síðasta árs að rannsókn stæði enn yfir vegna
dauða mannanna en í apríl á þessu ári kom í ljós
að rannsókninni lauk snemma árið 2003 og
nokkrir hermenn voru áminntir vegna málsins,
en enginn hefur verið sóttur til saka. Engin svör
hafa fengist vegna láts þriðja mannsins.
Manuel de Almeida de Silva, talsmaður Sam-
einuðu þjóðanna í Kabúl, sagði á blaðamanna-
fundi fyrir skömmu að Sameinuðu þjóðirnar
hefðu fengið fjölmargar kvartanir vegna mis-
notkunar í bandarískum fangelsum síðastliðin
tvö ár. Hann sagði jafnframt að forsvarsmenn
Sameinuðu þjóðanna hefðu reynt að fá aðgang
að fangelsunum en ávallt verið neitað. Samein-
uðu þjóðirnar hafa gagnrýnt Bandaríkin harð-
lega fyrir slæma meðferð á föngum. Nú er talið
að fjölmargir fangar hafi sætt alvarlegri mis-
notkun, en að þeir hafi ekki ekki viljað greina
frá atvikum vegna niðurlægingarinnar sem
fylgir kynferðislegri misnotkun og annars kon-
ar valdbeitingu. Flestir vilja auk þess ekki láta
opinbera nöfn sín af ótta við að verða hnepptir
aftur í varðhald enda er löngu orðið ljóst að al-
þjóðalög hafa litla merkingu í fangelsum banda-
ríska hersins.
Í bandaríska tímaritinu Newsweek var ný-
lega greint frá því að Alberto Gonzales, ráðgjafi
Georges Bush Bandaríkjaforseta, hafi sent hon-
um bréf þar sem hann segir að hann telji að
Genfarsáttmálinn eigi ekki við í baráttunni gegn
hryðjuverkamönnum. Colin Powell, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði strax í upphafi
hernámsins í Afganistan að grunaðir al-Qaeda-
meðlimir og talibanar yrðu ekki flokkaðir sem
hefðbundnir stríðsfangar og myndu þess vegna
ekki falla undir ákvæði Genfarsáttmálans. Þar
af leiðandi væri hægt að halda þeim án dóms og
laga, en ráðherrann tók sérstaklega fram að
herinn myndi virða ákvæðin í sambandi við
meðferð á föngum.
Til að vera flokkaðir sem stríðsfangar þurfa
menn að hafa barist fyrir ríki og að hafa skilið
sig á einhvern hátt frá óbreyttum borgurum. Að
sögn Powells fóru talibanar hins vegar huldu
höfði á meðal almennings líkt og skæruliðar og
fyrirgerðu þannig rétti sínum til að falla undir
ákvæði Genfarsáttmálans. Talibönum, sem
flestir voru Pashtúnar (Pashtuns), var gert
ásamt öðrum karlmönnum að klæða sig eins á
grundvelli hugmyndafræði talibana svo að það
eitt að þeir hafi ekki klæðst venjulegum herbún-
ingi til að aðgreina sig frá almenningi getur vart
talist góð ástæða fyrir því að þeir gátu ekki fallið
undir ákvæði Genfarsáttmálans. Þrátt fyrir að
stjórn talibana hafi ekki verið viðurkennd af
nær öllum ríkjum heims (utan Sádi-Arabíu,
Pakistans og Sameinuðu arabísku furstadæm-
anna) unnu talibanar engu að síður borgara-
styrjöld í eign landi og réðu yfir nær öllu landinu
utan landræmu nyrst í landinu sem enn var á
valdi Norðurbandalagsins. Hægt er að færa rök
fyrir því með samanburðardæmum að talib-
anskir hermenn hefðu allt eins átt rétt á því að
falla undir hefðbundna skilgreiningu stríðs-
fanga. Bandaríkin réðust síðan inn í Afganistan,
hertóku landið og tóku stríðsfanga hvernig svo
sem þeir voru klæddir.
Samkvæmt fyrirmælum?
Að sögn fjölmiðla í Afganistan brýtur með-
ferð fanganna gegn alþjóðalögum hvernig svo
sem fangarnir eru flokkaðir. Þau ummæli
Bandaríkjastjórnar að herinn hafi þurft að beita
ákveðnum aðferðum við að fá upplýsingar frá al
Qaeda-meðlimum getur á engan hátt réttlætt
pyntingar á talibönum sem dúsa í fangelsum hér
í Afganistan. Síðustu daga og vikur hefur sér-
skipuð nefnd bandarískra öldungadeildarþing-
manna yfirheyrt stjórnvöld og yfirmenn banda-
ríska hersins í tengslum við grófa misnotkun
fanga í Abu Ghraib-fangelsinu í Írak. Formaður
nefndarinnar, Carl Levin, segir allt benda til
þess að misnotkunin hafi ekki verið verknaður
einungis fárra hermanna heldur hafi þeir að öll-
um líkindum unnið samkvæmt fyrirmælum.
Bandaríska tímaritið New Yorker greindi frá
því að varnarmálaráðherra Bandaríkjanna,
Donald Rumsfeld, hefði samþykkt á síðasta ári
að yfirfæra þær leynilegu aðferðir sem notaðar
voru í fangelsum í Afganistan yfir til Íraks. Ekki
er vitað hvort ráðherranum hafi verið kunnugt
um hvers kyns aðferðir voru notaðar nákvæm-
lega en hann vissi að þær höfðu leitt til árangurs
við yfirheyrslur. Carl Leven segir að málið
hljóti samkvæmt þessu að ná til efri stjórnstiga.
