Morgunblaðið - 23.05.2004, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 23.05.2004, Qupperneq 33
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MAÍ 2004 33 BJARNI Jónsson listmálari sýnir þessa dagana ný verk í Eden í Hveragerði. Kennir þar margra grasa. Bjarni er þekktastur fyrir þjóðlífsmyndir sínar, einkum heimildarmyndir um sjósókn Ís- lendinga á tímum áraskipanna, og getur að líta nýjar myndir af því tagi á sýningunni. En þar eru einnig fjögur glæný abstrakt- málverk en langt er síðan Bjarni hefur sýnt slík verk opinberlega. „Ég er búinn að fara í gegnum alla stíla í myndlist,“ upplýsir Bjarni. „Ég hef málað allar götur síðan ég man eftir mér og fyrstu myndina sem fór á sýningu frí- stundamálara gerði ég þegar ég var tíu ára. Ég heillaðist mjög ungur af abstraktlistinni, mönnum eins og Hjörleifi Sigurðssyni, Valtý Péturssyni og Herði Ágústs- syni.“ Bjarni var einmitt að mála þannig myndir þegar Lúðvík Kristjánsson og Kristján heitinn Eldjárn fóru þess á leit við hann að hann tæki að sér að teikna myndir í ritverkið Íslenska sjáv- arhættir. „Það fór mikill tími í það verkefni, ferðalög vítt og breitt um landið, sem tóku allan minn tíma um langt skeið. Síðan stakk Kristján upp á því að ég gerði málverk sem sýndu þetta líf, sem Íslenskir sjávarhættir fjölluðu um.“ Þar með var teningunum kast- að. Bjarni hófst handa við að skrásetja sjósókn Íslendinga í olíu á striga og nú hefur hann enga tölu á þeim fjölda verka sem hann hefur málað um dagana. Hann fær iðulega pantanir úr ýmsum áttum. „Þessar myndir eru nú í eigu margra aðila. Alþingi keypti um sextíu verk fyrir Þjóðminjasafnið fyrir nokkru. Þær eiga að koma á væntanlegt sjóminjasafn, auk þess sem byggðasöfnin úti á landi eiga að fá tækifæri til að sýna þær tímabundið. Útgerðarmenn hafa líka keypt mikið af mér gegnum tíðina og það er svo merkilegt að þeir vilja miklu frekar myndir af áraskipum en skuttogurum.“ Á síðasta ári gaf Happdrætti Háskólans út Sjávarspilin, sem prýdd eru árskipamyndum eftir Bjarna, og gaf þau öllum sem spila í happdrættinu í tilefni af sjötíu ára afmæli sínu. „Happ- drættið fékk leyfi hjá mér til að birta myndirnar sem Alþingi keypti af mér. Ég hef orðið var við það að margt fólk sem ekki spilar í happdrættinu langar að eignast spilin og vonandi verður hægt að halda útgáfunni áfram,“ segir Bjarni. Útlendingar áhugasamir Bjarni hefur sýnt áraskipa- myndirnar víða. Skemmst er að minnast sýningar í Síldarminja- safninu á Siglufirði fyrir tveimur árum og á næsta ári mun hann sýna í Saltfisksetrinu í Grindavík. Þá hefur komið til tals að hann sýni í Vesturfarasetrinu á Hofsósi. Bjarni segir útlendinga sem hingað koma sýna áraskipamynd- unum mikinn áhuga. „Þeim er það hulin ráðgáta hvernig Íslend- ingar gátu stundað sjóinn á þess- um bátum. Þeir skilja ekki heldur hvers vegna ein mesta fisk- veiðiþjóð í heimi á ekki betra sjó- minjasafn. Vonandi stendur það þó til bóta.“ Bjarni ver drjúgum tíma í gerð skipa- og þjóðlífsmynda. Samt hefur hann aldrei gleymt ab- straktmálverkinu. „Margir hafa ekki hugmynd um að ég fæst við þetta líka. Ég hélt stóra sýningu á abstraktverkum í gamla lista- mannaskálanum 1962 og tók í kjölfarið þátt í mörgum samsýn- ingum. En það er langt síðan ég hef sýnt abstraktmyndir op- inberlega.“ En nú er sumsé komið að því. „Mér fannst tilvalið að hafa fjórar nýjar abstraktmyndir á sýning- unni nú til að brjóta hana upp. Sýna fólki þessa hlið á mér líka.“ En hvað með yrkisefnið? Er Bjarni til sjós í abstraktmynd- unum líka? „Nei, nei,“ segir hann og hlær. „Ég held mig þar á þurru landi. Þetta eru bara form á fleti.“ Sýning Bjarna í Eden stendur til 31. maí. Bjarni Jónsson við eina af myndum sínum, Hjalti landnámsmaður heygður. Eitt af abstraktverkum Bjarna á sýningunni í Eden í Hveragerði. Á þessari teikningu lýsir Bjarni Jónsson listmálari hugmyndum sínum um gamla verbúð í Grímsstaðavörinni við Ægisíðuna. Þar yrði reist verbúð, fiskihjallur, fiskitrönur og árabátur að hætti áraskipaaldarinnar. Það er hugmynd Bjarna að ráðinn yrði gæslumaður, jafnvel gamall sjómaður sem myndi endurvekja þarna gamla tímann og jafnvel komið upp veit- ingaaðstöðu í verbúðinni. „Ég er sannfærður um að þetta myndi njóta hylli, einkum hjá útlendingum sem sækja okkur heim,“ segir Bjarni. Áraskip og abstraktverk AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111  Ársalir- fasteignamiðlun  Ársalir- fasteignamiðlun  Nýttu þér áratuga reynslu okkar og traust í fasteignaviðskiptum Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali. Ársalir FASTEIGNAMIÐLUN Engjateigi 5 105 Rvk 533 4200                   ! "# $   % & '(  )))*                   !   " " #  $%$&  #         '(        " " !   '  )     * ) "  +  ,-  ,--     %%.//% " # ) #  0   % 1" " "#2"    !   ( & " // #    ) '    ' )   " '  )  3 2        " +    45     )   6 0 7/( &/7 8 '#     "  45     )   999"0 $   *  % * ) # 7/   ' #   +   # !   :  #  '   " "             %%7             '  0   ) "   %%7     ( # () (  '  )  6 0 &77%;;              ' #   +   # !   +  * % * )  (  (, * (&   !-% *   (, . (& '   " #  " '  )  (   # " "   2  ( 00< "   ' )   )    45     )   6 0 7/( &/7 8 '#  = >" 7/ %7& /* 0   45     )    7/7? 6 0 7/( &/7 8 '# 999"0
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.