Morgunblaðið - 23.05.2004, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MAÍ 2004 27
ar til Dunedin, hápunkti ferðarinnar,
og var vakin og sofin yfir því að hún
yrði sem best skipulögð. Winifred,
sem kennir fiðluleik, er mikill og eft-
irminnilegur persónuleiki og hélt
rausnarboð fyrir þá ættingja sem til
náðist í Dunedin til að hitta mig. Voru
veitingar frambornar í stórri stofu,
sem enn er notuð til fiðlukennslu og
þar skapaðist hin magnaðasta ættar-
stemning. Ég var sífellt að sjá eitt-
hvað í útliti þeirra, fasi eða viðbrögð-
um, sem minnti á íslenska ættingja,
lífs eða liðna. Fólk vildi heyra sem
allra mest um hverjir ættingjarnir á
Íslandi væru, hvernig væri með börn
okkar og barnabörn, hvernig íslensk-
an hljómaði, hvort við værum með
tölvupóst og SMS spurðu unglingarn-
ir, o.s.frv., o.s.frv.
Upphafið
Upphaf sögu þessara Nýsjálend-
inga af Ráðagerðisætt er, eins og áð-
ur segir, fæðing ættmóðurinnar 6.
ágúst 1854.
Það er fokið í spor Kristínar Tóm-
asdóttur á leið hennar til Nýja-Sjá-
lands. Skjalfest er um fæðingu henn-
ar 1854 og hjúskap á Nýja-Sjálandi
1883. Ef hún hefur farið að heiman
20–25 ára gömul, 1874–1879, vantar
u.þ.b. 5 til 10 ár í sögu hennar. Sam-
kvæmt giftingarvottorði, sem ég fékk
ljósrit af í Dunedin, voru Christina og
George Joseph Brookes trésmiður,
bæði með fasta búsetu í Dunedin, gef-
in saman í hjónaband 26.september
1883 af Donald M. Stuart presti. Hún
er þá 29 ára, skráð fædd í Danmörku,
og hann 38 ára, fæddur í Englandi. Á
legsteini hjónanna í gamla kirkju-
garðinum í Dunedin er dánardagur
George Brookes tilgreindur 10. ágúst
1918 og var hann þá 72 ára og Chris-
tenu 4. september 1935 og hefur hún
þá verið 81 árs og þar af leiðandi
ekkja í 17 ár.
Þau Christena og George Brookes
áttu sjö börn, fædd 1884–1895: Thom-
as, Henriettu Emely, Anne Matilda,
George, May Ethel, Emmu, og það
yngsta Cyril Norman. Son sinn
George misstu þau af völdum voða-
skots árið 1906, þá 15 ára. Fólkið sem
ég hitti voru afkomendur Henriettu,
Emmu og Cyrils, aðallega í Dunedin
en einnig í Auckland, Wellington og
Christchurch.
Daginn eftir ættarmótið var farið
með mig í allmikið og merkilegt
ferðalag. Var ekið í einar 4 klst. með
skoðunarhvíldum í norðvestur upp í
fjallahérað við Suður-Alpana svoköll-
uðu, til þorpsins Wanaka en þar eiga
ættmenni tvo sumarbústaði. Á leið-
inni sá ég í fyrsta skipti þær miklu
hjarðir sauðfjár, sem sums staðar eru
aðal búskapargreinin. Nú hefur sauð-
fjárrækt hins vegar dregist saman og
annað, ekki hvað síst vínrækt, komið í
staðinn. Var dvalið í Wanaka í fjóra
daga og m.a. farið yfir brattan fjalla-
kambsveg til Queenstown, sem er
helstu náttúruperlu svæðisins. Þetta
svæði nýtur um þessar mundir
heimsfrægðar sem einn aðaltöku-
staður verðlaunakvikmyndarinnar
Hringadróttinssögu. Þorpið Wanaka
er við samnefnt vatn en fjöllin í kring
eru um 2.000–3.000 m að hæð. Nátt-
úrufegurðin er mikil og gróðursæld,
einkum trjávöxtur, en ég var þarna í
hásumarmánuðinum febrúar, sem
svo er á Suðurhveli, og má nærri geta
hve ánægjulegt dvölin með þessum
frábæru, nýuppgötvuðu ættingjum
var!