Talið er að þessar leynilegu yfirheyrsluaðferðir
hafi falið í sér þá misnotkun sem fyrrverandi
fangar í Afganistan hafa kvartað undan, þar á
meðal kynferðislega misnotkun og niðurlæg-
ingu.
Sendiherra Bandaríkjanna í Kabúl sagði á
blaðamannafundi í vikunni að nefnd hefði verið
skipuð til þess að heimsækja bandarísk fangelsi
í Afganistan. Hann sagði að umfangsmikil end-
urskoðun ætti sér stað innan fangelsanna er
varðaði aðstæður og yfirheyrsluaðferðir.
Bandaríkin hyggjast þó ekki breyta stöðu fang-
anna og þeir munu því ekki verða látnir falla
undir ákvæði Genfarsáttmálans þrátt fyrir há-
vær mótmæli mannréttindasamtaka. Fyrrver-
andi starfsmaður leyniþjónustu Bandaríkjanna,
Vincent Cannistraro, sagði nýlega að það hefðu
verið mistök að nota yfirheyrsluaðferðir frá
Afganistan í Írak en að örvænting bandarískra
stjórnvalda vegna týndra gjöreyðingarvopna í
Írak hefði orðið til þess að menn gripu til slíkra
ráða. Þessi ummæli þykja benda til þess að yf-
irheyrsluaðferðirnar í Afganistan hafi verið
langt frá því að vera mannúðlegar.
Á síðasta ári lýsti Alþjóðlegi Rauði krossinn
yfir miklum áhyggjum við Bandaríkjastjórn
vegna ástandsins í Abu Ghraib- og Guant-
anamo-fangelsunum. Colin Powell hefur lýst því
yfir að stjórnin hafi fjallað um málið og að gripið
hafi verið til viðeigandi aðgerða. Það var hins
vegar ekki fyrr en málið kom fram í fjölmiðlum
að hjólin fóru að snúast og fyrsti bandaríski her-
maðurinn var kærður fyrir illa meðferð á föng-
um. Pyntingarnar í Afganistan hafa hins vegar
staðið yfir í tvö ár án nokkurrar athygli. Fang-
arnir hér eru gleymdir og í tvö og hálft ár hefur
bandaríski herinn gert það sem honum sýnist
við fanga sína í Afganistan án þess að það hafi
heyrst múkk frá alþjóðasamfélaginu.
Neikvæð áhrif á almenning
Meirihluti Afgana er hlynntur veru banda-
ríska hersins í Afganistan og baráttu þeirra
gegn uppreisnarmönnum talibana, en fréttir af
illri meðferð afganskra fanga hafa haft verulega
neikvæð áhrif á afstöðu almennings til Banda-
ríkjanna. Afganskir fjölmiðlar hafa fylgst vel
með málinu eftir að lögreglumaðurinn Siddiqui
kom fram opinberlega og um fátt er annað talað
í umræðuþáttum í útvarpinu en slæma meðferð
fanga í landinu. Bandaríkjastjórn hefur reynt að
gera lítið úr ásökununum og ríkisstjórn Hamids
Karzais forseta hefur haldið að sér höndum.
Málið er á mjög viðkvæmu stigi því fyrstu lýð-
ræðislegu kosningarnar eru í nánd og lítið þarf
að bregða út af til að öllu verði komið úr jafn-
vægi.
Engin almennileg svör hafa fengist á blaða-
mannafundum bandaríska hersins síðustu daga
hér í Kabúl þrátt fyrir að fréttum um misnotkun
fanga í Afanistan fjölgi. Sameinuðu þjóðirnar
hafa varað bandarísk stjórnvöld við því að taka
ekki hart á málinu og hafa hvatt herinn til að
gera rannsóknargögn í tengslum við misnotkun
fanga opinber. Það þykir hins vegar ólíklegt að
Bandaríkjamenn verði við þeirri ósk. Á meðan
bíða örvæntingarfullar fjölskyldur eftir fréttum
af ættingjum sínum sem ekki er vitað hvort séu
dauðir eða lifandi. Í hópnum eru ungir menn
sem gerðu lítið annað af sér en að velja rangan
málstað til að berjast fyrir, sennilega af því þeir
áttu ekki kost á öðru sökum fátæktar. Pynting-
arnar munu að öllum líkindum halda áfram á
meðan fangarnir lúta ekki ákvæðum Genfar-
sáttmálans. Ljóst er að grófar aðferðir Banda-
ríkjamanna við yfirheyrslur og misnotkun fanga
hafa stofnað uppbyggingunni í Afganistan og
Írak í hættu en það er fyrst og fremst banda-
ríski herinn sem beðið hefur mikinn álitshnekki.
Það verður langt þangað til litið verður á Banda-
ríkjamenn sem boðbera friðar, réttlætis og
mannréttinda í þessum heimshluta.
Álitshnekkir í Afganistan
Afdrif afganskra fanga í Guant-
anamo-herstöðinni og fangelsum
Bandaríkjahers í Afganistan hafa nú
hlotið aukna athygli í kjölfar upp-
lýsinga um pyntingar í Abu Ghraib-
fangelsinu í Írak. Helen Ólafsdóttir í
Kabúl segir hér frá viðbrögðum
Afgana, en afgönsk mannréttinda-
samtök hafa ítrekað reynt að vekja
athygli á ástandinu.
Reuters
Fangi horfir út í gegnum rimla fangelsis í borginni Kandahar í Afganistan.
Höfundur er stjórnmálafræðingur.