Morgunblaðið - 23.05.2004, Síða 51
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MAÍ 2004 51
ÞAU eru tímabær orðin hans
Gunnars Ármannssonar í Morg-
unblaðinu þ. 18. maí, þar sem hann
bendir á brýna nauðsyn þess að flýta
takmörkunum á eign-
arhaldi fjölmiðla. Und-
anfarnar vikur hefur
átt sér stað mikill darr-
aðardans fjölmiðla og
stjórnarandstöðu í
kringum eitt frumvarp.
Stjórnarandstaða vill
norskt fjögurra ára
málþóf um málið – og á
meðan væri Baugs-
veldið og önnur við-
skiptastórveldi búin að
eignast þá fjölmiðla
sem þeir geta og hafa
áhuga á – því áhugann
vantar sannarlega ekki.
Að eiga fjölmiðil þýðir
aukin völd í samfélagi.
Umræðan í Baugsmiðl-
unum síðustu vikurnar
hefur rennt stoðum
undir kenningar mál-
vísindafræðimannsins
Noam Chomsky sem
hann reifar í bók sinni
„Manufacturing Con-
sent“ um að í vestræn-
um samfélögum séu
fjölmiðlar í æ ríkari
mæli notaðir af land-
stjórnum og stórfyrirtækjum til að
móta skoðanir almennings. Baug-
smiðlar hafa svo sannarlega verið
trúir eigendum sínum upp á síðkastið
og bliknar gamli Þjóðviljinn í sam-
anburði. Gömlu flokksblöðin voru
undir stjórn flokka sem höfðu þó
ákveðnar hugsjónir um mismunandi
leiðir til betra lífs fyrir fólkið í land-
inu. Hugsjónir fyrirtækjamiðlanna
stefna einungis í tvær áttir: aukna
peninga og aukin völd. Stórfyr-
irtækin seilast víða þessa dagana og
er skemmst að minnast varnaðarorða
Sigurbjörns Sveinssonar, formanns
Læknafélags Íslands, í ritstjórn-
argrein fjórða tölublaðs Læknablaðs-
ins á þessu ári, þar sem hann varar
við of miklum afskiptum lyfjafyr-
irtækja af læknum hér á landi. Full-
yrðingar Guðmundar Steingríms-
sonar um skerðingu
fjölmiðlafrumvarpsins á
frelsi í pistli hans í RÚV
þ. 19. maí síðastliðinn er
í þversögn við fyrr-
nefndar kenningar
Chomsky – því meira
sem eignarhald risafyr-
irtækja á fjölmiðlum er
þeim mun meir skerðist
hið raunverulega frelsi.
Völd fjölmiðla eru óum-
deilanleg – umræður á
kaffistofum og við
kvöldverðarborð lands-
manna snúast að
stórum hluta um það
sem er efst á baugi í
fjölmiðlum hverju sinni.
Þetta vita Baugsmenn
mætavel og er hama-
gangurinn slíkur í
kringum þetta mál að
hann hefur yfirskyggt
önnur alvarleg mál svo
sem lokun deilda á
Landspítala – háskóla-
sjúkrahúsi vegna fjár-
skorts, ólögmætar
áfengisauglýsingar sem
beint er gegn æsku
þjóðarinnar, vanda smábátaútgerðar
í landinu, erfitt atvinnuástand á Suð-
urnesjum og margt fleira. Sá sem
eignast fjölmiðla eignast um leið
hluta af þjóðarsálinni. Lýðræðið okk-
ar er eitt eilífðar smáblóm og eitt af
hlutverkum fjölmiðla er að hlúa að
því með frjálsum og óháðum fréttum.
Við þurfum að slá skjaldborg utan
um það frelsi – og treysta kjörnum
þingmönnum okkar til að gera það
hratt og örugglega.
Baugs lítið
blóm eitt er
Jóhannes Kári Kristinsson
skrifar um fjölmiðlafrumvarpið
’Baugsmiðlarhafa svo sann-
arlega verið trúir
eigendum sínum
upp á síðkastið
og bliknar gamli
Þjóðviljinn í
samanburði. ‘
Jóhannes Kári
Kristinsson
Höfundur er læknir.
FASTEIGNASALA
HÁTÚNI 6a
SÍMI 512 1212 FAX 512 1213
Reykás 26, 110 Reykjavík. Opið hús í dag frá kl 13-15. Um er að ræða mjög fallega
114 fm 4ra herbergja endaíbúð í 3ja hæða litlu fjölbýlishúsi með snyrtilegri aðkomu
ásamt 26 fm bílskúr í Selásnum í Reykjavík. Öll íbúðin er með eikarparketi.
Forstofa með ljósum viðarskápum. Borðstofa og stofa í alrými. Suðursvalir. Opið
eldhús með fallegri ljósri viðarinnréttingu. Úr forstofu er gengið inn í hol
(sjónvarpshol) og þaðan í svefnherbergin og baðherbergið. Öll herbergin eru sérlega
rúmgóð. Rúmgott baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Rúmgóð
geymsla á neðstu hæð ásamt lítilli sameiginlegri hjólageymslu. Verð 17,9 millj.
Jakob og Vanda taka vel á móti væntanlegum kaupendum í dag frá kl. 13-15.
OPIÐ HÚS - REYKÁS 26