Þegar rætt var við Winifred um
ættarfróðleik í þessari ferð, setti hún
mig í gamlan ruggustól sem hafði
verið fast sæti Cyrils föður hennar.
Winifred veit lítið um afa sinn
George, sem lést áður en hún fæddist,
en amman eða „Granny“ , eins og
Christena var kölluð, stendur henni
lifandi fyrir hugskotssjónum enda
Winifred um tvítugt þegar hún lést.
Innan ættarinnar var það ætíð tekið
gott og gilt að hún hefði farið að heim-
an vegna missættis um þá ráðstöfun
að hún ætti að eiga mann, sem hún
vildi fyrir engan mun giftast. Um ferð
hennar til Dunedin eða hvar eða
hvernig þau George hittust hafði ekki
verið neitt rætt í hennar eyru. Hún
hélt að vel gæti verið að þau hefðu
orðið samskipa til Nýja-Sjálands. Þar
var þá mikill skortur á gjafvaxta
stúlkum svo ekki var óeðlilegt að hún
giftist fljótt og stofnaði heimili. Þau
hafa alla tíð dáð sína „ Granny“ sem
hina mestu kjark- og dugnaðarmann-
eskju. Hún ól börn sín upp í guðsótta
og góðum siðum og halda þau minn-
ingu hennar í heiðri. En skapstór var
hún og minnist Winifred þess að hafa
verið með henni í sporvagni þegar
farmiðinn fauk úr hendi ömmunnar
og þýddi lítið fyrir miðarukkarann að
vefengja það. Hún hélt uppi ströngu
eftirliti með lestrarefni Winfred í
æsku og rak í burtu þá krakka sem
hún taldi óæskilegan félagskap. Það
var nokkur fjárhagsbyrði fyrir fjöl-
skylduna að Christena héldi eigið
heimili í ellinni, en það vildu þau og að
hún héldi fullri reisn.
Stríðið ekki rætt
Cyril undi sér best í ruggustólnum
og sagði dóttir hans hann gjarnan
hafa verið með reykjarpípu í hend-
inni. Cyril gat hins vegar ekki reykt
vegna þess hve lungu hans höfðu
skemmst af eiturgasinu í stríðinu.
Stríðið var hins vegar aldrei rætt og
Cyril minntist aldrei einu orði á veru
sína í nýsjálenska hernum eða yfir-
leitt dvölina í Evrópu. Þetta var víst
ekki óalgengt meðal þeirra Nýsjá-
lendinga sem sneru heim, en í þessum
hörmungum höfðu bestu vinir
margra fallið við hlið þeirra og þessi
hræðilega návist við dauðann varð að
lokaðri bók gagnvart öllum öðrum. Á
einum vegg í stríðssafninu í Auckland
eru ummæli hermanna. Þar segir
einn: „Ég kom heim til foreldranna
og fjögurra systkina fyrir 60 árum.
Hvorki þá né síðar hef ég mælt eitt
orð um stríðið.“
Í aðeins eitt einasta skipti svo vitað
sé til ræddi Cyril um stríðið og var
það samtal við einkasoninn Bill, sem
stóð lengi nætur. Ekki hafði Bill gert
öðrum grein fyrir því hvað þeim feðg-
um fór á milli er hann féll skyndilega
frá og því ekki vitað hvað það var sem
faðir hans sagði honum er hann loks-
ins opnaði sig um þessa lífsreynslu og
væntanlega mikla skugga á lífi hans.
Þá var víst margt bréflegt til tengt
veru hans í hernum og það litla sem
varðveist hafði var mér sýnt. Miklum
hluta bréfanna var hins vegar því
miður fleygt í misgripum eftir dauða
Bills og því til að mynda ekki upplýst
af hverju fjölskylda Cyrils vissi ekki
um dvöl hans hjá frændfólkinu í
London árið 1915. Um þetta hefur
hann þó vafalaust skrifað foreldrun-
um og eitthvað var það sem Bill ætl-
aði að fræða okkur Örn um í Tuscon
1990. Það eina sem ég frétti hjá
frændfólkinu á Nýja-Sjálandi um
styrjaldarárin var að Cyril hefði hér
um bil drepið sig við að koma hand-
sprengju á Tyrki í návígi. Annað var
ekki um það fjallað.
Fékk kökk í hálsinn
Ég skoðaði skrautritað „Certifi-
cate of the Services in the New Zea-
land Expeditionary Force of LCpl
Cyril Norman Brookes“. Þar segir að
Cyril hafi verið á vígstöðvum á
egypska herstjórnarsvæðinu 1915 og
því vestur-evrópska 1916–17 og verið
sæmdur heiðursmerkjunum: 1914–15
Star, British War Medal og Victory
Medal. Herþjónustan var 2 ár og 335
dagar en hann var leystur frá her-
þjónustu árið 1917, þungt haldinn á
spítala. Heiðursmerki þessi og reynd-
ar fleiri geymir Elaine Brookes.
Cyril Brookes var illa farinn þegar
hann komst heim eftir stríðslok. Ég
heyrði að hann hefði verið á hækjum
þegar hann giftist eiginkonu sinni
Violet Jane, sem var honum tveimur
árum yngri. En Cyril náði sér furð-
anlega og hefur greinilega verið harð-
ur og ákveðinn í að gera það besta
sem varð úr lífinu. Þeirra börn eru
áðurnefnd Winifred og William, eða
Bill, og svo sonurinn Norman sem
lést ungur. Þótt heilsa Cyrils hafi alla
tíð verið léleg, gerði hann vissulega
sitt til að sjá fjölskyldunni farborða.
Hann lærði það sem nú er kallað graf-
ísk hönnun og hafði vinnu við það í
verksmiðju ekki alllangt frá heim-
ilinu. Þau segja hann hafa verið með
afbrigðum geðgóðan og börn voru
hans yndi. Síðasta myndin ssem tekin
var af Cyril sýnir hann með sonarson
sinn Geoffrey í fanginu. Cyril varð
snemma hvíthærður og gat verið
rauðþrútinn í framan af öndunarerf-
iðleikum. Hann féll niður örendur við
hliðið að húsinu sínu 63 ára að aldri og
hafði þá verið á eftirlaunum í nokkur
ár. Ég tók mynd af hliðinu en húsið
stendur á fallegum stað í hlíð, fékk
kökk í hálsinn.
Systur Cyrils, dæturnar fjórar,
voru konur fríðar og föngulegar. Sú
elsta þeirra Henrietta, var bæði skap-
stór og bráðskemmtileg, og sagði
Winifred að stjórnmálaskoðanir
þeirra Cyrils og Henriettu hefðu lítt
farið saman og deildu þau oft um
þjóðmál. Hún segir föður sinn hafa
verið frekar vinstrisinnaðan en
Henriettu aldeilis ekki. Heldur þótti
henni ein fjölskylduveislan dauf og
stökk hún þá upp á borð og dansaði.
Hún var gift Harold Austen og meðal
barnanna var fegurðardísin Dale,
sem varð Ungfrú Nýja-Sjáland 1923 í
árdaga slíkra keppna. Var mér gefin
mynd af Dale í blóma lífsins, hinni
fegurstu ungu konu. Hún reyndi fyrir
sér í Hollywood og lék þar í tveimur
kvikmyndum á tímum þöglu mynd-
anna. Dale bjó með Normu Shearer,
frægri leikkonu, en lífið í Hollywood
átti ekki við hana og hún sneri aftur
heim. Til er forsíða af dagblaði stað-
arins þar sem henni er fagnað sem
hetju á járnbrautarstöðinni við heim-
komuna. Þar stendur amma hennar –
„Granny“ – sem ætíð var svartklædd
í mjög síðu og var þá ekkert sérlega
blíð á svip, sýndist mér. Dale giftist
síðar til Ástralíu og lifir enn, hátt á tí-
ræðsisaldri, í Sidney. Mynd mín af
Dale Austen minnir mikið á Svölu,
föðursystur mína, sem ekki þótti hafa
útlitið á móti sér.
Það eru eyður varðandi vitneskju
og heimildir í þessari frásögn. Hún
hefst um miðja 19. öld í Ráðagerði á
Seltjarnarnesi og einhvern tíma um
eða eftir 1875 fer Kristín Tómasdóttir
af landi brott. Hún á ekki afturkvæmt
á heimaslóðir og gerist greinilega
þátttakandi í öðru, fjarlægu þjóð-
félagi af heilum hug. Hvað það snertir
er saga hennar reyndar sú hin sama
og þúsunda Íslendinga, sem á þessum
tíma fluttust til Norður-Ameríku. Við
vitum víst lítið um hversu margar
ungar konur hurfu á brott af ýmsum
ástæðum. Engu að síður er ástæða
þess að Kristín lagði í sína löngu ferð
skiljanlega mjög í hugum afkomenda
hennar. Ljóst er að hún heldur sam-
bandi við Margréti systur sína og
kemur syni sínum úr stríðshremm-
ingum til systurdótturinnar í London.
Systurnar höfðu greinilega nokkurt
samband eftirleiðis og á Margrét að
hafa sent systur sinni íslenskan rokk.
Þær virðast hins vegar alfarið hafa
litið á slíkt sem einkamál og Chris-
tena Brookes vildi sýnilega hafa frið
fyrir íslenskri fortíð sinni og frænd-
garði sem Margrét virðir. Það var ár
á milli þeirra. Margrét Tómasdóttir
er fædd 1853 og Kristín 1854 og ekki
varð langt á milli dánardægranna:
Kristín deyr 1935 og Margrét 1937.
Þar með virðast úr sögunni allir
möguleikar afkomenda þeirra á að
rekja frændsemi allt til þess að Örn
kemur til skjalanna.
Þá er það að reynsla Cyrils Brook-
es í stríðinu var skelfilegri en orðum
tekur. Hann velur sömu leið og mar-
girnýsjálenskir hermenn - að strika
yfir þennan kafla lífs síns. Hann
minnist aldrei á vígvellina og vinina
sem hann þar missti, frekar en það
hefði ekki gerst. Þess vegna verður
að sjálfsögðu ekki heldur neitt fram-
hald á samskiptum Cyrils við fjöl-
skyldu Einars og Valgerðar í Lond-
on. En það breytir því ekki að honum
hafði verið tekið af ástúð af frænd-
fólkinu í Hounslow og að hann var af-
ar hjartfólginn litla frændanum og
hebergisfélaganum, Erni. Draum-
sýnir Arnar frænda míns voru raun-
verulegar. Á því leikur enginn vafi í
mínum huga, né heldur að hans var
vitjað af Cyril einmitt til þess að sam-
skipti kæmust á milli fjölskyldnanna.
Ég átti að fara í þetta ferðalag, svo
forlagatrúar er ég.
Hringnum lokað
Frændfólkið skildi strax að mér
bæri að heimsækja legstaði þessara
ættingja. Það gerði ég og fór með
blóm á leiði George og Christena
Brookes, sem liggja í gamla kirkju-
garðinum í Dunedin, en hjá þeim er
grafinn sonurinn George, sem lést af
slysaskoti 1906 og barnabarnið
Thelma Austen sem dó barnung. Ég
er talinn fyrsti Íslendingurinn sem
kemur að leiði þeirra.Winifred fór svo
með mig einn sólríkan sumardag að
leiði foreldra sinna og sonarins
Normans, sem þau misstu 18 ára
gamlan, en þau eru grafin í aðalgraf-
reit borgarinnar á fögrum stað þar
sem glitrandi hafið blasti við. Ég sat
þar og hugleiddi góða stund. Við báða
grafreitina fann ég til mikillar ná-
lægðar við þetta frændfólk mitt, sem
mér þykir vænt um. Tilfinningar, sem
get ég ekki útskýrt nánar, voru að
mér leið vel og fann til léttist eða frið-
ar í sálunni eftir þessar heimsóknir í
kirkjugarðana. Ég hafði, að mér
fannst, lokað ákveðnum hring og átti
að vera þarna.
Höfundur er fyrrverandi sendiherra.
Uppgönguleiðin sem Wellington-sveitinni var ætluð í innrásunum í Dardanellasundinu.
Síðasta myndin af Cyril með nýfæddan sonarson, Geoffrey.Ruggustóll Cyrils.